Helgarpósturinn - 15.08.1980, Qupperneq 14
14
Föstudagur 15. ágúst 1980
JielgarpósturinrL
SigurðurSigurösson, sem nú er
hættur hjá útvarpinu, og kominn
á eftirlaun hefur i áratugi verið
eftiriæti eftirhermanna. Það er
kannski ekkert skrýtið, röddin er
sérstæð, og hefur i sér einhvern
sönglanda sem auðveit er að lfkja
eftir. „Éghef nú bara haft gaman
af þessu satt að segja”, segir Sig-
urður. „Það er helst að mér leið-
ist þegar hrópað er á eftir mér
þetta sivinsæla „komiði sæl”.
Það getur veriö dálitið þreytandi.
Annars er ég mest hissa á hvað
þeir endast til að nota röddina
mina. Þeir eru enn að þessu, þó
það sé löngu hætt að heyrast I
mér”.
Sigurður segist vera hættur
að finna fyrir þessum eftir
hermum. „Mér varð svolitið
hverft viðþegar ég heyrði
þetta I fyrsta skipti hjá
Ómari, en það var kannski
meira vegna þess að allir
viðstaddir sneru sér við og
fóru að glápa á mig.
Það virðist eitthvað i
röddinni sem gerir hana svona
auðvelda fyrir þessa menn.
Þó er það nú misjafnt.
Ég man til dæmis eftir
þvi að fyrir mörgum árum átti
einn af okkar ágætu ieikurum og
eftirhermum að herma eftir mér i
útvarpiðá gamlárskvöld. Ég var
þá að vinna niðri á innheimtu, og
m ER ALVE
Siprðui' Sigurðsson f lleipititsisviðlaii
hann kemur til min með blaðiö og
biður mig að lesa yfir fyrir sig,
það sem hann ætlaði að láta mig
segja. Ég geri það, og hann reynir
siðan að gera eins, en gengur illa.
Við reynum nokkrum sinnum i
viðbót, en það er alltaf sama sag-
an. Aölokum segi égviðhann: „A
ég ekki bara að koma upp og lesa
þetta fyrir þig”. Og það varö úr,
ég las þetta i útvarpið, með örlitið
ýktum áherslum. Það fyndnasta
viðþetta var að um kvöldiðþegar
þessu var útvarpað var ég stadd-
ur i húsi með fleira fólki, og eftir
útscndinguna kom einn að máli
við mig og sagði: „Það er merki-
legt með hann þennan, að honum
ætlar aidrei að takast að herma
almennilega eftir þér.”
Sigurður Sigurðsson var
iþróttafréttamaður útvarpsins i
áratugi, og sjónvarpsins lika,
fyrstu fjögur árin eftir að það
byrjaði. Hann var spurður hvort
hann fengi ekki örlltinn fiðring nú
þegar ólympiuleikarnir eru efst á
baugi.
„Jú, það er ekki hægt að neita
þvi. Ég var á þrennum ólympiu-
leikum sjálfur, og veit þvi nokkuð
hvernig þetta gengur allt fyrir
sig. Þekki andrúmsloftið, sem er
stórkostlegt. Það fer ekkert milli
mála að þetta er hápunktur alls
sem tengist iþróttum, og þá er
alveg sama þótt leikarnir núna
hafi 1 gamni verið kallaðir Opna
sovéska meistaramótið. Þeir
hirtu kúfinn af verðlaununum, og
þær sextiu þjóöir sem sátu heima
urðu þess að sjálfsögðu valdandi
aðekki var mjög mikið að marka
úrslitin. Annars virtist manni
leikarnir minna pólitiskir en von
var á. Svo fannst mér lika ein-
kennilegt að á þeim_ var engin
stjarna, enginn einn iþróttamað-
ur sem skar sig úr. Þetta eru
eiginlega fyrstu leikarnir sem ég
man eftir sem slikt gerist. Nú var
enginn Zapotek, eða Wilma
Rudolph, eða Spitz.
Annars er ég kominn voðalega
mikið útúr þessu. Og þegar ég
hætti var löngu nóg komið. Það á
enginnað vera i svona starfi leng-
ur en I svona fimm ár. Ég var bú-
inn að reyna aö komast úr þessu
starfif mörg, mörg ár áður en það
tókst. Það var alltaf eitthvað. Svo
var ég með iþróttirnar bæði i út-
varpi og sjónvarpi í fjögur ár, og
það er ekki leggjandi á nokkra
sál. Það er æskilegt að hafa örari
skipti i þessu. Jón Asgeirsson
var i þessu i mjög hæfilegan tima,
4-5 ár.”
Nú höfum viö fengið Hermann
Gunnarsson. Hann er frábær og
eins og fæddur i starfið, fótbolta-
lýsingar hans eru stórkostlegar
ogmeira aðsegjaég hlustaa þær.
Hann hefur lýst öðrum iþrótta-
greinum með ágætum og mætti
gjarnan gera meira af þvi aö lýsa
og ætti að bæta við greinum. En
enginn skyldi dveljast of lengi við
þetta starf."
Faslir kjaltar
„Mér er alveg djöfullega við
fastakjafta. Þaö er alveg að gera
útaf viö útvarpið að þar eru sömu
mennirnir að tala jafnvel áratug-
um saman. Þaðvar méraðkenna
„Enginn sem vinnur í útvarpi ætti
að koma nálægt sjónvarpi”
„Ég var gestur heima hjá mér á
þessum árum”
„Fréttamenn og blaöamenn eru
stórveldi hver fyrir sig”
„Ef ég væri útvarpsstjóri mundi
ég ekki taka mark á nefndinni
heldur byrja bygginguna”
„Ég var alltof lengi hjá útvarp-
inu”