Helgarpósturinn - 15.08.1980, Síða 16
0^ Tilbrigði við
^ austurlenskt buff
Þaö er ekki einungis að ólafur
Lárusson myndlistarmaður
setji saman myndlistarverk og
fremji gerninga, heldur hefur
hann lagt stund á matargerðar-
list annað veifið. Og að þessu
sinni er hann höfundur helgar-
réttarins sem hann sagði vera
bæði fljótlegan og ódýran. Að
vísu sagði hann réttinn vera
hálfstolinn og „improviserað-
an”, en hann ætti ekki að vera
verri fyrir það. Og það sem
Olafur notar i matargerðina er:
600 gr. nautagúllash
kúfuð teskeið af karrý
4 bananar
1/4 1 rjómi
salt og pipar eftir smekk
3 dl kjötkraftur
Kjötið er skorið niður i sneið-
ar og brúnað á pönnu. Það er
saltað og piprað eftir smekk
eins og fyrr segir og mælti ólaf-
ur með þvi að kryddið væri ekki
sparaö. Kjötið er siðan lagt i
eldfast mót og kjötkraftinum
hellt yfir. Þá er um það bil
helmingnum af karrýinu stráð
yfir. Bananarnir eru skornir
eftir endilöngu og lagðir ofan á
kjötið. Og siðan er þeyttur
rjóminnsetturyfir. Að lokum er
svo afganginum af karrýinu
stráð yfir.
Þetta er svo bakað i ofni i
15-20 minútur. Þá myndast ljós-
brún skán ofan á forminu,
Ólafur Lárusson myndiistar-
maöur
merki þess að óhætt sé að taka
formið út úr ofninum.
Með þessu eru borin fram soð-
in hrisgrjón og brúnað kókós-
mjöl með hnetum og rúsinum.
1 brúnaða kókosmjölið eru
notuð 200 gr. af kókósmjöli og
það sem menn eiga til af hnet-
um og rúsinum. Þetta er brúnað
i sinjöri á pönnu þar tii það er
orðið ljósbrúnt og þurrt.
Og þá geta menn farið að
snæða svo framarlega sem þeir
séu búnir að leggja á borðið.
„Og með þessu er langbest að
drekka pilsner”, sagði ólafur
Lárusson að lokum.
Menn geta þvi sparað sér
ferðina i Rikið að þessu sinni.
#2% ►
mm J))QKl@VED,(t,OS!£ Sími i gegnum 02
Bátaleiga Gisting Kaffi — matur
Utigrill
Föstudagur. Steingrímur Stefánsson sér um f jörið +
ógleymanlegt Diskótek á 3. hæð.
Laugardagur. Sama og á föstudag ENDURTEKN-
ING.
Sunnudagur. Diskótek frá 21.00-01.00 Sannkölluð
Hollywood stemning. Mike John kemur beint frá
Hollywood.
Jass áhugamenn vinsamlegast beðnir um að mæta á
staðinn, vegna væntaniegs stofnfundar Jassklúbbs
Akureyrar.
Sumargleðin senn á enda
1 Aðstandendur Sumargleðinnar
i 1980 hafa gert viðreist um landið
i. nú i sumar og um helgina taka
þeir lokasprettinn við undirleik
Ragnars Bjarnasonar. í kvöld
verða þeir i Festi i Grindavik.
Annaðkvöld verða þeir i Stapa og
á sunnudagskvöldið slá þeir botn-
inn i Sumargleðina á Hótel Sögu i
Reykjavik. Skemmtunin byrjar
kl. 21.00 og dans verður stiginn
frá kl. 23.00 og fram eftir nóttu.
Sólbrúnka á 30 þúsund kall
Það er af sem áður var, þegar
það þótti fallegast að vera snjó-
hvitur á skrokkinn og feitur og
þriflegur. 1 dag eiga menn helst
að vera grannir og dökkir á hör-
und. Baráttan við aukakilóin
gengur erfiðlega hjá mörgum, en
sólbrúnkuerhægtaðverða sér úti
um með ýmsu móti, jafnvel þó
menn sæki hana ekki til sólar-
landa. Viða um bæinn er orðið
hægt að komast i sólbað i' sól-
bekkjum fyrir tiltölulega litinn
pening. Snyrtistofan Arsól i
Grimsbæ hefur einn slikan bekk
til afnota fyrir viðskiptavini sina.
Þyrí Dóra Sveinsdóttir sem á
snyrtistofuna í félagi við Katrinu
Þorkelsdóttur sagði að kúrinn i
sólbekknum kostaði 30 þúsund
■ ——— !■
Galdrakarlar
Diskótek
krónur, eni'honum væru 10 skipti
innifalin.
„Ef menn borga fyrirfram
geta þeir fengið 10% afslátt” bætti
hún viö. „Og það er ætlast til að
farið sé i sólbað á hverjum degi”.
Og hverjir koma i sólbað hjá
ykkur?
„Ég myndi segja að það væru
allir aldursflokkar og allar stétt-
ir, bæði karlmenn og konur”.
sagði Þyrí.
Hefur aðsóknin ekki verið
minni í sumar þegar sólin hefur
skinið svona mikið á okkur hér i
Reykjavik?
„Nei, það er svo skritið”, sagði
Þyri. „Margir eru náttúrlega að
vinna og hafa ekki tima til þess að
interRent
car rental
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri Reyigavflc
TRVCGVWIRAUT 14 SKEFAN 9
PHONCS 21/tS * PHONES 3161SA
235* JM91S
liggja i sólböðum á daginn. Svo er
mikið um það að menn með
vöðvabólgu fari i þessi böð og þau
hafa þótt bera árangur i þvi sam-
bandi. Eins er gott fyrir fólk sem
er að fara í sólarlandaferðir að
taka sólböð áður en það fer, þá
sleppurþaðvið að skaðbrenna sig
oger mun fljótara að taka lit þeg-
ar út er komið”.
Erfólk, og þá aðallega kannski
karlmenn, ekkert feimið við að
liggja hér alls nakið fyrir framan
ykkur?
„Nei”, sagði Þyri. „Enda þarf
það ekkert að veraallsnakiö frek-
ar en það vill. Svo er lika hægt að
loka þetta alveg af’.
Er það ekki aðallega ásælni
fólksi brúna litinn sem drifur það
af stað i svona sólböð?
„Það er náttúrlega lika”,
sagði Þyrí. „Fólk er ánægðara
meö sjálft sig þegar það litur vel
út og hefur svolitinn lit og ekki
veitir af hérna á Islandi, þar sem
sjaldan sést til sólar”.
Getur fólk ekki skaðbrennt sig i
þessum bekkjum?
„Nei, ég hef aldrei heyrt það,
ekki i þessari tegund af bekkj-
um”, sagöi Þyri, en bekkurinn
hjá þeim heitir Supersun og fariö
er mjög varlega i sakirnar þegar
menn byrja að sóla sig.
En auk þess að kaupa sér sól-
brúnku, geta menn einnig látið
snyrta andlit sitt og hendur og
fætur, ef þeir hafa áhuga á, hjá
þeim Þyri og Katrinu i Arsól.
EI