Helgarpósturinn - 15.08.1980, Síða 17

Helgarpósturinn - 15.08.1980, Síða 17
Jielgarpásturinn Svart fresskatta- skinn við bakveiki >aö kennir margra grasa þegar litiö er yfir smáauglýsingar síð- degisblaðanna. Hvað i ósköpun- um skyldi reka fólk til þess að auglýsa eftir skinni af svörtum fressketti? Til þess að komast á snoðir um það sló Helgarpósturinn á þráð- inn til viðkomandi auglýsanda sem gaf það svar að það væri gamalt húsráð við bakveiki að leggja slikt skinn við bakið. Og svart verður það að vera vegna þess að i svörtu skinni er meira rafmagn og það gefur meiri hita en annað skinn af mislitum eöa hvitum köttum. Það var ekki laust við að sú sem auglýsti væri eilitið vonsvikin þegar hún heyrði að erindi blaða- manns var einungis að forvitnast en ekki að bjóða henni svart fresskattaskinn til sölu. Enginn hafði haft samband við hana út af skinninu nema einhver stelpu- gopi i sömu erindagjöröum og Helgarpósturinn. En hún var samt ekki á þvi að láta hugfallast. „Ef þetta dugir ekki þá hringi ég upp að Keldum”, sagði hún, staöráöin i aðiprófa þetta gamla húsráð við bakveikinni. EI. Föstudagur 15. ágúst 1980 17 Birgir Gunnlaugsson hljóm- listarmaður er búinn að vera 11 ár i dægurlagabransanum. Það út af fyrir sig væri ekki svo merkilegt ef Birgir væri ekki 24 ára gamall maður. „Ég hótaði þvi þegar ég var 7 ára að verða betri en Raggi Bjarna”, sagði Birgir i samtali við Helgarpóstinn. „Mamma vann þá i Lidó, þar sem Ragnar söng með hljóm- sveit Svavars Gests og hún haf ði mjög gaman af aö striða Ragn- ari á þessu”. Maðuriiin á bak vlð nafnið Birgir Gunnlaugsson Spilaði með Bítlunum Og fljótlega eftir að Birgir hótaði þessu fékk hann gitar sem hann byrjaði aö glamra á. Þegar hann var 13 ára gamall var farið að athuga hvort það myndi borga sig að leyfa piltin- um að spreyta sig í popp- bransanum. Ragnar Bjarnason var látinn prófa hann og gaf grænt ljós. Það var óhætt að kaupa „græjur” handa stráksa. „Ég byrjaði þá strax að spila i Klúbbnum”, sagði Birgir. „Og þótti kunna óvenjulega mikið þetta ungur”. Birgir spilaði siðan með Fjörkum, Triói 72 og með Bitlunum. Það skal tekið fram að það voru ekki ensku bitlarn- ir. Þetta var séríslensk útgáfa og spilaði i Gúttó. „Það hrelldi miðaldrakonur að koma þarna inn og sjá stórt skilti hangandi uppi sem á stóð Bitlarnir. Þær vildu sko ekki vera á balli með bitlahljóm- sveit”, sagöi Birgir. Birgir hefur nú um fimm ára skeið starfrækt hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar. Sú hljómsveit hefur viða komið við sögu. M.a. hefur hún staðið fyrir Hæfileikakeppni Dagblaðsins. „Mér fannst vanta stökkpall fyrir fólk sem er að byrja. Það var fjöldinn allur af fólki sem spilaði kannski á gitar fyrir vini sina i partium og það fólk vant- aði einhvern vettvang þar sem það gat komið sér á framfæri. Ég sá það að heppilegast yrði að koma þessu i kring i samráði viö einhvern fjölmiðil og orðaði þetta við Asgeir Tómasson á Dagblaðinu. Hann talaði við Jónas Kristjánsson ritstjóra og málið var klappað og klárt”. Einnig er Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar einn aðstand- enda Söngleiksins Evitu. Og Birgir fer þar sjálfur með hlut- verk frelsishetjunnar Che Gue- vara. „Ég setti Evitu upp i samráði við Báru systur, við höfum margt brallað saman um dag- ana. Ég hef að visu aldrei dans- að, ég komst aldrei lengra en að taka þrjá kollhnisa hjá henni”, sagði Birgir. Það er Bára hjá Jazzballett- skóla Báru, sem er Bára systir, en þau Birgir og hún eru hálf- systkini. Birgir er fram- kvæmdastjóri Jazzballetts- skólans, auk þess sem hann er þar gjaldkeri, ritari, viögerðar- maður og málari ef með þarf. Þau systkinin eru þegar farin að huga aö einhverju til þess að skemmta borgarbúum með næsta vetur, hvað það verður vildi Birgir hins vegar ekki segja neitt um að svo komnu máli. En Birgir er greinilega ekki maður sem situr auðum höndum. „Ég hef alveg nóg að gera frá klukkan 9 á morgnana til klukk- an 11 á kvöldin”, sagði hann. „Og það er oft kvartað yfir þvl að ég sé aldrei heima”. Og þeir sem kvarta eru þá sennilega kona Birgis og börnin tvö. EI KLUKKUTÍMA AÐ SKRÚBBA AF SÉR SKÍTINN Á KVÖLDIN Flestir vegfarendur forða sér sjálfsagt hið snarasta þegar farið er að vinna með loftpressu ein- hvers staðar i grennd við þá. En hvernig skyldi þeim liða sem vinna á loftpressum i ærandi háv- aða og titringi allan daginn. Einar Eggertsson er lærlingur i húsasmiði og i sumar hefur hann unnið á loftpressu og það taldi hann ekkert leiðinlegra en hverja aðra vinnu, sagði að visu að hún værí dálítið óþrifaleg og aðallega væri það rykið sem færi illa meö menn. „Þessi vinna hefur aðallega einn ókost”, sagöi hann. „Hún er ekki nærri nógu vel borguð miðað við hvað þetta er mikið púl. Svo fáum við ekki einu sinni óþrifaá- lag eins og tiökast hjá iðnaðar- mönnum sums staðar, þó tekur það klukkutfma að skrúbba af sér skitinn þegar heim er komið á kvöldin”. Einarvar að fleyga klöpp þegar okkur bar að garöi og hann sagði aö það væri ekki erfitt, það væri verra þegar hann væri i múrbroti. Við spurðum hann hvort menn yrðu ekki hálf heyrnarlausir i þessari vinnu? „Nei, ekki ef þeir eru með góð- ar eyrnahlifar”, sagði hann. Ertu ekki allur titrandi og skjálfandi þegar þú kemur heim á kvöldin? „Nei,” sagði Einar. „Ég tek vinnuna ekki með mér heim”. Og meðþaösnerihannsér aftur að þvi aö fleyga klöppina, en við forðuðum okkur á brott úr hávaö- anum hið snarasta. EI Sími 86220 85660 Boröa- þantanir Atli snýr plötunum Hljómsveitin Glæsir MISSKILDAR HNETUR OG FEIMNAR KAFFIBAUNIR Klakahöllin, þvi stórbrotna nafni nefnist isbúð Mjólkursam- sölunnar við Laugaveg. Þar eru til sölu nýstárlegir isréttir sem skirðir hafa veriö skringilegum nöfnum. Kirsuberiö sem komst á toppinn heitir einn rétturinn og Bananasprengjan heitir annar. Björg Jóhannsdóttir sem gegn- ir starfi verslunarstjóra i fjar- veru Bent Bryde var að þvi spurð hvort mikið væri verslaö hjá þeim. „Já, það er mjög mikið verslað hérna”. sagði hún. „Mest er að gera yfir sumartimann, þegar veöriö er gott”. Er fólk sem vinnur í isbúð ekki alltaf að borða is? „Ég borðaöi mikinn is til að byrja meö” sagði Björg. „En núna er ég búin að fá leið á hon- um”. Hvaða is selst mest hjá ykkur? „Ætli það sé ekki Týnda peran, Misskilda hnetan og Feimna kaffibaunin. Svo er það jógúrtis- inn nýi, hann er að veröa voöa vinsæll”. Þessi frumlegu nöfn vöktu at- hygli Helgarpóstsins sem haföi áhuga á að vita hvaðan þau væru upprunnin. „Það er Auglýsinga- Emmess ísöld ríkir nú I Klaka- höllinni, þar sem afgreiðslustúlk- ur handlanga nýstárlega isrétti yfir afgreiðsluborðið. stofa Kristinar sem sér um þetta allt saman” sagði Björg. EI mm Wm •• -3 v/ v ...* L. uií >%í L PH — II Þetta eru tvö af fimm stórum tekjum sem verða I Tivoli I Laugardainum, frá þvi 22. ágúst til 7. sept- ember. Þá daga verður starfandi þar tivoli með öllum hefðbundnum tilfæringum, i tengslum við Kaup- stefnuna Heimilið '80.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.