Helgarpósturinn - 15.08.1980, Síða 28
__helgarposturínrj- Föstudagur 15. ágúst 1980
9 Eins og kunnugt er eiga sauö-
fjárrækt og skógrækt ekki beint
vel saman. Þvi eiga skógræktar-
menn i slfelldri baráttu viö fé,
sem leitar sifellt inn á skóg-
ræktarsvæöin. Starfsmenn rikis-
ins eru þarna engin undantekn-
ing. Þeir hafa i gegnum tiöina
komist aö raun um, aö rétt eins og
sumar kindur leita sifellt inn á
tún hversu oft sem þær eru rekn-
ar af þeim, og eru kallaöar tún-
rollur, fyrirfinnast þær kindur
sem leita alltaf inn i skógana, þar
sem þeir eru til staöar. Þær eru
gjarnan nefndar skógarrollur. Til
aö komast aö þvi i eitt skipti fyrir
öll hvaöa kindur þaö eru sem
sifellt er veriö aö reka úr skógar-
giröingunum aö Hallormsstaö tók
Jón Loftsson, skógarvöröur til
þess bragös aö láta menn sina
smala þeim saman og mála horn,
þeirra rauö. Skömmu siöar kom
bréf til bænda frá landbúnaöar-
ráöuneytinu þar sem þeim var
fyrirlagt.aöfynduþeirmæöiveiki i
fé sinu, skyldu þeir mála horn
þess rauö. Siöan skyldu þessar
mæöiveikirollur reknar i sér-
stakan dilk i haust, og fluttar
beint i sláturhús. Og þaöan eiga
þær varla afturkvæmt i skóginn,
rollurnar hans Jóns.
STORKOSTLE
VERÐ-
LÆKKUN
® Alþýöuleikhúsiö hefur eins og
kunnugt er veriö á höttunum
eftir nýju húsnæöi undir starf-
semi sina. Ekki tókst þrátt fyrir
itrekaöar tilraunir aö fá afnot af
gamla Sigtúni við Austurvöll,
sem hýsir mötuneyti Pósts og
slma. Nú virðist hins vegar eitt-
hvaö vera aö rofa til, þvi Jón
Ragnarsson.forstjóri Hafnarbiós
og Regnbogans hefur gefið þeim
Alþýöuleikhússmönnum góö orö
um aö fá afnot af Hafnarbiói. Til
þess aö húsiö hentaði undir leik-
starfsemi, þyrftu hins vegar aö
fara fram einhverjar breytingar
á sviöinu....
9 Talandi um Alþýöuleikhúsiö,
þá fór þaö i vor I leikför út á land
meö Viö borgum ekki, og sýndi
m.a. i Grimsey. A siöustu sýning-
unni þar, voru áhorfendur 134, en
skráöir ibúar eyjunnar eru aöeins
106....
9 Listahátiöin sem haldin var I
Reykjavik fyrr i sumar þótti
heppnast hiö besta að flestu leyti,
og tókst bæöi aö vera skemmtileg
og vekjandi, þótt skiptar skoöanir
væru um gildi sumra atriöanna.
Afturámóti viröist sem fjármálin
komi ekki eins vel út. Helgarpóst-
urinn hefur heyrt aö tapiö á þess-
ari hátiö muni nema milli 30 og 40
milljónum króna. Kemur þvi
væntanlega til kasta Ragnars
Arnalds fjármálaráöherra og
fyrrverandi menntamálaráö-
herra i þessu máli...
9 Leikfélag Kópavogs var
endurvakib á siöastliönum vetri
svo um munaði og tókst aö rétta
fjárhag félagsins eftirminnilega
við meö farsanum Þorláki
þreytta sem gekk lengur og betur
en venja er til hjá áhugamanna-
leikfélögum,, ekki sist meö tilliti
til nálægöar atvinnuleikhúsa.
Kópavogsmenn ætla sem vænta
má ekki aö 14ta hér staðar numiö.
I bigerö er aö setja upp á næsta
leikári farsann vinsæla Leyni-
melur 13, og aö Guðrún Asmunds-
dóttir.leikari hjá L.R. komi til
liös viö þau I Kópavoginum og
leikstýri...
9 Þótt starfsmenn Flugleiöa
hafi aö sjálfsögöu miklar
áhyggjur af framtiö félagsins
(og eigin i þar meö) þá hefur
kimnigáfan ekki alfariö yfirgefið
þá. Þeir segja að á stundum
þegar vélar Flugleiöa séu staö-
settar á völlum úti I heimi gleymi
þeirsér stundum og fari vélavillt
en
PMÍl
Þú kemst allra þinna ferða á Trabant
«r kannski ekklTml áð^aká á
• Trabant er
# við
• Hostar í da
# Hvað kostar hann á mánu
Ingvar Helgason
Vonarlandi v/Sogaveg S. 33560 - 37710
og gangi óvart um borö i flug-
vélar portúgalska flugfélagsins.
Astæöa fyrir ruglingnum? Jú, á
búki véla Portúgalanna er nefni-
lega skammstöfun félagsins og
hún er té-a-pé eöa TAP...
9 Og önnur saga um gálga-
húmor Flugleiöaflugmanna: Eins
og kunnugt er hefur DC-10
breiöþota Flugleiða ekki veriö sú
gullkista sem menn höföu vonað
og raunar veriö félaginu æriö
kostnaöarsöm. Vélin gengur þvi
undir nafninu „Banabitinn"
meöal Flugleiðamanna...
Svo er þaö framhaldssagan
um átökin i Sjálfstæðisflokknum.
Sagt er aö núna sé aö fara af staö
undirskriftaherferö til að skora
á Gunnar Thoroddssen aö gefa
kost á sér til formannskjörs á
landsfundi Sjálfstæöisflokksins i
haust. Takist vel til um undir-
skriftasöfnunina er Gunnar sagö-
ur staðráðinn i þvi aö fara fram,
ef Geir Hailgrimsson heldur því
til streitu aö gefa áfram kost á sér
til formanns. Dragi Geir sig hins
vegar i hlé mun Gunnar vera fús
til ab gera slikt hiö sama og þá
veröi reynt aö ná samkomulagi
um einhvern þriöja mann til aö
taka viö flokknum. Stööugar
vangaveltur eru siöan um þaö
hverjir muni geta tekið viö
flokknum og siöasta útgáfan er sú
aö sæst veröi á Matthias A Matt-
hiesen i formannsstólinn en
Pálmi Jónssonveröi varaformaö-
ur...
9 Viö sögöum frá deilum um
ymsar toppstööur innan Reykja-
vikurborgar i siöasta blaöi. Borg-
arráö kiknaöi á þvi aö taka.
nokkra ákvöröun i málinu og
frestaöi afgreiðslu á þvi. Nú er
sagt aö umsækjendur um þessar
stööur týni tölunni hvér á fætur
öörum, þar sem þeir kæri sig ekki
um aö komast i starfann út á póli-
tiskan stimpil. Borgarráöi veröi
þvi e.t.v. aö ósk sinni aö fá aö
auglýsa stööurnar aftur...
9 Kjarasamningur sá sem nú
liggur I loftinu að geröur veröi
milli rikisins og Bandalags
starfsmanna rikis og bæja er tal-
inn munu veröa verulega dýrari
rikinu en ráögert haföi veriö, þar
sem samkomulagið feli i sér mik-
iölaunaskriö. Samkomulagiö hafi
þannig i för meö sér aö Alþýöu-
sambandið muni eiga erfitt meö
aö kyngja 5% launahækkuninni
sem þvi er boöin, þar sem hún feli
hvergi nærri i sér þaö launaskrið
sem opinberir starfsmenn fái út
úr sinum samningum. A sama
hátt muni ASl gera kröfu um hliö-
stæð lifeyrisréttindi og BSRB-
menn ná nú, þ.e. svoköllub 95 ára
regla sem fékkst nú aftur inn i
samninginn og felur i sér aö sé
samanlagður aldur og starfsaldur
oröinn 95 ára og viökomandi
starfsmaöur hafi náö 60 ára aldri,
þá megi hann fara á eftirlaun.
Þetta ákvæöi munu nú Alþýðu-
sambandsmenn vilja sjá i slnum
samningum...