Helgarpósturinn - 19.09.1980, Page 4

Helgarpósturinn - 19.09.1980, Page 4
4 Fösfudagur 19. september. 1980. —JielgarpásturinrL. SigurOur Helgason, forstjóri Flugleiöa hefur sannarlega verið milli tannanna á fólki aö undanförnu. Hvar sem tveir borgarar setjast niöur og ræöa málin, skjóta flugvélar, fargjöld og Siguröur Helgason upp kollinum. Hann hefur veriö bendlaöur viö margt þessa sföustu daga, — CIA, Mafiuna, jafnvel eitthvaö þaöan af verra. Hann er sagöur kaldur, haröur, svffast einskis til aö bola sér áfram og ýta öörum útl kuldann. Hann er sagöur vera búinn aö koma sér upp hópi manna i kringum sig, sem alltaf segja já viö þvl sem hann spyr þá, og til eru þeir sem telja hann furöu biræfinn aö reka allt þetta fóik úr vinnu, þótt þaö hafi unniö störf sin samviskusamlega jafnvel I áratugi. En þeir eru aö sjálfsögöu lika til sem finnst Siguröur ekki alveg svona slæmur og enn aörir sem llkar ljómandi viö hann. Hann á sér fleiri hliöar en þær sem snúa fram, nú i miöjum darraöadansi flugmálanna. Siguröur Olafur Helgason, eins og hann heitir fullu nafni, er fæddur 20. júli áriö 1921, og veröur þvi sextugur á næsta ári. Hann er af listafólki kom- inn, og faöir hans Helgi Hallgrimsson, fulltrúi Hafnarsjóös I Reykjavik áratugum saman, var tónlistamaöur góöur. Móöir hans var Ólöf Sigurjóns- dóttir. Siguröur er Reykvikingur, bjó lengst af viö Ránargötuna og ólst þar upp, ásamt fimm systkinum. Siguröur stundaði litiö skólanám hér heima, og tólf ára gamall var hann farinn aö vinna i Pennanum. A sumrin var hann 1 sveit á Mýrum I Borgarfiröinum, og þar kynntist hann veiöiskapnum, sem slöan hefur veriö eitt af hans aöal áhugamálum. „Viö höfum lengi haft áhuga á fiskirækt og fiskeldi”, sagöi Gunnar Helgason, bróöir hans i samtali viö Helgarpóstinn, ,,og erum hluthafar I fiskræktarfyrirtæki i Látravi'k. Viö höfum lika mikla ánægju af veiöiskap, en honum kynntumst viö i Borgarfiröinum, þaöan sem faöir okkar er ættaöur. Viö höfum fariö saman ieinn eöa tvo veiöi- túra á ári núna siöastliöin tiu ár eöa svo,ogégveitaöhann fer meö fleirum i laxveiöi”, sagöi Gunnar. Dr. Björn Jóhannesson kynntist Sigurður ágætlega i New York, og þeir ræddu oft um möguleika fisk- ræktunarinnar. „Siguröur er mjög opinn fyrir nýjungum, og er einn af mörgum sem telja mikla möguieika fólgna I fiskeldi. En samvinna okkar á þvi sviöi hefur nú ekki náö lengra en svo, aö hann sendir mér alltaf annaö slagiö úrklippur um þessi mál, sem hann hefur rekist á og fundist áhuga- verö”, sagöi Björn, sem sjálfur hefur unniö taisvert aö rannsóknum á fiskeldi. Ariö 1941, réöst Siguröur tvitugur til bandariska hersins, og þá hófust kynni hans af Bandarlk jum Noröur-Amerlku sem áttu eftir aö veröa langvinn. Siguröur var starfsmaöur flutninga- deildar hersins hér 1 Reykjavik i tvö ár, áöur en hann hélt utan til náms i verslunarfræöum viö Columbiu- háskólann i New York. Þar var hann I tvö ár, en bjó siöan áfram I tvö ár i New York og vann þá viö ýmisskonar innkaupastörf fyrir fslensk fyrirtæki. Ariö 1948 kom hann aftur heim og réöist sem framkvæmdastjóri hjá Orku hf, og þremur árum siöar einnig hjá Steypustööinni hf. Þessi fyrirtæki eru aö mestu leyti i eigu K. Kristjáns- sonar, Kristjáns Ford, eins og hann var kallaður, og Sveins Valfells, sem oft er nefndur i sömu andrá og Siguröur Helgason. „Sveinn er góöur frændi og vinur, og viö erum veiöifélagar. Ég veit ekki til þess aö Sveinn hafi neinar strengjabrúöur. Ég sjálfur er ekkistrengjabrúöa neinna”, sagöi Siguröur um viöskipti sin og Sveins I Yfirheyrslu Helgarpóstsins fyrir rúmu ári siöan. Afskipti Siguröar af Loftleiöum hófust einmitt þegar hann var framkvæmdastjóri þessara fyrir- tækja, áriö 1953. „Þaö veröur ákveöin breyting hjá Loftleiöum 1953”, segir Gunnar Helgason. „Þá er haldinn hluthafafundur 14. október, sem er frægur I hlutafélagasögunni, vegna þess aö hann stóö I 12 til 14 tima. A þessum fundi er kosin ný stjórn, og Siguröur er einn þeirra sem koma nýir inn”. Eftir þennan fund gegndi Siguröur stööu varaformanns stjórnar Loft- leiöa, jafnframt framkvæmdastjóra- störfum hjá Orku og Steypustööinni. Þaö var ekki fyrr en áriö 1962 aö hann feraö starfa I fuilu starfi hjá félaginu, og þá sem forstjóri dótturfélags Loft- leiöa i New York Icelandic Airlines. Aöur en hann fór út hafði hann einnig starfaö i tveimur öörum stjórnum — i stjórn Félags bifreiöaeigenda, og I stjórn Félags bifreiöainnflytjenda. Arin tólf sem Siguröur bjó i New York, frá 1962 til ’74, voru mikil upp- gangsár fyrir flugiö islenska, og Sigurö sömuleiöis. Hann þykir hafa unniö afbragösgott starf i New York, unniö eins og hann á vanda til, meö eljusemi og krafti. Þaö sama átti viö á félagsmálasviöinu. Siguröur var formaöur Islendingafélagsins i New York frá 1964, og i mörg ár þar á eftir. „Siguröur var griöarlega aktifur i félagslifi Islendinga þarna úti”, segir Hans Indriöason, vinur Siguröar og samstarfsmaöur m.a. úti i Bandarfkj- unum. „Hann var formaöur Islend- ingafélagsins, og mætti þar á alla fundi og árshátiöir og sá um skipu- lagningu á þvi. Svo haföi hann mikinn áhuga á námsmannaskiptum, var meöal annars i stjórn Thor Thors- sjóösins og vann mikiö fyrir hann”. Hans Indriöason sagöist ekki hafa oröiö var viö hlédrægni eöa feimni hjá Siguröi heldur þvert á móti, sér heföi stundum fundist nóg um athafnasem- ina á félagsmálasviöinu. „Þaö þurfti oft aö fá út islenskan mat á árshátiöir og tslendingakvöld, og islenska tónlistarmenn sömuleiöis, og um allt þetta sá Siguröur af röggsemi. Oftast blandaöi hann þessu saman viö Loft- leiöi einhvemveginn, þannig aö allir högnuöust af”, sagöi Hans Indriöason. Eftir tólf ár i New York kom Siguröur Helgason heim aftur, og varö einn þriggja aöalforstjóra hins nýja flugfélags: Flugleiöa, Einn viömælenda Helgarpóstsins sagöi Sigurö greinilega hafa átt erfitt meö aö koma heim aftur eftir svona langa útiveru, og aö hann hafi einangrast nokkuö bæöi félagslega og pólitiskt, eftir heimkcmuna. Siguröur á ekki aö- gang aö öllum helstu stjórnmála- mönnum landsins, vegna persónu- legra kynna. Erling Aspelund einn nánasti sam- starfsmaöur Siguröar i langan tima, sem sjálfur var I New York I ellefu ár, sagöi þaö mjög eölilegt aö ýmsir erfiöleikar skytu upp kollinum eftir svo langa útiveru. „Lifskjörin og Iffs- stillinn I New York er svo gjörólikur þvi sem er hér á Islandi aö þaö hiýtur aö taka alla nokkurn tima aö komast aftur inni hlutina hér. Ég sjálfur varö til dæmis aö byrja á þvi aö kynnast minum gömlu vinum uppá nýtt. Þaö tekur talsveröan ti'ma aö koma sér fyrir á nýjum staö, og þaö gildir eflaust fyrir Sigurö eins og aöra,” sagöi Erling. En hvemig maöur er svo Siguröur Helgason? „Ég öfunda engan sem reynir aö gera grein fyrir persónuleika Siguröar”, sagöi einn samstarfs- manna hans þegar Helgarpósturinn spuröi þeirrar spurningar. „Siguröur er ein af þessum persónum sem af- skaplega erfitt er aö fá hlutlægt mat á, vegna þess aö menn skiptast svo f tvö horn I áliti sinu á honum. Annaö hvort likar þeim vel viö hann, eöa illa”. Helgarpósturinn komst aö þvi aö þetta eru orö aö sönnu.Og til viöbótar þá kom i ljós, aö þeir sem ekki eru góöir vinir Siguröar, eöa hafa eitthvað viö hann aö athuga, færöust eindregiö undan þvi aö tjá sig um hann. Þrátt fyrir þetta bar mönnum oft ekki saman i áliti slnu á honum, og þaö segir sina sögu um, hve einangraður hann getur veriö. En eitt bar þó öllum saman um, sem Helgarpósturinn talaöi viö. Siguröur Helgason er skarpgáfaöur, fljótur aö tileinka sér nýjar upplýsingar. „Þaö sem vekur athygli manns viö fyrstu kynni af Siguröi er hversu fljóthuga hann er, opinn og næmur”, sagöi einn starfsmanna Flugleiöa. Hans Indriöa- son, sagöi þaö alla tiö hafa verið hans sterka hliö, hve auövelt hann ætti meö aö gera sér grein fyrir tölum. „Yfirhöfuö er hann fljótur aö átta sig á hlutunum, og gerir sér afskaplega góöa grein fyrir aöstæöum hverju sinni”. Annar ónefndur aöili sem kynnst hefur Siguröi tekur undir aö Siguröur sé skarpgáfaöur, og afskap- lega fljótur aö hugsa. „En þeir sem ekkihafa sama eiginleikaog eru seinir til, þeir geta fariö svolitiö I taugarnar á honum”, sagöi þessi aöili. Hann sagöi Sigurö sömuleiöis stressaöan og öran og hann segöi umbúöalaust ef honum fyndist ekki verkefni leyst nógu vel og fljótt af hendi. Jón Júliusson, fyrrunri framkvæmdastjóri sagöi um Sigurö i samtali viö VIsi aö hann væri einhver umtalsfrómasti maöur sem hannheföi kynnst. ,,Hann er allra Islendinga best aö sér i flugmálum sama hvar niöur er boriö. Þú spyrö hann um flugvéla- tegundir, fargjöld viösvegar um heim, verö á flugvélum og fleira. Þú getur flett uppi honum eins og oröabók. Hann er sivinnandi og eljusamur, mætir iöulega fyrstur til vinnu á morgnana og fer siöasturog tekur starf sitt mjög alvarlega”, sagöi Jón Július- son. I þessu sama viötali sagöi Jón Sigurö hafa tamið sér „ameriskan” stjórnunarstil.og kalda framkomu viö starfsfólk sitt. Siguröur sagöi sjálfur I samtali viö Morgunblaöiö aö stjórn- unarstill færi eitthvaö eftir aöstæöum hverju sinni, en að hann teldi mun árangursrikara aö hvetja fólk til framlags og afkasta meö jákvæöum uppörvunum heldur en meö skömmum og umvöndunum. Vinum Siguröar hefur komiö á óvart hin kalda og haröneskjulega mynd sem almenningur viröist hafa af hon- um. „Ég er nú þeirrar skoðunar aö aö- geröirnar sjálfar, uppsagnir og fleira i þeimdúr, hafi tekið leiðandi pól i þvi”, sagöi Hans Indriöason, sem eins og flestir vina hans telja hann hlýjan og góöan að eiga aö. Annar maöur sem hefur haft af honum kynni segir aö Siguröur eigi dálitiö erfitt meö aö skipuleggja sig, og gefi sér stundum ekki tlma I smáatriöi sem i annarra augum eru stórmál, eins og til dæmis persónulegt samband viö starfsfólkið. Maöur sem þekkir hann ágætlega segir hann allnokkuö feiminn og hlédrægan, og að þaö sé fyrst og fremst ástæöan fyrir þvi hve kaldur hann virðist. „Þetta kuldalega viömót sem margir kannast eingöngu viö er eiginlega hans brynja. Hann á erfitt meö aö umgangast starfsfólkiö á eöli- legan máta, kannski sérstaklega eftir aö hann hefur sagt þvi upp. Þegar hann flýgur meö Flugleiöum er hann vandræöalegur, og á erfitt meö aö koma elskulega fram viö sina undir- menn.” Hvort þetta er ástæöan eöa einhver önnur, hefur starfsfólk Flugleiöa nokkurn beig af manninum, og þaö viröist ganga alveg upp metoröa- listann innan félagsins. Einn starfsmaöur þess man eftir þvi þegar flugvél var snúiö á leiö frá Osló til Reykjavikur, og látinn taka Sigurö upp I Skotlandi, en skömmu áöur hafi 30 manna hóp skiöamanna veriö neitaö um klukkustundarseinkun á flugvél héöan frá Reykjavik, Starfsmaöurinn sagöi þetta dæmi um völdin sem Siguröur heföi i fyrirtækinu. En þótt hann sé aö allra mati mikill vinnuþjarkur, og aö oft megi sjá ljós á skrifstofu hans eftir aö öll önnur ljós skrifstofunnar hafa veriö slökkt, og bláan Wagoneer á bilastæöinu fyrir utan, þá gerir Siguröur fleira en aö vinna. Hann hefur veriö formaöur Islensk-ameriska félagsins um nokk- urtskeiö, og þar hefur ÓlafurStephen- sen, forstjóri, kynnst honum sem félagsmanni. „Siguröur er röggsamur stjórnandi, og vill augljóslega hafa hlutina i' lagi. Hann lætur t.d. vita meö góöum fyrirvara, jafnvel skriflega, ef hann forfallast einhverra hluta vegna, og á stjórnarfundum fer litill hluti til spillis. Hann gerir sér far um aö láta verkefnin koma jafnt niöur á stjórnar- mönnum félagsins, og vinnur af tals- veröum áhuga”, sagöi Ólafur Stephen- sen. Siguröur er einnig félagi I Rotary- klúbb, þannig aö félagsstörfum sinnir hann jafnframt Flugleibavinnunni. Hann er giftur Unni Einarsdóttur og fjögurra barna faöir. eftir Guðjón Arngrímsson

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.