Helgarpósturinn - 19.09.1980, Page 11
ff
helgarpásturinn. Föstudag
ur 19. september 1980.
11
TÓNLIST:
Menn lifa ekki af
brauði einu saman”
segir Stefán Guðjónsson sem ver
mestum hluta frístunda sinna í tónlist
„Það er reginhneyksli að skatt-
leggja Mozart og Bach sem liíxus
meðan ómerkileg erlend timarit
eru tollfrjáls”, sagði Stefán Guð-
jónsson starfsmaður Dósagerðar-
innar. þegar við heimsóttum
hann á dögunum.
Stefán býr i litlu timburhúsi í
Kópavogi og þar er hvert horn
notað undir plötusafnið hans.
Hann safnar aðeins klassiskum
hljómplötum, en þær skipta
áreiðanlega þúsundum. Sjálfur
kveðst hann aldrei hafa reynt að
kasta á þær tölu.
„Það eru yfir f jörutiu ár siðan
ég byrjaði á þessu”, sagði hann.
„Foreldrar minir voru söngelskt
fólk, en áhuginn byrjaði þó ekki
fyrir alvöru hjá mér fyrr en þegar
botnlanginn sprakk i mér sem
ungling og ég þurfti að liggja á
sjúkrahúsinu á Seyðisfirði. Mér
leiddistþar, svo hjúkrunarkonan,
Arnheiður Þormar, lánaði mér
útvarpstækið sitt. Þar heyrði ég
óperur skýrðar út og áhuginn
vaknaði.
Ég hef enga skólagöngu fengið
um ævina og þvi hef ég reynt að
afla mér menntunar af bókum.
Þar rakst ég alltaf á eitthvað um
músik, sem örvaði áhugann, svo
égfór að lesa skipulega um þetta
og kynna mér það. Svo fór ég i
söngtima hjá Pétri Jónssyni, sem
hefur sennilega orðið frægastur
islenskra söngvara erlendis.
Hann kenndi mér söngtækni og
siðarlæröi ég tónfræði hjá Viktor
Urbansich.
Eftir þvi sem ég lærði meira,
opnaðist eiginiega nýr heimur
fyrir mér”.
Fyrstu árin átti Stefán aðeins
ferðagrammófón, en nú á hann
hljómflutningstæki, sem hann
telur þokkaleg fyrir heimili, þótt
þau séu ekki af besta gæöaflokki.
Mikill hluti fritima hans fer i aö
hlusta á plötur oglesa um tónlist.
„Þaö má segja að það fari of
mikill timi I þetta”, sagði hann.
„En menn lifa ekki af brauði einu
saman”.
Stefán telur sig eiga flest verk
stærstu höfundanna á hljómplöt-
um og Bach, Mozart og Beet-
hoven eiga sennilega öll sin verk i
hillunum hjá honum. Yfirleitt
kvaðst Stefán vera mjög hrifinn
af þýsku tónskáldunum og söngur
á sérstaklega upp á pallborðið hjá
honum.
Flestar plöturnar hafa veriö
spilaöar margsinnis.
TRJÁRÆKT:
Asgeir Svanbjörnsson með grindur, sem henta vel til að skýla nýjum
piöntum fyrir ágangi vetrarins.
Hlúð að nýgræðlingum
í sumar hefur verið gert mikið
átak i trjárækt hér á landi i tilefni
af Ári trésins. Þar af leiðandi er
nú óvenjumikið af viðkvæmum
nýgræðlingum, sem þurfa að
mæta ótryggri veðráttu vetrar-
ins. Og þá er spurningin: Hvað er
hægt að gera til að auka Hfsmögu-
leika þeirra til næsta vors?
„Það er mjög gott að bera eitt-
hvað að rótunum fyrir veturinn,”
segir Asgeir Svanbjörnsson hjá
Skógræktarfélagi Reykjavikur.
„Það má vera skitur, laufrusl,
mosi eða greinar. Þetta varnar
rótarkali.
Þegar um er að ræða viðkvæm
lauftré, t .d. hiyn eða gullregn, eöa
ung barrtré, er gott að setja upp
skjólgrindur, sem brjóta vindinn
og varna ofþornun og kali. Eins
má skýla trénu með striga, en þá
má alls ekki vefja tréö með hon-
um, heldur verður að setja hann á
grind.
Þar sem tré hafa verið sett nið-
ur nálægt umferöargötu, fá þau á
sig salt og krapahrið allan vetur-
inn og slikt þola ekki nema dýrð-
lingar. Þaö er þvi nauðsynlegt aö
verja trén með grind, um eins
metra hárri, þar sem svipað bil er
haft á milli spýtnanna og sem
svarar breidd þeirra. Þetta má
Vörn-og brauðpeningar- Vömávísanir
Peningaseðlar og mynt
Gömul umslög og póstfcort
FRÍMERKI
Allt fyrír safnarann
Hjá Magna «mi23mí5
Mattheusarpassian hefur til
dæmis verið svo oft á fóninum, aö
Stefán kann hana utan að. Aðrar
plötur eru þannig, að nóg er að
hlusta á þær einu sinni eða svo.
Þar á meðal er rússnesk plata,
sem tekin var upp af samtali
Daviðs Oystrachs, og Sjosta-
kovitz um fiðlukonsert þess siðar
nefnda. Platan barst fyrir til-
viljun i hendur Stefáns og auð-
vitað skilur hann ekkert af þvi
sem sagt er, en platan er engu að
siður mikils viröi.
,,Ég á lika nokkrar plötur, sem
teknar eru upp á æfingum með
frægum hljómsveitarstjórum.
Það er mikill lærdómur i að
hlusta 4 þ®r”, sagði Stefán.
Gömlu 78 snúninga plöturnar
eru nú flestar horfnar af sjónar-
sviðinu, en i Bandarikjunum eru
starfandi klúbbar áhugamanna,
sem auglýsa eftir gömlum plötum
og gefa þær út i nýjum útgáfum.
Upplagið er litið og aðeins ætlað
sérvitringum. Stefán hefur náð i
nokkrar af þessum plötum fyrir
milligöngu Asmundar Jónssonar i
Fálkanum. Þær eru með tónlist
frá árunum 1902—1925.
„Margir af gömlu söngvurun-
um gera betur en að standast
allan samanburð”, sagði Stefán.
Þótt plötusafnið sé oröiö stórt,
er alltaf eitthvað sem Stefán
langar að eignast.
„En ég sé enga möguleika á
þvi”, sagði hann. „Heilsan er
farin að bila og plötur eru orðnar
óhemju dýrar. Ég má sjálfsagt
vel við una. Ég er búinn að draga
töluvert að mér. En hjá erlendum
þjóðum hljóta allir þeir, sem vita
um skattlagninguna á tónlist hér,
að hafa Islendinga að háði og
spotti”. —SJ
berja saman úr hvaða spýtnarusli
sem er.
Grindur eru lika nauðsynlegar
fyrir litlu barrtrén og þá helst til
að skýla þeim fyrir sól. 1 febrúar-
mars getur verið mikil hita-
sveifla, þegar sól á daginn fylgir
næturfrost”.
— Er eitthvaö hægt að eiga við
gróðursetningar á haustin?
„Haustgróðursetning er
ótryggari, en getur samt tekist
ágætlega. Það eru aöallega
barrtré, sem eru gróðursett á
haustin, en þá ekki fyrr en vaxtar-
tima þeirra er lokið.
En það er margt annað hægt að
gera á haustin i garðinum. A
nýjum lóðum er mjög gott aö
ljúka jarövinnslu og blanda
áburði I jarðveginn. Eins er sjálf-
sagt að undirbúa beð fyrir lim-
gerði, þar sem þvi veröur við
komið. Svoer ýmsum trjám sáð á
haustin.
Það er rétt að taka fram, aö
ekki má klippa neina plöntu fyrir
veturinn. Klipping á limgerðum
og trjám má ekki fara fram fyrr
en plantan er komin i vetrar-
dvala. En I vetur, á timabilinu
nóvember til marz, ætti fólk að
huga að þvi hvort ekki mætti
snyrta trén i garöinu eitthvað til.
Það er of mikiö um þaö að fólk
láti trén vaxa alveg villt.”
— SJ
Hljómplötur eru hvar sem litið er á heimili Stefáns.
LISTAR
í fjölbreyttu
úrvali
Gólflistar
Loftlistar
Skillistar
Furugólfborð
Furupanell
Sk
HOFÐATUNI 2
Sími: 22184
Auglýsingasími
Helgarpóstsins
8-18-66
Út er komin ný bók í handbókaflokknum ÁL; Mótun og
vínnsla. Bókin fjallar um framleiðslu og vinnslu hluta úr
áli, steypun, pressun og stönsun.
Einnig er fjallað um val aðferða, efna og verkfæra.
Áður eru komnar út: ÁL - Suðuhandbók TIG - MIG
ÁL - Samskeyting.
Verð hverrar bókar er kr. 1.500,-
Bækurnar fást i Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar,
Reykjavík og Bókabúð Olivers Steins í Hafnarfirði.
skan/pX luminium
NORRÆN SAMTOK AUONAOARINS
«t/. 1,
Ny nanaböK
umál ^