Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 19.09.1980, Qupperneq 19

Helgarpósturinn - 19.09.1980, Qupperneq 19
-jMe/garpOSturinn- Föstudagur 19. september 1980. Fjalakötturinn frumsýnir um helgina: 1 900 eftir Bertolucci Starfsemi Fjalakattarins, kvik- myndaklúbbs framhaldsskól- anna, hefst um þessa helgi meh sýningum á fyrri hluta itölsku stórmyndarinnar 1900 eftir leik- stjórann Bernardo Bertolucci. Þar segir frá tveim bræðrum á uppgangstima fasismans á ttalfu. Meðal leikara i þessari mynd eru Robert DeNiro og franski leik- arinn Gérard Depardieu. 1900 vakti mikla athygli þegar hún var tekin til sýninga á sinum tima og er óhætt að fuilyrða að þetta er meiriháttar viðburöur i mjög svo daufu kvikmyndalifi höfuð- borgarinnar undanfarnar vikur. Við höfum áður minnst á nokkr- ar væntanlegar myndir i Fjala- kettinum, en góð visa verður ,,Við höfum svipaða stefnu og áður, og megin einkennið á okkar bókaútgáfu, er hve blönduð hún er”, sagði Jóhann Páll Valdi- marsson, þegar Helgarpósturinn leitaði fregna hjá honum um væntanlega bókaútgáfu hjá Ið- unni. Jóhann Páll sagði, að Iðunn gæfi út um 130 bækur á þessu ári og þvi verður hér aðeins stiklað á stóru um væntanlegar bækur á jólamarkaði. Töluvert verður um frum- samdar islenskar bækur frá Ið- unni ogm.a. koma út þrjár skáld- sögur. Þær eru Ljóstollur eftir Ólaf Gunnarsson, sem þekktur er Auður Haralds aldrei of oft kveðin. Fljótlega i næsta mánuði verður tekin til sýninga myndin Þessir yndislegu kvikmyndasérvitringar eftir tékkneska leikstjórann Jiri Menzel, en hann þykir einn sá allra fremsti þar um slóðir. Þá verður sýnd slðar i sama mánuði myndin Skvettan mikla eftir breska leikstjórann Jack Hazan, en þetta er heimildarmynd um einn fremsta málara Breta af yngri kynslóðinni, David Hockney. Flestar myndanna, sem sýndar verða i vetur eru frá 7. eða 8. áratugnum. Þó koma fyrir nokkr- ar eldri, eins og tvær myndir frá gullaldarskeiði þýskra kvik- mynda uppúr 1920. Eru það af bókinni Milljón prósent menn. Ljóstollur segir frá upptöku ungs manns i samfélag karlmennsk- unnar, þar sem öllu máli skiptir að vera töff eða sýnast það til að halda lifi. Auður Haralds verður með nýja skáldsögu og heitir hún Læknamafian, litil pen bók eftir Auði Haralds og f jallar um sam- skipti fólksvið lækna og sjúkra- hús. Þriðja skáldsagan er svo um rannsóknarlögreglumanninn Margeir, sem birtist lesendum i fyrra. Bókin heitir Margeir og spaugarinn og er höfundurinn Gunnar Gunnarsson. Af öðrum frumsömdum is- lenskum bókum fyrir fullorðna Ólafur Gunnarsson myndirnar Golem og Stúdentinn frá Prag eftir leikstjórann Paul Wegener. Margt annarra góðra mynda verður á dagskrá i vetur og eru menn hvattir til þess að fá sér áskriftarkortin sem allra fyrst. Fjalakötturinn hefur undanfar- in ár starfað i gamla Tjarnarbiói, þar sem aðstaða til kvikmynda- sýninga hefur verið fremur bág- borin i alla staði. Nú hefur starf- semin hins vegar verið flutt upp i Regnboga, og þar af leiðandi hef- ur sýningartimum verið breytt frá þvi áður. Sýningar eru nú á fimmtudögum kl. 18,50 laugar- dögum kl. 13 og sunnudögum kl. 18.50. Góða skemmtun! —GB má nefna 10. bindið af bóka- flokknum um Aldirnar. Að þessu sinni er fjallað um 16. öldina, 1501—1550. Það er Jón Helgason, sem hefur tekið efnið saman. Þá kemur út heildarútgáfa á ljóðum Sigfúsar Daðasonar, mynd- skreytt af Sverri Haraldssyni. Einnig kemur út annað bindi af Mánasilfri, safni endurminninga, sem Gils Guðmundsson hefur tekið saman. Ný ljóðabók eftir Hannes Pétursson er væntanleg og heitir hún Heimkynni við sjó. Iðunn hefur svo nýverið gefið út bókina Stattu þig drengur eftir Stefán Unnsteinsson og fjallar hún um Sævar Cicielski. Islenskar barnabækur skipa einnig veglegan sess og skulu hér nefndar fimm. Dóra i Alfheimum eftir Ragnheiði Jónsdóttur, en það er endurútgáfa með myndum eftir Ragnheiði Gestsdóttur. Guðrún Helgadóttir sendir frá sér nýja bók um Jón Odd og Jón Bjarna, en enn hefur ekki veriö ákveðið nafn á hana. Sú bók verður myndskreytt af Sigrúnu Eldjárn. Sigrún Eldjárn sendir einnig frá sér bók, þar sem hún semur texta og myndskreytir, heitir sú bók Allt i plati. Eftir Magneu frá Kleifum kemur út bókin Krakkarnir i Krummavik og Hreiðar Stefánsson sendir frá sér Grösin i glugghúsinu. Meðal erlendra höfunda verða gamlir kunningjar, eins og Alistair MacLean og fleiri. En sú bók, sem vafalaust á eftir að vekja hvað mesta athygli er Vetrarstarfsemi Tónlistarfé- lagsins hefst um næstu helgi með tónleikum orgelleikarans Almut Rössler I Kristskirkju. Að sögn Hauks Gröndal, framkvæmda- stjóra félagsins verða siðan tón- leikar á þess vegum einu sinni i mánuði I vetur — alls tólf tónleik- ar. ,,Það hefur verið voðalega erf- itt fjárhagslega að halda þessari starfsemi gangandi”, sagði hann i samtali við Helgarpóstinn. ,,Ar- gjaldið er ákveðið á sumrin, og vorið eftir er þaö stundum oröiö heldur litið. Verðbólgan hefur fariö heldur illa með okkur, og gert allar áætlanir mjög erfiðar og hæpnar”. Haukur sagði siðasta vetur annars hafa verið góðan, og tón- leikarnir sem þá voru haldnir, vel heppnaðir. bandariska metsölubókin Kvennaklósettið eftir Marylin French i þýðingu Elisabetar Gunnarsdóttur. Þá skal einnig nefnd bók eftir grænlenskan veiðimann, sem heitir Tomas Fredriksen. Hélt sá dagbók um nokkurra ára skeið og mynd- skt;eytti, án þess þó að hafa út- gáfu i huga. Danskt útgáfufyrir- tæki komst þó i spilið og eru þessi dagbókarbrot birt undir nafninu Grænlensk dagbókarblöð. Bók frá Suður-Ameriku verður einnig á boðstólum og er hún eftir Perú- manninn Manuel Scorza. Bókin heitir Rancas, þorp á heljarþröm og fjallar m.a. um ofsóknir á hendur indiánum. Dalur dýranna heitir barnabók, sem unnin er i samvinnu við Auk reglulegs tónleikahalds yf- ir veturinn er Tónlistarfélagið rekstraraðili, ásamt riki og bæ, að Tónlistarskólanum, og Tóna- bió er alfarið þess eign. Félagið stendur á gömlum grunni, þaö var stofnað árið 1932, af áhuga- mönnum um tónlist, til þess að reka Hljómsveit Reykjavikur, sem siðar varð að sinfóniuhljóm- sveitinni. Haukur Gröndal sagði félagið núna leggja aðaláherslu á að fá hingað til lands einleikshljóð- færaleikara eða söngvara, og næsti gestur á eftir Rössler verð- ur Bandariskur söngvari, Paul Sperry að nafni. Tónleikar hans verða i október. Formaður Tónlistarfélagsins er Ragnar Jónsson i Smára. — G A World Wildlife Fund og segir þar frá dýrum, sem annað hvort eru útdauð, eða i hættu. Koma þarna fyrir bæði fræðitextar og lesmál af léttara tagi. Loks skal nefna tvær ævintýrabækur, annars vegar með ævintýrum Grimm bræðra, og hins vegar bók með ævintýrum H.C. Andersen. Af unglingabókum skal fyrsta nefna nýja bók eftir hollenska höfundinn Jan Terlouw og heitir hún Fárviðri. Þá kemur einnig út unglingabók, sem fékk H.C. Andersen verðlaunin. Heitir hún Liðið hans Lúlla og er eftir E.W. Hildick. Bókaunnendur ættu þvi að hafa úr nógu að velja fyrir næstu jól. — GB Jólabækur Iðunnar: KENNIR MARGRA GRASA Alniut Rössler og Paul Sperry, tveir fyrstu gestir tónlistarfélagsins f vetur. Tónlistarfélagið að hefja vetrarstarf: Verðbólgan leikur það illa mynda þjóðdansinn, en kona hans fer að baða sig i fljótinu. Hún er mjög fallega vaxin og snýr rassinum siðsamlega i myndavélina meðan hún af- klæðist. Sem hún gengur á land eftir baðið stekkur á hana bólugraf- inn þrælaveiðari og kippir henni upp i vörubil og ekur burt með hana. Þessu reiðist Michael Caine og ákveður að ná i konu sina aftur og veitir þrælasölun- um eftirför. Peter Ustinov leikur yfir- þrælasalann og virðist litið botna i þvi hvað hann er að gera i þessari mynd inni i miðri Afriku, svo hann gerir bara að gamni sinu skömmustulegur á svip. 1 myndarlok er hann svo drepinn, þá hefur Ustinov verið feginn. En áður en hann fær makleg málagjöld hefur hann selt arabiskum prinsi konuna. Prinsinn er þarna að kaupa jólagjöf handa pabba sinum sem er nokkuð við aldur en hef- ur þó gaman af þvi að glingra viö ambáttir. Prinsinn reynir aö vera bæði kurteis og mannboru- legur, en er reyndar hálf- skömmustulegur eins og flestir sem fram koma i þessari mynd. Og loks kemur Michael Caine Kvikmyndir eftir Þráin Bertelsson Þrælasala ku tiðkast enn þann dag I dag: sagt er að fyrir meðalgöngu „hjúskaparmiðl- ara” sé hægt að fá keyptar am- báttir frá Þælandi og öðrum Asfurikjum, og sömuleiðis að arabiskir furstar kaupi gjarna pilta og stúlkur frá Afriku. Annars fer litlum sögum af þessu, svo að kvikmynd um þrælasölu á tuttugustu öld lofar góðu, og maður skundar i Stjörnubiö. yfirleitt meira spennandi en innihaldið). Og þetta reynist svo sannarlega rétt vera. Vafamál er, hvor er þreytulegri, sögu- þráðurinn ellegar leikararnir. Michael Caine leikur þarna lækni sem staddur er i Afriku á- samt konu sinni sem einnig er læknirá vegum SÞ að bólusetja innfædda sem hamast glaðir og ánægðir við að dansa þjóð- dansa. Eftir að hafa bólusett einn ættbálk fer Mikjáll að ljós- og bjargar spúsu sinni og þau kyssast og stjörnufilterinn er settur á myndavélina. Hins vegar segir fátt af öðrum þrælum sem minnst hefur verið á i myndinni, enda eru þeir hvorki gifttr Michael Caine,'né jafnhuggulega vaxnir og fröken Beverly Johnson sem leikur konu hans. Ég hygg aö það sé langt siðan verri þvættingur en þetta hefur sést á hvita tjaldinu. Annars segja jákvæðir menn að engin vitleysa sé svo slæm að ekki megi draga af henni einhvern lærdóm. Sá lærdómur er að þessu sinni vandfundinn, nema hvað mér fannst athyglisvert að heyra, að til að fá afrískan úlf- alda til að risa á fætur og hreyfa sig skal hann ávarpaður á is- lensku: HOTT, HOTT ... Michael Caine I hlutverki Linderby læknis Hott, hott... Stjörnubió: Þrælasalan (Ashanti). Bandarisk. Argerð 1979. Handrit: Stephen Geller. Leikstjóri: Richard Fleischer. Aðalhlutverk: Michael Caine, Peter Ustinov, Kabir Bedi, Bev- erly Johnson. Leikstjórinn heitir Richard Fleischer og er gamall I hett- unni. Um hann segir i „Film- goer’s Companion”: „His films usually sound more interesting than they prove to be”. (Laus- lega þýtt: Nöfn mynda hans eru I

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.