Helgarpósturinn - 19.09.1980, Page 26
FÖstudagur 19. seþtember 1980' —he/garpástúrinrL.
&
4. f
Æf
sA á^íW***
I ^
Z-
„Þetta er besta sumariö sem ég hef
lifaö...”
— Bandaríska blökkusöngkonan Susan Causey tekin tali
I sumar hefur dvalist hér á
landi bandariska biökkusöngkon-
an Susan Causey. Þaö er ekki á
hverjum degi sem okkur tslend-
ingum gefst kostur á aö sjá og
hlusta á slikar sveiflukonur, hvaö
þá á sveitaböllum út um allar
trissur.
Susan hefur sungiö meö hljóm-
sveitinni Hver frá Akureyri, en
þar hefur samastaöur hennar
vcriðaö mestu leyti. Þaö reyndist
ekki auösótt mál aö króa Susan af
I viötal, en eftir nokkur samtöl til
Akureyrarog misheppnaöa leitaö
henni f Hollywood hittumst viö
loks á Horninu, nokkrum dögum
áöur en hún fór til Bandarfkj-
anna.
Égbyrjaöi aö spyrja hana hvar
hún væri fædd.
Hallelúja!
— Ég er fædd i -Ohmaha,
Nebraska. Viö erum 9 systkinin.
Ég og fjölskylda min tilheyrum
babtistasöfnuöi og erum mjög
trúuö. A mínum yngri árum fór-
um viöoftf kirkju. Þaö leiö ekki á
löngu þartil viö systurnar stofn-
uöum kvintett sem viö kölluöum
„TheCausey Sisters”. Svo vorum
viö aö sjálfsögöu allar i kirkju-
kórnum í nokkur ár. 11 ára var ég
farin aö spila á pianó. Ég ætlaöi
alltaf aö læra meira á þaö og fór i
spilatíma. En kennarinn minn
var svo leiöinlegur aö ég hætti
strax og hef ekki snert á pianói
síöan. Þegarég var I6ára varö ég
ófrísk af minu fyrsta barni og
eignaöist son. Þá giftist ég aö
sjálfsögðu og þremur árum
seinna eignaöist ég annan son og
ári seinna þann þriöja. Þá fiutt-
um viö til Miami, Florida og
bjuggum þar i þrjú ár. Viö hjónin
sóttum um skilnað um þetta leyti
og ég fór aftur heim til mömmu
meö börnin. Þaöan lá leið min til
Californiu þar sem ég hef sungiö
inná plötur i stúdióum. Þaö er
alltaf gaman aö vinna i stúdióum i
U.S.A. Mottóiö þar er að hafa
gaman af þvi aö syngja inn á plöt-
ur. Ef þaö er leiöindamórall,
heyrist hann i gegn, til hins al-
menna hlustanda.
ísland, kæra ísland
— Hver voru tildrög þess að þú
komst til íslands.
— Strákarnir i Hver komu til
Los Angeles i fyrra og spiluöu á 1.
des. á Islendingahátiö þar. I
gegnum Jakob Magnússon höföu
þeir samband viö mig og báöu
mig um aö spila meö sér. Ég
geröi samning viö þá og svo fór
þetta aö rúlla. — O, hann Jakob,
hann er frábær nánungi! Ég
meina, það er hægt að treysta
honum. Allavega get ég það.
Hérna á Islandi eru allir svo heiö-
arlegir.. Þú ert örugg hérna. Ég
vildiaöéggæti komiö hingaö meö
strákana mina, ég er viss um aö
þeim mundi liöa vel hérna og þeir
væru ekki lengi aö komast inni
máliö! Jæja, þetta var nú útúr-
dúr. Svo kom ég hingað 11. júni.
Það var skrýtiö aö koma hingaö
fyrst. Ég var alltaf aö leita að
stórum flugvelli og vegum. Svo
var simakerfiö svo undarlegt hér.
Allt ööru visi en heima. En eftir
aö ég kom hingað þá fannst mér
ég alltaf hafa verið hér.
Ástfangin af Pálma
— Hver er þin uppáhalds tón-
list?
— öll tónlist sem eitthvert vit er
i er góö. Mér finnst bæöi gaman
að syngja gospel, blues, djass og
diskó. Ég hef hlustaö á islenskar
plötur eins mikiö og ég hef komist
yfir, en Pálmi er bestur. Ég varð
strax yfir mig ástfangin af plöt-
unni hans Pálma, sérstaklega af
laginu „Dóra”. Það er einhver
Californiustemning i þvi lagi. Ég
vildi aö ég hefði veriö komin nógu
snemma til aö syngja inná þá
plötu. Þó það heföi ekki veriö
nema einhverjar bakraddir,
úúúúúú eða aaaaaaaa. Ég fékk þó
einu sinni tækifæri til aö syngja
með Pálma. Það var algjört æöi.
Ég hef lika sungið með stelpunum
i Brunaliöinu og Ruth Reginalds.
Þaö var gaman aö syngja meö
þeim. Einnig hef ég unniö meö
Bobby Harrison, viö gerðum smá
„show!’ saman.
Brjóstahaldarabrenna
— Hvernig er aö vera i hljóm-
sveit meö eintómum karlmönn-
um?
— Ég hef alltaf veriö eina kon-
an i hljómsveitum og mér hefur
alltaf likaö vel viö þaö. Ég hef
alltaf veriö eins og , ,einn af strák-
unum” Aö vlsu er þetta ef til vill
ööruvisi þegar við komum fram,
þá er mér veitt aöeins meiri at-
hygli á sviðinu. En strákarnir i
Hver, þeireru búnir aö vera alítof
góöir viö mig. Þeir hafa veitt mér
alltof mikla athygli og stjanað i
kring um mig. Viö höfum verið
héreins og ein stór fjölskylda. Ef
að vandamál hafa komið upp inn-
an hljómsveitarinnar, höfum viö
rætt um þau og meðhöndlað þau
þannig að allir hafa verið ánægö-
ir.
— Hvaö finnst þér um kvenna-
hreyfinguna?
— Ég er ekki rauösokka, ég er
bara hversdagsleg stelpa. Mér
finnst gaman aö vera heima og
elda mat. Likamlega eru karlar
sterkari en konur. En á Islandi
eru konur ööruvisi, þær vinna
meira við erfiöisvinnu, eru t.d. á
sjónumog fleiri stööum sem karl-
menn vinna eingöngu við heima.
En ég meina, ég brenndi ekki
brjóstahaldarann minn eins og
stelpumar heima gerðu....
Öllu má nú venjast
— Hvernig eru islenskir áhorf-
endur?
— Hér þurfti ég fyrst aö
venjast nýjum drykkjusiöum. En
þaö er allt i lagi á meöan allir
komast ómeiddir heim af dans-
leik. Þaö var frábært að feröast
um landið og spila á svona mörg-
um stööum. Ég man sérstaklega
eftir þvi þegar viö fórum f Hnifs-
dal, þá var ég bæöi meö kvef og
illa upplögð, var jafnvel aö hugsa
um aö hætta viö aö fara. En við
drifum okkur samt og leigöum
flugvél. Ég held bara aö ég hafi
aldrei sungið eins vel og þá. Eöa
áhorfendur! Þeir voru æðisleg-
ir. Þetta var alveg eins og aö spila
i Reykjavik. Eöa þegar viö
spiluöum i Arnesi, þaö var sett
landsmet I aösókn, þaö voru I
kringum 2.500 manns á svæöinu.
Mikiö held ég aö ég sakni Akur-
eyrar. Þessi frábæri staöur! Eöa
uppáhalds diskótekið mitt — H-
100. Það er sko besta diskótekiö i
heiminum. Þegar ég fór frá Akur-
eyri klökknaöi ég þegar ég leit i
siðasta sinn yfir bæinn og sá
byggingar og bila sem ég var far-
in að kunna svo vel viö.
Að lokum...
— Hér á Islandi hef ég lært að
elska fólk og maður finnur aö ein-
hverjum þykir vænt um mann.
Þetta er besta sumar sem ég hef
lifað og ég vona aö ég komi hing-
aö sem fyrst aftur. Fólk viröist
svo hamingjusamt hér, þaö virö-
ist ekki skipta máli hvernig efna-
hagsástandiö er. Hér hef ég lika
lært að borða alls konar mat, ég
smakkaöi meira að segja sviö um
daginn og nammmmmm...þau
voru alveg eins og grisafætur.
Þaö versta viö Island, ef eitthvaö
er, er hvaö maöur boröar alveg
svakalega mikiö. Éggetsvariö aö
ég hef fitnað um 15 pund siöan ég
kom hingað.
— Hvaö liggur svo fyrir þegar
heim kemur?
— Nú, fyrst fer ég til mömmu
og sæki strákana mina. Svo reyni
ég aö hafa samband viö Jakob
Magnússon og ætli maður haldi
ekki áfram aö vinna i stúdióum...
En nú langar mig f einn reglulega
góðan og stóran hamborgara.
Það er oröiö svo langt siðan ég
smakkaði hamborgara, örugg-
lega einartvær vikur. Ég vona aö
ég komist til hennar Freyju f
Vestmannaeyjum áöur en ég fer,
þvi hún býr til bestu hamborgar-
ana og bestu salötin á Islandi. Ég
er óö i hamborgara og pyisur.
eftir Jóhönnu Þórhallsdóttur
myndir: Valdís Óskarsdóttir