Helgarpósturinn - 23.01.1981, Side 4
NAFN: Björgvin Guðmundsson STAÐA: Skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu og borgarfulltrúi
FÆDDUR: 13. sept. 1932 HEIMILI: Hlyngerði 1 HEIMILISHAGIR: Eiginkona Dagrún
Þorvaldsdóttir og eiga þau sex syni BIFREIÐ: Chevrolet Malibu árg. '73
ÁHUGAMÁL: Stjórnmál og lestur góðra bóka
Föstudaqur 23. janúar 1981
tt : f
/*
„ER KANNSKI FLOKKSMAÐUR AF GAMLA SKÓLANUM”
Þú ert sagöur koma viöa viö og
toga i ólikustu spotta bak viö
tjöidin. Hvaö ertu í mörgum
trúnaðarstörfum fyrir Aiþýöu-
fiokkinn og í gegnum starf þitt?
„Ég hef nú ekki tölu á þvi,
svona i fljótu bragöi. En þaö er
rétt, að ég kem viöa viö i störfum
minum. Hins vegar er ég ekki i
eins mörgum nefndum á vegum
borgarstjórnar og i tengslum viö
starf mitt og fjölmiölar hafa látíö
i veöri vaka. Vegna starfa minna
i borgarstjórn, er ég i borgarráöi
og formaður útgeröarráös og
hafnarstjórnar og vegna skrif-
stofustjórastööu minnar hjá viö-
skiptaráðuneytinuhef ég valist til
formennsku i verölagsráöi og i
samkeppnisnefnd, sem er i raun
undirnefnd verölagsráös. Þetta
eru nú helstu póstarnir”.
Ei' þaö rik tilhneiging hjá þér
aö vilja gina yfir sem fiestu?
„Nei, slikt er ekki fyrir hendi.
Þvert á móti hef ég sjálfur ekki
knúið á um það, að taka þessi
störf á mina hendi. Hins vegar
þróuðust mál þannig i borgar-
stjórninni, eftir fall sjálfstæöis-
meirihlutans ’78, að formanns-
stööur i hafnarstjórn og útgeröar-
ráöi komu i minn hlut, enda var
ég sá borgarfulltrúi Alþýöu-
flokksins sem haföi hvaö lengst
barist fyrir málefnum tengdum
þessum stofnunum”.
Nú hefur þú verið formaöur
verölagsráðs sem áöur hét verö-
lagsnefnd, i nokkur ár hvernig
eru þessar ákvarðanir teknar hjá
verðlagsráði? Eru það geöþótta-
ákvaröanir nefndarmanna, ef tii
vill teknar undir þrýstingi ýmissa
aðiia, hvort þessi fái 10% hækkun
og hinn aðeins 5% o.s.frv.?
„Þaö uröu þáttaskil i störfum
verölagsráös meö nýjum lögum 1.
nóvember 1979. Þá var fulltrúum
hagsmunaaöila fækkaö en inn
teknir tveir fulltrúar Hæstarétt-
ar. Þetta hefur leitt af sér, aö
ákvaröanir verölagsráös eru nú
teknar á mun faglegri grundvelli
en áöur geröist. Ráöiö hefur gefiö
sér lengri umþóttunartima og
ávallt fengiö umsagnir verölags-
stjóra áöur en ákvaröanir hafa
verið teknar. Vinnubrögö hafa
sem sé batnaö á sföustu misser-
um og faglega veriö unniö aö
þessum málum”.
Má þá ætla aö gamla verölags-
nefndin hafi ekki unniö faglega?
„Undirbúningstimi var þá oft
mun minni og vinnubrögðin ekki
jafn fagleg. Þaö veröur aö viöur-
kennast. Þá voru ef til vill teknar
ákvarðanir meö litlum fyrirvara.
Einnig held ég að þá hafi störf
nefndarinnar boriö meira keim af
hagsmunaárekstrum hagsmuna-
aöilanna og þvi meira boriö á
valdi formannsins — manns
ráöherra. Tilkoma fulltrúa
Hæstaréttar i verölagsráöiö hefur
breytt þessum hlutföllum”.
Ef litiö er yfir vettvang borgar-
stjórnarmálanna. Ertu ánægöur
með störf vinstri meirihlutans,
sem af er kjörtimabilinu?
Borgarstjórnarmeirihlutinn i Reykjavik, sem eins og kunnugt er samanstendur af Alþýðuflokki,
framsókn og Alþýöubandalagi, hefur nú stjórnaö borgarmálefnum I tæp þrjú ár. Sjálfstæöismenn spáöu
þvi aö samstarf þessara flokka gæti aldrei gengiö upp, slik yröi miskliöin þeirra i milii. Og upp hafa
komið samskiptavandamál sem þó hefur tekist aö leysa.
Björgvin Guömundsson borgarfulitrúi hefur veriö oddviti Aiþýöufiokksmanna I borgarstjórnarmál-
efnum. Björgvin kemur þó viöar viö i valdakerfinu. Hann er einnig skrifstofustjóri I viöskiptaráöuneyt-
inu og sem slikur gegnir hann formennsku I verðlagsráöi. Hann hefur einnig oröiö fyrir harkalegri
gagnrýni af hendi samflokksmanns sins, Vilmundar Gylfasonar, sem segir Björgvin og hans Hka, skita-‘
pakk Alþýöufiokksins.
Þaö er Björgvin Guömundsson sem er i Yfirheyrslu Helgarpóstsins aö þessu sinni.
„Já, ég er nokkuö ánægöur.
Samstarfiö hefur tekist vel, þegar
litiö er til þess aö þarna starfa
saman þrir ólikir stjórnmála-
flokkar. Þaö má t.d. gera saman-
burö á þessu samstarfi Alþýöu-
flokks, Alþýöubandalags og
Framsóknar i borgarstjórninni
annars vegar og i rikisstjórn hins
vegar. Á þessum tæpu þremur ár
um, sem vinstri ílokkarnir hafa
starfað saman i borgarstjórninni
hafa þegar verið drepnar tvær
framtiðarspár Sjálfstæðisflokks-
ins um borgarstjórnarsamstarf-
ið. 1 fyrsta lagi hefur það verið
rækilega afsannað, 'að þessir
flokkar færu með fjármál borgar-
innar út á kaldan klaka. Þvert á
móti heíur f jármálastjórn
borgarinnar siðustu ár verið með
ágætum. 1 öðru lagi hefur glund-
roðakenning ihaldsins verið drep-
in, þvi samstarfið milli þessara
þriggja flokka hefur veriö betra
en samstarfið innan Sjálfstæðis-
flokksins meðan hann var við
stjórnvölinn svo ég tali nú ekki
um ástandiði herbúðum flokksins
i dag”.
Nú hefur þó stundum hrikt i
stoðum meirihlutans og þá þaö
veriö Alþýöuflokkurinn sem veriö
hefur brokkgengur, sérstaklega
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir annar
borgarfulltrúi flokksins. Ræöur
þú ekkert viö Sjöfn og uppátæki
hennar?
„Þaö er rétt, aö smávegis
hnökrar voru á samstarfinu i
fyrstu en allt gengiö vel i seinni
tiö. Þaö var ágreiningur um eitt
eöa tvö mál milli okkar Sjafnar.
Þar ber auövitaö hæst afstaöan til
sameiningar Laxárvirkjunar viö
Landsvirkjun, en Sjöfn felldi þá
sameiningu innan borgar-
stjórnarinnar, þrátt fyrir sam-
stööu annarra fulltrúa meirihlut-
ans. Þetta var hins vegar fyrst og
fremst ágreiningur innan Alþýðu-
flokksins, en ekki innan meiri-
hlutans sem sllks og þaö er rétt
sem Sjöfn hélt fram, aö þarna var
ekki um aö ræöa eiginlegt meiri-
hlutamál, sem skipti sköpum um
frekara samstarf flokkanna
þriggja i borgarstjórninni. Ég
varö þó fyrir vonbrigöum meö af-
stööu Sjafnar I þessu máli og
þetta skemmdi dálltiö fyrir sam-
starfi flokkanna. Þetta hefur þó
allt jafnaö sig og lagast eins og ég
nefndi”.
Hefuröu náö aö róa Sjöfn og skóla
hana til?
„Viö Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
höfum átt ágæta samvinnu og náð
aö þróa gott samstarf okkar I
milli og því betur sem timar hafa
liöiö. Milli okkar er náiö samstarf
og viö ræöum t.a.m. saman fyrir
hvern borgarstjórnarfund, og
berum saman bækur okkar. Ætli
megi ekki segja aö við höfum lært
betur með timanum aö taka tillit
til skoðana hvors annars. '
Er þaö þin trú aö vinstri meiri-
hlutinn nái aö hanga saman út
kjörtlmabiiiö og jafnvei halda
meirihluta sinum i næstu
kosningum?
„Ég er þess alveg fullviss aö
meirihlutinn stendur út þetta
kjörtimabil og sé þvi ekkert til
fyrirstööu aö þaö samstarf haldi
áfram eftir næstu kosningar.
Ekki óttast ég, aö Sjálfstæðis-
flokkurinn nái meirihluta aftur á
næstunni. Sá flokkur er klofinn I
tvennt og jafnvel óvist aö hann
standi sameinaöur aö framboöi I
næstu kosningum”.
Nú hefur þaö stundum legiö i
loftinu, aö þin Ieiö myndi liggja út
i landsmálapólitikina, en þaö
hefur aldrei oröiö. Hvers vegna?
„Ég er búinn að starfa aö
borgarstjórnarmálefnum frá
1962, þegar ég varö varaborgar-
fulltrúi og hef veriö borgarfulltrúi
frá 1970. Hef verið lengur i
borgarstjórn en ég haföi ætlað
mér. Ég haföi ákveöið aö hætta
1978 en mál skipuöust á þann veg,
að ég breytti um skoðun og gaf
kost á mér. Þaö hefur veriö venja
i Alþýöuflokknum, þótt slikt sé
ekki haft i heiöri hjá öörum flokk-
um, aö menn séu ekki samtímis i
borgarstjórn og á Alþingi og
dreifi þannig kröftum sinum. Ég >
hef enga ákvöröun um þaö tekiö
hvort ég fari út I landsmálapóli-
tikina þegar störfum mlnum i
borgarstjórn lýkur, og heldur
ekki ákveöiö hvort ég veröi i kjöri
viö næstu borgarstjórnarkosning-
ar.
Þaö er staöreynd, aö fylgi Al-
þýöuflokksins hér I Reykjavik
hefur veriö minna i borgar-
stjórnarkosningum, en þing-
kosningum. Má ætia aö þitt fram-
boö sé veikara en kandidata á.
þinglistanum?
„Ég vil nú minna á ,að áriö 1970
fékk Alþýöuflokkurinn meira
fylgi i borgarstjórnarkosningun-
um en i þingkosningunum 1971
þannig aö þetta hefur ekki ávallt
verið eins og þú segir. Hitt er rétt,
aö öllu jöfnu fær Alþýöuflokkur-
inn meira fylgi I þingkosningum,
en í borgarstjórnarkosningum.
Þetta hefur hins vegar veriö
svona i áratugi og hefur þvi ekk-
ert breyst i þessa átt meö minni
tilkomu i borgarstjórnarpólitik-
ina”.
En rennir þú hýru auga til
þingsins og landsmálavettvangs-
ins?
Nei, ekki á þessari stundu. Ég
hefi engar sérstakar ráðageröir
uppi um aö leita eftir kjöri til Al-
þingis”.
Nú er sagt aö þú hafir safnaö i
kringum þig fámennum og
traustum hópi jábræöra sem þú
hygiir I krafti valda þinna en þeir
siöan myndi kosningamasklnu
fyrir þig I prófkjörsslagsmálum.
Er þetta rétt?
„Ef traustir og góðir Alþýðu-
flokksmenn I Reykjavik sem mig
styðja eru einhver maskina þá
má orða það svo aö maskína
styðji við bakiö á mér. Prófkjör
Alþýöuflokksins eru hins vegar
opin öllum og þvi utanflokks-
menn sem hafa i raun úrslitaáhrif
varöandi niðurstööur þeirra. Þvi
er ljóst að þaö voru fleiri en
traustir og gegnir flokksmenn
sem fylgdu mér aö málum I próf-
kjörinu 1978”.
Nú er sagt aö völd þin I stjórn-
kerfinu séu arfur frá bitlingapóli-
tik Alþýðuflokksins á viöreisnar-
árunum. Þin sól hafi farið aö risa
þá og aö viöreisnardraugurinn
fylgi þér ennþá og sá þanka-
gangur sem þá réö rikjum innan
flokksins?
„Þetta er fráleitt. Ég hef
starfaðí Alþýöuflokknum frá 1949
eða yfir 30 ár og min hugsjón er
sprottin upp úr verkalýðsstétt
enda ég verkamannssonur. Ég er
kannski flokksmaður af gamla
skólanum, þvi ég hef unniö mig
upp innan flokksins en ekki eins
og sumir aörir Alþýöuflokksmenn
fengið allt á silfurfati. Ég hef
oröiö að vinna sjálfur innan
flokksins fyrir þeim trúnaöar-
störfum sem mér hefur veriö
treyst fyrir.
En ertu I eöli þlnu veikur fyrir
bitlingum og sækist þar af
leiöandi stlft eftir þeim?
„Nei. Ég vlsa þvi frá! Staö-
reyndin er hins vegar sú, aö þeir
sem veljast til forystu fá oft á
hendur fleiri störf, en þeir vilja
sjálfir hafa á sinni könnu. Slik
hefur oröiö þróunin hjá mér, sér-
staklega eftir aö núverandi
meirihluti varð til innan borgar-
stjórnarinnar. Ég var einn þeirra
i borgarstjórnarflokki Alþýöu-
flokksins sem haföi langa reynslu
af störfum innan borgarstjórnar
og þvi hlóðust ef til vill fleiri störf
á minar herðar en eðlilegt heföi
veriö.
Þaö er fullljóst aö ekki eru allir
samflokksmenn þinir jafn
ánægöir meö þig og störf þin á
vegum flokksins. Vilmundur
Gylfason þingmaöur Alþýöu-
flokksins hér I Reykjavik gekk
meira aö segja svo langt aö nefna
þig og þina lika sem skitapakk.
Hvaö viltu segja um þetta?
„Þaö er viðfangsefni sál-
fræðinga aö lesa úr oröanotkun
þingmannsins i þessu tilfelli. Það
er ekki á mínu færi aö skýra til-
gang eða eðli orða sem þessara.
Þar veröa sérfræðingar á sálar-
sviðinu aö taka viö”.
En hvers vcgna heldur þú aö
Vilmundur hafi valiö þér þetta
orð — skitapakk?
„Hvað ég held. Þaö er erfitt að
átta sig á þingmanninum, en eins
og mönnum er kunnugt þá birti
þingmaöurinn þessi orð i frétta-
bréfi til flokksmanna, þar sem
hann var að reyna að skýra or-
sakir ósigurs sins i kosningu til
varaformanns Alþýöuflokksins.
Þau úrslit uröu þingmanninum
mikil vonbrigöi og skýringa var
viöa leitaö og mörgum kennt um
og þar á meðal mér. Hann þurfti
þvi aö koma höggi á marga i
þessu fréttabréfi og ég fékk minn
skammt. I þessu sambandi get ég
þó tekiö fram, aö ég tók sáralitinn
þátt i kosningaslag þingmannsins
og Magnúsar H. Magnússonar.
Það eru þvi hugarórar þing-
mannsins aö ég hafi barist sér-
staklega gegn honum og
stuðningsmönnum hans”.
En varstu sár og fannst þér sól
þin iækka vegna þessarar nafn-
giftar sem hann valdi þér —
skltapakk?
„Nei, ekki þar sem þaö kom frá
þessum þingmanni. Ég heföi ef til
•vill orðiö sár og leiöur ef slikt
heföi komið frá vönduöum og
gegnum flokksmanni”.
Ertu ánægöur meö þróunina i
Alþýöuflokknum siöustu árin?
„Nei, ekki fyllilega. Ég tel aö
meö tilkomu hinna mörgu nýju
þingmanna flokksins hafi veriö
fariö um of út á braut auglýsinga-
mennsku og hugsað meira um þá
hliöina en baráttuna fyrir mál-
efnunum. Upphlaup og aug-
lýsingamennska hafa um of ein-
kennt störf margra hinna nýrri
þingmanna flokksins á siðustu ár-
um. Þaö er þvi mál til komið að
Alþýðuflokkurinn láti af þessari
upphlaupsstefnu sinni og veröi á
ný ábyrgur stjórnmálaflokkur. í
stjórnarandstöðu sinni á hann að
vera ábyrgur og taka jákvæða af-
stööu til góöra mála en ekki vera
meö sjálfkrafa hávaða og læti út
af öllu því sem rikisstjórnin tekur
sér fyrir hendur. Hins vegar ber
þó auðvitaö aö gagnrýna, þaö
sem gagnrýni er vert. Jafnframt
finnst mér sem flokkurinn hafi i
stjórnarandstööu sinni veriö of
fastur viö Geirsmenn i Sjálf-
stæðisflokknum og eigi þaö þvi á
hættu að klemmast alveg upp viö
Sjálfstæöisflokkinn.
eftir Guðmund Árna Stefánsson