Helgarpósturinn - 23.01.1981, Blaðsíða 22

Helgarpósturinn - 23.01.1981, Blaðsíða 22
22 Föstudagur 23. janúar 1981. JlBlgdrpOStUrÍDrL ÍÞRÓTTIR VETRARINS, 4. GREIN ÍÞRÓTTIR HEIMA í STOFU______________ eftir Guðjón Arngrímsson mynd: Jim Smart í flestum löndum heims, þar á meftal islandi, fer aðsókn að íþrótta v iðburö um minnkandi. Tölur sýna að gestir fþrnttavalla eru nú hvergi nærri því eins margir og þeir voru fýrir tíu árum eða tuttugu árum. En a á þessum sömu árum hefur áhorf- endum að iþróttav iöburðum fjölgað mikið. Þeir hafa aldrei veriö fleiri en nú. Það er sjónvarpinu aö þakka eða kenna. Líklega hafa svona fimmtiu þúsund islendingar séð Asgcir Sigun'insson atast í varn- armönnum Dvnamo Dresden i Austur-Þýskalandi, fyrst í frétta- tima, svo i iþróttaþætti. Leikur- inn var sýndur allur i Austur- Þýskalandi, en auk þess sjón- varpað i Belgiu og eflaust fleiri löndum Mið-Evrópu. Það er varla ofætlað að meira en ein milljón manna hafi séð leikinn eða hluta úr honum. Langflestir vesturlandabúar horfa meira á iþróttir i sjónvarpi en á iþróttavellinum. i flestum löndum er lika einn besti dag- skrártimi sjónvarps lagður undir þær, — siðdegiö á laugardögum, og sunnudagarn ir. Og á islandi er hvorki meira né minna en 15 prósent af allri dagskránni, efni um iþróttir. Það er mjög umdeilt viðast hvar erlendis, hvort þessi umfangs- mikla starfsemi sé til góðs fyrir iþróttahreyfinguna. Sú umræða hefur farið lágt hérna, jafnvel þó við fengjum í sumar tilfelli, sem nánast kallaði á slikt. Þá var sjónvarpsmönnum bannaöur aðgangur að Laugardalsvellinum á þeim forsendum að ekki hefðu náöst samningar um greiöslu sjónvarps fyrir birtingarrétt leiksins. Þaö mál er reyndar enn ekki til lykta leitt. Knattspyrnusambandiö og Sjónvarpiö hafa enn ekki gert samninga um afnot þess siðar- nefnda af „skemmtiefni” þess fyrrnefnda. A árinu 1979 greiddi sjónvarpið 19 miiljónir til iþrótta- hreyfingarinnar, en minna i ár vegná deilnanna um peninga. Á Bandarik junum borguöu hinsvegar sjónvarpsstöðvar þrjú hundruð milljaröa islenskra króna á árinu 1978 til fótbolta- sambandsins eins. Þar er þvi iþróttastarfsemin augljóslega fjármögnuö nánast eingöngu með þvi að selja sjónvarpinu birt- ingarrétt. Og þar i landi er ekki mikið verið að horfa i hefðir og venjur þegar sjónvarpið er annarsvegar. Það hefur lag á að gera fjárvana iþróttasamböndum tilboö sem þau geta ekki hafnað. Til dæmis þá er körfubolti i Bandarikjunum leikinn í 4 sinn- um 15 minútur, ekki 2 sinnum 20 eins og viðast annarsstaðar. Það er gert svo oftar megi koma að auglýsingum. Og i bandaríska fótboltanum, rúbbiinu svo- kallaða,, er dómarinn útbúinn með þráðlausan hljóðnema svo áhorfendur heima i stofu fái ákvarðanir hans milliliöalaust. Og i þeim leik er vald sjónvarps- ins svo mikið, að niður viö hliðar- linuna er sérstakur starfsmaður þess sem hefur það hlutverk að stöðva leikinn I hvert sinn sem auglýsingu þarf að skjóta inn. Og skiptir þá engu máli þó annað lið- ið sé i' þann mund aö skora pen- ingarnir ráða. Svona breytingar láta hinir ihaldsamari Evrópubúar ekki bjóða sér, enn sem komið er að minnsta kosti. Það er kannski ástæðan fyrir þvi aö þar eru mun minni peningar I boði. Golfiö er vinsæl fþróttagrein, upprunnin i skosku hástéttinni. Það er allt annar leikur nú en áöur en sjón- varpið kom til sögunnar. Aður varþetta heldrimannasport, leik- ið í þögn og án áhorfenda. NU er golfið almenningsiþrótt, og áhorf- endaiþrótt.og á öllu keppnisfyrir- komulagi hefur orðiö gjörbylting sjónvarpsins vegna. Aður var eingöngu ledkin holukeppni, en vegna þess hve mismunandi langan tima þær tóku hentuðu þær ekki i fyrirfram ákveðna sjdnvarpsdagskrá. Þvi var tekiö upp par-fyrirkomulagið, þar sem leiknar eru 18 holur og sá vinnur sem leikur þær i fæstum höggum. Með þvi fékkst á hreint hvemig staðaner á hverjum tima (á pari, undir pari eða yfir pari) og úrslit- in ráðast á siðustu holunum, þar sem sjónvarpsvélum er fyrir- komið. Þess er eflaust langt að biöa að islenska sjónvarpiö geti farið frammá svona breytingar. Enda er atvinnumennskan litil sem engin i iþróttahrey fingunni hérna, og allir leggja sitt af mörkum áhugans vegna. Erlent efni er lilca mun meira i islenskum iþróttaþáttum en öörum, vegna þess hve okkar iþróttir eru i flestum löndum ábatasöm grein viðskipta. Sumum finnst þó auglýsingaflóðið i iþrótta heiminum, sérstakiega þvisem snýr að sjónvarpi, einum of iangt gengið. iþróttafólk er i fáum tilfellum á heimsmælikvarða. Og þegar áhorfandinn hefur einu sinni séð iþróttafólkeins og það er best, þá er ekki eins gaman að horfa á annan flokk. Bjarni Fel sagði i samtali við Helgarpóstinn að við samsetningu þáttanna heföi hann fyrst og siðast „manninn sem situr heima i stofu” i huga, velferð i'þróttahreyfingarinnar færi i' flestum tilfellum saman við velferð hans. Bjarni sagði erlenda efnið koma viðsvegar að, en einkum i gegnum EBU, Evrópusamband sjónvarpsstöðva. Þeir senda til aðildarstöðvanna dagatal, þar sem upplýsingar fást, jafnvel marga mánuði frammi timann, hvaða iþróttaviðburðir það eru sem teknir verða upp. Eftir þessu dagatali er svo pantaö. En einnig kemur mikið i gegnum frændur okkar á Norðurlöndunum. Sumt af efninu kemur fritt, annað þarf aöborga fyrir. 1 fæstum tilfellum er það dýrt. Og stærstu viðburðirnir eru oft ekkert dýr- ari, vegna þess að þá dreifist kostnaðurinn á margar sjón- varpsstöðvar. En hvaða iþróttagreinar henta þessum margumrædda fjölmiðli best? Knattspyma segja eflaust sumir og benda á að hún er hér eins og annars staðar i Evrópu það fþróttaefni sem mestan timann fær. Karate segja eflaust aðrir. Hér á eftir fer lausleg umsögn um nokkrar þeirra iþróttagreina sem sjást i sjón- varpinu i'slenska, og persónulegt mat á hentugleika þeirra fyrir þennan miðil. Lesendur geta dundað sér við að vera þessu ósammála, eða sammála. Knattspyrna: Fótboltinn er sennilega vinsælasta s jónvarpsiþrótt Evrópu, og ekki að ástæðulausu. Þar fer saman mikil hreyfing og fjölbreytni. Engar tvær sóknir eru eins. Að visu er litið skorað, en það er læknað með þvi að skera leikina aðeins niður. Handknattleikur: Einnig góð iþrótt fyrir sjón- varp, með mátulega miklu af mörkum og mikilli hreyfingu. Það sem háir er hve ein sókn vill verða annarri lik, þegar leikinn er kerfisbundinn bolti. Kör fuknattleikur: Of mikið skorað, hver karfa skiptir litlu máli. Það háir einnig aöoftráðast Urslitin bara á svona þriggja minútna mjög spennandi kafla undirlokin. Leikurinn sjálf- ur er bara undirbúningur. Engu að siður mikill hraði og hreyfan- leiki. Blak: Tilbreytingaleysið háir hér. Hver sókn er annarri lik, fyrst móttaka, þá uppspil og sKian skellur. Spenna getur hins vegar orðið mikil, vegna punktakerfis- ins, sem gerir það að verkum að úrslit eru kölluð fram i hverri lotu. íshokkí: Ef til vill hin fullkomna sjónvarpsiþrótt, ef ekki væri sU staðreynd að nánast Utilokað er að sjá pukkinn, litlu tréskífuna sem allt snýst um. Sérstaklega þegar markskot eru reynd, þvi þau eru einum of föst. Annars hefur leikurinn allt — hraða, fjölbreytni, talsvert af ofbeldi, sem sjónvarpsáhorfendur um allan heim hafa jafn gaman af. Golf: Golf hefur sömu eiginleika og kúltiveruð sakamálamynd, þar gengur alit út á spennuna. Þeir sem vel þekkja til geta að visu dáðst aðstil og svo framvegis, en fyrir meöalmanninn, er það bara spennan. KUlan sést ekki nema þegar hún lendir, og kylfunni er sveiflað svo hratt að hún sést ekki. Fimleikar: Ekki mikil spenna, enda stór hluti þeirra fimleika sem við sjáum tekin á sýningum, ekki keppni. Ekki heldur mikil fjölbreytni. En griðarleg fimi, einsoggefur að skilja. Á mörkum þess aö vera iþrótt. Hver veit nema viö sjáum þetta i Vöku inn- an skamms. Lyftingar: Ekki góð sjónvarpsiþrótt, eða áhorfendaiþrótt yfirleitt. Einhæf, og sjaldan mjög spennandi. Verst er þó kannski að hin feiknarlegu átökkoma sjaldnast yfir til áhorf- andans heima i stofu. Hann gerir sér enga grein fyrir þyngdunum sem lyft er. Júdó: Ekki heldur iþrótt likleg til að öðlast vinsældir sem áhorfenda- gaman. Hún er eiginlega bæði of einhæf og of flókin. Þetta eru tveim menn að tuskast, en allir meiriháttar atburðir fara fram með slfkum ógnarhraða að augað nær þvi ekki. Flóknar reglur? Frjálsar iþróttir: Yfirhöfuð mjög gott efni, enda vinsælt eftir þvi. Sumar greinar eru þó mun skemmtilegri en aðr- ar, en t.d. millivegalengdar- hlaupin eru með allra besta Iþróttaefni. Minna er varið i t.d. kúluvarp, þar sem aðeins einner i hringnum i einu. Þegar öllu er blandað saman, eins og oftast er tilfellið, er um að ræða mjög gott sjónvarpsefni. Skiðakeppni: Ekki gott. Mjög einhæft og engin keppni milli einstaklinga. Það er ekkifyrr en keppendur eru komnir i mark að i ljós kemur hvort þeir eru einu sekúndubroti á undan eða eftir næsta manni. Skiðastökk er tignarlegt, en gangan hefur það framyfir alpa- greinarnar að þar sjást þó stund- um fleiri en einn keppandi i einu, en í' heild heldur dapurlegt sjón- varpsefni. Skautalþróttir: Skautahlaupið getur verið spennandi en er einhæft til lengdar. Og það er með list- dansinn eins og fimleikana, að hinn almenni áhorfandi getur ekki fylgst með árangri. Hann er á valdi einhverra dómara, sem taka stil, listfengi ofl. með i reikn- inginn. I öllum algengustu iþróttagreinunum eru það „áþreifanlegir” hlutir sem ráða úrslitum — mörk, stig, timi, hæð, lengd o.s.frv. Sund: Einhæft, og langdregiö á lengri vegalengdum. Stuttu sundin eru oft spennandi. Um dýfingar má segja það sama og fimleika og listdans á skautum. Sundknatt- leikur er aö mörgu leyti ágæt sjón varpsiþrótt, en er full hægfara og eins og i handbolta vilja leikimir veröa hver öörum likir.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.