Helgarpósturinn - 23.01.1981, Page 6
6
Föstudagur 23. janúar 1991 fro/r7FgrnneTfr ,rjnn
Fcrðinni var heitið i Félags-
heimilið á Seltjarnarnesi. Þar eru
Menntskælingar i Heykjavik aö
leggja siðustu hönd á gamanleik-
inn Vs og þys útaf engu, eftir
Shakespeare. Þegar okkur Jim
bar að garði, var uppi fótur og fit.
Andrés Sigurvinsson leikstjóri
gaf lyrirskipanir úr leikstjóra-
sætinu, meö kaffibollann i ann-
ari hendinni, sigarettuna i hinni.
Ilvislari og aðstoðarleikstjóri
sátu sin hvoru megin við Andrés
og fylgdust með þvi sem gerðist á
sviðinu af mikilli athygli. í einu
horninu mátti svo sjá leiktjalda-
teiknarann og saumakonuna
stinga saman nefjum og i öðru
horninu lágu einhverjir sveittir
yfir námsbókunum. Skyndipróf á
morgun! Andrúmsloftiö var
þrungið spennu. Jim tók við að
íjósmynda sviðið i bak og fyrir en
ég nappaði þau Karl Aspelund,
Friörik Erlingsson, Steinunni
Jóhannesdóttur og Valdisi
Gunnarsdóttur fram á gang. Gef-
um þeim orðið:
— Undirbúningur að Herranótt
hófst i haust en þá voru haldin tvö
fimm vikna námskeið. Þessi
Kládió og Don Pedró: • Skúli
Gunnarsson og Karl Aspelund
aHaö »» aó
rtaetuf
, M-R
námskeið sóttu um 40 manns og
taka þau flest þátt i leikritinu á
beinan eða óbeinan hátt. Andrés
kom með þá hugmynd að taka
fyrir þennan gamanleik og var
henní vel tekið.
— 1 október fórum við svo að
lesa handritið saman. Við fórum i
saumanaá textanum og reyndum
að finna allar duldar merkingar.
Einnig athuguðum við hver tengsl
persónanna væru og gátum okkur
að einhverju leyti til um fortið
þeirra.
— Við eyddum örugglega 6 vik-
um i þetta. t jólafriinu fórum við
siðan að fara i stöður og i janúar
fengum við loksins félagsheimil-
ið. Það má segja að við höfum
búið hér siöan. í gær vorum við
til dæmis i 14 klst. hérna!
Barlómur
— Fir engin aðstaða i M.R.?
— Nei, það er varla hægt að
segja það. Að visu er einn hátiða-
salur þar, en það liggur við að
það komist ekki fyrir nema
einn flygill þar inni.
— Það er náttúrlega mjög
slæmt að geta ekki sett upp leikrit
i sinum eigin skóla, og fyrir utan
það hvað það er dýrt að þurfa aö
ieigja húsnæði.
— Já, við fáum ekki nema 1000
kall af hverju skólagjaldi i Herra-
nótt, þannig aö við erum geypi-
blönk.
— Æjá, Herranótt hefur alltaf
staðið i húsnæðis- og peninga-
stappi.
— Hvað segja kvenréttinda-
konur um þetta nafn, Herra-
nótt?
— Það er nú það. Það sem
tröllriður öllu i M.R. eru þessar
hefðir og þetta nafn á rætur sinar
að rekja til Skálholtsskóla. Það er
orðið svo fast i sessi að erfitt er að
breyta þvi.
— Innan þessa hóps er ekki
kynskipting og það skiptir meira
máli. Maður á ekki að vera að
breyta nafninu eingöngu til þess
að breyta þvi.
— Ein af þessum óskráðu regl-
um i M.R. er t.d. sú að busar hafa
ekki tekið þátt i leiklistarstarf-
semi skólans. Við fengum
undanþágu frá þessari reglu þvi
það var svo gifurlega mikill áhugi
fyrir hendi hjá þeim.
— Það er eitthvað i kringum 10
busar sem eru i leiknum.
Nú bættust Arni Snævarr og
Skúli Gunnarsson formaður
Herranætur við i hópinn og ég
held áfram.
— En hvernig er inórallinn i
M.R. núna?
Upphófust nd miklar umræður.
Það virtust ekki allir vera á einu
máji um þetta.
— Eg veit nú ekki hvernig
mórallinn var, en manni hefur
heyrst að það sé alltaf við þetta
sama.
— Þetta hefur alltaf verið mjög
vinsæll skóli, það eru alltaf
margir sem sækja sérstaklega
um að fá að komast i M.R.
— En það er stórt bil á milli
kennara og nemenda.
— Það er nú ekki svo átakan-
legt. — Það er mismunandi
eftir kennurum. Það er örugglega
svipað i öðrum skólum.
Gleðileikurinn
— Um hvað snýst nú leikrit
Shakespeares?
— Ys og þys út af engu er fyrst
og fremst gleðileikur. Til umfjöll-
unar eru aðalsmenn og ástalif
þeirra. Það eru sagðar tvær
ástarsögur, annars vegar er
rómantiskt samband Kládiós og
Heróar, sem eru leikin af Skúla
Gunnarssyni og Sigrúnu
Bjartmarsdóttur, en hins vegar
er einhvers konar ást-haturs
samband Beatrisar og Benedikts,
en þau eru leikin af Astu Ingólfs-
dóttur og Arna Snævarr. Nú, það
þarf kannski engan að undra, að
upp koma margsnúnar flækjur og
geypilegur misskilningur en Don
Petro, sem leikinn er af Karli
Heró og (Jrsúla: Sigrún Bjart-
marsdóttir og Þóra L. Péturs-
dóttir
Þistill og Þöngull: Bjarni Guö-
marsson og Steingrímur Másson
Og Andrés Sigurvinsson viröist
skemmta sér konunglega viö að
horfa á krakkana.
Aspelund, reynir að stuðla að þvi
að allt fari á heillavænlegan hátt.
— En það er best að láta annað
ósagt, og biða fumsýningar. Hún
verður svona i kringum 30.
janúar, ef vel gengur.
Sami grunntónn.
— En hvernig er nú fyrir ykkur
að setja sig i spor þessa fólks?
— I dag eru allar hugmyndir
um siðferði allt aðrar en einhvern
veginn er grunntónninn sá sami.
— Já maður kannast við þessi
vandamál, þau eru öll ennþá til
staðar, en þó hafa einhver bæst
við.
— Karlmennirnir halda sig
hafa öll ráð en kvenmennirnir
stjórna öllu undir niðri.
— Hvernig gengur nú skóla-
lærdómurinn i öllu þessu stússi?
— Við lærum margt sem ekki
er hægt að kenna i fyrirlestr-
arformi.
— Við reynum svo að sjálf-
sögðu að skipuleggja timann vel.
— Svo er það að fara eftir þvi
sem skipulagt hefur verið.
— Já, það getur oft verið
slæmt, en fólk i sömu deild hóar
sig saman og pælir i bókunum við
og við, það er helst fornmáladeild
sem sefur i pásum.
— Annars er maður orðinn
gjörsamlega óþolandi i samskipt-
um við annað fólk utan þess sem
kemur nálægt leikritinu.
Gott timabil
— Já maður talar saman i frös-
um úr leikritinu. En þetta er búið
að vera ferlega gott timabil.
— Já, og er ekki rétt að taka
það fram að samvinna við
leikstjórann er búin að vera eins
og best verður á kosið.
— Þú meinar harðstjórann.
— Það ætti eiginlega að kjósa
Andrés inspector næsta vetur,
hann hann hefur svo gott lag á
honum Guðna.
— Við gætum örugglega skrif-
að átján binda framhaldssögu um
allt sem hefur gerst i kringum
þetta leikrit.
— Er þá ekki mál að linni...
eitthvað að lokum?
— „Sem hamslaus ólmast ærð
af frekum losta”.