Helgarpósturinn - 27.08.1982, Qupperneq 9
J-íeh
er~
'sturinn
Föstudagur 27. ágúst 1982
Meiriháttar listviðburður:
Erró opnar sýningu 1 1. september
„Við höfum ekki fengið að sjá
neitt frá honum siðan 1978, á
Listahátið, en þá var haldin yfir-
litssýning á verkum hans. Það er
þvi einstakt tækifæri að fá þessa
sýningu heim. Erró kemur sjálfur
til landsins með 25 ný olfumái-
verk, sem verða öll til sölu.”
Þetta sagði Édda Andrésdóttir,
framkvæmdastjóri kvikmynda-
félagsins F.I.L.M., þegar hún var
spurð hvað kæmi, til að félagið
ætlaði að standa að málverka-
sýningu. Sýningin verður haldin i
samvinnu við Norræna húsið, og
opnar hún i sýningarsal hússins
þann 11. september.
Málverkin á sýningunni verða
úr tveim myndröðum,
Goimförum og 1001 nótt.
Hrafn Gunnlaugsson kvik-
myndagerðarmaður hefur skrifað
formála að sýningarskránni og
þar segir hann meðal annars, að i
listasöfnum heimsborganna sé
viðast hvar að finna málverk eftir
Erró, en að slikt heyri til undan-
tekninga á listasöfnum hér. Siðan
segir Hrafn:
„Það er þvi mikiö fagnaðar-
fundur.að Erró kemur nú heim
með heila sýningu, sem íslend-
ingum gefst tækifæri til að eign-
ast. Hér er um að ræða verk úr
tveim serium, Geimfarar og
Þúsund og ein nótt. Báðar eru
þessar seriur lýsandi fyrir yrkis-
efni Erró. Maðurinn úti i geimn-
um, þar sem álfkona vikublað-
anna hefur tekið við af fljúgandi
englakroppum miðaldamál-
verksins og Þúsund og ein nótt,
þar sem raunveruleiki nútimans
slær hugarflug ævintýrsins út,
fljúgandi töfrateppi eru ekki
lengur draumur, mannsandinn
hefur gert loftsýnir i myndunar-
aflsins að veruleika”.
Sýning Erró hefst, eins og fyrr
segir, 11. september og lýicur
henni 26. september. 1 tilefni
sýningarinnar hefur verið
prentað veggspjald, sem dreift
verður, þegar nær dregur
sýningaropnun. Þá hafa 50 eintök
veriðsérprentuö á betri pappir og
mun listamaðurinn árita þau viö
opnun sýningarinnar.
Það er einhvers konar ný-
rómantísk þrá eftir fjarlægum
löndum og menningarsvæðum,
jafnvel eyðieyjar Robinsons
Crusoes. Þannig tengist flugvél-
in, skútan, vitinn, pýramíðinn,
hofið og eyðieyjan í verkum
Þórs.
Öllu vandfundnari er lykillinn
að verkum Birgis Andréssonar
og reyndar efast ég um að ein heil
hugsun sé fólgin í verkum hans.
Þvert á móti held ég að um sé að
ræða leit gegnum margvíslegar
tilraunir að einhverju sem tengt
gæti myndhugsun og úrvinnslu,
þótt endar nái ekki saman. Ætli
maður sér að finna einhverja
samsvörun milli tveggja verka
eftir hann, lendir maður í blind-
götu.
Margt bendir til þess að Birgir
hafi ætlað sér í fyrstu að byggja
sýningu sína á einhvers konar
innréttingum (installation), en ef
svo er fær hann hugmyndina ekki
til að ganga upp, vegna þess að
verkin og svæðið (sýningarsalur-
inn) vinna ekki saman. Endurnar
sem synda mót viftunni eiga lítið
skylt með öndunum sem svamla
kringum eldhúskollinn, þótt þær
séu sömu gerðar.
Kannski er hægt að greina ein-
hver tengsl milli eldhúskollanna
og leirstyttanna. Hér er verið að
glíma við stærðir og hlutföll, þótt
hugnryndin sé langsótt. En hvað-
an kemur Robert Louis Steven-
son inn í dæmið?
Raunar finnst mér verk Birgis
skólabókardæmi um þær veg-
leysur sem viss tegund af hug-
myndlist er stödd á. Þegar maður
nennir ekki lengur að hnippa í
listamanninn til að fá skýringu á
vissum atriðum. vegna þess að
þau hin sömu atriði vekja enga
forvitni með áhorfandanum, þá
er fokið í flest skjól.
Ég held að Birgir misskilji að
einhverju leyti tilgang Concept-
listar. Henni er ætlað að skýra
hugmynd, hlutgera (materíalí-
sera) hana á einhvern hátt, þann-
ig að hún fari ekki á milli mála.
Til þess eru öll meðul brúkleg,
bara ef hugmyndin nær með því,
fram að ganga. Birgir hamast
hins vegar við að gera allt óskýrt í
þeirri trú að spor hans megi teij-
ast nægilega djúp. En hann verð-
ur þvert á móti maöur sem tiplar
á þrúgum um snæviþakta grund,
svo enginn fær séö hvert hann er
að fara.
ræða. Eins eru fönklagið The
Space Between, diskólagið The
Main Thing, Take a Chance
With Me og While My Heart is
Still Beating ágæt.
Textar Ferrys fjalla allir um
ástina og eru þeir vel gerðir,
einfaldir og hvergi ofhlaðnir.
Avalon kom mér nokkuð á,
óvart sem þægileg og skemmti-
leg plata þó hún sé fyrst og
fremst framleidd sem söluvara.
King Crimson-Beat
Saga hljómsveitarinnar King
Crimson er æði skrautleg og
hafa margir þekktir hljóðfæra-
leikarar komið við sögu henn-
ar. Má i þvi sambandi minna
á menn eins og Greg Lake, Ian
McDonald, Boz Burrel, Mel
Collins, Keith Tippets, John
Wetton og Bill Bruford. Aðeins
einn maður hefur þó verið i
hljómsveitinni frá upphafi en
það er gitarleikarinn sérkenni-
legi Robert Fripp.
A árunum 1969 til 1974 gaf
King Crimson út margar stór
góðar plötur, eins og t.d. In The
Court Of The Crimson King,
Lizard, Islands og Lark’s
Tongues In Aspic. Fripp ákvað
þó i september 1974 að leysa upp
hljómsveitina og lýsti hann þvi
þá jafnframt yfir að nafnið King
Crimson yrði aldrei framar
notað.
eftir Gunnlaug Sigfússon
Fripp hefur hin siðari ár feng-
ist við ýmislegt en með mis-
jöfnum árangri þó. Hann gaf
t.d. út nokkrar sólóplötur sem
þóttu flestar heldur slappar.
Hann pródúseraði plötur með
Peter Gabriel og Daryl Hall og
lék inn á plötur með Brian Eno,
Blondie og fleirum.
Eitthvað hefur Fripp liklega
ekki verið ánægður með gang
mála á þessum sólóferli sinum,
þvi i fyrra gekk hann á bak
orða sinna og endurstofnaði
King Crimson. Til liðs við sig
fékk hann að þessu sinni
trommuleikarann Bill Bruford,
sem áður hafði komið mikið við
sögu hljómsveitarinnar, gitar-
leikarann sérstæða Adrian
Belew og bassaleikarann Tony
Levin.
Fljótlega sendi þessi nýja
Crimson frá sér sina fyrstu
plötu, Discipline, og var þar um
æði misjafnan grip að ræða. Nú
er komin frá þeim ný plata og
ber hún nafniö Beat. Hún fjallar
að einhverju leyti um bitnikk-
ana svokölluðu eða þá að text-
arnir eru gerðir undir áhrifum
þeirra.
Fyrsta lagið á plötunni heitir
Neal And Jack And Me. Jack
þessi er rithöfundurinn Jack
Kerouack og Neil Cassady var
vinur hans og söguhetja margra
bóka hans og þá annaðhvort
undir nafninu Dean Moriarty
eða Cody Pomeray. I textanum
eru líka talin upp nöfn nokkurra
bóka Kerouaks, s.s. En Route
(On The Road), Les Souterrains
(The Subterraneans), Des
Visions Du Cody (Visions Of
Cody) og Sartori ð Paris
(Sartori In Paris).
Eitt lagið heitir Sartori In
Tangier en Kerouak skrifaði
eins og áður segir bókina Sar-
tori In Paris. 1 Tangier bjó
William Burroughs og þar mun
hann hafa skrifað eina af sinum
frægustu bókum, Naked Lunch.
Allen Ginsberg orti á sinum
tima ljóðið The Howl og á plöt-
unni heitir eitt lagið The
Howler. Einnig gæti textinn i
laginu Neurotica verið stæling á
kvæði Ginsberg, America.
Ýmislegt fleira á plötunni á lik-
lega skylt við bitnikkana án
þess að ég geti sagt til um það.
Tónlistarlega er Beat mun
heilsteyptari plata en Discipl-
ine. Plata þessi er lika einhver
sú léttasta og aðgengilegasta
sem komið hefur út undir
nafninu King Crimson. Það er
eftirtektarvert hversu litil áhrif
Fripp virðist hafa, en Belew
aftur á móti mikil. Lög eins og
Neal And Jack And Me og
Heartbeat hefðu t.d. ekki komist
á efnisskrá Crimson fyrir
nokkrum árum, til þess eru þau
allt of létt. Það er helst að
FrippShrifin komi i gegn i
leiknu lögunum Sartori In
Tangier og Requiem, svo og i
laginu Neurotica.
1 heildina er Beat þokkaleg-
asta plata en hræddur er ég um
að heldur hefði manni þótt hún
þunn á gullaldarárum King
Crimson.
9
llíóill
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ ág»t
★ ★ góö
★ þolanleg
Oléleg
Bíóbær: *
Ógnvaldurinn (Parasite). Bandarísk kvik-
mynd, árgerð 1982. Handrit: Allan Adler.
Leikendur: Robert Glaudini, Demi Moore.
Leikstjóri: Charles Band.
Þrívíddarmynd um vísindamann, sem helur
framleitt einhverja óvætt. sem er að því komin
að granda honum. Myndin gerist í náinni fram-
tíð, þegar Stóri Bróðir ræður öllu. eða svo til.
Heldur þunnt handrit og leikur eftir þvi, en þrí-
víddarbrellurnar sumar alveg ágætar. Ef menn
hafa enn ekki séð slíka mynd, ættu þeir að
skella sér.
Hafnarbíó: **
Folsku vélin (The Mean Machine). Bandarisk
kvikmynd. Leikendur: Burt Reynolds. Eddie
Albert.
Fangabúðamynd frá Suðurríkjum Bandar/kj-
anna. Sþennan í hámarki.
Gamla bíó: *
Neyðarkall frá Norðurskauti (lce Station Ze-
bra). Bresk-bandarísk kvikmynd, árgerð
1968. Leikendur: Rock Hudson, Ernest Bor-
gnine, Patrick McGoohan. Leikstjóri: John
Sturges.
Yfirleitt hröð og skemmtileg mynd, sem gerð er
eftir einni af sögum Alasters Makklíns.
Bíóhöllin:
Staðgengillinn (The Stunt Man). Bandarisk
kvikmynd, árgerð 1981. Leikendur: Peter
O'Toole, Steve Railsback. Barbara Hershey.
Leikstjóri: Richard Rush.
Staðgengladjobbið er hættulegt. Peter O'Toole
er maður hugaður og sýnir mikil tilþrif.
Skemmtileg mynd.
Píkuskrækir (Pussy Talk). Frönsk-bresk
kvikmynd, árgerð 1980. Leikstjóri: Frederic
Lansac.
Mynd í djarfara laginu. Regnkápumynd.
Dularfullar símhringingar (When a Stranger
Calls). Bandarísk kvikmynd. Leikendur:
Charles Durning, Carole Kane, Colleen
Dewhurst.
Skólastúlka er fengin til að passa börn, en þá
hringir siminn og ókunn rödd.bammbamm-
bammba. Ótti og örvænting.
Löreglustöðin i Bronx (Fort Apache - the
Bronx). Bandarisk kvikmynd, árgerð 1980.
Leikendur: Paul Newman, o.fl.
Palli leikur löggumann, sem á i vandræðum
með ibúa hverfis sins. Lögguhasar og spenna.
Góður maður Palli.
★ ★
Hvellurinn (Blow Out). Bandarísk kvikmynd,
árgerð 1981. Leikendur: John Travolta,
Nancy Allen. Handrit og leikstjórn: Brian
DePalma.
★ ★★
Ameriskur varúlfur i London (An American
Warewolf in London). Bandarisk kvikmynd,
árgerð 1981. Leikendur: David Naughton,
Jenny Aguter, Griffin Dunne. Handrit og
leikstjórn: John Landis.
★ ★ ★
Fram i sviðsljósið (Being There). Bandarisk,
árgerð 1981. Handrit Jerzy Kosinski, eftir
eigin skálsögu. Leikendur: Peter Sellers,
Melvyn Douglas, Shirley MacLaine. Leik-
stjóri: Hal Ashby.
Regnboginn:
Undrin i Amityville (The Amityville Horror).
Bandarisk kvikmynd. Leikendur: James
Brolin, Margot Kidder, Rod Steiger. Leik-
stjóri: Stuart Rosenberg.
,Ein frægasta hrollvekja síðustu ára.
Lifðu hátt og steldu miklu (Live High and
Steal a Lot). Bandarísk kvikmynd. Leikend-
ur: Robert Conrad, Don Stroud. Leikstjóri:
Marvin Chomsky.
Chomsky er rútíneraður sjón varpsstjóri, en hér
hellir hann sér út í mynd um gimsteinarán.
Spenna.
★ ★
Undir urðarmána (The Stalking Moon).
Bandarisk kvikmynd, árgerð 1968. Leikend-
ur: Gregory Peck, Eva Marie Saint. Leik-
stjóri: Robert Mulligan.
Eltingarleikjaveslri. Indíánafaðir barnsins
hennar ellir hana, en hún helur sloppið úr
fangavist hjá indíánum. Hraði og spenna.
Nærbuxnaveiðarinn. (Every Home Should
Have One). Bandarísk kvikmynd. Leikend-
ur: Marty Feldman, Penelope Keith.
Feldman, grinistinn góði, leikur auglýsinga-
stjóra, sem á i baráttu við prestinn á staðnum.
★ ★★
Sólin ein var vitni (Evil UndertheSun). Ensk.
Árgerð 1981. Leikstjóri: Guy Hamilton.
Handrit: Anthony Shaffer. Aðalleikari: Peter
Ustinov.
Stjörnubíó: ***
A-SALUR
Close Encounters of the Third Kind - The
Special Edition.Bandarisk kvikmynd, ár-
gerð 1981. Leikendur: Richard Dreyfuss,
Francois Truffaut, Melinda Dillon, Cary
Guffey. Leikstjóri: Steven Spielberg.
Ein frægasta stórmynd síðari ára er hér aukin
og endurbætt. Nýju atriðin auka mjög á stór-
fengleik myndarinnar.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
B-SALUR
Einvígi köngulóarmannsins (The Dragon
Challenge). Bandarisk kvikmynd. Leikend-
ur: Nicholas Hammond, Ellen Bry, Robert F.
Simon. Leikstjóri: Don McDougal.
Köngulóarmaðurinn reynir að bjarga ráðherra í
Kína frá falli og dauða og að sjálfsögðu tekst
honum það mætavel.
O
Allt er fertugum tært (Chapter Two). Banda-
risk. Árgerð 1982. Handrit: Neil Simon. Leik-
stjóri: Robert Moore. Aðalhlutverk: James
Caan, Marsha Mason.
Neil Simon, einhver frægasti gamanleikjahöf-
undur Bandaríkjanna, missti konuna sína og
varð domm yfir þvi sem eðlilegt er. Hann kynnt-
ist svo leikkonunni Marsha Mason og hætti að
vera domm. I þessari „rómantísku gaman-
mynd" virðist hann vera að þakka fyrir sig, veita
öðrum hlutdeild í þvi þegar sorgmæddir menn
taka gleði sina á ný. Hann lætur konu sína leika
konu sína og James Caan sig sjálfan (þ.e.
Simon). Útkoman er því miður langdregin og
leiðinleg, þar sem sjálfsvorkunnsemi og ó-
sjarmerandi naflaskoðun kæfa þann húmor og
þær tilfinningar sem i efninu felast.
— ÁÞ
Austurbæjarbíó:
Algjört æði (Divine Madness). Bandarisk
kvikmynd, árgerð 1981. Handrit: Jerry Blatt
og Bette Midler. Leikendur: Bette Midler,
o.fl. Leikstjóri: Michael Ritchie.
Hver man ekki eftir Bette Midler í Rósinni? Hér
erum við boðin á skemmtun hjá henni í Los
Angeles, þar sem hún reytir af sér brandarana
og syngur. Fjörug og lífsglöð mynd fyrir alla.
Laugarásbíó: ***
Okkar á milli - i hita og þunga dagsins. ís-
lensk kvikmynd, árgerð 1982. Leikendur:
Benedikt Árnason, Valgarður Guðjónsson,
Andrea Oddsteinsdóttir, Margrét Gunn-
laugsdóttir, María Ellingsen, Sirrý Geirs.
Handrit og stjórn: Hratn Gunnlaugsson.
Styrkur Okkar á milli liggur i djarflegu efnisvali,
nokkuð laglegri kvikmyndatöku, sem sjaldan er
ómarkviss en þó stundum of höll undir fiff i
linsunotkun og hreyfingum, og yfirhöfuð góðri
svlðssetningu, þar sem nostrað er við táknræn
smáatriði.
Leikurinn er ágætur. Benedikt Árnason fer sem
kunnugt er með langstærsta hlutverkið og er
sannfærandi. Leikur hans er lágt stemmdur,
tiltölulega jafn, og á köflum framúrskarandi. Þá
standa þær María Ellingsen og Margrét Gunn-
laugsdóttir sig vel í erfiðustu aukahlutverkun-
um. Aðrir leikarar standa svo sem fyrir sinu. og
Sigurður (Þorvaldur S. Þorvaldsson) er
skemmtileg týpa.
— GA
Háskólabíó: ***
Breaker Morant. Áströlsk. Árgerð 1980.
Handrit: Bruce Beresford o.fl. eftir leikriti
Kenneth Ross. Leikstjóri: Bruce Beresford.
Aðalhlutverk: Edward Woodward, Jack
Thompson.
Ákaflega vönduð og fallega gerð mynd, mettuð
dramatiskri spennu, þar sem fjallað er um sið-
ferði og siðleysi manna undir þrýstingi striðs, -
ástralskra hermanna í Búastríðinu í Suður-
Afríku. Vel leikin og vel stjórnað af einum helsta
kvikmyndagerðarmanni Ástraliu.
— ÁÞ
Tjarnarbió:
Amerisk kvikmyndavika:
Föstudagur:
Kl. 5 Hinir sjö frá Secaucusa snúa aftur.
Kl. 7 Kaffistota kjarnorkunnar.
Kl. 9 Hjadalanö.
Kl. 11 Tylftirnar.
Laugardagur:
Kl. 3 Hjartaland.
Kl. 5 Ylir-undir-skáhallt-niður.
Kl. 7 Clarence og Angel.
Kl. 9 Kaffistofa kjamorkunnar.
Kl. 11 Neðanjarðarknaparnir.
Sunnudagur:
Kl. 3 Kaffistofa kjarnorkunnar.
Kl. 5 Hjartaland.
Kl. 7 Tylttimar.
Kl. 9 Kaffistofa kjarnorkunnar.
Kl. 11 Hinir sjö Irá Secaucusa snúa aftur.
Sjá nánar um myndirnar i Listapósti.
Tónabíó: **
Mad Max I. Áströlsk mynd, árgerð 1979.
Leikendur: Mel Gibson, o.fl. Handrit og leik-
stjórn: George Miller.
Tæknilegavelgerðáströlskofbeldismynd.sem
nú hefur getið af sér ennþá taeknilegri ofbeldis-
mynd, sem er Mad Max 2.
★ ★ ★ T-
Villti Max, stríðsmaður veganna (Mad Max
II), Áströlsk kvikmynd, árgerð 1981.
Leikendur: Mel Gibson o.fl. Handrit: George
Miller o.fl. Leikstjóri: George Miller.
Heimsstyrjöldinni þriðju er lokið og allt i ólestri.
Svo til allt bensín búið. Allir berjast þvi um elds-
neyti á vélfáka sina. Spennumynd og spennan í
hámarki.
Háskólabíó: **
j lausu lotti (Flying High). Bandarísk kvik-
mynd, árgerð 1980. Leikendur: Robert
Hays, Julie Haggert, Peter Graves. Handrit
og leikstjórn: Jim Abrahams og tveir aðrir.
Stólpagrin i anda stórslysamynda.
Regnboginn: ***
Siðsumar (On Golden Pond). Bandarísk
kvikmynd, árgerð 1981. Handrit: Ernest
Thompson, ettir eigin leikriti. Leikendur:
Henry Fonda, Katherine Hepburn, Jane
Fonda, Doug Mackeon. Leikstjóri: Mark Ry-
dell.
Hvað gerir góða mynd svona góða? Leikarar,
handrit, leikstjóm, kvikmyndataka o.s.fn/. Allir
þessir þættir verða að vefjast vel saman svo
karfan slitni ekki. Hún verður að bera áhoriand-
ann gegnum myndina. — jae
Nýja bíó:
Glímuskjálfti í gaggó (Fighting Chance).
Bandarísk kvikmynd, árgerð 1981. Handrit:
Keith Merrill og Eric Hendershot. Leikend-
ur: Edward Herrmann, Kathleen Lloyd, Lor-
enzo Lamas. Leikstjóri: Keith Merrill.
Menntaskóli nokkur i Ameriku hefur alltaf tapað
fyrir öðrum skólum i íþróttakeppni. Sveinar
skólans vilja þó gera tilraun til að sigra a.m.k.
einu sinni áður en þeir útskrifast.
fonlist
Háskólabíó:
Á laugardag kl. 14 verða tónleikar á vegum
Zukofsky-námskeiðsins í Reykjavik. Leikin
verða verk eftir Igor Stravinsky, Sinfónía i C og
Vorblót, og verk eftir Györgey Ligeti, Lontano.
Sjálfur maestróinn Zukofsky stjórnar hljóm-
sveitinni. Góðir tónleikar i vændum.
Melavöllur:
Melarokk. Á laugardag kl. 14 hefst heljarmikil
rokkhátíð og stendur hún til kl. 23.30, ef veður-
guðir lofa. Þar kemur fram mikill fjöldi hljóm-
sveita, úr bænum og af landsbyggðinni.