Helgarpósturinn - 27.08.1982, Blaðsíða 24
'íþifisturinn* Föstudagur 27. ágúst 1982
n*
f' JFíkniefnadeild lögreglunnar i
Reykjavik og Lögreglustjóra-
embættið leita enn að eiganda
marijuanakassanna, sem hingað
komu i byrjun júni frá Jamacia i
gegnum New York. 1 þeim voru
alls 289 kg af marijuana. Lögregl-
unni hafa borist ýmsar ábend-
ingar um hugsanlega eigendur.
Meðal manna, sem (bent hefur
verið á — og lögreglan hefur
haldið uppi itarlegum spurnum
um — er islenskur kaupsýslu-
maður, nú búsettur i New York.
Maður þessi var aðalleikari i
miklu fjársvikamáli, sem upp
kom við höfnina i Reykjavik fyrir
þremur árum. Hann var i Banda-
rikjunum um það leyti sem fikni-
efnin fóru þar um og kom hingað
heim i skyndiheimsókn þegar lög-
reglumenn stóðu vörð um kass-
ana i vöruskemmum. Hann frest-
aði siðan brottför sinni nokkrum
sinnum þessa daga, án þess að á
þvi fengjust viðhlitandi
skýringar. Lögreglan leitar nU
skýringa á þessum frestunum og
heldur uppi spurnum um ferðir
hans og viðskipti erlendis áður en
efnið kom til íslands...
r,T
/"lllrafn Gunnlaugsson hefur
■J veriðmikið til umræðu undan-
farið, ekki siður en nýjasta bió-
myndin hans. Um hvoru tveggja
eru uppi margar skoðanir. Hitt
geta flestir fallist á að Hrafn fer
ótroðnar slóöir i vali á leikurum i
verk þau er hann leikstýrir. Og
stundum tekst honum i þvi efni
vel upp. Hrafn er nú með friðu
föruneyti austur i Skaftafelli við
upptökur á nýju sjónvarpsleikriti
eftir Þorstcin Marelsson. í aðal-
hlutverkinu er, eins og HP hefur
ur skýrt frá, Laddi, Þórhallur
Sigurðsson og er þetta fyrsta
„alvarlega” hlutverkiö sem hann
leikur. En ekki vekur siður eftir-
tekt að i öðru stóru hlutverki er
svo Jón Viðar Jónsson,leiklistar-
gagnrýnandi okkar hér á Helgar-
póstinum. Jón Viðar leikur skóla-
stjóra á heimavistarskóla,
þangað sem ungur poppari, leik-
inn af Ladda, ræðst sem kennari.
Ekki er að efa að margir biöi með
eftirvæntingu eftir að sjá
frammistöðu beggja...
^LjStaða borgarritara i Reykja-
^/!vik sem Gunnlaugur Péturs-
son hefur gegnt lengi, verður ekki
auglýst. Ákveðið mun að þegar
Gunnlaugur lætur af embætti t.
nóvember n.k. taki Jón G.
Tómasson, borgarlögmaður við
þeirri stöðu og hefur hann til-
kynnt stjórn Sambands islenskra
sveitarfélaga, þar sem hann
hefur gegnt formennsku, þetta.
Og þá er spurningin: hver verður
borgarlögmaöur?....
í. jVeturinn er ekki langt undan
V-og þvi megum við eiga von á
nýjum islenskum þáttum i sjón-
varpið. í október hefjast sýningar
á þáttunum um Félagsheimilið,
sem teknir voru upp fyrr á þessu
ári, alls sex þættir. Þá heyrum
við, að i bigerð sé alveg splunku-
nýr magasinþáttur, sem á að
vera einu sinni i viku. Þáttur
þessi á að leysa gamla Vöku-
þáttinn af hólmi, og er honum
jafnframt ætlað að vera i takt við
liðandi stund og fjalla um viðara
svið en Vaka geröi. Stjórnendur
þessa þáttar verða til skiptis
Ándrés Indriðason og Kristin
Pálsdóttir, en ekki hefur verið
gengið frá umsjónarmanni eöa
- mönnum....
fj AHi
nú'
f jAllir muna hvaða ráðherra
núverandi rikisstjórnar við-
hafði opinberlega þau fleygu orð,
— „valdið, það er mitt”. Nú hefur
það „vald” verið notað einaferð-
ina enn, og rikir ólga meðal kenn-
ara við Menntaskólann við Sund i
þvi sambandi. bar var auglýst til
umsóknar staöa frönsku-
kennara. Fjöldi umsókna banst.
Skólastjórn, sem er umsagnarað-
ili til menntamálaráðherra, mat
nokkurn veginn að jöfnu um-
sóknir Mariu Gunnlaugsdóttur
og Catherine Eyjólfsson, bæði
hvað varðar menntun og starfs-
reynslu. Þriðja umsóknin stóð
þeim að baki hvað hvorutveggja
varðar. Menntamálaráðherra
skipaði samt þann umsækjanda i
starfið. Umsækjandinn heitir
Fanney Ingvarsdóttir.
Ráðherrann heitir Ingvar Gisla-
son.Þau eru feðgin. Og i valdið,
—■ það er hans....
> jMeðal þeirra, sem brá i brún
_^þegar Eggert Haukdal lýsti
pvi yfir að við hann hefði aldrei
verið talað um bráðabirgðalögin
og hann myndi greiða þeim mót-
atkvæði var forseti tslands. For-
seti hafði sérstaklega gengið úr
skugga um það með viðtölum við
forystumenn Alþýðubandalags,
Framsóknarflokks og sjálfstæðis-
manna i rikisstjórninni hvort
bráðabirgðalögin hefðu þing-
meirihluta og verið fullvissaður
um, að svo væri. Þegar svo
reyndist ekki vera kom það for-
setanum i opna skjöldu. Forseti
lslands kom ekki á skrifstofu sina
allan þriðjudaginn og var ekki til
viðtals fyrir blaðamenn. Mun
hannhafanotaödaginn til þess að
ráðfæra sig við ráðgjafa sina
vegnahinnar óvæntu uppákomu..
KZ*
s
/
,>■ Aðsókn að kvikmyndahúsum
_<jhöfuðborgarinnar hefur
minnkað mjög á þessu ári miðað
við árin á undan, og ef svo fer sem
horfir, mun aðsóknin minnka um
allt að 35%. Kvikmyndahúsaeig-
endur eru að vonum ekki hressir.
og ætla að mæta þessu með þvi að
draga saman seglin. Mun ætlun
þeirra að segja upp starlsfólki og
jafnvel fækka sýningum i miðri
viku. Þrátt fyrir þetta áfall, eru
þeir ekkert á þvi að gefast upp,
þvi að svona samdráttur hefur
gerst áður, en aðsókn siðan farið
vaxandi eftir nokkurn tima...
^sjl fjölmennri veislu forsætis-
^ ráðherra til heiðurs danska
forsætisráðherranum og krata-
foringjanum Anker Jörgensen
vakti það athygli og umtal, að
enginn núverandi forystumanna
Alþýðuflokksins var þar mættur
en forystumenn allra annarra
stjórnmálaflokka. Heiöursgest-
urinn tók eftir þessu eins og aðrir,
BING &GR0NDAHL
A KJARVALSSTOÐUM
Fimmtudaginn 26. ágúst kl. 16-22.00
Föstudaginn 27. ágúst kl. 14-22.00
Laugardaginn 28. ágúst kl. 14-22.00
Sunnudaginn 29. agúst kl. 14-22.00
Mánudaginn 30. ágúst ki. 14-22.00
þvi hann er vel kunnugur
mörgum krataforingjunum.
Spurðist hann fyrir hverju þetta
sætti og mun hafa fengið þau
svör, að formaður Alþýðuflokks-
ins væri erlendis og ekki hefði
verið hirt um að biðja þá annan
að koma i hans stað. Danska for-
sætisráðherranum mun hafa
gramist þetta og brá hann hart
við og svaraði með þvi að óska
eftir nærveru tveggja alþýðu-
flokksmanna á móti hverjum
einum úr öðrum stjórnmála-
flokkum i veislunni, sem hann
hélt til heiðurs Gunnari Thor-
oddsen tveimur dögum siðar.
Hafa „hirðsiðameistarar” hins
opinbera hent gaman að þessari
kennslustund i kurteisi....
H. Haarde, formaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna gefi kost
á sér...
»rO
> iStór spurning meðal sjálf-
^Vstæðismanna er hvort Þor-
steinn Pálsson, framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambandsins
helli sér út i pólitiska slaginn
núna eða biði enn um sinn. Ákveði
hann hið fyrrnefnda er um tvennt
að velja, — Reykjavik eða Suður-
land. Þar yrði annað sæti listans
trúlega laust, þvi Steinþór Gests-
son á Hæli hættir, og Eggert
Haukdal einn um toppinn, en
Þorsteinn er Selfyssingur að upp-
runa...
'f' jKosningaundirbúningur er
^^þegar hafinn i Sjálfstæðis-
flokknum. Verið er að kjósa kjör-
nefnd, prófkjör i Reykjavik gæti
orðið þegar i október, og yrði það
bundið við flokksmenn. 1 stjórn-
málaheiminum eru menn farnir
að bollaleggja um úrslit. Pott-
þéttir i fjögur efstu sætin i
Reykjavik eru taldir Gcir Hall-
grimsson, Albert Guðmundsson,
Friðrik Sophusson og Birgir
tsleifur Gunnarsson. Fái flokk-
urinn 7—8 sæti er ljóst að all-
margir munu berjast um þau 3—4
sem „laus” yrðu. Þar myndu
takast á Pétur Sigurðsson, Ragn-
hildur Helgadóttir, Guðmuudur
H. Garðarsson og trúlega Ellert
Schram, þótt staða hans innan
flokksins sé talin mjög tvisýn um
þessar mundir. Þá er vitað að
bæði Elin Pálmadóttir og Bessl
Jóhannsdóttir.sem lengst af hafa
einbeitt sér að borgarmálefnum,
hafa hug á þátttöku i prófkjörinu,
svo og Jónas Ellasson, prófessor
og Jónas Bjarnason, efnaverk-
fræðingur. Veruleg hreyfing mun
jafnframt vera fyrir þvi að Geir.
•’Fl
f' JA fundi útvarpsráðs nýverið
^Tvoru ráðsmenn og útvarps-
stjóri búnir að sitja alllengi og
biða eftir einum fulltrúanum, —
sjálfum formanninum, Vilhjálmi
Hjálmarssyni frá Brekku. Þótt
útvarpsráð sé þrautseigt fór
mönnum að leiðast biðin og loks
gerðist sá atburður að Andrés
Björnsson, útvarpsstjóri lauk
munni sundur og sagði: „Skyldi
villti, tryllti Villi ekki láta fara að
sjá sig!”...
/■ JMikil leynd hvilir yfir hlut-
verki nýrrar stöðu deildarverk-
fræðings, sem sjónvarpið auglýsti
lausa til umsóknar á dögunum, og
verjast forráðamenn stofnunar-
innar allra frétta. Við heyrum
hins vegar, að nýi maðurinn muni
taka við af Herði Frimannssyni
yfirverkfræðingi, sem mun eiga
að annast sérstök verkefni fyrir
yfirstjórn sjónvarpsins, en eins
og kunnugt er, hefur löngum
verið erfitt samstarf milli Harðar
annars vegar og ýmissa annarra-
starfsmanna stofnunarinnar hins
vegar. Gengu erfiðleikarnir svo
langt, að i fyrra skrifuðu ýmsir
dagskrárstarfsmenn bréf, þar
sem þess var krafist, að yfir-
stjórn sjónvarpsins gripi i taum-
ana. Þá heyrum við einnig, að
endurskipulagning tæknideildar-
innar standi fyrir dyrum og að
innan skamms muni norskur sér-
fræðingur koma til landsins til að
annast þá endurskipulagningu.
Mun hann m.a. eiga að vera
hinum nýja manni innan handar
og setja hann inn i stöðuna...
s 1 Hið frjálsa og óháða DV var
;Jí'jx\T nokkru með rokufréttir
uin að Albert Guðmundsson,
alþingismaður, flugráðsmaður og
einn af stærri hlutafjáreigendum
i Dagblaðinu h.f., hefði hótað að
segja sig úr flugráði. Daginn eftir
birtiDV viötal við flugráðsmann,
sem sagði að Albert væri guðvel-
komið að segja sig úr ráðinu, það
væri engin eftirsjá i honum þar.
Þriðja daginn ætlaði blaöið að
vera með viðtal við Albert um
málið. Einn blaðamanna DV
hringdi til Alberts að morgni dags
og bar undir hann ummæli flug-
ráðsmannsins, sem ætlaði ekki að
sakna þingmannsins úr ráðinu. —
Heyrðu, góði, sagði þá Albert. Þú
skalt eiga þetta mál við hann
Svein R. Eyjólfsson,— Þar með
lognaðist málið út af siðum DV —
endaerSveinn R. Eyjólfsson ekki
einasta stjórnarformaður og út-
gáfustjóri DV, heldur og einka-
vinur Alberts og samherji hans i
stjórn Hafskips h.f....
f' J|Samskipti gagnrýnenda og
_^llistamanna hafa stundum
verið stirð, eins og kunnugt er.
Hið endurreista gagnrýnenda-
félag hyggst nú leggja sitt af
mörkum til að fá fram breytingu
. á þvi. Félagið mun
gangast fyrir
[)«
BÚNAÐARBANKINN
undirbýr
gjaldeyris viðskipti