Helgarpósturinn - 27.08.1982, Side 17
_Hslgai----7—- '
pösturinn Föstudagur 27. ágúst 1982
17
halda mönnum i samstarfi”.
— Er nauösynlegt að hafa um-
boðsmann?
„Nei, það er ekki nauðsynlegt.
En ef hljómsveitir finna mann
sem þær geta treyst og sem
framkvæmir, þá er það mjög gott
fyrir þær. Annars verður varla
neitt úr neinu. Þaö er betra fyrir
ma5ur helgarinnar
„Ifyrsta lagi þarf að finm
Hallvaröur E. Þdrsson er svo
sannarlega maður helgarinnar.
Hann stendur á bak við Kisarokk-
hátíðina á Melaveilinum sem við
biðum öll eftir. Já að öilum
likindum verður hún á morgun,
þ.e.a.s. ef veður leyfir.
En hvernig flæktist Hallvarður
inn i starf umboðsmannsins?
Stuðaranum lék forvitni á að vita
það og þá var ekki annað að gera
en kýla spurningunni á Hallvarð.
finna and-
ann i bandinu og reyna að vinna
úr honum. Þá þarf að marka
braut eða stefnu hljóm-
sveitarinnar og að skapa atvinnu-
tækifæri, kynna hljómsveitirnar.
Og að sjálfsögðu að reyna að
Bransinn lokkandi...
„í fyrra i maímánuði var ég
búinn að segja upp vinnu minni og
hafði hug á að fara út. Ég var að
leita mér að þriggja til fjögurra
vikna vinnu til að hala inn pen-
ing, þegar ég rakst á auglýsingu
um að umboðsmann vantaði i
hljómsveit. Nú, ég hringdi og var
boðið á æfingu um kvöldið.
Bransinn hafði alltaf virkað lokk-
andi á mig, en einhvern veginn
hafði ég aldrei látið verða af þvi
að kýla á hann. Auglýsingin var
frá frá hljómsveitinni Spilafíf 1
sem þá hét reyndar Fimm og við
tókumst i hendur: ég var ráðinn.
Svo var það einn dag i júli þegar
Utangarðsmenn voru að koma úr
reisu sinni að þá vantaði mann.
Ég tók þvi samstarfi sem stóð
stutt eða til 15. ágúst þegar
bandið hætti. Svo vann ég með
Bodies sem voru Utangarðsmenn
minus Bubbi til áramóta. Frá
áramótum tók ég mér fri.
Leist ekkert á Mela-
vallarhugmyndina
fyrst...
I vor var bransinn farinn að
kitla mig aftur og ég fór að leita
fyrir mér. Ekkert freistaði min,
svo ég var búinn að leggja inn at-
vinnuumsóknir á aðra staöi alls
ótengda bransanum. Þá var það
að Bubbi hringdi i mig og ég fór
að vinna með Egó. — Djobbið er
þess eðlis að þú gerir ekki annað á
meðan. Þá kýldi ég á rokkhátið-
ina i júli en þá var þessi Mela-
vallar hugmynd i sigtinu. Hún var
lengi að gerjast. Mér leist ekkert
á hana i byrjun. Mér var ljóst að
eitthvað meiriháttar varð að
gerastsvo fólk mundikoma. Þess
vegna ákvað ég að taka áh hljóm-
sveitir frá serh flestum stöðum af
landinu til að fá meiri breidd en
ekki^ tvær þrjár sem myndu
trekkja og einhverjar lási með”.
18 timar á sólarhring
— En i hverju felst starf um-
boðsmanns?
hljómsveitir að hafa mann sem
getur hrósað þeim heldur en að
þær séu að þvi sjálfar”.
— Er ekki brjáluð vinna fyrir
svona rokkhátið?
„Þú vinnur 18 tima á sólarhring
i þrjár vikur. Ég hef þurft að hafa
samband við 130—140 manns út af
hátiðinni og það ólikt fólk”.
Stuðarinn þakkar spjallið og
minnir á Melavöllinn á morgun.
Við þangað!
hljómplöfuklúbburinn
TÖN-LIST
Hljómplötuklúbburinn TÓN-LIST býður þig velkominn í hópinn. Hjá
okkur snýst allt um hljómplötur. Klúbburinn er nýjung hér á landi, en
erlendis hafa hliðstæðir klúbbar starfað árum saman. Markmið TÓN-
LISTAR er að bjóða félagsmönnum sínum allar markverðar og
vinsælar hljómplötur og snældur með allt að 20% afslætti!
Inntökuskilyrði í TÓN-LIST eru þau ein að kaupa 1 hljómplötu meö
10% afslætti og síðan eins og þér hentar best. Klipptu nú út miðann
hér fyrir neðan, skrifaðu á hann nafnið þitt og heimilisfang og sendu
hann í Hljómþlötuverslunina LIST Miðbæjarmarkaði (eða líttu inn).
Þá færðu sendan um hæl bækling með nánari upþlýsingum og
plötulista yfir allar tegundir af tónlist: Ný-bylgja — jass— pönk —
klassik — country — þjóðlög -— disco — íslenskar og erlendar.
Ath.: Vertu snar því við verðum að takmarka fjölda klúbbfélaga —
svo þeir fyrstu verða fyrstir, en þeir síðustu komast ekki að.
Heimilisfang:
Hljómplötuverslunin LIST
Miöbæjarmarkaðnum Aðalstræti 9 101 Reykjavík Sími 22977
Hljómplötuklúbburinn TÓN-LIST
Miðbæjarmarkaðnum — Aðalstræti 9
101 Reykjavík — sími 22977
„Útlenskt” landslid
1 næstu viku hefst mikil vertið hjá islenskum landsliðsmönnum
i knattspyrnu, bæði þeim yngri og þeim eldri. A þriöjudaginn
leikur landslið skipað mönnum undir 21 árs aldri gegn Hollend-
ingum á Laugardalsvelli og er sá leikur liöur I Evrópukeppni.
Daginn eftir, 1. september, leika sömu lið á sama stað I Evrópu-
keppni A-landsliða.
Og þetta er bara byrjunin. Viku stðar, þann 8. september,
verður leikinn vináttuleikur við Austur-Þjóðverja á Laugardals-
vellinum. Þann 13. verður islenska A-landsliöið komiö til Iriands
þar sem leikinn veröur leikur i Evrópukeppninni og 26. og 27.
september keppa bæöi landsliðin á Spáni viö heimamenn sem
einnig eru i riðli með islensku liðunum.
Undirbúningur landsleikjanna er þegar hafinn en hann er
erfiður hvað snertir A-landsliöiö þar sem meirihluta liösins
mynda leikmenn sem spila með erlendum félögum og þeir koma
ekki til landsins fyrr en rétt fyrir leikina. Ég sló á þr.áðinn til Jó-
hannesar Atlasonar landsliðsþjálfara og bað hann að segja mér
hvernig gengi að smala saman i liöiö.
„Það hefup gengið merkilega vel að ná I „útlendingana”
miðaö við það aö landsleikurinn gegn Hollendingum fer fram i
miðri viku og evrópsku liðin leika flest í þniöri viku. Þaö er þó
Ijóst að Asgeir Sigurvinsson og Teitur Þórðarson verða ekki meö
vegna meiösia sem þeir hafa átt við aö striða. Eins og stendur er
ljóst að Karl Þórðarson, Arnór Guðjohnsen, Láríis Guðmunds-
son, Sævar Jónsson, Atli Eðvaldsson og Pétur Ormslev mæta til
leiks. Janus Guðlaugsson er hér heima en hefur átt i meiöslum
og óvist hvort hann treystir sér til aö leika? Þetta verða að teljast
viðunandi heimtur.” æ
Sla»fi6
eftir Þröst Haraldsson
— Nú hefur það veriö gagnrýnt að „útlendingarnir” séu sjálf-
' kjörnir I liðið en leikmenn hér heima fái enga möguleika. Finnst
þér þessi gagnrýni réttmæt?
„Þetta er nú gamalt þrætumál. En þess ber aö gæta aö þegar
mennirnir fara utan eru þeir yfirburðamenn i knattspyrnunni
hér og þeim fer varla aftur meðan þeir leika erlendis. Þvert á
móti hefur þeim farið mikið fram og ef þeir væru i þeim litlausa
fótbolta sem hér er leikinn væru þeir enn méiri yfirburðamenn.
Hér má varla koma nýliði inn i landsliðið þá er hann strax farinn
utan. Meðan ástandið er svona get ég ekki tekið þessa gagnrýni
alvarlega.
En fyrst við erum aö ræöa þetta þá hjó ég i það hjá þeim Helga
Danielssyni og Sigmundi Steinarssyni i sjónvarpinu sl. laugar-
dag að þeir kvörtuðu yfir þvi aö hér væru skoruð allt of fá mörk.
Það er alveg rétt, en hvernig á öðruvisi aö vera þegar 4—5 bestu
miðherjar landsins leika með erlendum liðum? Meðan þessir
menn voru hér skoruðu þeir mörg mörk og þaö hlýtur að mynd-
ast skarð eftir þá.”
— Er ekki erfitt að velja úr þeim leikmönnum sem leika hér
heima, það er jú sagt aö hér skari fáir fram úr.
„Jú það er enginn öfundsverður af að þurfa að velja úr þeim
sem eru hér heima. Ég fæ t.d. ekki betur séð en að fimm manns
keppi um tvær stööur. Liðin hér eru mjög jöfn, það er helst að
Vikingarnir skeri sig úr og þaö fyrst og fremst i krafti jafnrar
liösheildar, þeir hafa engar stjörnur á borð viö Lárus
Guðmundsson sem bar af hjá þeim f fyrra.”
— Hvernig verður æfingum fyrir leikina hagað?
„Það verður ósköp svipað og verið hefur. „útlendingarnir”
koma á sunntLdaginn en þá er úrslitaleikurinn i bikarkeppninni
svo fyrsta æfingin verður á mánudag, svo er æfing á þriðjudag
og morgunæfing á miövikudag fyrir leik.”
— Er ekki erfitt að skapa sterka liösheild og æfa leikkerfi á
svona skömmum tfma?
„Jú, en landsliöbyggiráþviaðþarerureyndirmenn.Þaöeru
svona 8—9 manns sem háfa spilað mikið saman, landsliðiö er
eins og annað félagslið þeirra. Við höfum mjög leikreynt lið svo
æfingarnar fara mest i upprifjanir. Aðalmálið er aö skapa góðan
anda i liðinu. Oðruvisi horfir með yngra liðið, þar eru menn ekki
eins leikreyndir svo þar háir þaö okkur hve naumur timi er til
æfinga. Þaö hefur lika sýnt sig eins og i leiknum gegn Dönum
fyrr i sumar. Þá lék liðið afleitlega i fyrri hálfleik en eftir hlé
varð leikur þess ailt annar og betri.”
— Hafa lslendingar einhverja möguleika I Evrópukeppninni?
Getum við sett strik I reikninginn?
„Ég véit nú ekki um möguleikana, en við getum áreiðanlega
sett strik i reikninginn eins og við gerðum i undankeppni HM i
fyrra. Aö visu fórum við ekki gæfulega af staö þegar við töpuðum
fyrir Möltu og við höfum ekki verið alveg nógu heppnir meö
mannskapinn. Þar á ég við að Asgeir hefur ekkert verið með
siöan i vetur og Arnór eingöngu I leiknum gegn Englendingum,
en þessir tveir eru litrfkustu leikmenn okkar og þaö munar um
þá.
Þaö sem við þurfum er að koma saman góðri vörn og góðri
markvörslu, framlinan stendur fyrir sinu. Ef það tekst og leik-
menn eru I góðu formi, eins og þeir voru i leikjunum gegn Tékkó-
slóvakiu og Wales I fyrravetur, þá er liðiö til alls vist.”
— Eru Hollendingar með gott
lið um þessar mundir?
„Þeir eru að byggja upp nýtt
lið með ungum leikmönnum.
Þeir segjast vera með geysi-
sterkt lið i yngri flokknum. Hol-
lendingar hafa vitanlega sterka
stöðu á knattspyrnusviðinu. Að
visu tókst þeim ekki að komast
áfram eftir forkeppni HM en
þeir enduðu hana meb því að
vinna Frakka sem komust mjög
langt i keppninni. Jú, þeir eru
með þrumugott lið.”
-- Ertu bjartsýnn á úrslitin?
■, ,.Ja, okkar me'nn eru til alls
visir svo ég er hæfiíega bjart-
sýnn. Það þarf ýmislegt að
fylgjast að til að góður árangur
náist. Það er (il dæmis mikið
atriði að hafa marga áhorf-
endur, en þeir hafa verið i færra
lagi á knattspyrnuleikjum
sumarsins.”