Helgarpósturinn - 04.03.1983, Side 9
9
b/gar-
_pÖ^tl irinn Föstudagur 4. mars 1983
Alvárleg mynd
háðfuglirín Hasse
„Myndin er byggð á bók sem ég
skrifaöi og heitir Vondur maður.
Nánar tiltekið er hún gerð eftir
kafla í henni, sem heitir Saga fávit-
ans.”
Þetta sagði sænski leikarinn, rit-
höfundurinn og kvikmyndagerðar-
maðurinn Hans Alfredson um
kvikmynd sína Einfaldi morðing-
inn, sem frumsýnd var í Regnbog-
anum á þriðjudaginn.
Einfaldi morðinginn fjallar um
ungan mann, sem vegna holgóms á
erfitt um mál og er þess vegna álit-
inn fáviti. Við dauða móður sinnar
er hann settur í vist hjá verksmiðju-
eigandanum Höglund. Sven, en svo
heitir piltur, er látinn búa í gripa-
húsinu og fær hann svipaða með-
ferð hjá húsbónda sínum og skepn-
urnar, uns hann grípur til örþrifa-
ráða.
Myndin er alvarlegs eðlis, sem er
hið gagnstæða við það, sem Hans
Alfredson er þekktastur fyrir. Hér
þekkja líklega flestir hann sem ann-
an helming háðfuglatvíeykisins
„Tage og Hasse”. Hvers vegna datt
honum þá í hug að gera alvarlega
mynd?
„Mér finnst skemmtilegt að
breyta til. Ég hef leikið alvarleg
hlutverk og ég hef skrifað alvarleg-
ar bækur. Þetta er mér því ekki al-
veg ókunnugt, og ég get notað aðra
hluta höfuðsins” sagði hann.
Hans Alfredson var viðstaddur
frumsýningu myndar sinnar, en
það var ekki aðalástæðan fyrir veru
hans hér. Honum hafði verið boðið
að lesa upp úr verkum sínum á bók-
menntakynningu, sem norrænu
sendikennararnir við Háskóla Is-
lands gengust fyrir í Norræna hús-
inu um síðustu helgi.
„Mér fannst því tilvalið að nota
tækifærið og kynna myndina um
leið” sagði hann.
Einfaldi morðinginn var frum-
sýnd í Svíþjóð í fyrra og hefur henni
hlotnast margháttaður heiður síð-
an. Bæði myndin sjálf, svo og aðal-
leikarinn Stellan Skarsgárd fengu
sænsku verðlaunin „Guldbaggen”
eða Gullbjölluna, Stellan var veitt-
ur Silfurbjörninn í Berlín fyrir best-
an leik, myndin fékk silfurskjöld á
kvikmyndahátíð í Chicago og hún
var kjörin besta myndin af dönsk-
um kvikmyndagagnrýnendum á
síðasta ári.
Hasse er þegar farinn að undir-
búa næstu kvikmynd sína og hefj-
ast tökur á henni um miðjan maí.
Hún heitir því einfalda nafni P og
B, en það er skammstöfun fyrir
Peterson og Bendel.
„Hún er byggð á vinsælli skáld-
sögu frá 4. áratugnum og fjallar um
tvo kaupahéðna, sem byrja með
tvær hendur tómar, en verða ríkir
með óheiðarlegum aðferðum.
Myndin er gamansöm ádeila, og
þar sem slíkir viðskiptahættir eru
enn við Iýði, læt ég hana gerast árið
19831’
Helgarpósturinn skýrði frá því á
sínum tíma, að Hasse hefði fengið
leyfi Halldórs Laxness til þess að
gera söngleik upp úr Atómstöðinni.
Hann var spurður hvernig þeim á-
formum liði.
„Ég ætla að taka fyrir nokkra
hluta úr bókinni og er þegar farinn
,,Ég hef leikið alvarleg hlut-
verk og skrifað alvarlegar
bækur,” segir Hans Alfred-
son, eða Hasse.
að punkta hjá mér hugmyndir, en
ég veit ekki hvenær ég kem til með
að hrinda þessu í framkvæmd. Ör-
ugglega ekki á þessu ari”, sagði
Hans Alfredson, Hasse, frá Sví-
þjóð.
Illmennið og lítilmagninn
Regnboginn:
Einfaldi morðinginn (Den En-
faldige Mördaren). Sænsk kvik-
mynd, árgerð 1982. Leikendur:
Stellan Skarsgárd, Hans Alfred-
son, Maria Johansson, Per Myr-
berg. Handrit og stjórn: Hans Al-
fredsson.
Hans Alfredson eða Hasse eins
og hann kallar sig stundum er
þekktur grínisti í heimalandi sínu,
Svíþjóð. Hér slær hann á nokkuð
aðra strengi. Þessi mynd hans
fjallar um háalvarlegt efni á há-
alvarlegan hátt, þótt gamansemin
sé ekki alveg bannfærð.
Einfaldi morðinginn segir frá
einfeldningslegum pilti, Sven,
sem vegna svokallaðs skarðs í vör
á ákaflega erfitt um mál. Tjáning-
arerfiðleikar hans valda því, að
hann er álitinn fáviti og því lagður
í einelti allt frá barnæsku. Við lát
móður sinnar fer hann í fátækra-
vist til verksmiðjueiganda nokk--
urs, rakins illmennis, og hlýtur
þar sömu laun og skepnurnar, þ.e.
frítt fæði og húsnæði í gripahús-
inu. Önnur meðferð er í samræmi
við það. Eina huggun Sven er
Biblían, sem hann les hvenær sem
færi gefst og lætur sig dreyma um
englana. Það kemur að því, að
piltur fær sig fullsaddan á ill-
menninu og óþokkaskap hans og
grípur til örþrifaráða.
Söguna um niðurlægingu pilts-
Englarnir elta hinn ,,ein-
falda morðingja” í mynd
Hans Alfredsons.
ins segir Hans Alfredson á lát-
lausan en áhrifamikinn hátt. Per-
sónurnar eru teygðar til hins ýtr-
asta — hinir góðu eru góðir og
þeir vondu vondir — en aldrei er
skotið yfir markið. Það, sem á
ekki hvað minnstan þátt í því er
Ieikurinn. Stellan Skarsgárd, sem
leikur Sven, sýnir stórkostlega
frammistöðu og varla hægt að í-
mynda sér hvernig persónunni
hefði mátt gera betri skil. Sömu-
leiðis er leikur Hans Alfredsons
sjálfs sem illmennið framúrskar-
andi. Kvikmyndataka er sérstak-
lega áferðarfalleg og á hún einnig
stóran þátt í vel heppnaðri mynd.
Menningin flytur f Breiðholtiö:
Breiðhyltingar og aðrir borgarbúar ættu að geta hugsað stórt innan
veggja nýju menningarmiðstöðvarinnar við Gerðuberg.
Glæsileg menningar-
miðstöð opnuð á morgun
Það verður mikið um dýrðir í
Breiðholtinu um þessa helgi, eins
og endranær. Einn atburður mun
þó skyggja á alla aðra, opnun
menningarmiðstöðvar hverfisins.
Menningarmiðstöðin verður til
húsa í nýrri glæsilegri byggingu,
sem framkvæmdanefnd bygginga-
áætlunar hefur reist við Gerðuberg.
Borginni verður formlega afhent
húsið í dag, föstudag, en á morgun
verður það svo opnað almenningi.
Húsið opnar með miklum menn-
ingarviðburði, sem er samsýning 16
myndlistarmanna, sem búsettir eru
í Breiðholtshverfi. Þeirra á meðal
eru Einar Hákonarson, Jón Reyk-
dal, Hallsteinn Sigurðsson, Örn
Þorsteinsson og Helgi Gíslason.
Jafnframt verða haldnir tónleikar í
húsinu um helgina.
Fyrstu tvær helgarnar verður op-
ið hús fyrir alla borgarbúa og fer þá
fram skoðanakönnun um nafn á
húsið og hvaða starfsemi Breið-
holtsbúar óski eftir að þar fari
fram. Starfsemi menningarmið-
stöðvarinnar mun síðan verða
byggð upp samkvæmt þeim óskum,
sem þar koma fram.
Menningarmiðstöðin er á tveim
hæðum og er flatarmál hennar alls
um þrjú þúsund fermetrar, þar af er
um eitt þúsund fermetra bókasafn,
sem ekki verður tekið í notkun fyrr
en á næsta ári.
Hver segir svo, að enginn kúltúr
sé i Breiðholtinu?
Bíóbær:
Að bakl dauðans dyrum (Beyond
Death's Door).Bandarlsk kvlk-
mynd, byggð á metsölubók Dr.
Maurice Hawlings. Leikendur: Tom
Halllck, Melind Naud. Leikstjóri:
Henning Schellerup.
Frásagnir lólks, sem séð hefur inn í
landiö fyrir handan landamærin.
Ævar Ft. Kvaran flytur fyrirlestur á
undan sýningunni.
Heltar Dallasnætur (Hot Dallas
Nlghts). Bandarfsk kvikmynd, ár-
gerð 1981. Lelkendur: Hillary
Summer, Raven Turner, Tara Flynn,
Lelkstjóri: Tony Kendrick.
J.R. og félagar skemmta sér á heitum
sumarnóttum. Very hot.
Undrahundurinn. Á laugardag og
sunnudag kl. 14 og 16.
Nýja bíó:
Pink Floyd — The Wall. Bresk kvik-
mynd, árgerð 1982. Handrit: Roger
Waters. Leikendur: Bob Geldof.
Lelkstjóri: Alan Parker.
Myndin er mikið tækniundur og
teiknimyndakaflarnir eru með því
betra, sem ég hef séð.
Háskólabíó:
Sankti Helens, eldfjalliö springur
(St. Helens). Bandarisk, árgerð
1981. Leikendur: Art Carney, David
Huffman, Cassie Yates. Lelkstjóri:
Ernest Pintoff.
Hver man ekki eftir eldgosinu? Hér er
sagt frá þvi og aödraganda þess, er
ungur jaröfræðingur reyndi aö fá fólk
til að yfirgefa hættusvæðin, en...
Með allt á hreinu. íslensk kvik-
mynd, árgerð 1982. Handrlt: Ágúst
Guömundsson og Stuömenn. Lelk-
endur: Stuðmenn, Grýlur, Eggert
Þorleifsson, Sif Ragnhlldardóttir.
Leikstjóri: Agúst Guðmundsson.
Austurbæjarbíó:
Auga fyrir auga (An Eye for an Eye).
Bandarisk kvikmynd, árgerö 1981.
Leikendur: Chuck Norris og flelri
hnefar. Leikstjóri: Steve Carver.
Sakamálamynd meö karatelvafi.
Bíóhöllin:
Óþokkarnir (The Blackout). Banda-
risk kvikmynd, árgerð 1980. Leik-
endur: Robert Carradine, Jim
Mitchum, June Allyson, Ray Mil-
land. Leikstjórl: Eddy Matalon,
Áriö 1977. Rafmagniöferaf New York.
Bófar af öllum stæröum og gerðum
hugsa sér gott til glóðarinnar og fara
um ránshendi. En aö sjálfsögöu
hljóta þeir að nást aftur. Spenna og
myrkur: Myrkraöflin á kreiki.
Dularfulla húsið (The Evlctors).
Bandarisk kvikmynd, árgerð 1981.
Leikendur: Vic Morrow, Jesslca
Harper, Michael Parks. Lelkstjóri:
Charles B. Pierce.
Hjón flytja inn í hús í kyrrlátum ame-
rískum bæ. Þá fer allt á annan end-
ann.
Meistarinn (Force of One). Banda-
risk kvikmynd. Leikendur: Chuck
Norris, Jennifer O'Neilt, Ron O’
Neal.
Karatemeistarinn frægi á fullri ferð í
aö uppræta bófaflokk, Hringinn
fræga.
Gauragangur á ströndinni (Malibu
Beach). Bandarfsk kvikmynd. Leik-
endur: Kim Lankford, James
Daughton, Susan Player Jarreau.
Lelkstjóri: Robert J. Rosenthal.
Hressir og lífsglaöir unglingar stunda
strandlifið og veröa ástfangnir. Hvern
dreymir ekki um það?
Fjórlr vinir (Four Friends). Banda-
rfsk, árgerð 1982. Handrit: Steven
Tesich. Leikendur: Cralg Wasson,
Jody Thelen, Michael Huddleston,
Jim Metzier. Lelkstjóri: Arthur
Penn.
Penn og handritshöfundurinn Tesich
sýna i forgrunni hvernig fjögur ung-
menni eldast og þroskast og glata
aeskublómanum, en i bakgrunninum
glittir á samskonar örlög bandarisku
þjóöarinnar. Þetta er vel leikin mynd,
persónurnar eru sannfærandi flestar
hverjar, og myndin í heild gengur á-
gætlega upp.
— GA
)★ ★ ★ ★
★ ★ ★
★ ★
★
0|
framúrski
ágaet
góA
þolanleg
léleg
randl
Germlnal eftir Allégret. Fö. kl. 5.30,
lau. kl. 11.15.
Gervaise eftir Clément. Fö. kl. 9, lau.
kl. 3, su. kl. 11.15.
Thérese Raquin eftir Carnó. Fö. kl.
11.15, lau. kl. 5.30, su. kl. 3.
LaBetehumaineeftirRenoir. Lau. kl.
9, su. kl. 5.30.
Tónabíó:
Riklr krakkar (Rich Kids). Bandarisk
kvikmynd. Lelkendur: Trlnl Alvara-
do, Jeremy Levy. Lelkstjórl: Robert
M. Young.
Tólf ára piltur fer á kvennafar, þegar
pabbi lánar honum viöhaldsibúöina
sfna. Þetta með eplið og eikina. Eða:
kötturinn og músin.
Laugarásbíó:
Tvfsklnnuigur (Double Jeopardy).
Bandarfsk kvlkmynd, árgerð 1982.
Lelkendur: Suzanne Love, Robert
Walker, Ulli Lommel. Handrit og
stjórn: Ulll Lommel.
Leikstjóri þessarar myndar er úr Fass-
bindergenginu og hefur verið aö
hasla sér völl á sviöi leikstjórnar á
undanförnum árum. Hér kemur fyrsta
mynd hans f rá Amerlku og er hún eró-
tiskur leyndardómur. Kl. 9 og 11.
E.T. Bandarfsk kvikmynd, árgerö
1982. Leikendur: Henry Thomas,
Francls Coppola. Leikstjóri: Steven
Splelberg. Stórkostleg ævintýra-
mynd fyrir börn á öllum aldri.
MÍR-salurinn:
Tsjækovskí. Sovésk kvikmynd, ár-
gerð 1970. Leikendur: Innokenti
Smoktunovskí, Antonina Shura-
nova, Alla Demidova. Lelkstjóri:
Igor Talankin.
Fyrri hluti myndar um tónskáldið
fræga. Sýnd á sunnudag kl. 16. Öllum
heimill aðgangur.
Stjörnubíó:
Keppnin (The Competltion).
Bandarlsk kvlkmynd árgerð 1980.
Lelkendur: Richard Dreyfuss, Amy
Irvlng, Lee Remick. Lelkstjóri: Joel
Ollansky.
Einkar amerisk kvikmynd um ungt
tónlistarfólk, sem elskast en nær ekki
saman. Mjög hefðbundin mynd, sem
gleymist líklega fljótlega eða rennur
saman við fjölda annarra af svipuðu
toga. Keppnin hefur ekki sterkan kar-
akter.
Byssurnar frá Navarone (The Guns
of Navarone). Bresk-bandarisk
kvikmynd, árgerð 1961. Leikendur:
Gregory Peck, Anthony Qulnn,
Davld Nlven, Irene Papas. Leik-
stjórl: J. Lee Thompson.
Spennumynd eins og þær gerast
bestar. Litil ellimörk á henni þessari.
Kvikmyndaklúbbur Alli-
ance Francaise:
Morðingi á ferll (Un assassin qul
passe). Frönsk, árgerð 1981. Leik-
endur: Jean-Louls Trintlgnan, Car-
loe Laure, Rlchard Berry. Leikstjóri:
Michel Vlaney.
Lauflétt en fremur hæggeng mynd
um kvennamorðingja. Góöur leikur.
Sýnd I E-sal Regnbogans á þriöjudag
og miðvikudag í næstu viku kl. 20.30.
twnlist
Kjarvalsstaðir:
Áföstudag kl. 20.30 mun austurrlskur
blásarakvintett halda tónleika og
blása úr eyrum borgarbúa. Mætum
öll.
Borgarbíó,
Akureyri:
Djassistarnir Paul Weeden (gltar) og
Lou Bennett (orgel) halda tónleika á
laugardag kl. 17 og spila dúndrandi
djass eins og hann getur orðið. Akur-
eyrskir djassfríkar eru hvattir til aö
mæta.
Fram í sviðsljóslð (Being There)
Bandarfsk, árgerð 1981. Handrit:
Jerzy Kosinskl, eftlr eigin skáld-
sögu. Lelkendur: Peter Sellers,
Melvyn Douglas, Shlrley MacLaine.
Leikstjóri: Hal Ashby.
Stúdentakjaliarinn:
Dúndrandi djassleikur á sunnudag kl.
21. Björn Thoroddsen, Siguröur
Flosason, Lúðvlk Simonar og Tómas
Einarsson þenja sig og aðra.
Regnboginn:
Vfgamenn (Raw Force). Bandarfsk
kvikmynd, árgerö 1981. Aöalhlut-
verk: Cameron Mitchell.
Munkar á suöurhafseyju stunda
mannát og vekja upp dauða til að
berjast fyrir sig. Sem sagt: blóðug
mynd.
Einfaldi morðinginn. — sjá umsögn
í Listapósti.
Blóöbönd (Die Bleierne Zelt). Þýsk
kvikmynd, árgerð 1981. Leikendur:
Barbara Sukowa, Jutta Lampe,
Rudiger Vogler. Handrit og stjórn:
Margarethe von Trotta.
Áhrifamikil mynd um hryðjuverkakon-
una Guðrúnu Enslin og systur henn-
ar.
Myndir eftir verkum Zola:
Pot Bouille eftir Duvivier. Fö. kl. 3, su.
kl. 9.
viMmrMr
Kjarvalsstaðir:
Hver man ekki eftir sjónvarpsþáttun-
um um Zola? I tilefni sýningarinnar á
Ijósmyndum Zola, verður þáttaröðin
sýnd viðstöðulaust I videói frá kl.
14—22 alla helgina.
Kjarvalsstaðir:
Á sunnudag kl. 16 flytur Indriði G.‘
Þorsteinsson rithöfundur erindi I
tengslum við sýningu blaðaljósmynd-
ara.
Samtök um
kvennaathvarf:
Skrifstofa samtakanna er i Gnoðar-
vogi44,2. hæð. Hún eropin alla virka
daga kl. 14—16, simi 31575. Póstgiró-
númer samtakanna er 4442-1.