Helgarpósturinn - 04.03.1983, Blaðsíða 11

Helgarpósturinn - 04.03.1983, Blaðsíða 11
11 -flfe/ irinn Föstudagur 4. mars 1983 „SKAPA MINN EIGIN HEIM" — segir franski myndlistarmaðurinn Felix Rozen, sem opnar sýningu f Nýiistasafninu í kvöld „Draumur minn var að verða tón- listarmaður, en af því varð þó ekki. Ég vinn hins vegar mikið með tón- list og þannig voru þessi verk mín gerð“, sagði Felix Rozen mynd- listarmaður í samtali við Helgar- póstinn, en Rozen opnar sýningu á verkum sínum í Nýlistasafninu í kvöld, föstudag. Felix Rozen er fæddur í Rúss- landi og hlaut menntun sína í Var- sjá. Til Frakklands fór hann 1966 og varð franskur ríkisborgari. Myndir sínar kallar Rozen „maxímalískar", þ.e. hann hleður myndtáknunum hvert ofan á annað. Málverkin, sem hann sýnir hér eru gerð á árunum 1980-1983, og eru þau mjög línuleg eða lárétt og er það stærsta um 25 m x 10 cm að stærð. Aðspurður hvort verk hans ættu eitthvað skylt við hið nýja málverk, sem svo er kallað, svaraði Rozen því neitandi, hann hefði sjálfur verið að fást við expressíónísk málverk fyrir 10 árum. „Ég reyni að skapa heim, sem er minn að öllu leyti“, sagði hann. Rozen hefur haldið sýningar víða um heim og verk hans eru í eigu margra af þekktustu söfnum heimsins, eins og Guggenheim, Nútímalistasafnsins í New York, Pompidou-safnsins í París o.fl. Sýningunni lýkur 12. mars. LEiKFÉLAG REYKJAVÍKUR SÍM116620 Skilnaöur þriðjudag kl. 20.30 Forsetaheimsóknin föstudag uppselt miðvikudag kl. 20.30 Salka Valka laugardag uppselt Jói sunnudag kl. 20.30 Miðasala í Iðnó kl. 14—20.30 HASSIÐ HENNAR MÖM MIÐNÆTURSÝNING í AUSTURBÆJARBÍÓI LAUGARDAG KL. 23.30 Miðasala í Austurbæjarbíói kl 16-21. Sími 11384. ISLENSKA óperanIuv LITLI SÓTARINN Næsta sýning sunnudag kl. 16.00 eftir Gilbert & Sullivan í íslenskri þýöingu Ragnheiðar H. Vigfúsdótt- Stjórnandi Garðar Cortes. Leikstjóri Francesca Zambello. Leikmynd og Ijós Michael Deegan. Frumsýning föstudaginn 11. mars. kl. 20.00. Forsala aðgöngumiða hefst föstu- daginn 4. mars og er miðasalan opin milli kl. 15—20, daglega. Ath.: Styrktarfélagar íslensku ó- perunnar eiga forkaupsrétt að mið- um til sunnudags. Miðasalan er opin milli kl. 20.00 daglega. Sími 11475. 15- 'ifi ÞiÓfilEIKHÚSI# Þrumuveöur yngsta barnsins 2. og síðari sýning í kvöld kl. 20 Oresteia 2. sýning laugardag kl. 20 Lína langsokkur laugardag kl. 12 Uppselt sunnudag kl. 14 Uppselt sunnudag kl. 18 Uppselt Ath. breytta sýningartíma Litla sviðið: Súkkulaði handa Silju sunnudag kl. 20.30 þriðjudag kl. 20.30 Miðasala 13.15—20. Sími 1-1200 HOFFERÐ TIL HÖFUD- BORQARIHHAR: Qóðir landsmenn! Efþið hafið í huga að bregða ykkur til höfuðborgarinnar í vetur, til að n jóta leiksýninga, málverkasýninga, tónleika eða til að hittaœttingjana, þá viljum við Arnarhólsmenn bendaykkur áað okkur erþað einstök ánægja að taka á móti hópum utan af landsbyggðinni. Vœ viljum aðeins minna ykkur á nauðsyn þess að panta með góðum fyrirvara, helst nokkurra daga, í síma 18833. Með góðum fyrirvara býðst betri þjónusta. \íerið velkomin, Veitingahúsið Arnarhóll. ARTiARHÓLL Hverfisgötu 8-10. Borðapantanir í síma 18833.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.