Helgarpósturinn - 04.03.1983, Blaðsíða 22

Helgarpósturinn - 04.03.1983, Blaðsíða 22
22 það hefur legið í loftinu að undanförnu, að það fjórflokkakerfi sem hefur ríkt í islenskum stjórnmálum um skeið sé í þann veginn að riðlast. í rauninni ætti engan að undra það,, því undanfarna áratugi hafa stjórnmálaflokk- arnir oftar en ekki verið fimm. Fyrir 20 árum var það Þjóðvarnarflokkur- inn, sem fékk talsvert fylgi á sínum tíma. Fyrir um áratug komu Samtök frjálslyndra og vins- tri manna, sem meira að segja áttu aðild að ríkisstjórn. Að þessu sinni bendir flest til þess, að í kosningunum í vor komi fram ekki bara eitt framboð umfram stjórnmálaflokkana fjóra, heldur tvö — Bandalag jafnaðarmanna og Kvennalisti og þegar þetta er skrifað hefur Gunnar Thoroddsen enn ekki tilkynnt á- kvörðun um það hvort hann kemur fram með sérframboð eða ekki. Þessu til viðbótar hefur í vetur verið rætt um stofnun tveggja nýrrá flokka eða hreyf- SKOÐANAKÖNNUN DV: Vilmundarsigur KVENNALISTIAÐ KOMAST Á SKRIO Bandalag jafnaðarmanna og Kvenna- listi eru tvær óþekktar stærðir í íslenskri landsmálapólitík. Styrkleiki þeirra kemur í Ijós áður en langt um líður. Fjörugar kosningar framundan inga, annars vegar Verkalýðsflokk og hins vegar flokks umhverfisverndarmanna, þótt forsvarsmenn beggja hópanna vísi því alveg frá sér, að um framboð af þeirra hálfu geti verið að ræða fyrir næstu kosningar. Sigrún Helgadóttir starfsmaður hjá Nátt- úruverndarráði er í hópi þeirra umhverfis- verndarmanna sem hefur rætt um aðgerðir til þess að vekja athygli á málstað þeirra. Hún segir mér, að stofnun umhverfisverndarflokks eða „græningjaflokks” og jafnvel framboðs sé ein af þeim leiðum sem ræddar hafi verið. „En það þarf að vera ákveðinn jarðvegur fyrir slíkt, og við teljum ekki að hann sé fyrir hendi nú. En það gæti orðið eftir fjögur ár eða enn lengri tíma, ég er sannfærð um að slíkt framboð kemur einhverntímann fram,” segir Sigrún. Og því má bæta við, að annar hópur umhverfisverndarfólks starfar með miklum krafti á Akureyri og hefur líka hug- leitt framboðsmál. „Hugmyndir um stofnun Verkalýðsflokks hafa alls ekki verið lagðar á hilluna. Það verð- ur þó ekki fyrir þessar kosningar, en ekki frá- Ieitt að flokksstofnun verði fyrir seinni kosn- ingarnar í ár, ef þær verða,” segir Lárus Guð- jónsson starfsmaður Menningar- og fræðslu- sambands alþýðu. Hann segir, að á Akureyri hafi þegar verið myndaður harður kjarni fólks sem stefnir á að stofna Verkalýðsflokk, og í Reykjavík sé unn- ið að málinu. „Akurinn er plægður, það er bara eftir að sá og uppskeraí’ segir Lárus. Það er hinsvegar öruggt, að Bandalag jafn- aðarmanna mun bjóða fram — og að sögn Vilmundar Gylfasonar hefur sú ákvörðun þeirra að bjóða fram í öllum kjördæmum ekki breyst. Félagsstofnun hefur þegar farið fram í Reykjavík, í Kópavogi, á Suðurlandi, Húsavík og Akureyri. Ekkert hefur enn verið ákveðið um það hverjir skipa lista Bandalagsins í kosningun- um enn, að því er Vilmundur Gylfason segir sjálfur. „Hjá flokkunum er mannvalið á listanum sem allt snýst um, en hjá okkur er þessu öfugt farið, Bandalag jafnaðarmanna er byggt á hugmyndafræði, og það er þriðja flokks flokksblaðamennska að spyrja um slíkt,” sagði hann þegar ég innti hann eftir fram- boðsmálum. Hjá Kvennaframboðinu, sem mun að öll- um líkindum bjóða fram undir nafninu Kvennalisti, er sömu sögu að segja. Að sögn Kristínar Ástgeirsdóttur hafði um miðja vik- una engin ákvörðun verið tekin um það hvaða konur skipa listann, en hún sagði að það: mundi ef til vill skýrast þegar um næstu helgi. Enn er verið að kanna undirtektir undir Kvennalistann í öðrum kjördæmum en íj Reykjavík. Endanleg stefnuskrá Kvennaframboðs er heldur ekki tilbúin, en að sögn Kristínar verð- ur aðal áherslan lögð á að standa vörð um hagsmuni kvenna og barna, vinna að um- hverfisverndarmálum og friðarmálum. Einmenningskjördæmin í Bretlandi leiða i ljós í aukakosningum, sem til falla á milli al- mennra þingkosninga, stjómmálahræringar i landinu. Kosningabandalag Frjálslynda flokksins og nýs Sósíaldemókrataflokks náði sér á strik með dæmafáum hraða á síð- astliðnu ári, þegar það vann þrennar auka- kosningar og kom forystumönnum sósíal- demókrata, fyrrverandi máttarstólpum i Verkamannaflokknum, þar með inn á þing. Allir þessir sigrar unnust á kostnað íhalds- flokksins, bandalagið vann kjördæmin af honum. Frambjóðendur þess reyndust ekki jafn sigursælir í Verkamannaflokkskjör- dæmum. Þegar það bættist svo við, að flokk- arnir tveir i bandalaginu lentu í erjum við skiptingu kjördæma milli frambjóðenda úr hvorum þeirra um sig i næstu þingkosning- um, og frú Thatcher forsætisráðherra og íhaldsflokkurinn risu á öldufaldi al- menningsálitsins eftir sigursælt Falklands- eyjastríð, hvarf bandalagið í skuggann og dalaði i skoðanakönnunum. Svo var komið í byrjun þessa árs, að tals- menn Verkamannaflokksins tóku að láta sem bandalagið væri úr sögunni sem stjórnmála- afl, baráttan í næstu kosningum myndi sem fyrr standa milli flokks þeirra og íhalds- manna. Aukakosningar í Lundúnakjördæminu Bermondsey í síðustu viku höfðu snögg enda- skipti á þessu viðhorfi. Nú er það Verka- mannaflokkurinn, sem staddur er í meiri kröggum en nokkru sinni fyrr, þar sem hins vegar bandalagið telur sér alla vegi færa. Bermondsey er dæmigert verkalýðsstéttar kjördæmi, og þar hafa frambjóðendur Verka- Michael Foot flokksforingi (t.v.) á- samt Peter Tatchell, frambjóöandan- umsem hann kvaðst aldrei myndu styðja. Simon Hughes fagnar sigri í Ber- mondsey. Verkamannaflokkurin n í uppnámi eftir fall höfuövígis mannaflokksins farið með sigur af hólmi í. öllum kosningum síðustu sex áratugi. í kosningunum 1979 var Verkamannaflokks- þingmaðurinn Robert Mellish endurkjörinn með hartnær tveim þriðju hlutum atkvæða, 63.6*%. Bermondsey var sem fyrr í hópi kjör- dæma, sem allir töldu óvinnandi vígi Verka- mannaflokksins. En síðan 1979 hefur ekki linnt valdabaráttu í Verkamannaflokknum. Harðsnúin fylking vinstri manna, nokkurs konar flokkur innan flokksins, hefur með skipulegum hætti unnið að því að ná öllum völdum. Helsta aðferðin er , sú að taka völdin í fámennum og einatt at- hafnalitlum flokksfélögum í kjördæmunum, nota völdin þar til að afsegja þingmenn af Föstudagur 4. mars 1983j' 'urinn „Markmið okkar er að ísland standi fyrir utan öll hernaðarbandalög, erum á móti auk- num umsvifum á Keflavíkurflugvelli og styðj- um tillögur um kjarnorkuvopnalaus Norður- Iönd. Hinsvegar teljum við að öll umræða á landinu um hermál séu á blindgötu og þvi ekki rétt að setja fram kröfuna „Island úr Nató, herinn burt”. Við viljum fyrst og fremst fá fólk til að hlusta hvaða leiðir við viljum fara til að berjast fyrir afvopnun og friði”, segir Kristín. Gömlu flokkarnir hafa ekki farið varhluta af sérframboðum, eins og kunnugt er. For- maður flokksins og formaður þingflokksins biðu báðir mikinn ósigur i prófkjörum og ekki var fyrr orðið ljóst, að Sjálfstæðisflokk- urinn stæði sameinaður á Norðurlandi eystra og Suðurlandi en fregnir bárust um, að Sigur- laug Bjarnadóttir menntaskólakennari og varaþingmaður og fleiri sjálfstæðismenn á Vestfjörðum stefni að sérframboði þar. Ástæðan er fyrst og fremst sögð sú, að flokksforystan fyrir vestan féllst ekki á að halda prófkjör. Þess í stað voru þeir skipaðir í þrjú efstu sæti listans með gamla Iaginu Matthías Bjarnason, Þorvaldur Garðar Krist- jánsson og Einar K. Guðfinnsson. Mótleikur- inn varð sá, að fram er kominn listi þar sem Sigurlaug sjálf er eini frambjóðandinn sem er þegar þekktur af afskiptum af stjórnmálum, og um helgina er fyrirhuguð skoðanakönnun um það hvernig menn vilja raða á framboðs- listann. „Þetta er ekki sambærilegt við klofning Eggerts Haukdal og Jóns Sólnes við síðustu kosningar. Þetta er eina kjördæmið þar sem ekki er haldið prófkjör og við erum að mót- mæla þröngsýni og ólýðræðislegum vinnu- brögðum;’ sagði Sigurlaug um framboðsmál! sín. „En við göngum fram sem Sjálfstæðis- menn og ég geng út frá því sem vísum hlut, að eftir kosningar göngum við til liðs við Sjálf- stæðisflokkinn”, sagði hún. Að baki sérframboði framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi vestra liggja hinsvegar öllu persónulegri ástæður. Ingólfur Guðna- son alþingismaður lýsti því yfir, að hann tæki ekki sæti á sama lista og Páll Pétursson og endalyktir urðu þær, að Frannsóknarfélögin í Austur- og Vestur-Hunavatnssýslum bjóða fram eigin lista, „göngumannalistann” svo- nefnda, en áætlað er að ganga endanlega frá honum um helgina. IIMIMLEIMO VFIRSVN ERLEiMO gamla skólanum og velja síðan þingmanna- efni í þeirra stað. í Bermondsey var Robert Mellish afsagður og frambjóðandi í hans stað valinn Peter Tatchell. Hann hóf feril sinn í þeirri stöðu með yfirlýsingum, sem urðu til að Michael Foot, formaður Verkamannaflokksins, kunn- gerði að slíkan frambjóðanda gæti hann aldrei stutt. En þegar Robert Mellish sagði af sér þingmennsku til að knýja fram auka- kosningar, staðfesti flokksfélagið í Bermond- sey valið á Tatchell til að halda uppi merki Verkamannaflokksins í kjördæminu. Sá þá Foot ekki annað úrræði en éta ofan í sig fyrri heitingar og lýsa stuðningi við frambjóðand- ann. Bandalagið valdi til frambjóðanda í Berm- ondsey Simon Hughes, ungan lítt þekktan lögfræðing úr Frjálslynda flokknum. Að auki var í framboði Verkamannaflokksmaður af sauðahúsi Mellish og naut liðsinnis hans. Ovissuþátturinn hvað Alþýðuflokkinn varðar er fyrst og fremst sá, að ekki er ljóst hve margir úr þeim flokki munu fylgja Vil- mundi og Bandalagijanaðarmanna.enljóst er að þeir eru talsvert margir. Þeirra á meðal Ágúst Einarsson sem hlaut fjórða sætið í prófkjöri flokksins í Reykjavík. Önnur breyt- ing í Reykjavík er sú, að nú skipar Jón Baldvin Hannibalsson fyrsta sætið í stað Benedikts Gröndal , en þriðja sætið skipar Bjarni Guðnason, sem síðast var í framboði á Aust- urlandi. Á Austfjörðum hefur ekki verið gengið frá listanum og óvíst enn hverjir muni skipa hann. Nefndir hafa verið Guðmundur Magnússon fræðslustjóri og Erling Garðar Jónasson rafveitustjóri fyrir austan, en Al- þýðuflokksmenn telja allt eins Iíklegt, að ut- anaðkomandi maður muni skipa að minnsta kosti efsta sæti listans. Rólegra hefur verið hjá Alþýðubandalag- inu fyrir þessar kosningar en hinum flokkun um, á yfirborðinu a.m.k. Þó gerðist það í Reykjavík, að Ólafur Ragnar Grímsson féll niður í fjórða sæti listans í forvalinu. Það skýra sumir með því að margir Alþýðubanda- lagsmenn hafi verið hræddir um hag einu konunnar á listanum, og það hafi tryggt henni þriðja sætið. Aðrir segja, að gömlu sósíalist- arnir hafi fylkt sér um Guðmund J. Guð- mundsson til að tryggja honum annað sætið, með þessum afleiðingum. Jr að má líka telja það til nokkurra tíðinda, að tiltölulega óþekktur maður í pólitíkinni, Steingrímur Sigfússon,skyIdi hafa orðið arf- taki Stefáns Jónssonar á Norðurlandi eystra og fellt Soffíu Guðmundsdóttur í fjórða sæt- ið úr öðru sæti, en í stað hennar kom annað óþekkt andlit í pólitíkinni, Svanfríður Jónasdóttir á Dalvík. Forsætisráðherra hefur lýst því yfir, að kosningar fari fram ekki síðar en 23. apríl. Þegar þetta er ritað er ekki vitað nema ráð- herrar Alþýðubandalagsins gangi úr ríkis- stjórninni vegna skipunar nýrrar álviðræðu- nefndar. Þeir túlka hana sem vantraust á Hjörleif Guttormsson iðnaðarráðherra, sem hefur leitt þessar viðræður til þessa. Hvað sem því öllu líður má fullyrða, að framundan séu fjörugri og meira spennandi kosningar en oft áður, kosningar þar sem er mikið af nýju og fersku blóði. menn sjá þann kost vænstan að losa sig við Foot úr stöðu flokksforingja, og vilja hafa á því hröð handtök. Frú Thatcher getur rofið þing og boðað til kosninga hvenær sem hún telur sér best henta. Ólíklegt þykir þó að hún efni til kosninga fyrr en í júni, en miklar líkur eru taldar á kosningum í október. Því er of seint að bíða þings Verkamannaflokksins í haust með að steypa Foot. Ráðagerðir eru því uppi meðal manna í skuggaráðuneyti Verkamannaflokksins, þeirrar forustusveitar þingflokksins, sem skipa myndi ráðherraembætti komi til stjórn- armyndunar af hans hálfu, að knýja Foot til að segja af sér, þannig að Denis Healey vara- leiðtogi taki við af honum. Sá meinbugur er á þessu, að vinstri armur flokksins er Healey ákaflega andsnúinn, en telur Foot sinn mann vegna fortíðar hans í flokknum. Jregar dró að kjördegi fyrir viku viður- kenndu stuðningsmenn Tatchells, að hann væri í hættu staddur fyrir Hughes. Úrslitin urðu þau, að Hughes náði kjöri með 58% at- kvæða en Tatchell varð ekki einu sinni hálf- drættingur á við hann með 26.1% atkvæða. Frambjóðandi íhaldsflokksins sat uppi með fimm af hundraði atkvæða, og varð lægri en sá sem Mellish studdi gegn óvinum sínum í Verkamannaflokknum. Svona glæsilegur sigur bandalags frjáls- lyndra og sósíaldemókrata í dæmigerðu stór- borgarkjördæmi og verkamannaflokksvígi hefur margvíslegar afleiðingar. Foringjar bandalagsins geta haldið því fram með rök- um, að ekkert kjördæmi gömlu flokkanna geti lengur talist öruggt, sé vel að kosninga- baráttu staðið af þess hálfu. í skoðanakönn- unum hefur bandalagið fengið byr undir vængi og er komið verulega fram úr Verka- mannaflokknum. Nýjasta könnun gefur ihaldsmönnum 39 af hundraði kjörfylgis, bandalaginu 34% og Verkamannaflokknum | 26%. Síðast en ekki síst ríkir örvænting í for- ustuliði Verkamannaflokksins. Mestur er uggurinn í þingflokknum, þar sem fjöldi þingmanna telur stöðu sína von- lausa, verði ekki breyting til batnaðar á gengi flokksins í almenningsálitinu. Þessir þing- Samsærismenn gegn Foot hafa því komið fram með þá hugmynd til að blíðka vinstri menn, að einn úr þeirra röðum, Neil Kinnock, verði varamaður Healey. Það voru foringjar stóru verkalýðs- sambandanna, sem réðu því að Foot var val- inn foringi Verkamannaflokksins. Foot hefur gefið til kynna, að hann beygi sig ekki fyrir óskum félaga sinna i þingflokknum um að hann dragi sig í hlé. Þeir einu sem gætu knúið hann til að skipta um skoðun eru verkalýðs- foringjarnir. Einn úr þeirra hópi, Moss Evans formaður Flutningaverkamannasambandsins, hefur að sögn fyrirætlanir á prjónunum um að efna til fundar með Foot og ræða við hann stöðu hans sem flokksforingja eftir ósigurinn í Ber- mondsey. Vera má að úrslit ráðist ekki í átökunum um forustu Verkamannaflokksins fyrr en eftir síðustu aukakosningu í þessum mánuði. Hún verður í Darlington í iðnaðarhérðum Norð- austur-Englands, og bandalag frjálslyndra og sósíaldemókrata hefur einsett sér að innsigla yfirburði sína yfir Verkamannaflokknum með sigri þar.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.