Helgarpósturinn - 04.03.1983, Side 10
10
tlelgai---------
Föstudagur 4. mars 1983 ná^fl irínn
Helgi Gíslason heggur st...
ítalski listfræðingurinn Gillo
Dorfles segir að á síðustu áratug-
um hafi framgangur málaralistar
og höggmyndalistar verið samstíg-
ur, en ekki sé hægt að segja það
sama um byggingalistina. Hvað
sem því líður, þá tel ég að manna-
bústaðir séu að líkjast stöðugt
meira höggmynd, jafnvel hér á
Iandi. Þó örlar á „húsvitund” hjá
íslenskum byggingarlistarmönn-
um.
Við höfum löngum átt góða
myndhöggvara og gleymda snill-
inga á borð við Einar Jónsson, og
gætir furðu hvað hann er gleymd-
ur og talinn vera mikill forngripur.
Slík er fjarstæðan og blindnin hér.
eftir Guðberg Bergsson
En við höfum líka átt mynd-
höggvara sem eru fremur smiðir
en myndhöggvarar.
Við höfum átt Sigurjón Ólafs-
son sem reyndi á síðustu árum að
sameina útskurð og mynd höggvn-
ar í tré.
Við eigum enn ljúflinginn Jón
Gunnar Árnason, en útlínur verka
hans eru Ijóðlínur, einkum ef
hann vinnur með víra og járn.
Við eigum Hallstein sem leitar
ævinlega að kjarnanum, þyngdar-
punktinum (reyndar gera það allir
myndhöggvarar) og leyfir högg-
myndinni sjaldan að vera „holdi
klædd”.
Við eigum hana Ólöfu Pálsdótt-
ur sem leitar að hinni óþægilegu
stellingu, sem er henni eðlileg stell-
ing, stelling sem er oft i engu eða
litlu samræmi við heildina. Þannig
minnir hún okkur á að höggmynd-
in er form, þótt mannslíkaminn sé
notaður, en ekki hold. Hún á
nokkrar styttur í görðum og
maður klappar þeim á hnéð í hvert
sinn sem leið liggur fram hjá þeim,
enda eru þær að gera sínar æfing-
ar í einrúmi. Hin glaðlega einsemd
lýsir úr svip þeirra.
Við eigum Þór Vigfússon sem
steypir myndir sínar og leyfir loft-
inu í mótunum að ,,móta
formin”. Hann minnir helst á það
sem er að gerast í höggmyndalist
núna í Frakklandi. Myndhöggvar-
ar steypa oft í klump ýmiss konar
efni: möl, sand, múrsteina, víra og
annað efni — jafnvel allan fjand-
ann — og síðan beita þeir meitlin-
um á þetta tilbúna gerviefni. Þeir
nota ekki brons, járn, marmara
eða annað „göfugt” efni. Útkom-
an verður oft afar skemmtileg og
í mörgum litum.
Þetta væri svona áþekkt því að
húsagerðarmenn blönduðu litar-
efni í steypuna og steyptu til að
mynda rauð hús, græn hús eða
jafnvel skjöldótt hús.
Franskir myndhöggvarar eiga
það líka til að blanda saman
steyptu efni og „göfugu” efni:
graníti eða öðru því um liku.
Og við eigum Helga Gíslason
sem sýnir núna að Kjarvalsstöð-
um.
Flest i höggmyndalist nútímans
er sprottið frá Gargallo og Giaco-
metti. Og list Helga er að vísu með
ýmsu ættarmóti þeirra en hún er
miklu fremur í ætt við málverk.
Til að mynda eru hendurnar á
höggmyndunum í ætt við fingur
og hendur engla og manna á mál-
verkum E1 Grecos. Þetta gerir
myndir Helga afar frumlegar og
ættstórar, því ég tel þá list vera
mikillar ættar sem á stóran ætt-
boga en er engu að síður sjálfstæð
sem einstaklingur. Þvi eins og
Taine sagði: Ekkert listaverk er
einangrað heldur hluti af heild
sem bregður ljósi á það.
Myndir Helga eru oft líkar hylki
sem maðurinn hefur farið úr og
týnt í stöðugri myndbreytingu
sinni. Þessi léttu bronshylki eru
áþekk stökkunum sem persónur
E1 Grecos eru stundum í; en stakk-
arnir þrengja að líkamanum. Þeir
eru ekki gæddir þeirri vídd sem er
í verkum Helga, enda tímarnir
ólíkir sem myndirnar eru gerðar á;
en lögun fingra á persónum E1
mynd í bókum, í málverkum, í
leikhúsunum o.s.frv. Ef hreyft er
harkalega við þjóðfélaginu rísa
þegnarnir upp til varnar. En ekki
verður sagt að ungir listamenn séu
harðir í horn að taka. Allir eru
þeir með gúmmíhorn.
Eitt af furðum okkar fslend-
inga er það hvað við byrjum vel en
endum illa. Þetta kemur fram í
íþróttunum, listunum og í stjórn-
málunum, og jafnvel líka í átinu.
Vegna þess að við byrjum sem át-
vögl en endum sem magasjúkling-
ar. Fyrri hálfleikur í knattspyrnu
er jafnan „ frábærlega leikinn af
strákunum”. Á skákmótum eru ís-
lenskir skákmenn alltaf í byrjun
nálægt þeim efstu, en svo sígur á
ógæfuhliðina og við rekum lest-
ina. Við erum þjóð hinna frábæru
byrjenda og hinnar ergilegu elli.
Hversu oft hafa ekki komið
prýðilegir málarar frá námi er-
lendis og haldið sýningar sem eru
sambærilegar því besta „ á megin-
landinu”. Það sama er að segja
um UM. Allt er þetta jafn ágætt
og hjá starfsbræðrum þeirra er-
lendis. En hvernig verður fram-
haldið? Og hvers vegna er fram-
haldið eins og framhaldið hefur
ævinlega verið hjá okkur? Stafar
það af svefnþörf innan um sætar
kökur? Er þjóðfélagið ekki nógu
örvandi? Skortir gagnrýni? Eða
erum við bara ungt fólk og síðan
ekki söguna meir?
Svo er eins og við islendingar
finnum hlutina á okkur, en gæð-
Helgi Gíslason sýnir að Kjarvals-
stöðum - hér er kominn fram
myndhöggvari sem gerir myndir af
fólki og slíkir myndhöggvarar eru
blessunarrikir
Grecos og Helga er áþekk,
krampakennd. í bók sinni Rudi-
ments of connoiseurship segir
Berenson að áhorfandinn eigi
einkum að gefa gaum að eyrum,
höndum, hári, augum, því að í
gerð smáatriðanna sé helst að
finna einstaklingseinkenni mynd-
Iistarmannsins. En það er að segja
um myndhöggvarann að hann
hefur alltaf verið í vandræðum
með augun frá því að gríska og
rómverska höggmyndin dó. Líkt
og oft hjá pólskum myndhöggvur-
um virðist hafa verið límdur hefti-
plástur yfir augnlokin í myndum
Helga. Tilgangurinn hjá honum er
þó annar: persónurnar horfa inn
í sig; það hefur ekki verið límt
fyrir sjón þeirra af ytra valdi.
Blinda þeirra eða innsæi er þeim
í sjálfsvald sett.
Ungir myndlistarmenn sýna á Kjar-
valsstöðum - en hvernig verður
framhaldið? spyr Guðbergur
Bergsson, sem nú hefur að nýju
skrif um myndlist í Helgarpóstinn.
um þessa tilfinningu engri skyn-
seini, og þess vegna hlýtur innsæ-
ið enga kjölfestu. Mér datt þetta í
hug þegar ég sá nokkur málverk á
sýningunni, sem voru í ætt við
málverk Archimboldo og skop-
skyn hans. í íslensku útgáfunni
voru það lík sem Archimboldo lét
vera fiska eða aldin. Og það var
engu líkara en íslenski málarinn
hefði lesið grein Marcel van Jole
um L’humour dans l’art (um skop
í list), grein sem hefur vakið tals-
verða athygli meðal listfræðinga
og birtist í september.
Það eru þessi kynlegu atriði
sem vekja furðu manns, miklu
fremur en verkin sjálf.
Sökum þess að við, eins og aðr-
ar þjóðir, höldum innreið okkar í
tíð frítímans fjölgar þeim stöðugt
Og svo minnst sé á innsæi og til-
finningar, þá er hér kominn fram
myndhöggvari sem gerir myndir af
fólki. Slíkir myndhöggvarar eru
blessunarríkir. Það er ævinlega
þörf fyrir þá, að gera myndir í
brons af biskupum, stjórnmála-
mönnum o.s.frv. — og þeir
„svíkja” ekki listina þótt þeir
vinni „eftir pöntunum”.
Á myndum Helga af fólki lýsir
ekki hin innri skapgerð úr svipn-
um. Þetta er öfugt við útfærðu
höggmyndirnar, þær sem eru ó-
hlutbundnari. Heldur hefur tím-
ans tönn unnið á andlitunum,
höggvið sitt mark á þau. En eins
og flestir vita er tímans tönn meit-
ill sem aldurinn stjórnar, veðrin og
umhverfið — hinn mikli mynd-
höggvari.
Sumar myndir eru á háum prik-
um. Hinum þjáða manni er ekki
reist níðstöng með því. Hinn þjáði
maður er hafinn á stöng, sem var
forðum píningaraðferð, og hann
hnígur niður með líkamsparta
sína.
í myndinni sem Reykjavíkur-
borg hefur keypt reynir maðurinn
að hefja sig til flugs og tyllir rétt
niður tánni, og fóturinn er líkur
stöng, en meðan efri hluti líkam-
ans lyftist frá jörð og þráir flug frá
heimi, þá hnígur hálsinn niður og
það vinst upp á hann þannig að
höfuðið verður í jafn óþægilegri,
óeðlilegri stellingu og fæturnir eru
oft hjá Ólöfu Pálsdóttur.
Þannig fæst einn við það sem
annar sleppir. Þannig er samheng-
ið í íslenskri höggmyndalist byggt
á leit eftir ólíkum leiðum.
sem mála og skrifa. Leikhúsin
hleypa engum leikara inn á svið
sem ekki kann að leika, og það
sama er að segja um hljómsveit-
irnar. En þá gutla bara gutlararnir
á gítara og áhugamannaleik-
félögunum fer sífellt fjölgandi.
Það er orðið algengt erlendis,
meðal „rithöfunda” að þeir fjöl-
rita einhvern skáldskap, láta hann
í umslög, fara í símaskrána og
senda fólki bækurnar ásamt gíró-
seðli. Þessu fylgir svo hjartnæmt
bréf um það að viðkomandi eigi í
erfiðleikum, sé veill á taugum,
eiginmaðurinn hafi barið hana
o.s. frv., þannig að komið er við
hjartataugarnar og þá veit fólk að
130 krónur er lítið fé og borgar
gíróseðilinn, og gleðst í hjarta
sínu yfir að hafa unnið góðverk.
Slíkt nútímabetl er orðið algengt
og talið til lista og nefnd Gíró-
seðlaljóðlist.
En fyrsti hálfleikur var góður
hjá „listamönnunum ungu” á
Kjarvalsstöðum. Vonandi verður
seinni hálfleikur það líka.
Að sjálfsögðu mundu Kjarvals-
staðir aldrei bjóða raunverulegum
málara að sýna ókeypis, vegna
þess að það er aldrei neinn þrýst-
ingur frá hinum hæfa einstakl-
ingi, heldur frá fjöldanum, og
það vita stofnanirnar og þeir sem
stjórna þeim,
Þrátt fyrir aukinn frítíma og
„skilning” stofnananna verður
eftir sem áður jafn erfitt að vera
listamaður.
Um UM
Oft er það núna að þegar gestur
kemur á sýningar, einkum erlend-
is og sér málverkin að þá dettur
honum helst í hug að hann þekki
illa listasöguna, eða að kannski sé
verið að draga fram í sviðsljósið
þriðja flokks málara frá dögum
expressionismans þýska, suma af
þeim mikla sæg sem hvílir jafnan
í skugganum af stórmennunum
og aldrei verður neitt úr nema
heimiliserjur. En við nánari at-
hugun þá gerir sýningargesturinn
sér grein fyrir að þetta eru ekki
eftirlegukindur frá góðæristíma
málaralistarinnar, heldur hitt
fyrirbrigðið, að ellimörkin eru nú
það alyngsta og ferskasta í
málaralistinni.
Eftir uppreisn æskunnar kring-
um 1969 eru komnir eftirlegu-
kindatímar, einslags jórturstund-
ir. Og blómabörnin flest eru undir
geðvernd.
En öðru fremur veit maður það
um nútímann að við lifum á tím-
um frítímans. Frítíminn er haf-
inn.
Og málverkin eru eftir Tata-
fiore, Chia, Cucchi, Longobardo,
ef um er að ræða Ítalíu, en nöfnin
breytast eftir löndum þótt efnið sé
keimlíkt. Listin er orðin að al-
þjóðlegri vitleysu.
Það eru einkum vinstrisinnar
af blindingjaskólanum sem halda
því fram að nú ríki sömu tímar og
í kreppunni kringum 1930. „Það
er kreppa innan kapítalismans”,
segja þeir. En frítíminn er hafinn,
sá frítími sem sósíalistar sáu fram
á í lok nítjándu aldar, einkum
Paul Lafargue, og rétt mannsins
til letinnar, aðgerðarleysis og alls-
nægta. Því er að „atvinnuleysingj-
ar” nútímans fara aldrei aftur út á
vinnumarkaðinn, og verkalýðs-
leiðtogar ættu að gera sér grein
fyrir þjóðfélagsaðstæðunum, og
reyndar þjóðfélögin lika yfir
höfuð, því að hin sjálfstýrðu at-
vinnutæki, tölvur og vélmenni
munu vinna erfiðið. Maðurinn í
allri sinn eymd og stærð verður að
fást við frítíma sinn, gæða frí-
tímann lífi. Það erfiði verður
vandamál framtíðarinnar, að
ótalinni baráttunni gegn frjósem-
inni. Að lokum verður stefnt í
slíka fólksfækkun að allt mann-
kynið geti stundað einhverja
vinnu og ráði við sjálft sig, frelsi
sitt og sjálfstæði.
Líkt og jafnan er fyrst hægt að
greina hræringar þjóðfélagsins
innan listarinnar, vegna þess hvað
hún er næm á umhverfið og sýnir
það þjóðfélagsþegnunum í meltri
IITVAKP
Föstudagur
4. mars
7.10 Gull I mund. Veslings Stebbi. Ekki
reykir hann og svo þarf hann að
hlusta kurteis á röflið í liðinu. Er
enginn hér með fullu viti?
9.05 Morgunstund hundanna. Fraeö-
sluþáttur um beinakex og annað
kjarnfóður.
10.30 Það er svo margt að minnast á. En
hlnu er líklega best að gleyma. Og
œtli það só ekki enn meira, þegar
farið er ofan I saumana á því? Torfi
Jónsson.
Laugardagur
5. mars
9.30 Óskalög sjúklinganna. Lóa Guð-
jónsdóttir er komin á fulla ferö einu
sinni enn. Passaðu þig Lóa mín.
11.20 Blandaöur þáttur fyrir krakka.
Grundin úti hrímuð er. Vantar höf-
uðstafi. Sigga Eyjiórs i Vesturbæn-
um.
15.10 fdægurlandi. SvavarGestsergóð-
ur maöur, góður maður Svavar.
Hringhenda dýr.
19.35 Átall. Pólitiskur viðundraþáttur fyr-
ir minnihlutamellur.
Sunnudagur
6. mars
8.00 Morgunandakt. Ég stend alveg
dolfallinn frammi fyrir sköpunar-
verkinu. Ég grip Andann á lofti og
tek hann með hælkrækju.
10.25 Út og suður. Friðrik Páll jónsson
og ferðalangar fátæka mannsins.
Eru það kannski ferðalanganir?
11.00 Messa. Ungdómsmessa í útvarps-
sal á vegum Skálholtsskóla og
æskulýðsstarfs kirkjunnar.
13.15 Handbolti. Hvar er Palli? Island-
Holland.
14.00 Kaupmannahöfn — París Norð-
urlanda. Félagi Sigmar segir okkur
skemmtisögu í samvinnu við aðra.
18.00 Það var og. Þráinn keypti ýsu. Von-
andi smakkaðist hún vel. Varla fer
hann á fylleri í þessum þætti eins
og siöast. Nema hann fari á
kvennafar.
19.25 Veistu svariö? Nei, ég er nú fremur
slappur.
20.45 Nútlmatónlist. Þorkell er góður
maður. Sigmar lika. Ég ætla að
sækja um djobb hjá þeim.
23.00 Kvöldstrengir. Alice býr hér ekki
lengur. Hún er flutt norður.
X.IÓXVAI*I>
Föstudagur
4. mars
20.40 Á ystu nöf. Birna Hrólfsdóttir
dembir okkur fram af hengiflugi
menningarinnar og við svífum með
óminnishegranum yfir sígræn engi.
Var þetta draumur?
20.50 Prúöuleikararnlr. Gekk ég fram
um sjó og land og gettu hvaö ég sá?
21.15 Kastljós. Helgi Etícus Helgason og
Ögmundur Jónasson velta sér upp
úr fréttnæmum atburðum handan
hafs og hér.
22.20 Fyrirsætan (The Model Shop).
Frönsk bíómynd, árgerð 1969. Leik-
endur: Anouk Aimée, Gary Lock-
wood. Leikstjóri: Jacques Demy.
Demy er einn af þessum snilling-
um, sem eiga erfitt uppdráttar I
kvikmyndagerðinni. Hérsegirhann
okkur frá ungum manni, sem geng-
ur erfiðlega að borga af bilnum sín-
um, og allt er I hassi.
Laugardagur
5. mars
16.00 iþróttir. Ætlar hann að sýna leikinn
við Sviss? Ætlar hann aö sýna list-
skauta? Ætlar hann að sýna skiði?
Ætlar hann að sýna glímu? Ætlar
Bjarni að láta sjá sig?
18.00 Hildur. Spennan vex og vex og allt-
af er Kjartan að þvælast fyrir okkur.
En hvers vegna talar þetta fólk ekki
kúltiverað tungumál?
18.25 Steini og Olli. Ég man minn fífil
fegri, þegar ég hló og hló sem barn.
Hvar er barnið i mér?
18.45 Enska knattspyrnan. Skemmtileg-
ir leikir og skemmtilegt fólk, Tjall-
arnirl
20.35 Þrigmamannavist. Mikiöerégfeg-
inn. Eg spila bara tveggjamanna-
vist og horfi þess vegna ekki á
þetta.
21.00 Ein á báti (Population of One).
Kanadísk sjónvarpsmynd, árgerð
1980. Leikendur: Dixie Seatle, Tony
Van Bridge, R.H. Thompson, Kate
Lynch. Leikstjóri: Robert Sherrin.
Ung kona og doktorsgráöan henn-
ar í bókmenntum ætla að ná sér I á-
litlegan mann i stórborginni. En
ekki er allt gull sem glóir og gónir.
22.20 Hreinn umfram allt (The Impor-
tance of being Ernest). Breskur
gleðileikur. Leikendur: Coral
Brown, Michael Jayston, Julian
Holloway. Leikstjóri: James Mac-
Taggart. Drepfyndinn gamanleikur
um nafnaruglingogtvöfaltsiðgæöi.
Höfundurinn er bara Skari villti.
Sunnudagur
6. mars
16.0G Sunnudagshrollvekja. Akureyskur
prestur flytur.
16.10 Makkað f mýrinni. Synir ráöherr-
ans og dóttir kaupmannsins fara I
læknisleik í njólarunna.
17.00 Listbyltingin mikla. Framtíöin var
og hét ekki neitt. Horföu reiður um
öxl og reyndu að betrumbæta á-
standið sjálfur. Enginn gerir það fyr-
ir þig.
18.00 Stund milli striða. Bryndis Björg-
vinsdóttir reynir að róa liöið.
20.40 Sjónvarp næstu viku. Magnús
Bjarnfreðsson æsist bara um allan
helming og hrekkir okkur með gull-
kornum.
20.50 Glugginn. Minn er negldur aftur,
enda hef óg ekki menningaráhuga.
Aumur maöur.
21.35 Kvöldstund með Agötu Kristí.
Parker þrjóturinn Pyne meö hjú-
skapariniðlun miðaldra eiginkonu.
Það fór nú á annan veg en ég ætl-
aöi.
22.30 Albanía. Tvihöföa örninn er undar-
legur nokk og einbúl. Dásamlega
fallegt land og stjórnarfarið eftir því.
Ég ætla að flytjast þangaö og fjölga
rithöfundum landsins um helming.
Blessi þig Jósep minn gamli góöi
vin.