Helgarpósturinn - 04.03.1983, Síða 21
’ípifisturinn ,Föstudagur 4. mars 1983
leiðis í viðtali við Helgarpóstinn að við stæð-
um okkur illa í fyrirbyggjandista. finu. „Og
þar er ekki um að kenna blankheitum, langt
í frá. Samkvæmt öllum skýrslum frá Samein-
uðu þjóðunum og alþjóðaheilbrigðisstofnun-
inni þá er heilbrigðisástand hér á landi með
því besta sem gerist. Ungbarnadauðinn lítill,
meðalaldurinn hár, og svo framvegis. En við
skerum okkur úr hvað varðar tannskemmdir.
Þar stöndum við okkur illa. Og tillögur okkar
sem vinnum að þessum málum hafa einfald-
Iega ekki verið teknar gildar“, sagði Ólafur
Ólafsson (Sjá klausu um flúor).
Landlæknir virðist í aðalatriðum sammála
Svavari Gestssyni og fleirum sem Helgarpóst-
urinn ræddi við um þessi mál, um að erfitt sé
að byggja upp gott fyrirbyggjandi starf á með-
an tannlæknar starfa jafn mikið hver í sínu
horni, og á vissan hátt í samkeppni hver við
annan, eins og raun ber vitni. Þannig yrði það
t.d. litið hornauga, og jafnvel talin ósmekkleg
auglýsingastarfsemi ef einn tannlæknir tæki
sig til og kæmi fram í fjölmiðlum og prédikaði
tannburstun.
Svavar Gestsson, sem oft áður hefur lýst sig
óánægðan með stöðu þessara mála var að lok-
um spurður hvað hefði verið gert og verið væri
að gera í þeim hjá ráðuneytinu - með hliðsjón
af þeirri gagnrýni sem m.a. kemur fram í
skýrslu Magnúsar.
Hvað er að gerast?
„Það er í aðalatriðum fernt“, sagði Svavar.
„í fyrstalagi hefur í minni ráðherratíð verið
unnið að nýjum kjarasamningi við tann-
lækna, sem miðar að því að búa til skýrari
reglur um fjárreiður þeirra, kvittanir og ann-
að slíkt. Þessir samningar hafa gengið seint og
illa, en vonandi verður gengið frá þeim alveg
á næstunni.
í öðru lagi er verið að undirbúa nánari regl-
ur um tannverndarsjóð, og það verk er vel á
veg komið.
í þriðja lagi hefur svo tannlæknir hafið
störf við ráðuneytið, og hann mun gera tillög-
ur um aðgerðir, og fylgjast vel með því ástandi
sem ríkir í þessum málum. Ég vænti mikils af
starfi hans.
Og í síðasta lagi hefur svo verið unnið að
því að tekið verði inn í almannatryggingakerf-
ið að fólk fái endurgreidda vissa prósentu af
, 21
kostnaði við tannviðgerðir", sagði Svavar
Gestsson.
Nú um langt skeið hefur verið skortur á
tannlæknum á íslandi, og allir sem útskrifast
hafa úr tannlæknadeildinni og komið úr námi
erlendis hafa fengið atvinnu. Þetta fer vænt-
anlega að breytast, og samkvæmt upplýsing-
um Magnúsar Gíslasonar ættum við að vera
búnir að ná Norðurlöndunum í tannlækna-
fjölda miðað við íbúa eftir svona 7 ár.
Þegar svo verður komið að tannlæknar eru
ekki Iengur öruggir um vinnu, hvað þá þær
rífandi tekjur sem þeir hafa núna, þá fyrst eru
í rauninni verulegar líkurá að verðá tannlækn-
ingum fari lækkandi, hvort sem þær verða þá
komnar inn í tryggingakerfið eða ekki.
Á meðan er bara að borga.
Á ríkið að
borga?
1
Kostnaður við tannlækningar
mundi líklega ekki minnka þó
þær færu inní heilbrigðiskerfið
og yrðu kostaðar af ríkinu, ef
miðað er við reynslu nágranna-
þjóðanna. Kostnaðurinn mundi
líklega aukast til að byrja með, ef
ekki kæmi annað til.
í Svíþjóð jókst hann gífurlega
þegar breytingin var gerð þar fyrir
allmörgum árum. Þá hafði nefni-
lega málið verið til umræðu í
þinginu í tvö ár og allir sem áttu
þess kost frestuðu tannviðgerð-
um.
Þegar frá leið jafnaði þetta sig,
og í fáum löndum er fyrirbyggj-
andi starf í jafn góðu horfi og í
Svíþjóð.
Ekki
Samkvæmt upplýsingum
Gunnars Þormar, formanns
Tannlæknafélags íslands er það
stefna félagsins að fullfrískir ein-
staklingar frá tuttugu til 67 ára
cigi sjálfir að kosta sínar tannvið-
gerðir.
Félagið telur að ungt fólk, fram
að tvítugu jafnvel (nú er miðað
viö 16 ára aldur, eða skólaskyld-
una) eigi að fá tannviðgerðir að
fullu endurgreiddar, og einnig
ellilífeyrisþegar, en að þeir sem
koma tvítugir með heilar tennur
út í lífið eigi auðveldlega að geta
séð um sig sjálfir.
Það hefur hinsvegar verið yfir-
lýst stefna núverandi heilbrigðis-
ráðherra að færa tannlækningar
inn í heilbrigðiskerfið, eins og al-
mennar lækningar, þannig að rík-
ið og tannlæknar gerðu með sér
fasta samninga.
Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs eru tvímœlalaust ein arðbærasta og
öruggasta fjárfestingin sem völ er á í dag.
Athygli er vakin á ejtirfarandi atriðum:
VEXTIR: Vextir eru nú 3,5% á ári og jafnir allan lánstímann.
------------------------------•------------------
__/
BINDITIMI. Skírteini í 1. flokki 1983 verða innleysanleg að þremur árum
liðnum, þ.e. frá 1. mars 1986. Á binditíma hefur jafnan verið hœgt að
selja spariskírteini með skömmum fyrirvara á hinum almenna markaði.
Enginn f lúor
Mikilvægasta aögerðin til aö
fyrirbyggja tannskemmdir er aö
mati flestra sérfræöinga að auka
flúorneyslu almennings.
Allar skýrslur alþjóðastofnana
og sérfræðinga í ýmsum löndum
gefa til kynna afar jákvæðan ár-
angur af því að blanda flúor við
vatn eða salt. Hvergi hefur verið
hægt að koma auga á slæmar
hliðarverkanir.
Hér á landi er náttúrulegur flú-
or í vatni minni en víðasthvar ann-
arsstaðar og þrátt fyrir áskoranir
landlæknis og fleiri sérfræðinga
hafa ráðamann sveitarfélaga ekki
hugleitt þann möguleika í neinni
alvöru að flúorblanda vatn eða
gefa bömum flúortöflur. „Á-
stæðan er meðal annars sú að
öfgamenn virðast hafa miklu
meiri áhrif hér en annarsstaðar.
Skrif þeirra vega því miður þyngra
er áralangar rannsóknir stofnaná
eins og WHO og verða til þess að
tillögur okkar sem vinnum að
þessu eru ekki teknar gildar. Við
íslendingar höfum sérstöðu að
þessu leyti, sem ég er ekki stoftur
af’, segir Ölafur Ólafsson, land-
læknir.
LÍTIL FYRIRHÖFN: Fjárfesting í spariskírteinum er mun
fyrirhafnar- og áhyggjuminni en fjárfesting ífasteign
og skilar auk þess öruggum arði.
^---------------#-----------------
SKA TTFRELSI: Skv. gildandi lögum um tekjuskatt og eignarskatt
kemur ekki í neinu tilviki til skattlagningar á vaxta- og verðbótatekjur af
spariskírteinum hjá mönnum utan atvinnurekstrar.
Full verðtrygging, háir vextir og umfram allt örugg fjárfesting.
Kynnið ykkur kjörin á verðtryggðum spariskírteinum ríkissjóðs og gerið
samanburð við aðra ávöxtunarmöguleika.
Utboðsskilmálar liggjaframmi hjá söluaðilum, sem eru bankar,
sparisjóðir og nokkrir verðbréfasalar.
SEÐLABANKI ÍSLANDS