Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 04.03.1983, Qupperneq 23

Helgarpósturinn - 04.03.1983, Qupperneq 23
Feiknalegt uppistand hefur orðið í réttarkerfinu í fram- haldi af grein í síðasta Helgarpósti um vörslusviptingar Símonar nokkurs Wiium fyrir; hönd Iögfræðinga hér í bænum og fullyrðinga sömu lögfræðinga um| að Símon eigi í viðskiptastríði við, aðalfulltrúa borgarfógeta í Reykja- vík, Ólaf Sigurgeirsson. Símon var kærður til Rannsóknarlögreglu ríkisins og mun þeirri rannsókn nú um það bil að verða lokið þannig að ríkissaksóknari fær málið til með- ferðar á næstu dögum. Mikil fundahöld hafa verið hjá fógeta í framhaldi af birtingu greinarinnar í Helgarpóstinum, lögmennirnir kallaðir fyrir og starfsmenn fógeta sveittir við að svara fyrirspurnum Rannsóknarlögreglunnar. I dóms- málaráðuneytinu hefur einnig orð- ið uppi fótur og fit vegna frásagnar- innar og mun ráðuneytið ekki síst hafa áhuga á að vita hvert það fé rennur, sem inn kemur fyrir vörslu- sviptingar á vegum fógetaemb- ættisins. Þegar greinin birtist breytti rannsókn málsins og með- ferð nokkuð um farveg og er ekki útséð um hverjir það verða sem á endanum verða skammaðir — ef kerfið ákveður ekki að einfaldast sé að láta ófremdarástandið viðgang- ast eins og áður. Rannsóknin hefur farið fram undir stjórn Þóris Odds- sonar vararannsóknarlögreglu- stjóra ríkisins... mars 1983 dagskrá sinni atriði, sem sérstak- lega er ætlað börnum. Hjónin mættu, konan stillti sér upp, nokk- uð fáklædd, og eiginmaðurinn hóf að kasta hnífum sínum, sem röðuð- ust upp umhverfis hana. Þegar upp- tökunni lauk heyrðist mikill fyrir- gangur í dyrum upptökusalarins og inn komu Tage Ammendrup, Emil Björnsson og Jón Þórarinsson. Þeir gengu rakleitt á fund Viðars Víkingssonar upptökustjóra og kröfðust þess, að þetta efni yrði ekki sent út i barnatímanum. Rökin voru þau, að hnífakastskúnstir sem þessar gætu hæglega leitt til þess að börn færu að kasta hnífum í for- eldra sína. Innan Sjónvarpsins líta menn mjög misjöfnum augum á þetta atvik, og telja sumir að þarna hafi yfirmennirnir gert sig seka um ritskoðun af versta tagi... Meint fjárglæframál hér- /“J aðsdómarans í Kópvogi, sem S. stungið var í steininn nýlega ásamt lögfræðingi á Akureyri, er enn að velta upp á sig. Samkvæmt upplýsingum HP mun málið snúast um að hve miklu leyti sektarsjóðir fógetaembættisins í Kópavogi voru notaðir til að lána mönnum gegn okurvöxtum. Það hefur svo sem gerst áður, að farið hafi verið gá- leysislega með sektarsjóði enda er algengt að sektarfé Iiggi langtímum saman hjá dómurum og minni dómstólum. Starfsmenn á Litla-Hrauni / J hafa verið að yggla sig undan- S farið vegna skipunar nýs for- stjóra vinnuhælisins. Telja þeir að freklega hafi verið gengið framhjá Frímanni Sigurðssyni, sem verið hefur fangavörður á staðnum um langt árabil, þegar Gústav Lillien- dal var skipaður. Hafa starfsmenn eitthvað velt fyrir sér að klaga í Fangavarðafélagið en af því mun varla verða... IV1 Sumir unnendur Stundarinn- ar okkar í sjónvarpinu hafa kannski tekið eftir því á sunnudaginn var, að þessi barna- tími sjónvarpsins var tíu mínútum styttri en venjulega. Ástæðan var sú, að þrír af yfirmönnum stofnun- arinnar kröfðust þess, að efni sem búið var að taka upp yrði ekki sent út. Forsagan er sú að stúlka nokkur sem Bryndís Schram ætlaði að ræða við í barnatíma tilkynnt á síð- ustu stundu að hún gæti ekki mætt til upptöku á tilsettum tíma. Til að bjarga málunum hringdi Bryndís í skyndi til Ámunda Amundasonar umboðsmanns skemmtikrafta og spurði hvort hann gæti útvegað sér gott efni með hraði. Ámundi var ekki í vafa um það og bauðst til að senda henni indjánahjón sem hér voru á hans snærum og stunda hnífakast, og hann sagði Bryndísi að þau væru meira að segja með á Skoðanakönnun um upp- J röðun á lista Sigurlaugar y Bjarnadóttur á Vestfjörðum er fyrirhuguð um helgina, eins og kemur fram í Innlendri yfirsýn í Helgarpóstinum í dag. Við það er að bæta, að fyrir vestan munu vera uppi háværar raddir um að setja Sigurlaugu ekki í fyrsta sæti þessa klofningslista, heldur Guðjón Kristjánsson skipstjóra á Hnífsdal* en hann er á skipi sem er í eigu tengdaföður Friðriks Sophussonar alþingismanns... Það verður mikið um dýrðir /“J á annan dag páska í Laugar- y dalshöllinni. Þar hefur Kiwanisklúbburinn Esja skipulagt dagskrá frá morgni og fram á nótt með alls kyns uppákomum, bingói og happdrætti og balli um kvöldið. Þessi skemmtun er haldin til styrkt- ar nýrri sjónstöð fyrir blinda... Athugasemdir Eftirfarandi hefur borist frá for- manni framkvæmdastjórnar Listahátíðar í Reykjavík: Ágætu ritstjórar. í blaði yðar hinn 25/2 s.l. er fréttaklausa um nýja fram- kvæmdastjórn Listahátíðar í Reykjavík. Við þiggjum með þökkum áhuga fjölmiðla á öll- um fréttum af undirbúningi og rekstri Listahátíðar og vonandi reynast þær lesendum áhuga- verðar í alla staði án sérstakra skáldaleyfa. Ég leyfi mér að vísa til fyrstu fundargerðar okkar frá 9. febrúar þar sem segir orðrétt: „Borist hefur bréf frá fram- kvæmdastjóra Örnólfi Árna- syni, þar sem hann segir starfi sínu lausu frá 6. febrúar 1983. Ákveðið var að auglýsa starfið við fyrstu hentugleika”. Ekki sé ég ástæðu til að blaðið prjóni einhverju við þetta. Þið skuluð fá að vita um leið og eitthvað spennandi hefur verið ákveðið fyrir næstu Listahátíð. Vinsamlegast Þorkell Sigurbjörnsson. Engu skal við þetta prjónað nema því, að blaðið bíður spennt. -Ritstj. í tilefni greinar í blaði yðar föstudaginn 25. 2. sl. um málefni Arnarflugs hf. vil ég taka eftirfar- andi fram: Uppsögn mín hjá félaginu er ekki í neinum tengslum við aðrar upp- sagnir, enda var hún tilkynnt áður en til þeirra kom. Ástæðan er held- ur ekki vegna einhvers ímyndaðs upplausnarástands hjá félaginu. Ég tók boði um starf hjá öðru fyrir- tæki. Ég óska vinsamlegast eftir því að þér birtið ofangreint í næsta tölu- blaði Helgarpóstsins. Virðingarfyllst, Hilmar Sigurðsson viðskiptafræðingur Breiðvangi 5 Hafnarfirði. í klausunni í síðasta blaði er ekk- ert fullyrt um samhengi milli ein- stakra uppsagna. Aðeins vakin at- hygli á óvenju mörgum uppsögnum á sama tíma. Aftur á móti er rétt að geta þess að Arnarflugsmenn segj- ast síður en svo óánægðir með út- komu Amsterdamflugsins í vetur. Þeir segja að miðað við árstíma og áætlanir hafi það gengið vonum framar, bæði hvað varðar fragt og farþega. - Ritstj. i 23 NANNÝ — borðið er nýjung. Borðið má hækka og lækka að vild og halla borðpötunni eftir því sem best hentar hverju sinni. NANNÝ — borðið er tilvalið til náms og tómstunda. PE 82 stóllinn hefur skapað sér fastan sess hér á landi vegna gæða sinna og hagstæðs verðs. PE 82 fæst bæði með og án arma og hægt er að stilla setu og bak eftir hentugleikum. Og til að hafa rétta birtu við námið eða tómstunda- störfin eigum við mikið úrval LUXO — lampa. GEFIÐ GÓÐA GJÖF — GEFIÐ GJÖF SEM STÆKKAR MEÐ NAMSFÓLKINU. Sendum gegn póstkröfu. HALLARMÚLA 2 - SÍMI 83211 SKRIFSTOFU HUSGÖGNÉir Veró kr 1.790. Veró kr 2.200. Gjöfin sem stœkkcirmeð námsfólkinu....

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.