Helgarpósturinn - 09.05.1985, Qupperneq 4
Ævar Kjart-
ansson vara-
dagskrár-
stjóri í HP-
viðtali vegna
(pólitískrar?!
synjunar út-
varpsráðs á
þátta-
stjórn hans:
„Skopleg
hefnigirni
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■^^^^^^^^^^^^^^^MBMM eftir Sigmund Erni Rúnarsson — mynd Jim Smart ■■■■■
Ákvöröun meirihluta útvarpsráös í síöustu viku aö synja Ævari Kjartanssyni varadagskrárstjóra um
stjórn páttaraöar á laugardögum í sumar hefur vakiö upp ólgu á dagskrárdeild og kostað enn stiröari
samskipti þessara aöila en áöur var.
Dagskrárdeildin lagöi drög aö þessum þætti fyrir allnokkru, en hann skyldi leysa af hólmi þáttinn
„Hérog nú" sem fréttamenn útvarpsins hafa haft umsjón meö í vetur. Ákveöiö varaöólafur H. Torfa-
son skyldi annast þennan þátt ásamt Ævari, en þegar þaö var lagt fyrir áöurnefndan fund ráösins
upphófst karp nefndarmanna um hæfni varadagskrárstjórans til starfans, einkum og sér í lagi út frá
pólitískum skoöunum hans.
Þaö varö úr aö meirihluti ráösins ákvaö, aö í staö Ævars skyldi Páll Heiöar Jónsson annast þáttinn
meö Ólafi. Ágreiningurinn sem blossaö hefur upp á milli dagskrárdeildar og útvarpsráös í kjölfar þess-
arar ákvöröunar snýst fyrst og fremst um vinnubrögö og sjálfstæöi deildarinnar i þeirri faglegu viö-
leitni sem hún hefur sýnt á síöustu misserum. Ágreiningurinn hefur reyndar veriö aö myndast á
nokkrum mánuöum, og nú tók þó fyrst steininn úr, aö mati dagskrárdeildar.
Helgarpósturinn leitaði til
Gunnars Stefánssonar dagskrár-
stjóra útvarps vegna þessa, en
hann færðist undan viðtali að svo
komnu, þar sem hann vildi fá að
reka málið fyrst innan stofnunar-
innar. Gunnar hafði þó þetta að
segja HP: ,,Að mínu mati var þetta
mjög alvarleg íhlutun og truflun
útvarpsráðs á starfsemi dagskrár-
deildarinnar. Ég kalla þessa
ákvörðun ráðsins óþolandi yfir-
gang að því leyti að ráðið úthlutar
þarna föstum starfsmanni verk-
efni og hafnar öðrum án nokkurs
samráðs við þá deild útvarpsins
sem með það á að fara, þ.e.a.s. dag-
skrárdeildina." Hvort hér væri um
vantraust ráðsins á Ævari að
ræða, svaraði Gunnar: ,,Já, vissu-
lega er ekki hægt að túlka þessa
afgreiðslu málsins öðruvísi en svo
að hér sé um vantraust á hann að
ræða. Með þessu er verið að ýja að
því að föstum starfsmanni deildar-
innar sé ekki treystandi fyrir verk-
efni á hennar vegum. Ráðið reynir
að svara því til að ekki sé heppi-
legt að fastir starfsmenn deildar-
innar annist fasta þætti í útvarp-
inu. Ég vísa þessu alveg á bug. Fyr-
ir þessu er fjöldi fordæma. Þess-
vegna endurtek ég: Þetta er óþol-
andi yfirgangur útvarpsráðs."
Gunnar hefur sent útvarpsstjóra
skrifleg mótmæli vegna þessa
máls: „Ég vona að hann taki þau
til greina, þar sem hann hefur ver-
ið því mjög meðmæltur hvernig
við höfum aukið á verkefni fastra
starfsmanna í þáttagerð og þannig
sýnt viðleitni tii faglegri vinnu-
bragða." Gunnar vildi að það
kæmi líka skýrt fram að með þeim
orðum sem hann hefði sagt hér að
framan, væri hann ekki að gera lít-
ið úr hæfileikum Páls Heiðars, sem
hreppti stjórn þáttarins í stað
Ævars, enda færi þar reyndasti
þáttagerðarmaður útvarpsins. í
sama streng tók varadagskrár-
stjórinn Ævar Kjartansson, sem
hingað var dreginn í viðtal í stað
Gunnars, enda kannski réttast, þar
sem hann er maðurinn sem allt
snýst um í þessu máli.
Ævar á að baki fjögurra ára fast
starf hjá útvarpinu, þar af lengst
sem varadagskrárstjóri, en á síð-
asta áratug heyrðist oftsinnis til
hans í útvarpi þegar hann var þul-
ur í sumarafleysingum.
— Er þetta fyrsta alvarlega
rimman þín við útvarpsrád?
„Þetta er í fyrsta skipti sem ráð-
ið ákveður að stöðva mig í því að
stjórna þætti í útvarpinu. Og þó
svo ýmsar væringar hafi verið
milli mín og nefndarmanna þann
tíma sem ég hef unnið fyrir þessa
stofnun, þá hafa samskipti okkar
yfirleitt verið með ágætum. Ég sat
til dæmis á fundum ráðsins
og þar var allt með góðu.“
— Hvað áttu við med þessum
,ýmsu væringum“?
„Ég á við það, að þar sem dag-
skrárdeild útvarpsins þarf að bera
málefni sín undir ráðið, þá koma
oftsinnis upp deilur. Það er eðli-
legt. En þetta mál sem nú er kom-
ið upp milli mín og ráðsins: Ég hef
aldrei lagt sjálfan mig á högg-
stokkinn fyrr."
— Hvert er álit þitt á þeim
aðferðum sem útvarpsráð
beitti ákvörðun dagskrárdeild-
ar um að þú yrðir annar um-
sjónarmanna magasínsins á
laugardögum í sumar?
„Afgreiðslu þessa máls upplifi
ég sem pólitískar ofsóknir á hend-
ur mér. Það er á hreinu. Það felst
líka í þessu skopleg hefnigirni: Ég
hef gagnrýnt störf ráðsins opin-
berlega og ég lít svo á að nú sé
meirihluti ráðsins að ná sér niðri á
mér. Það felst líka ákaflega skrítin
mótsögn í þessari afgreiðslu máls-
ins: Hún er sú, að ef varadagskrár-
stjóra útvarpsins er ekki treystandi
til að annast þátt sem deild hans
hefur á prjónunum, þá ætti hon-
um samkvæmt því að vera síður
treystandi til að sinna starfi sinu
sem slíku, það er að segja að móta
dagskrána og sjá svo um að alltaf
sé nóg framboð á efni til útsend-
ingar og fólki til að annast það.“
— Kom þér þetta á óvart?
„Það kom mér ekki á óvart að
það, að ég ætlaði að sjá um þátt í
sumar um það sem efst verður á
baugi þá í þjóðlífinu, vekti upp
andsvör hjá nokkrum nefndar-
manna ráðsins. Það kom mér hins-
vegar á óvart að útvarpsstjóri léti
þessa niðurstöðu viðgangast og
það alveg umyrðalaust."
— Með ödrum ordum: Stjór-
inn brást þarna hlutverki sínu?
„Ég vil svara þessu þannig að
mér finnst útvarpsstjóri vera enn-
þá of mikið í sínum gömlu sporum
sem formaður útvarpsráðs. Það er
eins og hann átti sig ekki á því að
hans hlutverk er að sjá til þess að
starfsfólk á stofnuninni fái frið til
að sinna sínum störfum."
— Er þessi ákvörðun út-
varpsráðs vantraust á þig sem
varadagskrárstjóra?
„Já, ég get engan veginn tekið
henni öðruvísi en svo að hér sé um
vantraust á mig að ræða, en jafn-
framt á alla dagskrárdeildina, eins
og reyndar Gunnar Stefánsson
dagskrárstjóri hefur bent á.“
— Smá innskot: Værirðu til í
að mæla með bókstafstrúar-
frjálshyggjumanni í þessa
þáttastjórn sem þú varðst af?
„Ef hann kynni vel til verka,
alveg hiklaust."
— En kannt þú vel til verka?
„Ég vona að ég kunni nægilega
vel til verka. Með þennan þátt í
sumar hafði ég í huga að þar gæti
ég nýtt mér þá miklu yfirsýn á alla
umfjöllun útvarpsins sem ég hef í
mínu starfi sem varadagskrár-
stjóri. Fólkið á fréttastofu óttaðist
að þessi sumarþáttur yrði stæling
á þættinum „Hér pg nú“, sem það
hefur verið með. Ég taldi mig vera
í góðri aðstöðu til að sigla hjá því.“
— Gerir þetta vantraust
ráðsins á þig það aö verkum að
þú segir upp hjá Ríkisútvarp-
inu?
„Ég segi ekki upp að svo stöddu,
ekki strax."
— Hversu bráðiega?
„Ég er nú orðinn svo gegnsósa
af þessari stofnun að ég hef ekki
haft tíma til að hugsa til hlítar
þann möguleika hvort ég hætti og
hvenær það þá yrði.“
— Þú segir gegnsósa. Er það
ekki einmitt óopinbert mark-
mið meirihluta útvarpsráðs og
útvarpsstjóra að fá nýtt og
ferskara starfsfólk inn í stofn-
unina í stað þess gamla sem
hefur einokað stólana í ára-
tugi? Er ekki einfaldlega verið
að svæla menn eins og þig út?
„Menn verða misjafnlega fljótt
gegnsósa af útvarpinu. Og auðvit-
að er það svo að á meðal starfs-
manna stofnunarinnar ríkir mis-
mikill áhugi á framtíð hennar og
framförum. En hvað um það; ég
tel mig ekki til gamla liðsins."
— Ertu hlynntur því að
skipta um andblæ útvarpsins
með nýju fólki, gamla settið
hverfi jafnt og þétt?
„Staðreyndin er sú að það hafa
orðið mjög mikil mannaskipti hjá
útvarpinu á allra síðustu árum.
Það eru einungis tveir menn eftir
í deildinni af þeim sem voru þegar
ég réð mig síðast til starfa hjá
henni, ’81.“
— En hvað um þetta: Vinstra
pakk vill eigna sér stofnunina
og hefur verið þarna oftast í
meirihlutal
„Þetta er gömul klisja, því mið-
ur. Það getur vel staðist að fyrir
svona 20 til 30 árum hafi verið
mikið af vinstraliði starfandi við
stofnunina. En svo er ekki í dag.
Þetta er grýla sem Mogginn held-
ur ennþá úti og í rauninni ansi
klókindaleg lína sem stærsta blað
landsins notar til að gera aðal
keppinaut sinn tortryggilegan.
Reyndar má benda á nýgerða
hlustendakönnun útvarpsins í því
sambandi, þar sem almenningur
telur ekki vera slagsíðu á stofnun-
inni svo heitið geti, hvorki til
hægri eða vinstri."
— En snúum okkur að aðai-
atriði þessa máls: Stendurðu
enn á því að trúnaðarbrestur
ríki á milli starfsmanna út-
varpsins og útvarpsráðs eins
og þú hélst fram í „Fjölmiðla-
þættinum" í vetur?
„Já. Og ég tel einmitt að þessi
síðasti fundur í ráðinu hafi sannað
þau ummæli mín.“
— Ráðið vísar svona ásök-
unum á bug og meðal annars
svaraði formaður þess í þætt-
inum að þessi fullyrðing „þjón-
aði blekkingartilgangi". ..
„Fyrst þú nefnir þetta þá er
kannski ástæða til þess að fara
aðeins út í þá verkaskiptingu sem
ríkir á milli ráðsins og starfs-
manna... “
— Ég er einmitt á leiðinni
þangað. Og spyr til dæmis:
Tryggir þaö ekki eðiileg sam-
skipti ráðsins og starfsmanna
aö dagskrárstjóri sitji fundi
þess?
„Sko, seta dagskrárstjóra á þess-
um fundum á að tryggja eðlilegt
upplýsingastreymi milli ráðsins og
starfsmanna. Það dugar hinsvegar
ekki til þegar ráðið ákveður æ
ofan í æ að ganga þvert á vilja
starfsmanna. Það hefur vilja
þeirra að engu. Starfsmennirnir,
eða fulltrúi þeirra, dagskrárstjór-
inn, hefur ekki atkvæðisrétt á
fundinum. Og þessvegna er nefnd-
armönnum útvarpsráðs í lófa lagið
að traðka á starfsfólki stofnunar-
innar og hafa ráðagerðir þess að
engu. Eins og dæmin sanna.”
— Nú er skylda ráðsins að
segja álit sitt á öllu útvarpsefni,
þáttagerðarmönnum og stjórn-
endum. Nefndarmanna er hið
endanlega vald og það verður
einhver að hafa. Ertu ekki að
gera þarna úlfalda úr mýflugu,
Ævar?
„Ég hef lýst þeirri skoðun minni
áður — og henni hefur enginn
mótmælt fram að þessu — að ís-
land sé eina landið á Vesturlönd-
um þar sem pólitískt kosið út-
varpsráð hefur jafn mikil afskipti
af dagskrárgerðinni fyrirfram. Yf-
irleitt hegða samskonar ráð sér í
öðrum löndum sem eftirlitsaðili
sem kemur með rökstudda gagn-
rýni eftir á. Á íslandi er allt annað
upp á teningnum. íslenska út-
varpsráðið er verra en nokkurt
Sovét eins og Sverrir Kristjánsson
sagði eftir að hafa kynnst því. Og
ég tek undir þessi ummæli hans.“
— Er ekki bara máiið það að
útvarpsráð sinnir eftirlits-
skyldu sinni betur en sumir
þola? Ég endurtek enn spurn-
ingu mína um skyldu ráðsins
að segja álit sitt á þáttum og
stjórnendum þeirra!
„Ég reikna með því að þetta sé
skylda ráðsins, ef útvarpslögin eru
túlkuð mjög þröngt. Og sú skylda
felst þá í því að leita upplýsinga
um hugsanlega stjórnendur og
hvað þeir hyggjast fyrir... “
— Um hvað snýst þá ágrein-
ingurinn, sjálfur trúnaðar-
bresturinn?
„Hann snýst fyrst og fremst um
vinnubrögð. Við sem störfum á
dagskrárdeild viljum geta ráðið
fólk til starfa og falið því breytileg
verkefni. Okkur þykir það mjög
þungt í vöfum að þurfa að leggja
fram hverja einustu ákvörðun
okkar í þessum efnum fyrir fundi
ráðsins; ég nefni sem dæmi hvort
færa eigi stjórnanda morgunút-
varps yfir í síðdegisútvarp. Þetta
er spurning um sjálfstæði deildar-
innar.”
— Þú nefndir í þessu sam-
bandi í „Fjölmiðlaþættinum“
f lokkspólitískar bremsur ráðs-
ins og jafnvel tilhneigingu þess
til að þvinga inn hugmyndum
sínum í dagskrána. ..
„Já, og það þvingar ekki bara
inn hugmyndum um efni heldur
þvingar það líka inn hugmyndum
um fólk. Ég býst við að heila málið
sé þetta: Útvarpsráð vill ekki
missa frá sér þann möguleika að
geta sett inn í dagskrána sína
flokkspólitísku gæðinga ef með
þarf. Það áttar sig alveg fullkom-
lega á því að eftir því sem fag-
mennskan eykst í útvarpinu, þá
verður erfiðara fyrir það að
ástunda geðþóttaákvarðanir varð-
andi menn og málefni."
— Er þetta ekki bara einn
veikleiki fulltrúalýðræðisins?
Verður komist hjá svona lög-
uöu?
„Ég tel að þegar til langs tíma er
litið verði það lýðræðinu ekki til
góðs að pólitískir stundarhags-
munir ráði ferðinni umfram fagleg
vinnubrögð. Almenningur — eig-
endur útvarpsins — treystir okkur
starfsmönnum stofnunarinnar
fullt eins vei og ráðinu. Og vísa ég
þar til hlustendakönnunarinnar.
Þar töldu 91 prósent aðspurðra
okkur hæfa.“
— Hvað gerist næst Ævar?
Verður allt fallið í ljúfa löð
niðri á Skúlagötu ef tir viku eða
svo?
„Ég vona að það af starfsfólki
stofnunarinnar sem fjallar um
dagskrána láti í sér heyra um þetta
mál og mótmæli því að ráðið skuli
gera vinnu þess að engu. Yfir-
menn stofnunarinnar sjá svo von-
andi til þess í framtíðinni að starfs-
menn hafi þar frið til að þróa þetta
fyrirtæki í átt að faglegri vinnu-
brögðum og þar með betri þjón-
ustu.“
— Og þú ætlar að taka þátt í
því, en hætta ella?
„Það er óhugsandi að vinna við
fjölmiðil eins og útvarp ef pólitísk
tortryggni skerðir verksvið
manna. Ég hef ekki hug á því að
standa eingöngu í því að taka við
„ordrum" frá útvarpsráði. Að því
leyti svara ég þessari spurningu
játandi.”
4 HELGARPÓSTURINN