Helgarpósturinn - 09.05.1985, Síða 8

Helgarpósturinn - 09.05.1985, Síða 8
$ ÆTLARSÍSAÐ Skuldar milljónir f sveitarsjóð Hótar lokun frystihússins ef hreppsnefnd er með derring eftir Eddu Andrésdóttur Þaö er urgur í mönnum á Suðureyri við Súgandafjörð. Ástæð- an: Vangoldin skuld Fiskiójunnar Freyju vió Suðureyrarhrepp. Skuldin nemur nú nær 8 milljónum króna, og er uppsöfnun þjónustu- og aðstöðugjalda tvö ár aftur í tímann. Árlegar tekj- ur hreppsins eru um 10 milljónir króna. Þar af eru tekjur vegna Freyju nálægt þriðjungur heildarteknanna. Aóaleig- andi frystihússins er Samband íslenskra samvinnufélaga. Innheimtuaðgeróir hafa ekki borió árangur. Þegar biólund hreppsnefndarmanna þraut, samþykkti hún einróma á fundi sínum í upphafi þessa árs, aö fela lögfræöingi í Reykjavík inn- heimtuna. Þaó leiddi til þess, aö hreppsnefndarmönnunum fimm barst bréf frá stjómarformanni Freyju, Kjartani P. Kjart- anssyni, framkvæmdastjóra hjá Sambandi íslenskra samvinnu- félaga. Samkvæmt upplýsingum Helgarpóstsins mun hrepps- nefnd hafa verið gerð ábyrg fyrir því í bréfi þessu, ef til stöðvunar Fiskiöjunnar Freyju kæmi vegna kröfu hreppsins. Samband íslenskra samvinnufélaga hefur framtíó Suðureyr- ar í hendi sér. Mönnum svíður þó mest aó árangurslausar innheimtuaógeróir á svo stórum hluta tekna hreppsins komi nióur á framkvæmdum. Þykir meóal annars ljóst að fyrirhug- aóri gatnagerð í sumar, auk fyrstu framkvæmda vió byggingu nýs íþróttahúss á staönum, verði að fresta um óákveóinn tíma. Aóalfundur Fiskiðjunnar Freyju veröur aö líkindum haldinn í lok þessa mánaðar, og er hans beöið meö óþreyju af ýms- um. 8 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.