Helgarpósturinn - 30.05.1985, Side 9
urarson, sagnfræðingur og frjáls-
hyggjupostuli, hefur undanfarið
reynt ítrekað að komast að Háskóla
íslands, sem stundakennari, næsta
vetur. Hannes leitaði fyrst til heim-
spekideildar um kennslu í pólitískri
heimspeki, en hafði ekki erindi sem
erfiði. Þá sneri Hannes sér til við-
skiptadeildar sömu erinda. Hannes
á þar vini, t. d. Guðmund Magnús-
son rektor, sem er stjórnarmaður í
frjálshyggjustofnun Hannesar;
stofnun Jóns Þorlákssonar. Um
málaleitan þessa urðu hins vegar
hinar mestu deilur í deildinni, ein-
hverjar þær mestu sem menn muna
þar um slóðir. Mun það álit ýmissa
Háskólamanna þar, að Hannes sé
meiri prédikari en fræðimaður, og
eigi því betur heima utan veggja Há-
skólans. Þetta mun og hafa verið
viðhorf kennara á þjóðhagfræði-
braut viðskiptadeildar. Þeirra á
meðal eru Gylfi Þ. Gíslason pró-
fessor, Þráinn Eggertsson pró-
fessor, Þorvaldur Gylfason pró-
fessor og Ragnar Árnason lektor.
Þeir sem studdu Hannes voru hins
vegar kennarar í rekstrarfræðum og
Guðmundur Magnússon. Atkvæði
ku hafa fallið 8 á móti 5 Hannesi í
vil. Hann verður því stundakennari
í einu námskeiði viðskiptadeildar
næsta vetur.. . .
v
V ið höfum það fyrir satt, að
nú sé nánast búið að ,,aflífa“ Hauk
Ingibergsson sem framkvæmda-
stjóra Framsóknarflokksins. Gífur-
leg óánægja er með Hauk á meðal
ungra framsóknarmanna, með þá
Finn Ingólfsson og Magnús
Ólafsson í broddi fylkingar. Segir
sagan, að Finnur hafi gengið á fund
Steingríms Hermannssonar og
krafist þess, að Hauki yrði komið í
burtu úr þessu starfi. Það næsta sem
við heyrðum var að leitað væri í
dauðans ofboði að starfi handa
framkvæmdastjóranum, sem væri
honum samboðið og þá sérstaklega
litið til SIS. Þar liggur ekki neitt
sérstakt á lausu nema þá
hugsanlega starf
auglýsingastjórans, Guðmundar
Jónssonar, sem hefur fullan hug á
því að hætta hjá SÍS. Samt þykir
mönnum þetta ekki nógu flott
handa Hauki, sem væri þá ekki bara
fyrrverandi framkvæmdastjóri
Framsóknarflokksins heldur einnig
fyrrverandi skólastjóri Samvinnu-
skólans í Bifröst. Stefnan verður að
sýnast liggja upp á við...
A
Akureyri er 1 uppsiglingu
mikil deila á milli bæjarblaðsins
Dags og svæðisútvarpsins. Þannig
var, að í fyrrakvöld flutti Sverrir
Páll Erlendsson, dagskrárgerðar-
maður hjá RÚVAK og menntaskóla-
kennari, pistil, þar sem hann vék að
viðbrögðum eða öllu heldur fálæti
Akureyringa og akureyskra fjöl-
miðla í garð svæðisútvarpsins.
Hafði Sverrir Páll uppi mikinn reiði-
lestur yfir Degi og áhugaleysi þess
blaðs yfir þessum merka áfanga í út-
varpsmálum Akureyringa. Strax í
gær svaraði Dagur með harðyrtum
pistli í dálknum Stóru og smáu og
sakaði dagskrárgerðarmanninn um
að hafa misnotað aðstöðu sína alv-
arlega með gagnrýninni, hann
kynni ekki til verka og færi ekki eft-
ir þeim reglum sem útvarpsmönn-
um bæri að fara eftir. Þeir sem til
þekkja telja, að Dagsmenn muni
halda áfram að ganga „í skrokk" á
Sverri Páli og málið eigi örugglega
eftir að fara fyrir útvarpsráð. Aðrar
heimildir HP herma, að í raun hafi
Sverrir Páll notið fulls stuðnings
Jónasar Jónassonar RÚVAK-
stjóra í málinu. Nú er bara að bíða
eftir framhaldinu. . .
| slenska bjórmálið vekur athygli
víða um heim. Þannig skýrði „lókal-
blaðið" Cyprus Mail, Kýpurpóstur-
inn, frá bjórumræðunni á íslandi í
ítarlegri grein eftir Þorstein Thor-
arensen, fréttaritara Reuters-frétta-
stofunnar á íslandi. Þar er m. a. bent
á að Gudvarður á Gauki á Stöng
hafi brotið ísinn í bjórmálunum hér-
lendis og Ólafur Þ. Þórðarson al-
þingismaður sakað menn um mútu-
þægni á báða bóga...
ásamt ljósrituðum kvittunum vegna
útborgunargreiðslna sem gjaldfalln-
ar eru samkvæmt honum. Svo sem
fram kemur í samningnum er um-
samin veðheimild mér til handa kr.
500.000 og hef ég nýtt mér hana.
Enginn ágreiningur er milli mín og
seljenda um þetta mál.
Varðandi bílaviðskipti
Við nefnd bílakaup var um það
samið að ég ábekkti ekki víxla þá er
ég greiddi með vegna kaupanna.
Samþykkjandi á víxlunum var
sjálfseignarbóndi utan af landi sem
ég tók gildan sem greiðanda á víxl-
unum þar sem fyrir lá að hann var
á þeim tíma þinglesinn eigandi bú-
jarðar. Svo sem fram kemur hefur
ekki verið reynt að innheimta víxl-
ana með aðfarardómi á hendur
skuldaranum. Greiðslustaða skuld-
arans er mér með öllu ókunn og tel
ég að skuldareigendur eigi að freista
þess að innheimta skuldina fyrir milli-
göngu dómstóla svo sem tíðkanlegt
er. Munur kaupverðs og söluverðs
fór í að kaupa nýjan gírkassa í bif-
reiðina, en eftir að kaupin áttu sér
stað kom í ljós að hann var ónýtur.
Markmið skrifa af þessu tagi eru
mér ekki ljós en slík blaðamennska
mun ekki auka hróður blaðs yðar út
á við. Það hefur örugglega ekki
farið fram hjá neinum að stór hluti
þeirra sem standa í því að koma sér
upp þaki yfir höfuðið á í miklum
greiðsiuörðugleikum. Vandamálið
er orðið svo stórt og svo útbreitt í
þjóðfélaginu að sjálf ríkisstjórnin
hefur séð sig knúna til að íhuga
stöðu þeirra mála í dag. Ég hef þurft
að bíta í það súra epli, eins og svo
margir aðrir, að geta ekki staðið í
skilum, einfaldlega vegna þess að
mér hefur gengið erfiðlega að inn-
heimta það sem aðrir skulda mér. í
viðskiptum eru slík vanskil keðju-
verkandi því miður. Er því ekki ver-
ið að hengja bakara fyrir smið í
þessu máli?
Vinsamlegast hafið
eftirfarandi hugfast
Komi til þess að drög þau er mér
hafa borist í hendur og til eyrna
verði birt og ekki verði höfð hlið-
sjón af skýringum mínum, vara ég
eindregið við afleiðingum þeirrar
birtingar. / ,---
Athugasemd HP:
Helgarpósturinn stendur í einu og
öllu uið frásögn sína, og vísar því á
bug að um atvinnuróg sé að rœða.
Ljósrit af fylgisskjölum eru í vörslu
HP.
Kristinn B. Ragnarsson:
//
Er ekki verið að hengja
bakara fyrir smið?r
>//
Ég undirritaður leyfi mér hér með
að koma á framfæri eftirfarandi at-
hugasemdum við þeim atvinnurógi
sem blað yðar stendur fyrir á hend-
Varðandi kaup á
einbýlishúsi
Vegna kaupa minna á einbýlishúsi
A og B vil ég taka fram að eftir und-
irskrift kaupsamnings kom í ljós að
lán sem yfirtekin voru voru í van-
skilum og uppboðsmeðferð. Þeim
lánum varð ég að koma í skil og
drógust því greiðslur mína sam-
kvæmt kaupsamningi eins og selj-
endur hafa fundið sig knúna til að
skýra frá í blaði yðar. Harma ég
þennan greiðsludrátt sem jafnframt
var tilkominn vegna vanskila ann-
arra við mig og seljendum var kunn-
ugt um. Ég tel þó ekki ástæðu til að
falast eftir rými í blaði yðar til að
gera grein fyrir greiðsluerfiðleikum
viðsemjenda minna, en keðjuverk-
anir sem þessar eru því miður al-
kunnar meðal þeirra sem til þekkja.
Varðandi greiðslu é
lögtaki
Viðsemjendur C voru hjón sem
skildu. Eftir að gengið var frá kaup-
samningi gerði gjaldheimtan lögtak
hjá þeim hjónum meðan þau voru
enn þinglýstir eigendur íbúðarinn-
ar. C greiddi mér kr. 140.000 með
þeim orðum að hann treysti því að
ég sæi til þess að peningarnir rynnu
til að aflétta lögtakinu. Samkvæmt
fyrirmælum hans var mér þannig
óheimilt að greiða seljendum þessa
fjárhæð og að sjálfsögðu var mér
þannig óheimilt að greiða gjald-
heimtunni fjárhæð þessa án sam-
þykkis seljenda. Seljendur voru frá-
skilið fólk og reyndist erfitt að ná til
þeirra og náðist alls ekki í eigin-
manninn en eiginkonan var flutt út
á land. Loks komu seljendur og
sóttu greiðsluna ásamt kaupanda og
gerðu skil við gjaldheimtuna að
kaupanda viðstöddum. Með ofan-
greint í huga mætti íhuga hvað hefði
orðið um lögtakskröfu gjaldheimt-
unnar ef öðruvísi hefði verið staðið
að málum.
Varðandi erlendis
stöddu ungu hjónin
Láni þeirra frá húsnæðismála-
stjórn veitti ég viðtöku hinn 8. nóv.
1984, samkv. hjálagðri Ijósritaðri
kvittun, og greiddi seljanda sama
dag, samkvæmt Ijósritaðri hjálagðri
kvittun dagsettri sama dag.
Varðandi kaup á íbúð
Kaupsamningur vegna kaupa á
íbúð þessari er dags. 29. marz 1985.
Hjálagt sendi ég kaupsamninginn
Spegill, spegill,
herm þú mér...
>fi alda í margs-
ii, enda
notkun okkar á þeim verið margbreytiieg.
Erfitt er að gera sér t hugarfund hvemig
heimurinn liti út ef ekki væru til speglar.
Nú hefur ISPAN aukið þjónustu sina við
landsmenn og komið upp fullkominni að-
stöðu til speglagerðar og giersplipunnar.
ÍSPAN býður fjölbreytt úrval af speglum í
ýmsum litum 3ja, 4ja og 6mm og hvort sem
þú þarft smá spegilbrot eða heilan speglasal
er þjónustan jafn góð.
Við slípum líka allar tegundir af gleri frá 2 mm
uppí 15 tnm og í hvaða formi sem er,
kringlótt, sporöskjulagað, ferkantað eða eftir
þínumteikningum.
Spáðu í okkar spegla!
-einföld örugg líming
ISPAN HF.
EINANGRUNARGLER
GLERSLÍPUN- SPEGLAGERD - SPEGIASALA
Smiðjuvegi7 200Kópavogi Stmi 43100
HELGARPÖSTURINN 9