Helgarpósturinn - 30.05.1985, Síða 22
TMMMBMMmmWMM.
HELGARDAGSKRÁIN
Föstudagur
31. maí
19.15 Á döfinni.
19.25 Barnamyndasyrpa.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fróttir og veður.
20.40 Klassapía (Fantastico). Skemmti-
þáttur með ítölsku söngkonunni
Raffaellu Carra í aðalhlutverki.
21.35 Maðurinn bak við myndavélina.
Bresk heimildamynd um kvikmynda-
tökumanninn Dieter Plage og Mary,
konu hans, sem ferðast heimshorna
milli til að taka dýralífsmyndir, oft við
erfið og jafnvel háskaleg skilyrði.
22.30 Vogun vinnur, vogun tapar. (A
Song for Europe). Ný bresk-þýsk sjón-
varpsmynd sem byggð er á sannsögu-
legum viöburöum.
00.10 Fróttir í dagskrárlok.
Laugardagur
/ 1. júní
17iSo íþróttir.
19.25 Kalli og sælgætisgerðin. Sænsk
teiknimyndasaga í tíu þáttum.
19.50 Fróttaágrip á táknmáli.
20.00 Fróttir og veður.
20.35 Sambýlingar (Full House). Nýr
flokkur — Fyrsti þáttur. Breskur
gamanmyndaflokkur í sex þáttum um
ungt fólk sem kaupir sér húsnæði í
sameiningu. Leikendur: Christopher
Strauli, Sabina Franklyn, Natalie
Forbes og Brian Capron.
21.05 Gestir hjá Bryndísi. Kvöldstund
n}eð Bryndísi Schram. Gestir hennar
Verða að þessu sinni allir sjómenn.
22,0Ó Ég berstá fáki fráum. (International
Velvet). Bresk bíómynd frá 1978. Leik-
stjóri Bryan Forbes. Aðalhlutverk:
Tatum O'Neal, Christopher Plummer,
Anthony Hopkins og Nanette New-
man. Þegar Sara missir foreldra sína
er hún send til frænku sinnar sem var
annáluð fyrir hestamennsku á yngri
árum. Brátt vaknar hjá telpunni áhugi
á hestum og reiðmennsku. Takmark
hennar verður að komast í keppnis-
sveit Breta á Ólympíuleikunum.
00.10 Dagskrárlok.
Sunnudagur
2. júní
18.00 Sunnudagshugvekja.
18.05 Hjá afa og ömmu.í Et lille öjeblik).
(Nordvision — Danska sjónvarpið).
18.30 Sauðnautin. Bresk dýralífsmynd um
sauðnaut í Alaska.
19.00 Alþjóölegt skákmót í Vestmanna-
eyjum.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fróttir og veöur.
20.20 Sjónvarp næstu viku.
20.50 Saga skipanna. — Svipmyndir úr
siglingum og sjávarútvegi. Sjónvarps-
þáttur frá sýningu Sædýrasafnsins í
Hafnarfirði á skipslíkönum í fyrra-
sumar.
21.15 Til þjónustu reiðubúinn. Breskur
framhaldsmyndaflokkur.
22.10 Bette Davis. Bresk-bandarískur sjón-
varpsþáttur um kvikmyndaleikkon-
una Bette Davis. í þættinum, sem
gerður var skömmu fyrir 75 ára afmæli
hennar, segir leikkonan frá hálfrar
aldar leikferli í blíðu og stríðu og sýnd
eru atriði úr fjölmörgum kvikmyndum
sem hún hefur leikið í.
23.10 Dagskrárlok.
Fimmtudagur
30. maí
19.00 Kvöldfróttir. Daglegt mál.
20.00 Hvískur.
20.30 Kvöld í maí. Tónlist: Ingimar Eydal.
Umsjón: Jónas Jónasson.
21.30 Einsöngur í útvarpssal. Ólafur Þ.
Jónsson syngur lög eftir Hallgrím
Helgason við kvæði eftir Steingrím
Thorsteinsson, Jón Magnússon,
Snorra Hjartarson, Ólaf Jóhann Sig-
urðsson og Pétur Jakobsson. Höfund-
urinn leikur á píanó.
22.00 ..Dægurlagatextar". Hjalti Rögn-
valdsson les Ijóðaflokk úr bókinni
,,Óljóö" eftir Jóhannes úr Kötlum.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
22.35 Fimmtudagsumræðan. Umsjón:
Gjssur Sigurðsson.
•23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Föstudagur
31. maí
07.00 Fréttir.
08.00; Fréttir.
09.00 Fréttir.
09.05 Morgunstund barnanna.
10.00 Fréttir.
10.45 ,,Mér eru fornu minnin kær".
(RÚVAK).
11.15 Morguntónleikar.
12.20 Fróttir.
14.00 ,,Sælir eru syndugir" eftir W.D.
Valgardson.
14.30 Á léttu nótunum.
16.00 Fréttir.
16.20 Síðdegistónleikar. a. Rómansa í
f-moll op. 11 eftir Antonín Dvorák. b.
Konsertrapsódía fyrir selló og hljóm-
sveit eftir Aram Katsjatúrían.
17.00 Fróttir á ensku.
17.10 Síðdegisútvarp.
19.00 Kvöldfróttir. Daglegt mál.
20.00 Lög unga fólksins.
20.40 Kvöldvaka. a. Af tröllum og
mönnum. Þórey Hannesdóttir spjall-
ar um eiginleika trölla og ástir þeirra
og manna. b. Kórsöngur. Liljukórinn
syngur undir stjórn Jóns Ásgeirs-
sonar. c. Litið til liðinnar tíðar. Þor-
steinn Matthíasson flytur frásögn
skráða eftir Valgerði Skarphéðins-
dóttur í Grundarfirði.
21.30 Frá tónskáldum.
22.00. Tónlist.
22.15 Fréttir.
22.35 Úr blöndukútnum (RÚVAK).
23.15 Á sveitalínunni (RÚVAK).
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Val Magnúsar Péturssonar
heildsala
Eg horfi og hlusta almennt á fréttir í útvarpinu. Eg tel að við eigum
ágætt útvarps- og sjónvarpsfólk. Reyndar horfi ég ekki mikið á sjónvarp,
en horfi þó á íþróttirnar. Og þessa dagana fylgist ég með þáttunum „Allt
fram streymir” — sérlega skemmtilegir þættir. I útvarpinu hef ég mjög
gaman af Jónsbók — sú bók er frábær og á erindi til okkar allra. A Rás
2 er líka ágætur þáttur, Þriðji maðurinn. I heildina talið, þá finnst mér
Ríkisútvarpið, bæði útvarp og sjónvarp, skemmtilegt — og gefur ékki eft-
ir því sem ég hef heyrt og séð erlendis. Við eigum gott fjölmiðlafólk.
Laugardagur
1. júní
07.00 Fréttir. Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
08.00 Fréttir.
08.30’Forustugr. dagbl. (útdr.).
09.00 Fréttir.
09.30 Óskalög sjúklinga. (10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir).
11.20 Umferðakeppni skólabarna.
12.20 Fréttir.
14:00 Hér og nú.
15.20 r;Fagurt galaði fuglinn sá". Um-
sjón: Sigurður Einarsson.
16.00 Fréttir.
16 20 Svanurinn í söngnum og Ijóðum.
Lesari: Herdís Björnsdóttir.
17.00 Fróttir á ensku.
17.05 Síðdegistónleikar. a. Tríó nr. 4 í B-
dúr op. 70 nr. 1 eftir Ludwig van
Beethoven. b. Strengjakvartett í B-dúr
oþ. 67 eftir Johannes Brahms.
19.00 Kvöldfróttir.
19.35 Þetta er þátturinn.
20.00 Harmonikuþáttur.
20.35 Sjálfstætt fólk í Jökuldalsheiði og
grennd. 3. þáttur. (Aður útvarpað
íjúlí 1977).
21.45 Kvöldtónleikar.
22.15 Fréttir.
22.35 Uglan hennar Mínervu. Samræða
Lúkíans frá Samósata um einfaldleik-
ann. Umsjón: Arthúr Björgvin Bolla-
son.
23.15 Gömlu dansarnir.
24.00 Miðnæturtónleikar.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
M
Sunnudagur
2. júní
Sjómannadagur
08.00 Morgunandakt.
08.10 Fréttir.
08.35 Létt morgunlög. Hljómsveit Alfreds
Hause leiku;.
09.00 Fréttir.
09.05 Morguntónleikar.
10.00 Fréttir.
10.25 Út og suður.
11.00 Messa í Dómkirkjunni.
12.2Ö Fréttir.
13.30 Sjómannalög.
14.00 Frá útisamkomu sjómannadags-
ins við Reykjavíkurhöfn. Fulltrúar
frá ríkisstjórninni, útgerðarmönnum
og sjómönnum flytja ávörp.
15.10 Milli fjalls og fjöru með Finnboga
Hermannsyni.
16.00 Fréttir.
16.20 Leikrit: ,,Raddir sem drepa" eftir
Poul HenrikTrampe. Fyrsti þáttur.
17.00 Fróttir á ensku.
17.05 Með á nótunum. Spurninga-
keppni um tónlist. 8. þáttur.
19.QÖ Kvöldfréttir.
19.35 Það var og.
20.00 Unglingaþáttur.
21.00lslenskir kórar og einsöngvarar
syngja.
21.30 Útvarpssagan.
22.00 Tónleikar.
22.35 íþróttaþáttur.
22.45 Dagskrá í tilefni sjómannadags-
ins.
23.30 Kveðjulög skipshafna.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur 30. maí
20.00-21.OOVinsældalisti hlustenda Rásar2.
21.00-22.00 Þriðji maðurinn.
22.00-23.00 Rökkurtónar.
23.00-24.00 Gullhálsinn. Sjötti og síðasti
þáttur þar sem rakinn er ferill Michael
Jackson.
Föstudagur 31. maí
10.00-12.00 Morgunþáttur.
14.00-16.00 Pósthólfið.
16.00-18.00 Lóttir sprettir.
23.15-03.00 Næturvaktin.
Laugardagur 1. júní
14.00-16.00 Músík og sport.
16.00-17.00 Listapopp.
17.00-18.00 I tilefni dagsins.
24.00-03.00 Næturvaktin.
Sunnudagur 2. júní
13.30-15.00 Krydd í tilveruna.
15.00-16.00 Tónlistarkrossgátan.
16.00-18.00 Vinsældalisti hlustenda Rás-
ar 2.
^ÖNVAÍr™
Upp á eina milljón
eftir Halldór Halldórsson
ÚTVARP
eftir Sigmund Erni Rúnarsson
Einkastöövar, hvernig þá?
Hér á eftir eiga eftir að birtast athuga-
semdir, sem eiga ekki bara við um sjón-
varpið, heldur einnig útvarp, dagblöð,
tímarit o. s. frv. Allir eiga þessir fjölmiðlar
það sammerkt að taka við efni til birtingar
og jafnvel leita það uppi sjálfir án minnstu
sjálfsgagnrýni. Um þetta eru mörg dæmi.
í sjónvarpinu var til dæmis á dögunum
skýrt frá því, að bjór væri fitandi. Um þetta
eru menn ekki sammála. Þá var skýrt í
sjónvarpinu frá því, að neyzla áfengis með-
al ungs fólks hefði aukizt og oft talað um
misnotkun á áfengi, án þess þó að gerð
væri minnsta tilraun til þess að skilgreina
misnotkun. Þá var í sömu frétt staðhæft, að
bjór á íslandi myndi auka á neyzlu áfengra
drykkja. Þessi staðhæfing var einnig al-
gjörlega ógrunduð og sjálfsagt endurtekin
gagnrýnislaust upp úr „fréttatilkynningu"
frá Afengisvarnaráði eða einhverri slíkri
stofnun.
En dæmin um gagnrýnislausa umfjöllun
eru ekki aðeins af þessu tagi. Til dæmis
virðast hin og þessi fyrirtæki eiga ótrúlega
greiða leið inn í sjónvarpsfréttirnar og það
getur munað um minna fyrir hið heppna.
Þannig var á dögunum löng frétt í sjón-
varpinu um Act-skó (nú er ég víst farinn að
auglýsa líka), þar sem þeir voru lofaðir og
prísaðir í bak og fyrir. Fyrirtækið sem fram-
leiðir skória er í bullandi samkeppni við
innflutta skó á íslenzkum markaði og frétt-
in var eins og hreinasta auglýsing fyrir inn-
lenda skóframleiðslu. Þetta vekur náttúr-
lega þá spurningu hvort sjónvarpinu (og
öðrum fjölmiðlum) finnist alveg sjálfsagt að
hampa innlendri framleiðslu á kostnað er-
lendrar.
Annað dæmi af svipuðum toga var í sjón-
varpsfrétt á dögunum. Þá var verið að
kynna nýja rétti frá Sláturfélagi Suður-
lands. Varningurinn var sýndur á meðan
því var lýst hversu handhægt þetta væri
allt saman. Og fréttamaðurinn hlustaði af
athygli á allt hrósið um nýju réttina og
umbúðirnar fínu. Vanur auglýsingarmaður
sló því fram, að tveggja til þriggja mínútna
umfjöllun í sjónvarpinu um tiltekna vöru
væri á við auglýsingaherferð, sem myndi
kosta um eina milljón króna.
Þó ekki væri nema af þessari ástæðu
ættu fréttamenn að fara varlega í sakirnar,
þegar fréttaefnið getur ýtt undir viðskipti
eins aðila á kostnað annars.
Og raunar þurfa fréttamenn að vara sig á
fleiru en vörufréttum, vöruauglýsingum í
fréttatímum. Þannig gerðist það um dag-
inn, að sjónvarpið fjallaði um óskir Akur-
eyringa um stofnun háskóladeildar fyrir
norðan, svo sem í ensku, ef ég man rétt.
Gott og vel. En daginn eftir kom svo Ragn-
hildur Helgadóttir menntamálaráðherra í
fréttir sjónvarpsins og dró nánast allt til
baka, sem í fyrri fréttinni hafði verið sagt.
Fyrri fréttin dó. M. ö. o. fyrri fréttin var ekki
frétt.
Það er vissara að hafa vaðið fyrir neðan
sig.
Það er vitaskuld erfitt að spá nokkru um
væntanlegar breytingar á hljóðvarpsmál-
um sem fylgja munu í kjölfar gildistöku
nýja útvarpslagafrumvarpsins. En maður
hefur sitthvað á tilfinningunni. Til dæmis
þetta; að uppskriftin að dagskrám einka-
stöðvanna komi til með að draga dám af
efni Rásar 2, að meira eða minna leyti.
Það er einatt erfitt að rökstyðja tilfinn-
ingar sínar, og svo ér einnig um þessar sem
hér fá útrás. En ljóst má vera af gríðarleg-
um vinsældum rásarinnar um land allt og
á meðal nær allra aldurshópa, að áhrifa
hennar mun gæta allverulega í uppbygg-
ingu og framsetningu efnis hjá þessum
verðandi stöðvum. I sumum tilvikum verð-
ur eflaust um blint mið að ræða, þótt ósk-
andi væri að frumleiki og ferskar hug-
myndir slæddust með.
Hverjar verða þá breytingarnar? Jú, fleiri
stöðvar, lengri útsendingartími. Eitthvað
meira? Það verður ekki svo hæglega séð.
Áherslurnar í dagskrárgerð miða örugg-
lega að því að létta geð fólks, hressa fremur
en fræða og upplýsa, þótt eflaust verði
að finna fréttir inni á milli dagskrárliða, en
þá ugglaust hraðsoðnar og yfirborðs-
kenndar og fréttamatið þess eðlis að meiri
rækt verði lögð við spaugilegar hliðar
þjóðlífsins heldur en hinar alvarlegu.
Mestur tíminn fer svo sjálfsagt í hljóm-
plöturabb; alla vega tónlistarþætti og út-
tektir á gömlum og nýjum poppururm
Ásamt vinsældalistum ef að líkum lætur. í
þessu sambandi er vert að hafa í huga að
Rás 2 hefur farið margar leiðir í gerð tón-
listarþátta og sinnt flestum ef ekki öllum
þáttum dægurmúsíkurinnar, og þar af leið-
andi mun hinum nýju stöðvum sjálfsagt
reynast erfitt að auka á fjölbreytnina í
þessu einstaka dagskrárefni, sem verður
þá þeim mun neyðarlegra sem það er haft
í huga hvað það á eftir að taka mikið rúm
í dagskrám þeirra, ef fram fer sem horfir.
En hjákátlegast verður þetta í léttsoðnu
viðtalsþáttunum sem að öllum líkindum
munu taka næstmesta plásið í dagskrám
einkastöðvanna. Rás 2 hefur tekist að
þræða góðan milliveg milli þesskonar efnis
og annars er það býur upp á, þó svo að vin-
sældir þessara þátta virðist slá öðru efni
við. í harðri samkeppni stöðvanna verður
líkast til allt kapp lagt á að bjóða upp á
hressilegustu, opnustu og kannski djörf-
ustu viðtalsþættina og þá sem flesta og fjöl-
breytilegasta, vegna þeirra miklu vinsælda
sem þessir þættir virðast njóta.
Ég segi hjákátlegast vegna þess að sakir
fámennis og fárra frægra landsmanna, er
sýnt að eftir fáein misseri verði margsinnis
búið að kjafta við hvern og einn einasta
merkan mann, og er þó farið að slá í mörg
algengustu viðtalsefnin þegar. En vafalaust
verður þá reynt að velta upp nýjum og
óvæntum hliðum á mönnum, tala við þá
um sértæk efni, afmörkuð, ákveðin aldurs-
skeið þeirra og bla bla bla . . . allt fram
streymir og sýnt að ekki megi maður svo
mikið sem leysa vind á víðavangi án þess
að hann verði dreginn inn í stúdíó til að
lýsa upplifuninni fyrir alþjóð!
Verður kannski svo að Rás 2 nægi? Við
sjáum til. .. Frelsið er náttúrlega fyrir öllu.
22 HELGARPÓSTURINN