Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 11.07.1985, Qupperneq 2

Helgarpósturinn - 11.07.1985, Qupperneq 2
FRETTAPOSTUR I Elsti þingstaðurinn fundinn Fornleifafræðingar hafa nú grafið niður á leifar húss sem talið er vera frá því um 900. Talið er að stofnun Alþingis á Þingvöllum hafi verið undirhúin á Þingnesi við Elliðavatn, en þar var hið forna Kjalarnesþing háð. í Þingnesi hóf Jónas Hallgrímsson einhverjar fyrstu fornleifarannsóknir á ís- landi 1843 og kom þar niður á rústir. Þjóðminjasafnið hóf svo uppgröft í Þingnesi 1981 og í sumar komu fornleifafræð- ingar niður á rústir undir þeim rústum sem áður höfðu fundist. Nú er vitað um a.m.k. 15 eða 16 búðarústir í Þing- nesi. Ingvar Gíslason skrifar grein Ingvar Gíslason, fyrrverandi menntamálaráðherra, skrif- aði langa grein sem birtist þann 9. júlí í NT og f jallar um rit- stjórnarstefnu íslenskra blaða. Ingvar nefnir grein sína „Bandalag kumpánaskaparins“ og gagnrýnir blöðin harka- lega fyrir að lyfta pólitíkusum á stall — upphefja óvandaða stjórnmálamenn og hneykslishellur — nefnir sérstaklega Albert Guðmundsson (sem hann segir naumast talandi og skrifandi og persónufylgi hans nánast hneyksli, sem og for- setaframboð hans um árið), Davíð Oddsson (og gagnrýnis- lausa umfjöllun blaða um 70 ára valdasetu Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík), Jón Sólnes og Kröfluævintýrið. Nýtt hótel og skemmtistaflur Ólafur Laufdal, eigandi skemmtistaðanna Broadway og Hollywood, fyrirhugar að reisa hótel og skemmtistað við Ármúla i Reykjavík. Dregur úr mjólkurþambi Mjólkurþamb íslendinga hefur dregist saman um 2,4% frá því sem áður hefur verið. Þá hefur jógúrtátið aukist um 7,4%, mysudrykkja um 20% og sala á áfum um 71%. Og við borðum 8% minna af skyri. Sinfóníuhljómsveitin í Frakklandi Sinfóniuhljómsveit íslands hefur undanfarið verið i hljóm- leikaför um Frakkland. Leikið hefur verið á fimm stöðum. Einar Jóhannesson lék einleik á klarínett á tveimur hljóm- leikanna — við gífurlega jákvæðar undirtektir. Landsvirkjun kaupir Kröflu Eigendur Landsvirkjunar (Ríkiö, Reykjavíkurborg og Akureyrarkaupstaður) íhuga nú, að frumkvæði iðnaðar- ráðherra, kaup á Kröfluvirkjun, sem ríkið hefur hingað til átt eitt. M.a. er um að ræða yfirtöku á skuldum Kröflu- virkjunar sem munu nema allt að 3,4 milljörðum kr. Pólýfónkórinn söng fyrir páfann Pólýfónkórinn og Ingólfur Guðbrandsson eru á för um Ítalíu þessa dagana. Um s.l. helgi söng kórinn fyrir páfann í Vatíkaninu. Jóhannes Páll páfi ávarpaði kórinn nokkrum hlýlegum orðum. Víkingahátið á Laugarvatni Víkingaleikurinn um Hagbarð og Signýju verður fluttur að Laugarvatni um helgina, á mikilli víkingahátíð sem þar verður haldin. Víkingaleikurinn, sem svo hefur verið kall- aður, hefur verið fluttur í Friðriksstað á Jótlandi á hverju sumri síðan 1951. Nokkuð verður um fina gesti á hátíðinni — Elísabet Danaprinsessa er þegar komin til landsins og var heilsað af fyrirmönnum. Svindlafl á blindum Fyrrverandi framkvæmdastjóri Blindrafélagsins í Reykja- vik hefur verið sakaður um fjárdrátt. Um er að ræða fó úr sjóði happdrættis Blindrafélagsins, um það bil eina og hálfa milljón króna, sem framkvæmdastjórinn á að hafa dregið sér s.l. tvö og hálft ár. Nauðgun á Hólmavík Tveir fullorðnir menn á Hólmavík hafa verið kærðir fyrir að nauðga fimmtán ára stúlku þar í þorpinu. Mennirnir eru grunaðir um að hafa látið stúlkuna drekka áfengi sér til vansa og síðan munu þeir, eða a.m.k. annar þeirra, hafa komið fram vilja sínum. íyngsti dómurinn fyrir nauðgun Liðlega tvitugur maður var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa í fyrra nauðgað stúlku og gert tilraun til að nauðga annarri. Dómurinn er sá þyngsti sem hér á landi hefur fallið vegna nauðgunar. Banaslys Banaslys varð á Suðurlandsvegi i Svínahrauni i vikubyrjun. Fertugur maður, farþegi í fólksbil, lést þegar jeppabíll, sem reyndar var í togi aftan í öðrum, lenti framan á fólksbílnum. Þá fannst norskur ferðamaður á áttræðisaldri látinn í Bláa lóninu við Svartsengi nærri Grindavík. Fótboltinn Fram er nú langefst í fyrstu deild íslandsmótsins. Framarar hafa ekki tapað leik í mótinu — fyrr en um helgina að þeir urðu að lúta í duftið uppi á Akranesi. Heimamenn „rúlluðu upp“ hinum bláklædu úr Álftamýrinni, skoruðu sex gegn tveimur oggengu þar með á annars örugga forystu Reykvík- inganna í íslandsmótinu. Austfirflingar mála og snurfusa kringum hús sín og torg þessa dagana því að Vigdís forseti er væntanleg á laugardaginn í opinbera heimsókn um Aust- urland. Heimsóknin hefst á Egilsstöðum og lýkur á Höfn í Hornafirði níu dögum síðar. Hundadagahátíð á Akureyri Nú rikir kátína og hátíðarstemmning á Akureyri. Nýtil- fundin hundadagahátíð hófst í vikubyrjun og verður margt sér til gamans gert. M.a. geta hátíðargestir veitt á stöng úr Pollinum innan við Drottningarbrautina — lax og sjóbirt- ing. Skoðanakönnun EINKASKÓLAR O (SLENDINGAR EINKAS 75% íslend- inga telja ís- land stéttskipt Goðsögnin um stéttlaust ísland fallin Peningar og ríkidæmi eru einkenni yfir- stéttarinnar 2,5% falla í yfirstétt — 66% eru miðstéttarfélk Yfir 30% telja sig til lég- stéttar á íslandi Meirihluti íslendinga er á móti einkaskólum á grunnskólastigi og þar af er landsbyggðin andvígari slíkum skólum en þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu. Enda þótt fram kæmi, að fólk hefði almennt fylgzt með umræðunni um einka- skóla í Reykjavík, Tjarnarskóla, þá hafa 23% landsmanna ekki gert upp hug sinn í þessu efni. Af heild- arúrtakinu eru 43% á móti einka- skólum, 34% með, en 23% ekki viss um afstöðu sína (sjá töfiu I). Þetta kom fram í skoðanakönn- un Helgarpóstsins, sem var gerð um liðna helgi. í þessari könnun var jafnframt leitað eftir skoðun- um Islendinga á því hvort á íslandi ríkti stéttaskipting, hvað ein- kenndi mismunandi stéttir og hvaða stétt fólk teldi sjálft sig til- heyra. Niðurstaða spurningarinnar um stéttaskiptingu á íslandi var sú, að yfirgnæfandi meirihluti taldi stéttaskiptingu ríkja á Islandi, eða tæp 73% þeirra sem tóku afstöðu. Rösk 27% telja, að hérlendis ríki ekki stéttaskipting. Aðeins rúm 10% spurðra tóku ,ekki afstöðu. Eftir því sem byggðir eru dreifðari, því fleiri telja að stéttaskipting ríki. Þannig töldu tæp 76% lands- byggðarmanna að stéttaskipting væri á íslandi, en rétt rúm 70% í Reykjavík. (Sjá töflu II). Þeir sem svöruðu því játandi að á íslandi væri stéttamunur, voru í framhaldi af því spurðir hvað það væri, sem einkenndi það sem við kölluðum „hástéttina, yfirstéttar- fólk“. Tæp 70% töldu peninga og ríkidæmi aðaleinkennin, en 24% embætti, virðingu, menntun og ætterni. Aðeins 7% tiltóku pólitísk völd. Það sem er e.t.v. athyglis- verðast við svör fólks við þessari spurningu er sá munur, sem kem- Greinarg STÉTTASKIPTING Á ÍSLANDI Um síðustu helgi var gerð skoð- anakönnun um afstöðu Islendinga til stofnunar einkaskóla á grunn- skólastigi. Einnig var kannað hver afstaða landsmanna væri til stétta- skiptingar, þ.e. hvort þeir teldu að stéttaskipting væri á íslandi. (Því hefur stundum verið haldið fram að ísland væri stéttlaust þjóðfélag eða að stéttaskipting væri minni hér á landi en annars staðar). Að lokum voru þeir, sem töldu að stéttaskipting væri raunveruleg, beðnir að tilgreina hvaða stétt þeir teldu sig tilheyra. Hringt var í 800 einstaklinga, 18 ára og eldri, með jafnri skiptingu milii kynja skv. tölvuúrtaki sem unnið var eftir skrá Landsímans um símnotendur (aðeins einka- símar). Úrtakið skiptist á þrjú aðal- svæði, eins og fyrri kannanir, þ.e.a.s. Reykjavík (306), Reykjanes (182) og landsbyggðarkjördæmin (312). Ert þú með eða á móti stofn- un einkaskóla á grunnskóla- stigi? Eins og fram kemur á Töflu I eru aðeins tæplega 23% sem ekki telja sig vita nægilega mikið um málið. Hins vegar var áberandi að fólk hafði fylgst með umræðum fjöl- miðla um stofnun einkaskóla fyrir unglinga í Reykjavík. Eins og sjá má á Töflu I er andstaðan við stofnun einkaskóla lítið eitt minni í Reykjavík en annars staðar á landinu, en andstæðingar einka- skólans eru þó í nokkrum meiri- hluta. Er stéttaskipting á íslandi? Þótt flestir hafi svarað þessari spurningu í nokkuð mörgum orð- um, komust þeir allflestir að þeirri niðurstöðu að í landinu væri stéttaskipting. Minnihlutinn, eða innan við 30%, hélt því hins vegar fram að ísland væri stéttlaust þjóð- félag og stéttaskipting væri hér Ert þú með eða á móti stofnun einkaskóla á grunnskólastigi? Reykjavík Reykjanes landsbyggðin allt landið Er með stofnun einkaskóla 99 37.1% 52 33.1% 93 32.0% 244 34.1% Er á móti stofnun einkaskóla 111 41.6% 66 42.0% 130 44.7% 307 42.9% Er ekki viss 57 21.3% 39 24.8% 68 23.3% 164 22.9% Er stéttaskipting á íslandi? Reykjavík Reykjanes landsbyggðin allt Iandið Það er stéttaskipting á íslandi 188 70.4% 112 71.3% 220 75.6% 520 72.7% Það er ekki stéttaskipting á íslandi 79 29.6% 45 28.7% 71 24.4% 195 27.3% Kassagerð Reykjavíkur kos 2 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.