Helgarpósturinn - 11.07.1985, Page 3

Helgarpósturinn - 11.07.1985, Page 3
Helgarpóstsins G STÉTTASKIPTÍNG ERU Á MÖTI KÓLUM! ur fram hjá íbúum Reykjavíkur annars vegar og Reykjaness og landsbyggðarinnar hins vegar. Reyknesingar og landsbyggðar- menn eru nær sammála um, að peningar og ríkidæmi séu það sem skipi mönnum í svokallaða „hástétt", en tæp 63% Reykvík- inga. Embætti, virðing, menntun og ætterni skipar mönnum í há- stétt í hugum tæpra 32% Reykvík- inga, en dettur niður í rúm 20% á Reykjanesi og 17,5% á lands- byggðinni. Pólitísk völd skipta landsbyggðarmenn mestu. Níu prósent skipa mönnum í hástétt af þeim völdum, en um 5,5% hjá Reykvíkingum og Reyknesingum. í þessu samhengi er kannski rétt að hafa í huga, að stærstur hluti menntamanna og embættis- manna býr í Reykjavík. Að síðustu báðum við fólk að skipa sér í stéttir, sem við kölluð- um hástétt, miðstétt og lágstétt. Þar kemur hógværð landans í ljós, því á landsvísu lenda aðeins 2,5% þar. Miðstéttin er stærst, eða tæp 66%, og í lágstétt lentu tæp 32%. Á landsbyggðinni settu fæstir sjáifa sig í hástétt, eða 2,0% á móti 3,2% í Reykjavík; á Reykjanesi er miðstéttin stærst samkvæmt þessu eða tæp 75%, en í lágstétt settu flestir sig á landsbyggðinni, eða hvorki meira né minna en tæp 40%. Þar voru tölur um ríkidæmi sem mælikvarða hjá hástétt mjög háar og raunar á Reykjanesi líka. Þetta bendir til þess að lands- byggðarfólk telji sjálft sig fátækara en aðra landsmenn. Ef við notum sömu viðmiðun fyrir Reykjanes og Reykjavík telja Reykvíkingar sig; til fátækasta flokksins í snöggtum minna lagi og síðastir koma svo Reyknesingar, sem jafnframt eru fjölmennastir í miðstéttarhópn- um. -H.H. erð SKÁÍS OG STOFNUN EINKASKÓLA ekki til, eða það lítil að ekki væri hægt að skilgreina hana. Á Töflu II má sjá nokkurn mun á afstöðu landsbyggðarfólks og fólks í Reykjavík til þessa máls. Þeir sem ekki tóku afstöðu voru 10,6% fyrir landið í heild (85 einstaklingar). Hvad einkennir helst hástétt- ina, yfirstéttarfólkið? Þeir sem svöruðu spurningunni um stéttaskiptingu á íslandi já- kvætt voru beðnir að skilgreina yfirstéttina, á hvern hátt hún skæri sig úr frá öðrum stéttum. Á Töflu III má sjá samanburð milli svæðanna þriggja að því er varðar atriði, sem fólk telur að einkenni helst hástéttina eða yfirstéttar- fólkið. Meðal annars kemur fram að Reykvíkingar leggja mun meiri áherslu á embætti, virðingu, menntun og ætterni en lands- byggðarfólkið, en þeir síðar- nefndu leggja meiri áherslu á pen- inga, ríkidæmi og pólitísk völd, sem einkenni hástéttarinnar. Hvaða stétt tilheyrir þú? Eins og sjá má á Töflu IV voru flestir mjög fúsir til að láta í ljós skoðun sína á því hvaða stétt þeir teldu sig tilheyra. Þessar niður- stöður ber þó að taka með varúð, sérstaklega með hliðsjón af því að gengið var út frá þrem aðalstétt- um. Þetta var gert til að auðvelda úrvinnslu. Allmargir töldu að erf- itt væri að greina á milli miðstéttar og lágstéttar og nokkrir að mið- stéttin væri í raun tvær aðgreindar stéttir. Eins og áður er sagt og fram kemur á Töflu II telur tæplega 30% úrtaksins að hér sé engin stéttaskipting og allir landsmenn tilheyri einni og sömu þjóðfélags- stéttinni. Skpðanakannanir á Islandi — SKÁÍS — sá um framkvæmd þess- arar könnunar. Hvað einkennir helst hástéttina, yfirstéttarfólk? Reykjavík Reykjanes landsbyggðin allt landið Peningar og ríkidæmi Embætti, virðing, menntun, 157 62.8% 72 74.2% 180 73.5% 409 69.1% ætterni 79 31.6% 20 20.6% 43 17.5% 142 24.0% Pólitísk völd 14 5.6% 5 5.2% 22 9.0% 41 6.9% IV. Hvaða stétt tilheyrir þú? Reykjavík Reykjanes landsbyggðin allt landið Hástétt 5 3.2% 2 2.4% 4 2.0% 11 2.5% Miðstétt 110 70.1% 62 74.7% 119 58.6% 291 65.7% Lágstétt 42 26.7% 19 22.9% 80 39.4% 141 31.8% Óviss 31 29 17 77 faði þessa skoðanqkönnun Veistu svarið sjálfur? „Nei, nei, blessuð vertu, það er hann Helgi Skúli sem hefur þau. Það má eiginlega segja að hann sé hugmyndafræðingur þáttarins; hann semur spurningarnar og er dómari og tímavörð- ur og svo er meiningin að ég sé við hljóðnemann og reyni að stjórna þessu. Helgi Skúli og þau hjá Útvarpinu voru komin af stað með þetta þegar ég var svo beðinn um að hoppa inn." — Hvers vegna heitir þátturinn Tylftarþraut? „Það er vegna þess að það eru alls tólf keppendur sem þarna koma fram. Þættirnir verða 11 og standa tvo mánuði, og í hverj- um þætti verða þrír keppendur. Þetta er útsláttarkeppni milli þeirra einstaklinga sem keppa hverju sinni, og um leið er þetta keppni á milli þriggja liða. Það koma sem sagt fjórir frá hverju fyrirtæki.. " — Hvaða fyrirtæki eru þetta? „Þetta eru starfsmenn olíufélaganna. Það fellur einn vinning- ur á hvert lið í hvert skipti sem þess maður sigrar í þætti, en aft- ur á móti keppa einstaklingarnir svo um stig innbyrðis. í hverj- um þætti verða 20 spurningar sem skiptast í fjórar hrinur, eins og við köllum það. Stig eru gefin fyrir besta árangur í hverri hrinu og séu tveir jafnir að stigum, skiptast þau á milli þeirra. Og við getum sagt sem svo að spurningarnar í hverri hrinu séu skyldar að formi til en efnislega ólíkar." — Verða spurningarnar þungar? „Það er nú meiningin að þetta verði til skemmtunar og að þau sem heima sitja geti tekið þátt í þessu með okkur. Nú, þetta verður þannig að það er keppni um það hver verður fyrstur til svars, það á að gefa merki og svara sem fyrst. Aðrir keppendur fá þá tækifæri til að spreyta sig ef fyrsta svarið er rangt. Með þessu vonumst við til að gera þetta meira spennandi." — Verður þetta vinsæll þáttur? „Tja, spurningakeppni er nú alltaf vinsælt efni, ekki satt? Annars, og svona þér að segja, þá hef ég aldrei tekið þátt í svona áður, þótt ég hafi verið 20 ár hjá Útvarpinu, svo ég renni alveg blint í sjóinn." — Já, hvernig er það, ertu farinn að starfa hjá Útvarp- inu á nýjan leik eftir að þú hættir sem forstjóri Norður- landahússins í Þórshöfn, sællar minningar? „Nei, ég er ekki kominn í neitt fast starf ennþá, er bara í ýmiss konar lausamennsku. Það var nú þannig að ég fékk 4 ára orlof þegar ég réðst til Færeyja og það sá auðvitað enginn fyrir, hversu fljótt ég kæmi aftur til baka. En mig langar hvort eð er til að breyta til og nú hef ég tíma til að sinna ýmsum hugðar- efnum og áhugamálum." — Er ekki dálítið skrýtið að vera spyrill i spurninga- keppni þegar maður er vanur því að vera í toppstöðu hjá Útvarpinu? , Jú, það finnst mér nú. En það er líka gaman að sitja hinum megin við borðið." Á sunnudagskvöldið kemur hefur nýr spurningaþáttur göngu sína ( útvarpinu. Heitir sá Tylftarþraut og verður í umsjón Helga Skúla Kjart- anssonar og Hjartar Pálssonar, fyrrum dagskrárstjóra og forstjóra Norð- urlandahússins I Faereyjum. HP sló á þráðinn til Hjartar til að forvitnast um Tylftarþrautina. . . Hjörtur Pálsson HELGARPÖSTURINN 3

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.