Helgarpósturinn - 11.07.1985, Blaðsíða 4

Helgarpósturinn - 11.07.1985, Blaðsíða 4
Leggst sauð- f járrækt af í Laugardal og verður hafin þar ræktun nytja- skógar í staðinn? Viðræður um þetta standa nú yfir á vegum landbún- aðarráðu- neytisins. Vinnur skógur sauðkina? Vera kann að bæjarlöndin í Laugardal og efst í Biskupstungum breyti mjög um svip með alveg nýjum búskaparháttum næstu árin. Sauðfé myndi hætta að renna um hlíðarnar en þess í stað spryttu grösugir nytjaskógar í brekk- unum allt frá Laugarvatni inn að Geysi í Hauicadal. Þessi hugmynd er ekki fráleitari en svo, að um þessar mundir standa yfir viðræður bænda og fulltrúa landbúnaðarráðuneytis- ins um að Laugardalsbændur leggi niður sauðfjárrækt en snúi sér þess í stað að skógrækt. Það er forsaga þessa máls að árin 1982 og ’83 kom upp riðuveiki á bæjum í Laugardal, efst í Tungunum og í Grímsnesinu. Var ekki um annað að ræða en skera niður fé og voru til að mynda allar ær skornar á 12 búum í Laugardal. Fer nú senn að líða að því að fjárbúskapur geti aft- ur hafist á þessum búum. Hvort bændur taka aftur upp þráðinn eða ekki, er sem sagt viðfangsefni umræðnanna. Riða Það var í Miðdal sem riðunnar varð fyrst vart í Laugardal. Það var árið 1982. Önnur ráð en niður- skurður þykja gagnslaus. Riðu- veiki herjar á miðtaugakerfi fjár- ins og grefur um sig í heila. Ekki er talið að veikin erfist, né heldur að hún smitist í haga, heldur með skít, heyi, verkfærum o.þ.h. og þarf að sótthreinsa hús og híbýli fjárins rækilega af þeim sökum. Bændur taka því yfirleitt með jafn- aðargeði að skorið sé til þess ann- að hvort að fyrirbyggja útbreiðslu, eyða grunsemdum eða hreinsa svæði af veikinni. Bóndinn á Laug- ardalshólum Fridgeir S. Stefáns- son, mátti þannig sjá á eftir um 330 ám undir hnífinn án þess að staðfest væri að í hópnum leyndist sýking, ,,Þær voru sendar í förgun til þess að hreinsa svæðið" ein- göngu. Friðgeir sagðist raunar aldrei hafa séð riðuveika kind sjálfur. Ekki einasta má reikna með til- finningalegum sárindum vegna niðurskurðar, heldur veldur hann auðvitað þungum búsifjum, eins og nærri má geta, hjá bændum sem byggja alla sína afkomu á sauðfjárrækt. Gert er ráð fyrir að þrjú ár líði uns fjárbúskapur getur hafist á nýjan leik, þ.e. uns húsin eru hrein af smitun, og eru bænd- ur tekjulausir á meðan. Aukin- heldur þurfa þeir að sótthreinsa, — Sauðfjárveikivarnir leggja að vísu til efnið, en tæki og tíma skaffa bændur sjálfir. Að sögn eins Laugardalsbóndans telst þeim svo til,að allir rigningardagar sumars- ins í fyrra hafi farið í þetta verk og var það drjúgur tími, eins og glöggt má vist muna. Bætur vegna niðurskurðar eru samkomulagsatriði hverju sinni. Bændur í Laugardal fengu sem svarar skattmati ærinnar og greiddust þessar afurðatjónsbæt- ur í tvennu lagi. Einnig fá bænd- urnir sláturverðið, en oftast er um að ræða fullorðið fé sem ekki selst háu verði. Og að þremur árunum liðnum þarf að kaupa vísi að nýj- um stofni, setja á og bæta við þangað til fullum stofni er aftur náð. í millitíðinni þarf þó að heyja eins og um full hús fjár væri að ræða, sem einnig er kostnaðar- samt. Sumir bændur selja hey, aðr- ir snúa sér að annars konar grip- um, svo sem með því að fjölga kúm eða fara út í nautarækt, eins og dæmi eru einmitt til um úr Láugardalnum. Og nú er sem sagt kominn tími til að byrja upp á nýtt í Laugardal. En það stendur hnífur í kúnni. Einn bóndi orðaði það á þann veg að það „á víst ekki að leyfa okkur að byrja aftur með rollurnar” — annar kvaðst bíða í startholunum eftir grænu ljósi, en „þeir eiga eitt- hvað erfitt með að gera upp við sig eftir Magdalenu Schram mynd DV. hvað á að verða um Laugardal- inn." Spurningin stendur um það, hvort hugmyndin um að breyta svæðinu í skóglendi geti reynst bændum nógu aðlaðandi til að þeir gefi sauðfé upp á bátinn. Nytjaskógur upp undir Geysi Hugmyndin um nytjaskóg í Laugardal mun hafa komið fram á Búnaðarsambandsþingi. Þó eru ekki allir sammála um hver átti hana. Víst er þó, að á síðasta þingi varð að lögum frumvarp, lagt þar fram af landbúnaðarráðherra^ Jóni Helgasyni, um nytjaskóga. í lögunum er gert ráð fyrir heimild ríkisins til að semja við bændur á gróðurvænlegum stöðum um að það standi undir 80% stofnkostn- aðar vegna skógræktar, þ.e. kostn- aði vegna plöntunar, girðinga o.þ.h. Heimildin gerir ráð fyrir að samningur sé gerður við einstaka bændur og eins og sagði, á svæð- um sem vænleg þykja til skóg- ræktar. Erlendis, til að mynda í Noregi, er stuðningur rikisins öllu meiri, eða um og yfir 90%. Ljóst er að plöntun trjáa er fjárfesting sem ber arð í fyrsta lagi eftir 10 ár, en að öllu jöfnu þó ekki fyrr en eftir 30 ár. Þau 20% stofnkostnaðarins, sem bændunum er sjálfum gert að greiða, er því fjárfesting sem eng- in tekjutrygging er fyrir um all- langt skeið. Það er þetta, sem gerir róðurinn þungan og situr í bænd- um, sem þó álíta trjárækt ekki frá- leita hugmynd. Viðræðurnar á vegum landbúnaðarráðuneytisins snúast því ekki síst um þennan punkt: hvernig má tryggja trjá- ræktarbændum afkomu þangað til skógurinn fer að bera arð? Arðsemi nytjaskóga er með ýmsu móti. í samtali við HP nefndi Jónas Jonsson búnaðarmálastjóri t.d. jólatré, sem væru um tólf ár að vaxa svo úr grasi að þau yrðu markaðshæf; girðingarstauraefni, sem væri nothæft eftir fimmtán ár, og að lokum timbur til almennra nota, sem lengri bið væri í. Jónas benti einnig á að skógur tengdist ýmsu öðru, svo sem ferðamanna- þjónustu. Af viðræðum við aðila Búnaðarfélagsins og í landbúnað- arráðuneytinu er ljóst að þar eru uppi vonir um að takast muni að semja við Laugarvatnsbændurna um þau atriði sem enn eru óviss, þannig að niðurstaðan yrði sú,að trjáræktin yrði rollunum hlut- skarpari. Bæði er sú staðreynd fagurfræðilega aðlaðandi að fjalls- hliðarnar austur þarna verði skóg- arlönd, allt upp í Haukadal, nytja- skógar yrðu án efa þjóðhagslega hagkvæmir, og síðast en ekki síst yrði þetta til að fækka sauðfénu. Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri vildi þó leiðrétta að nú stæði fyrir dyrum stórfellt fækkun sauðfjár í landinu, meira en verið hefur að undanförnu, en sauðfé hefur fækkað um 20% á síðustu árum. Og hvað segja bændur? En hvað segja bændur sjálfir? Ætla þeir að halda áfram sauðfjár- búskap í trássi við — að margra mati — eftirspurn og náttúru- verndarsjónarmið? Eins og áður kom fram, heyrast þær raddir að nú eigi að banna rollur í uppsveit- um og það í héraði sem liggur vel við afrétt og beitarlöndum öðrum. Einhverjir eru þegar búnir að panta lömb. Einn kvaðst of gamall til að snúa sér að nýrri atvinnu- grein. En almennt er að heyra að bændur taki þessum vangaveltum með jafnaðargeði, og afsannast hér sú útbreidda skoðun að engir séu íhaldssamari en rollubændur landsins! „Hér er enginn harður á móti held ég. Hins vegar er enginn harður með, svo sem,“ sagdi Arni bóndi Gudmundsson á Böðmóðs- stöðum. Aðspurður um yfirlýsing- ar um að landið hefði tekið stakka- skiptum í gróðri eftir að sauðfé var skorið á svæðinu, minnti Arni á að veður hefðu verið hagstæð gróðri síðustu sumur en óhagstæð sumrin( sem fé hefði gengið þar um síðast, svo „það er ekki gott að segja. Þó er ég ekki frá því að það sýni sig nú eitthvað." Bóndinn á Laugarvatnshólum, Friðgeir S. Stefánsson, sagði bændur gera sér ljósþað „það er ekkert eftirsóknarvert núna að fara út í sauðfjárrækt miðað við það sem stundum hefur verið áð- ur, en við höfum byggt upp okkar búskap fyrir þetta, þannig að það er heilmikið átak að snúa sér að öðru. En það er áhugi hjá stjórn- völdum fyrir því að við förum ekki út í sauðfjárbúskap aftur og þau eru hvetjandi fyrir því að við för- um út í trjáræktina." Hann vildi ekki segja neitt af eða á fyrr en umræðurnar væru lengra komnar og bíða eftir niðurstöðum til þess að geta gert upp hug sinn. „Að mörgu leyti mjög skynsamlegt," voru hans orð um skógræktarhug- myndina. Og, líkt og bændurnir og búalið- ið, verðum við að bíða enn um sinn eftir niðurstöðum. Þangað til getum við annað hvort látið okkur dreyma um skógi vaxnar fjalls- hlíðar eða jarmandi fjársafn og fer þá allt eftir því, í hvorn fótinn er stigið. 4 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.