Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 11.07.1985, Qupperneq 6

Helgarpósturinn - 11.07.1985, Qupperneq 6
INNLEND YFIRSÝN „Spurningin núna er hversu gott pólitískt tak við höfum á Bandaríkja- mönnum og hvort við viljum beita því.“ Hart á móti höröu' í Rainbow-málinu 9? ✓ Á meðan Geir Hallgrímsson utanríkisráð- herrra slakar á í nokkra daga fjarri Reykjavík sitja starfsmenn utanríkisráðuneytisins við Hverfisgötu sveittir við að afla gagna og setja saman skýrslur vegna „Rainbow-máls- ins svokallaða. í utanríkisráðuneytinu er þetta mál númer eitt, tvö og þrjú og sama gildir um sendiráð Islands í Washington D.C. Ekkert markvert hefur gerzt í málinu frá því Shultz utanríkisráðherra Bandaríkj- anna sendi Geir Hallgrímssyni bréf vegna málsins, sem dæmt hefur verið léttvægt og nánast móðgandi. í sem fæstum orðum hef- ur bandaríski utanríkisráðherrann það eitt fram að færa, að íslendingar, þ.e. íslenzku skipafélögin Eimskip og Hafskip, fái óskil- greindar ,,bætur“ vegna þess að þau misstu af herflutningunum. Þá vilja Bandaríkja- menn senda hingað háttsetta embættis- menn. Utanríkisráðherra hefur lýst því yfir á ríkis- stjórnarfundi, að honum þyki bréf hins bandaríska starfsbróður síns óljóst og ríkis- stjórnin er sammála um, að í bréfinu felist engin lausn á þessu máli frá sjónarmiði is- lendinga, sem miðast við það, að jafnrétti ríki á þessari siglingaleið. „Fyrirgreiðslu" við íslenzku skipafélögin má ekki nefna. íslenzka ríkisstjórni hefur fjallað um her- flutningamálið á nokkrum fundum sínum undanfarnar vikur, nú síðast á fimmtudag fyrir viku. Samkvæmt tryggum heimildum Helgarpóstsins er ríkisstjórnin á þeirri skoð- un, að réttast sé ad láta hart mœta hördu í þessu máti. Bandaríkjamenn megi senda embættismenn til Islands, en í því sé engin lausn fólgin. Þá var ákveðið, að Geir Hall- grímsson svaraði Shultz bréflega, þar sem hann gerði grein fyrir sjónarmiðum íslenzku stjórnarinnar. En núna ræður íslenzka ríkisstjórnin ráð- um sínum og það sem beðið er eftir með eft- irvæntingu er hvaða og hvers konar hörku íslendingar ætla að sýna. „Hart á móti hörðu" er tónninn í stjórninni. En hversu langt er íslendingar reiðubúnir að ganga? Lítum fyrst á hagsmunina: Samkvæmt upplýsingum HP nema flutningarnir fyrir Varnarliðið á Miðnesheiði nær því 10 millj- ónum dollara á ári samtals. Þessu hafa ís- lenzku skipafélögin skipt á milli sín og munar um minna á erfiðum tímum. Eftir að Rainbow kom til sögunnar hafa herflutning- arnir skipzt í 80% handa bandaríska skipafé- laginu, og 10% handa Hafskipi og Eimskipi, hvoru um sig. I dollurum talið er þá um að ræða um eina milljón dollara fyrir hvort hinna íslenzku og tæpar átta milljónir handa Rainbow Navigation Inc. íslenzku skipafé- lögin hafa fengið að hirða molana. Sem hluti af heildarflutningum Banda- rikjahers til Evrópu er hér í raun um smáræði að tefla, en fyrir íslenzku skipafélögin, eink- um Hafskip, er um gullnámu að ræða. Eins og HP hefur upplýst er staða Hafskips hf. mjög tæp svo vægt sé til orða tekið og því er úrlausn þessa máls þeim ekki aðeins kapps- mál, heldur lífsspursmál. En finnist lausn kann svo að fara, að hún verði of seint á ferð- inni. Eimskip er hins vegar öflugra félag og hefur sterkari bein. Samt eru menn á þeim bæ orðnir langeygir eftir lausn. Þetta hefur komið fram á fundum utanríkisráðherra og forráðamanna skipafélaganna. Morgunblaðið hafði eftir Jóni Hákoni Magnússyni, framkvæmdastjóra markaðs- sviðs Hafskips, að „Af okkar hálfu hefur Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra haldið vel á þessu rnáli." Jón Hákon bætir því hins vegar við, að Geir hafi treyst á loforð Shultz, sem ekki virðist mikils virði. Aðrir halda því fram, að Geir Hallgrímsson hafi þvert á móti haldið illa á þessu máli. Utanríkisráðherra hafi haft ýmsa dipló- matíska og ódiplómatíska leiki í stöðunni strax í maí 1984 (og fyrr), en þá hóf Rainbow Navigation siglingar til íslands. Hann hefði t.d. getað sett Bandaríkjamönnum stólinn fyrir dyrnar vegna ýmissa framkvæmda fyr- ir eða á vegum hersins. I þessu sambandi segja menn, að bezta vopnið gegn Bandaríkjamönnum og þá ekki sízt þingmönnum, sem vilja halda í einokun- arlögin frá 1904 af þjóðernissinnuðum ástæðum, séu fyrirhugaðar ratsjárstöðvar á íslandi og endurbygging og endurnýjun þeirra. Yfirleitt er um að ræða íhaldssama þingmenn, sem hlynntir eru öflugum vörn- um Bandaríkjanna, auk þess sem sá þrýst- ingur, sem á þingmönnum hvílir nú myndi hverfa sem dögg fyrir sólu. Þrýstingurinn, sem hér er átt við, er starf fulltrúa verkalýðs- félagsins „Masters, Maids and Pilots“, í Washington. Þetta verkalýðsfélag hefur ærna ástæðu til þess að hræra í þingmönn- um, því um 60% Rainbow Nagivation Inc. er í eigu lífeyrissjóðs verkalýðsfélagsins auk nokkurra einstaklinga, en á móti þeim á Housing Transport International um 40%. HTI hefur sérhæft sig í flutningum á húsum. í utanríkisþjónustunni telja sumir, að ráð- herra hafi klúðrað málinu með því að nota ekki ratsjárstöðvarnar sem eins konar verzl- unarvöru fyrir herflutninga. Aðrir halda því fram, að ekki sé of seint aó beita þeirri leið, þar sem í raun sé ekki búið að ganga form- lega frá leyfum nema vegna ratsjárstöðvar- eftir Halldór Halldórsson innar fyrir vestan. En þá heyrum við jafn- framt, að Geir Hallgrímsson vilji ekki fara neina slíka leið heldur vilji hann vinna málið eins og það liggi fyrir, en ekki blanda tveim- ur ólíkum málum saman. Raunar voru emb- ættismenn, sem HP hafði samband við, svo samstiga í þessum málflutningi, að setningar þeirra og orðaval hljómaði eins og upplestur af sama blaðinu, fjölrituðu. Enn aðrir halda því fram, þótt ekki sé hægt að sanna það, að sannleikurinn sé sá, að Geir hafi einmitt slík hrossakaup í huga. Um það skal ekki dæmt hér. Aðrar leiðir í þessu máli gætu svo verið hafnbann á „einokunarskip" eða lagasetning af einhverju tæi, sem hindraði flutninga Rainbow Navigation. DV skýrði frá því í frétt, að íslendingar hefðu hótað brottflutningi Varnarliðsins yrði flutningamálunum ekki kippt í Iiðinn og hér í HP skýrðum við frá því, að vegna póli- tísks þrýstings væri Rainbow Navigation með aðeins eitt 99 gáma skip í förum á milli íslands og Bandaríkjanna enda þótt fyrir- tækið hefði keypt tvö skip frá MARAD, Mari- time Administration, sem styrkir skipasmíð- ar í Bandaríkjunum. Þessar pólitísku hótanir virðast hafa dugað í síðara tilvikinu. Spurn- ingin núna er hversu gott pólitískt tak við höfum á Bandaríkjamönnum og hvort við viljum beita því? Eru Bandaríkin þjóðfélag kunningsskapar- ins, eins og ísland? I blálokin má geta þess til gamans, að Mark Yonge er forsvarsmaður Rainbow Navigation. Hann er einnig for- stjóri HTI, Housing Transport International. Yonge vann eitt sinn hjá Sealand- skipafélag- inu í Bandaríkjunum og var þá samstarfs- maður Varren Lebeck, sem nú er aðstoðar- forstjóri MARAD, Maritime Administration, sem auk skipasmíðastyrkja hefur með höndum framkvæmd á sviði sjóflutninga og undir hann heyra bandarískt byggð skip til rekstrar undir bandarískum fána. Skyldi þetta vera tilviljun? Stockman fékk að reyna að hreinskilnum fjárlagastjóra er ekki lengur vært. Varað við óstjórn á bandarískum fjármálum ERLEND YFIRSYN Forstjórar Kauphallarinnar í New York efndu til veislu að kvöldi 5. júní, og buðu til hennar að venju áhrifamönnum í þeim nefndum beggja deilda Bandaríkjaþings sem um fjármál og kaupsýslu fjalla. Ræðumaður kvöldsins var valinn David A. Stockman, yf- irmaður fjárlagastofnunar Bandaríkjastjórn- ar. Boðskapurinn sem Stockman hafði að flytja máttarstólpum Wall Street og handhöf- um peningavaldsins á þingi yfir veisluborð- um þetta kvöld, hefur orðið til að hann sagði stöðu sinni lausri í fyrradag. Við afsögn Stockmans hefur óvissa um bandarísk ríkisfjármál aukist að mun, og var þó síst bætandi á ringulreiðina, sem ríkir í því efni. Ástæðan til að manninum er ekki lengur vært í embætti er einmitt sú, að hann talaði hreinskilnislegar um óstjórnina í bandarískum fjármálum en Ronald Reagan þolir. Forsetinn lætur sitja í fyrirrúmi að koma uppáhalds fjárveitingum sínum gegn- um þingið, hvað sem líður viðvörunum fjár- lagastjórans um afleiðingar fyrir bandarísk- an ríkisbúskap og þjóðarhag, þegar til lengri tíma er litið. Stockman var ómyrkur í máli yfir veislu- borðum kauphallarmanna, sagði bæði ríkis- stjórn og þingi skorinort til syndanna og gerði grein fyrir sinni skoðun á vænlegum úrræðum til að forða fjárhagslegum ófarn- aði. Látið var heita svo að ræðan væri ekki ætluð til birtingar, en vandséð er hvernig veraldarvanur maður gat ímyndað sér að hún fengi að liggja í þagnargildi eftir dreif- ingu meðal fjölmenns hóps fjármálajöfra og þingmanna. Stockman var ómyrkur í máli yfir veislu- borðum kauphallarmanna, sagði bæði ríkis- stjórn og þingi skorinort til syndanna og gerði grein fyrir sinni skoðun á vænlegum úrræðum til að forða fjárhagslegum ófarn- aði. Látið var heita svo að ræðan væri ekki ætluð til birtingar, en vandséð er hvernig veraldarvanur maður gat ímyndað sér að hún fengi að liggja í þagnargildi eftir dreif- ingu meðal fjölmenns hóps fjármálajöfra og þingmanna. Raunin varð líka að New York Times komst yfir eintak af tölu Stockmans og birti um hana áberandi frétt. Þá varð uppskátt, að fjármálastjórinn er sáróánægður með það sem gert hefur verið til að draga úr óþolandi halla á rekstri ríkissjóðs Bandaríkjanna. Um skeið lét Reagan forseti eins og fjár- lagahalli, sem nemur á þriðja hundrað mill- jörðum dollara á ári, væri hégómamál, hag- vöxtur í framhaldi af stórfelldri skattalækk- un stjórnar sinnar myndi eyða honum af sjálfu sér með vexti ríkistekna af efnahags- legum uppgangi. Stockman hefur áður var- að við svo einfeldningslegri afstöðu, meira að segja strax á fyrsta stjórnarári Reagans í frægri grein í Atlantic Monthly, en slapp þá með ákúrur. Nú þykjast stjórn og þing í Washington ætla að koma fjárlagahallanum niður um helming á næstu þrem árum. Fyrsti áfangi lækkunarinnar á að vera 50 milljarðar á fjár- lagaárinu sem hefst með októbermánuði í haust. Kjarninn í máli Stockmans í kauphallar- veislunni er sá, að mikið vanti á að þær ráð- stafanir sem þing og forseti hafa orðið sam- mála um til lækkunar útgjalda hrökkvi til að ná þessu marki. Öldungadeildin hefur fallist á mikið af tillögum Reagans um niðurskurð á fjárveitingum til félagslegra þarfa, og mun- ar þar mest um að sleppa hækkun á bótum almannatrygginga til samræmis við fram- færsluvísitöluna. Fulltrúadeildin hafnar nið- urskurði þessum á lífeyrisbótagreiðslum og margskonar framiögum til samneyslu, en vill halda fjárveitingunni tii hermála óbreyttri frá fyrra ári, svipta landvarnaráðuneytið vísitöluhækkun á hervæðingarfé. Mikið ber því í milli, hvar hvor þingdeild vill spara. Þar á ofan segir Stockman, að í uppsetningu þings og ríkisstjórnar sé að finna óraunhæfar áætlanir um hagvöxt og verðlagsþróun á næstu árum, sem valdi því að fyrirheit sam- kvæmt tillögunum um sparnað fram í tím- ann séu að verulegu leyti blekking. Af þessu öllu saman dregur fjárlagastjóri Bandaríkjanna þá ályktun, að sé mönnum alvara að afstýra þeim ófarnaði sem við blasi, fái hallinn á ríkisbúskapnum að halda áfram að vinda upp á sig, sé aðeins um tvo kosti að ræða, skera útgjöld mun meira niður en menn hafa enn treyst sér til eða hækka skatta svo um munar. Ekki er vafi á að það sem gert hefur Stock- man óvært lengur í stjórn Reagans, er að hann skyldi dirfast að nefna skattahækkun til að ráða bót á fjárlagavandanum. Skatta- lækkun um 30% á þrem árum, sem forsetinn kom fram á fyrsta stjórnarári sínu, er mesta stolt hans. Þar að auki þakkar Reagan endur- kjör öðru fremur trausti á fyrirheit sitt um að hækka ekki skatta. Reyndar lofaði hann líka að skerða í engu lífeyrisbætur almanna- trygginga, en það loforð reyndst þegar á herðir ekki jafn ófrávíkjanlegt. Afgreiðsla fjárlagaályktunar af hálfu beggja deilda Bandaríkjaþings er í sjálf- heldu. Um mánaðamótin slitnaði upp úr fundahöldum sameiginlegrar nefndar deild- anna, sem hefur það verkefni að samræma tillögur þeirra. Brottför Stockmans úr em- bætti fjárlagastjóra eykur enn á óvissuna í ríkisfjármálum. eftir Magnús Torfa Ólafsson Samtímis magnast efnahagsvandinn, sem að verulegu leyti má rekja til hallarekstursins á ríkissjóði. Hávextir til að draga að erlent fjármagn í tóman ríkissjóð spenna upp gengi dollarans. Gjaldeyrismiðlarar fullyrða, að Bandaríkjadollar hafi undanfarið verið seld- ur 40% yfir sannvirði. Af hágenginu hlýst að samkeppnisstaða bandarískra útflutningsat- vinnuvega á heimsmarkaði brestur, samtím- is því að hátt skráður dollar sogar erlendar vörur inn í landið. Greiðslujöfnuður hefur því versnað frá ári til árs. Talið er að viðskipta- halli á þessu ári fari upp undir 150 milljarða dollara. Innstreymi erlends varnings á lágu verði vegna gengisskekkju veldur svo sölutregðu á innlendri framleiðslu. Hagvöxtur undanfar- andi missera er horfinn, það sem af er árinu hefur ríkt stöðnun í hagkerfi Bandaríkjanna. Atvinnuleysi nemur 7.2 af hundraði, og frá áramótum hafa 220.000 manns í framleiðslu- greinum misst atvinnuna umfram nýráðn- ingar. Lengi vel fóru alþjóðlegar peningastofnan- ir hægt í að átelja óráðsíuna í bandarískri fjármálastjórn, en nú fá forstöðumenn þeirra ekki lengur orða bundist. Forstjóri Alþjóða gjaldeyrissjóðsins sagði í síðustu viku, að hallinn á fjárlögum Bandaríkjanna væri sem stendur alvarlegasti vandinn í heimsfjármál- um. Yrði ekki bót á ráðin, gæti af hlotist við- skiptakreppa og fjármálahrun. Áður hafði Alþjóða skuldaskilabankinn í Sviss sett fram þá niðurstöðu í ársskýrslu sinni, að hagvexti um heim allan sé stefnt í voða af gengis- hækkun Bandaríkjadollars, sem stáfar af spákaupmennsku. Undirrót hennar er að dómi bankans samhengisleysið í bandarískri hagstjórn, bullandi halli á ríkissjóði samfara háum vöxtum og hágengi. Gerist svo óhjá- kvremileg lækkun dollarans með skjótu hrapi, verður afturkippur í heimsviðskiptum og hagvexti um allan heim, en á því að vöxt- ur haldist veltur að tök náist á brýnustu vandamálum, svo sem stórfelldu atvinnu- leysi í Vestur-Evrópu, verðbólguvanda víða um heim, skuldakreppu þróunarlanda og viðhaldi stöðugleika á gjaldeyris- og pen- ingamarkaði. 6 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.