Helgarpósturinn - 11.07.1985, Qupperneq 10
HP
HELGARPÓSTURIIMN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Blaðamenn: Edda
Andrésdóttir, Jóhanna
Sveinsdóttir og Sigmundur
Ernir Rúnarsson
Útlit: Elin Edda
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Magnea Matthíasdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Auglýsingar:
Jakob Þór Haraldsson
Innheimta:
Garöar Jensson
Afgreiðsla: Guðrún HSsfer
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sími
8-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 8-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
Stéttaskiptingin
á islandi
Helgarpósturinn hefur látið
framkvæma skoðanakönnun á
sínum vegum um afstöðu ís-
lendinga til stofnunar einka-
skóla á grunnskólastigi og til
stéttaskiptingar á islandi.
Hringt var til 800 einstaklinga,
18 ára og eldri, með jafnri skipt-
ingu milli kynja, og úrtakið
skiptist í þrjú aðalsvæði, líkt og
í fyrri skoðanakönnunum Helg-
arpóstsins, þ.e.a.s. Reykjavík,
Reykjanes og landsbyggðin.
Þessi skoðanakönnun leiðir
margt athyglisvert í Ijós. Lands-
menn virðast hafa fylgst mjög
vel með umræðunni um einka-
skóla á grunnskólastigi og að-
einstæplega23% telja sig ekki
vita nægilega mikið um málið.
Það er greinilegt að hér er hita-
mál á ferðinni sem vakið hefur
mikla athygli íslendinga. Þá er
það einnig athyglivert að meiri
hluti landsmanna eða tæplega
43% er á móti stofnun einka-
skóla á grunnskólastigi. And-
staðan á landsbyggðinni er öllu
meiri en á höfuðborgarsvæð-
inu. Þessi afstaða gefur margt
til kynna. I fyrsta lagi má ætla
að almenningur sé ánægður
með ríkisskólakerfið í heild,
þótt það sé gagnrýnt í einstök-
um atriðum. í öðru lagi má ætla
að landsmenn óttist að einka-
skólarnir mismuni launafólki og
skipti þjóðinni á enn sýnilegri
hátt í stéttir. Hingað til höfum
við notið jafnræðis til menntun-
ar, en innreið einkaskólanna (í
þessu tilfelli ríkisstyrkts einka-
skóla) teflir því jafnræði í voða.
Þá þer að túlka þessar niður-
stöður sem vantraust á þá
stefnu borgarstjórans í Reykja-
vík, Davíðs Oddssonar, og
menntamálaráðherra Ragnhild-
ar Helgadóttur, að veita einka-
skólunum á grunnskólastigi
brautargengi.
Helgarpósturinn kannaði
einnig afstöðu landsmanna til
stéttaskiptingar, og þeir spurðir
hvort þeir teldu að stéttaskipt-
ing væri á islandi, og ef svo
væri hvað einkenndi yfirstéttina
og loks hvaða stétt viðkomandi
tilheyrði að eigin mati. Yfir-
gnæfandi meirihluti, eða tæp-
lega 73%, telur að stéttaskipt-
ing sé í landinu. Athyglivert er
að þorri fólks eða um 69% telur
að stéttaskiptingin stafi af pen-
ingaeign eða ríkidæmi, en að-
eins 24% að yfirstéttin skeri sig
úr vegna embætta, virðingar,
menntunar eða ætternis. Að-
eins tæp 7% telja að pólitísk
völd einkenni hástéttina. Þessi
afstaða landsmanna til skipt-
ingar eigna hlýtur að vera um-
hugsunarefni fyrir ráðamenn í
landinu sem festast æ meir í
neti óheftrar frjálshyggju. En
þessi skoðanakönnun er einnig
til eftirþanka fyrir launþega-
hreyfinguna í heild sem virðist
vera á hraðferð frá þjóðfélags-
legri umræðu: það er kannski
kominn tími til að fólk almennt
átti sig á þeirri staðreynd að Is-
land byggja tvær þjóðir.
BREF TIL RITSTJORNAR
Kukl
í Roskilde
Ágætu ritstjórar!
Þar kom að því að íslendingar
eignuðust fulltrúa á stærstu rokk-
hátíð Norðurlanda, en hún var hald-
in í Hróarskeldti síðustu helgi júní-
mánaðar. Hátíð þessi spratt upp á
ljúfum árum hippanna, hafði Wood-
stock að fyrirmynd og hefur verið
árlegur viðburður sl. 13 ár. Auk
fjölda gesta hafa margar stórstjörn-
ur komið fram á þessari hátíð. í fyrra
komu m.a. Killing Joke og Lou
Reed. 1 ár voru þar m.a. Clash,
Ramones, Nina Hagen, gamla
kempan Leonard Cohen að
ógleymdri hljómsveitinni Kukl.
50.000 manns komu til Hróarskeldu
þessa helgi.
Kukl kom í fyrsta sinn fram í Dan-
mörku á hljómleikum í Ungdoms-
huset sl. haust ásamt Mercedes
Prada frá Svíþjóð og Sielun Veljet frá
Finnlandi. Pressan skrifaði þá m.a.'
að Kukl væri sjálfsagður gestur á
Hróarskelduhátíðina. Sú varð raun-
in á. SAM-dreifingarfyrirtækið fjall-
aði ýtarlega um híjómsveitina í
kynningarriti sínu fyrir hljómleik-
ana og mörg viðtöl voru tekin, þ.á
m. við danska og norska útvarpið.
Að lokinni hátíð fékk Kukl næstum
því eins mikið dálkapláss og Nina
Hagen í dagblaðinu Information og
er hljómsveitinni lýst sem frumlegri
og samkvæmri sjálfri sér.
Nú eru Kukl-meðlimir horfnir
hver til síns heima, en í farangrinum
hafa þeir tilboð um hljómleika í
Kaupmannahöfn og Sviss og jafnvel
í Þýskalandi og Frakklandi.
Erla Sigurdardóttir
fréttaritari HP í
Kaupmannahöfn
Einar Karl Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðubandalagsins,
taki við ritstjórastöðu málgagns
Norðurlandaráðs „Nordisk kon-
takt“. Hins vegar velta menn mjög
fyrir sér hver taki við af Einari Karli
sem framkvæmdastjóri Alþýðu-
bandalagsins. Hafa margir spáð í
Kristínu Ólafsdóttur, starfsmann
Alþýðubandalagsins, því kvenna-
hreyfing flokksins hampaði henni
mjög á sínum tíma í stöðuna. Hins
vegar mun Kristín ekki hafa áhuga
á stöðunni eins og stendur, þar sem
hún og fleiri meta stöðuna þannig,
að mikil umbrot eigi eftir að eiga sér
stað í Alþýðubandalaginu í haust og
óráðlegt að stefna í ákveðna stöðu
eins og er. Þar að auki þykir líklegt
að Kristín vilji í framboð og komast
á þing fyrir Allaballa. Sá maður sem
flokksforystan hampar einna mest
þessa dagana er Helgi Guðmunds-
son, sá hinn sami og Svavar reyndi
að koma í _ ritstjórastól Þjóðviljans
við hlið Ossurar Skarphéðins-
sonar með aðstoð Ásmundar
Stefánssonar, forseta ASÍ. Eftir að
Helgi varð undir í Þjóðviljaglímunni
hefur hann ekki sést á Þjóðviljan-
um, en nú mun Svavar reyna að
hugga Helga með framkvæmda-
stjóranafnbótinni. ..
Hafskip hefur
ekki stefnt HP
Helgarpósturinn sér sig tilneydd-
an til þess að koma á framfæri leið-
réttingu við heldur ómerkilegar að-
ferðir forráðamanna Hafskips hf.,
sem þeir beita í samræðum við
ýmsa áhrifamenn í þjóðfélaginu.
Þessir menn hafa legið í símanum
og „leitað stuðnings" hjá ýmsum
aðiljum, einkum í viðskiptaheimin-
um og hjá fjölmiðlum, og legið á því
lúalaginu að sverta blaðið af kappi,
gert það tortryggilegt og það sem
verst er, rægt starfsmenn þess.
Við höfum bein til að sitja undir
slíku, enda fækkar þeim hratt og
stöðugt sem hlýða á mál Hafskips-
manna af alvöru. Forráðamenn Haf-
skips viðhafa orð sem eiga sér ekki
stoð í veruleikanum og það vill HP
leiðrétta. Baknagið látum við liggja
á milli hluta. Hins vegar viljum við
að það komi skýrt fram, að staðhæf-
ingar Hafskipsmanna um, að þeir
séu búnir að stefna HP, þ.e. ritstjóra
blaðsins og ljósmyndara þess, eru
rangar.
Stefnu verður að birta stefnda
með löglegum hætti, þar sem við-
komandi hefur heimilisfang. Þetta
hefur ekki verið gert. Borgardóm-
araembættið í Reykjavík kannast
ekkert við stefnu Hafskips á hendur
HP, enda hefði embættið ekki tekið
við stefnunni án þess að farið hefði
verið að lögum við birtingu hennar.
Það er umhugsunarefni hvers
vegna Hafskip hefur ekki stefnt rit-
stjóra og ljósmyndara blaðsins enn-
þá. Stefna myndi kalla á rannsókn,
og óvíst er hvort Hafskipsmönnum
þætti slíkt eftirsóknarvert. Á hinn
bóginn virðast þeir vera í svolítilli
klemmu, því eftir því sem HP kemst
næst, mun fyrirætlan stjórnar og
stjórnenda Hafskips hafa verið sam-
þykkt á aðalfundi og aðalfundar-
samþykktir verður að framkvæma
innan 6 mánaða. — Ritstj.
LEIÐRETTING
í frétt um áningarstaði í Norðlend-
ingafjórðungi í ferðablaði HP í lið-
inni viku sagði, að fyrsti áningar-
staðurinn í fjórðungnum væri Brú í
Hrútafirði. Þetta er rangt. Brú er í
Strandasýslu og heyrir því til Vest-
fjörðum. Fyrsti áningarstaður á
Norðurlandi er Staðarskáli. Að auki
sagði, að það væru bræður, sem
rækju Brú, en það mun hins vegar
kaupfélagið á staðnum gera. Beðist
er velvirðingar á þessum mistökum.
— Ritstj.
HELGARPÚSTURINN
Laxbanki íslands
Kærir kerfisvinir,
Kiddi, Lúlli og hinir,
laxinn létt þeir dorga,
landsmenn borga.
Niðri
LAUSN Á SPILAÞRAUT
Þannig voru öll spilin:
S
H
T
L
S Á-6
H K-D-10-2
T Á-D-10-2
L K-D-8
S K-D-8
H Á-6-5-4
T K-7-4-3
L Á-6
G-10-2
G-9-7-3
G-9-8-5
5-4
S D-9-7-5-4
H 8
T 6
L G-10-9-7-3-2
Enn heldur norður rauðu litun-
um völduðum eins og síðast. Nú
tók vestur útspilið á spaðaásinn.
Spilaði svo rauðu kóngunum og
ásunum. Tók tíguldrottninguna.
Ás, kóng og drottningu í laufi og
kastaði hjarta úr blindum. Þá
spaðahjónin og kastaði tígli frá
eigin hendi. Þannig var staðan áð-
ur en síðasta spaða var spilað:
S -
H G-9
T G-5
L -
S - S D
H D-10 H 6
T 10 T 7
L - L -
Skiptir ekki máli
Þegar spaðadrottningu er spilað
og tígultíu er kastað frá eigin
hendi, er spilið unnið, því norður
er í algerri kastþröng.
langstærsta bifreiðastöð borgarinnar
með flesta 7 farþega bíla
Fljót og góð afgreiðsla. Stæði um allan bæ.
10 HELGARPÓSTURINN