Helgarpósturinn - 11.07.1985, Side 19

Helgarpósturinn - 11.07.1985, Side 19
lega margir eftir konunni íslensku, sem fluttist til Bandaríkjanna, en lenti svo í því að vera framseld ís- lenskum yfirvöldum vegna meintr- ar þátttöku í einhverju fíkniefna- máli. Lögmaður konunnar er dr. Gunnlaugur Þórðarson, en Ás- geir Friðjónsson hjá fíkniefna- dómstólnum óskaði eftir framsali konunnar. Nú bregður svo við, að Þórður Björnsson ríkissaksóknari neitar að ákæra konuna og mun ríkja mikil reiði meðal starfsmanna fíkniefnalögreglunnar vegna þessa, og raunar botna menn ekki neitt í neinu í þessu mikla máli. Það síð- asta sem HP frétti um þetta mál var, að konan hygðist höfða mál á hend- ur íslenska ríkinu og krefjast skaða- og miskabóta. .. s ^^^samkeppni stormarkaðanna á Reykjavíkursvæðinu er farin að draga dilk á eftir sér. Við heyrum að tveir stórmarkaðir eigi orðið erfitt uppdráttar vegna vaxandi sam- keppni, JL-húsið við Hringbraut eftir að Vörumarkaðurinn opnaði hina stóru verslun sína á bæjar- mörkum Reykjavíkur og Seltjarnar- ness, og Vörumarkaðurinn við Ár- múla vegna tilkomu Miklagarðs.... SSyvindur Erlendsson leik- stjóri vinnur nú að undirbúningi töku kvikmyndar sinnar, Eins og skepnan deyr. Við fréttum af hon- um á leið norður Kjöl ásamt kvik- myndatökumanni sínum, og munu þeir félagar vera að kanna staði með kvikmyndatöku í huga. Reynd- ar áttu tökur að vera komnar á full- an skrið um þetta leyti, en hafa frest- ast sökum fjárskorts. Eyvindur hafði gert kostnaðaráætlun upp á sjö milljónir króna, en fékk aðeins tvær úr Kvikmyndasjóði í vetur. Þegar svo tókst að fá fjármálaráðherra til að standa við gildandi lög um fjár- veitingar til sjóðsins og veita þannig til hans tíu milljónum í viðbót, lyftist brúnin á þeim sem eiga allt sitt und- ir þessum sjóði og menn fóru að bíða eftir nýrri úthlutun. En hið op- inbera skriffinnskuapparat á íslandi er ekkert lamb að leika sér við. Nú er úthlutunarnefndin í sumarfríi víða um lönd og alls engin von á þeirri nefnd til starfa. Á meðan bíða ógerðar kvikmyndir — og áætlanir hrynja. Eyvindur mun þó vonast til að geta byrjað í haust. . . Í I yfir tveimur vikum birtist grein. eftir Sigmar B. Hauksson, út- varpsmann og vín- og matarfrömuð í helgarblaði DV. Fjallaði greinin um Áfengisverslun ríkisins og hve illa hún væri rekin. Benti Sigmar á ým- islegt í greininni, m.a. skort á fagleg- um innkaupum, og „happa — og glappa" — aðferðir í rekstrarmálum. Vakti grein þessi mikið fjaðrafok meðal ráðamanna í Ríkinu, og ekki síst mun forstjórinn Jón Kjartans- son hafa tekið greininni illa. Var engu líkara en að minkur hafi kom- ist inn í hænsnabú. En eftir mikið fum og ráðabrugg var ákveðið að þegja málið í hel og svara engu. Þetta er reyndar aðferð sem við á HP könnumst vel við þegar við komum við kaunin á kerfinu eða einstökum ráðamönnum og brodd- borgurum. . . K ■ ^^onur þær sem keyptu húsa- þyrpinguna á Vesturgötunni og nefndu Hlaðvarpann, hafa verið öt- ular að safna fé til kaupanna og þeytast víða, svo starfsemin megi verða sem öflugust. Nú hafa for- sprakkar kvennanna ákveðið að halda fasta óformlega fundi á fimmtudögum á Gauki á Stöng. Verður þingað milli tólf og eitt í há- deginu, uppi, og öllum unnendum Hlaðvarpans boðið að taka þátt í umræðunum sem munu fara fram undir slagorðinu „Ekkert mussu- klaustur í miðbænum". Slagorðið er til að minna á að dagar rauðsokk- anna eru liðnir og ný kvennapólitík tekin við þar sem vinstri stefna ráði ekki ríkjum. Upphafsmaður slag- orðsins mun vera Gerður Pálma- dóttir í Flónni. . . N ■ tH ú er von á fyrstu íslensku matreiðslubókinni um íslenskan mat, á útlensku og fyrir erlendan markað. Er þar engin önnur en fé- lagi Jóhanna Sveinsdóttir, mat- kráka og blaðamaður HP, sem hefur ritað þessa bók, sem Iceland Riview hyggst gefa út i haust. Bókin fjallar eingöngu um íslenskan mat og er kaflaskipt eftir hráefnum. Mun bók- in verða gefin út á ensku og verður seld á erlendum markaði en einnig íslenskum — og ef vel tekst til og þessi útgáfa verður til þess að enskumælandi þjóðir fara að borða íslenskan mat — verður henni snar- að á fleiri erlend mál... A föstudagsmorgun kom Magnús Bjarnfreðsson upp í Sjón- varp til þess að taka upp þáttinn Sjónvarp næstu viku, sem sendur er út á sunnudagskvöldum. En þegar á hólminn var komið reyndist enginn tæknimaður vera til staðar. Við at- hugun kom í ljós, að „teamið" var einhvers staðar úti í bæ. Þessi saga er til vitnis um óttalegt ástand, sem ríkir nú hjá Sjónvarpinu. Þar er óánægjan að magnast og líkurnar á hvarfi tæknimanna aukast með degi hverjum. Annað dæmi um bagalegt ástand á Sjónvarpinu, er að þar hef- ur met í starfsreynslu í hljóðupp- töku maður, sem hefur unnið hjá Sjónvarpinu í 4 mánuði... BÍiALEICA REYKJAVÍK: 91-31815/686915 AKUREYRl: 96-21715/23515 BORGARNES: 93-7618 VÍÐIGERÐ! V-HÚN.: 95-1591 Bl.ÖNDUÓS: SAUÐÁRKRÓKUR: SIGL.UFJÖRÐUR: HÚSAVÍK: EGII.STAÐIR: VOPNAEJÖRDUR: SEYÐISFJÖRÐUR: FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: HÖFN HORNAF IRDI. 95-4350/4568 95-5884/5969 96-71498 96-41940/41594 97-1550 97-3145/3121 97-2312/2204 97-5366/5166 97-8303 interRent ■ ^H ú mega bargestir búast við bættri þjónustu á veitingahúsum. Margur gesturinn hefur nefnilega velt því fyrir sér hvort hann hafi fengið rétt mælt í glasið sitt þegar hann hefur b'eðið um einn einfaldan tvöfaldan eða sjöfaldan. Hingað til hafa barþjónar notað lítil mæliker sem sett eru á glasabarmana, hellt flausturslega í og þeim steypt ofan í glösin. Síðan hafa sjússmælar verið settir á sjálfar flöskurnar og þótt dá- lítið öruggari, en þó hvergi tryggt al- gert öryggi gestanna. Það nýjasta á markaðnum (og auðvitað frá henni Ameríku) eru svonefndir tölvusjúss- mælar. Það eru hin merkustu appa- röt og eiga að sögn fróðra að mæla nákvæmlega upp á millilítra rétt og tryggja kúnnanum að hann fái sína réttu dropa fyrir peningana. Gallinn á gjöf Njarðar er hins vegar að enn sem komið er eru slíkir mælar rán- dýrir og mun stykkið af þeim kosta um tíu þúsund dollara, eða um 400 þúsund krónur íslenskar. Danir hafa þó riðið á vaðið (sem oftar þegar áfengismálin eru annars vegar) og innleitt sjússamæla í Kongens Köb- enhavn. Þannig hefur t.d. hinn frægi staður Café Viktor haft tölvusjúss- mæla um nokkra hríð og sú reynsla gefist mjög vel, fleiri sækja staðinn, í öruggri von og trú um að fá sitt fyrir aurinn. Þannig mun árs- velta Café Viktor hafa aukist um 3—400 þúsund danskar krónur á síðasta ári vegna tilkomu hins nýja sjússamælis. I vor reyndu tveir ls- lendingar að innleiða þetta tæki á Islandi, þeir Þorsteinn Viggósson, sem frægur er fyrir veitingarekstur í Kaupmannahöfn, og Halldór Júl- íusson, eigandi Glæsibæjar. Hafa þeir kynnt tækið fyrir eigendum veitingastaða, en menn verið tví- stígandi, vegna þess hve tækið er dýrt og söluskattur leggst ofan á verðið. Finnst eigendum veitinga- staða það nokkuð hæpið, þar sem þeir eru þegar búnir að greiða sölu- skatt af vörunum sem þeir hafa á boðstólum. Hins vegar eru tölurnar frá Danmörku nokkuð freistandi þannig að kannski er ekki langt í það, að við lesum auglýsingar veit- ingahúsanna sem segja sem svo: „Frá okkur færðu sússana af tölvu. ..“ FALCONCREST Frábærir framhaldsmyndaþættir 2 nýir þættir koma á hverjum fimmtudegi Fást á öllum helstu myndbandaleigum landsins Dreifing: MYNDBÖND HF. Skeifunní 8. Símar 686545 — 687310. 0 Listahátíð í Reykjavík 1986 efnir til smásagnasamkeppni MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR, LANDSBANKA ÍSLANDS OG SEÐLABANKA ÍSLANDS Tilefni þessarar smásagnasamkeppni er að á Listahátíðarárinu 1986 fara sam- an þrjú stórafmælk 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar, 100 ára afmæli Lands- banka íslands og 100 ára afmæli seðlaútgáfu á íslandi. Um tilhögun samkeppninnar Yrkisefni sagnanna skal sótt í íslenskt nútímalíf, en að öÖru leyti hafa höfundar frjálsar hendur. Skilafrestur er til 10. apríl 1986. Sögurnar skulu merktar dulnefni en rétt nafn höfundar fylgja í lokuðu umslagi sem er merkt með dul- nefninu og sendast í pósthólf Listahátíöar númer 88,121 Reykja- vík. Dómnefnd smásagnasamkeppninnar skipa þau Þórdís Þorvaldsdóttir, borg- arbókavörður, Stefán Baldursson, leikhússtjóri, og Guðbrandur Gíslason, bókmenntafræðingur. Úrslit verða tilkynnt við opnun Listahátíðar 1986 þann 31. maí. Stefnt er að því að gefa út bestu sögurnar í bók og er áætlað að bókin komi út á afmæii Reykjavikurborgar 18. ágúst. * i|i \ Listahátíö í Reykjavíkurborg \ Reykjavík Verðlaun eru mjög vegleg og verða visitölutryggð en þau eru: 1 • verðlaun 250.000,- 2 • verðlaun 100.000,- 3* verðlaun 50.000,- Aöeins ein saga hlýtur hver verölaun .andsbanki slands HELGARPÓSTURINN 19

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.