Helgarpósturinn - 11.07.1985, Side 20
Indriði G. Þorsteinsson — „ég
hef nú ekki setið fyrir svona
síðan hjá Rassmussen á Akureyri
— en hann fann fljótlega þennan
bakgrunn, gott að óvinir manns
viti að maður á byssu og getur
bara skotið þá í hausinn..."
Jón Þórarinsson tónskáld —
„nú, fannst ykkur myndin góð? Ég
man nú varla eftir þessum manni,
eða hvar hann tók myndina —
þetta var rólegheita maður."
Vilborg Dagbjartsdóttir —
„hann spurði mig hvort það væri
ekki einhver staður [ húsinu sem
mér þætti sérlega vænt um —
rúmið mitt, sagði ég, og þá tók
hann myndina þar!"
/ deiglunni
„Iceland Crucible“ (íslensk deigla) heit-
ir bók um íslenska samtímalist og lista-
menn sem kemur út nú I vikunni. Bókin er
rituð á ensku af Sigurói A. Magnússyni rit-
höfundi en sovéski ljósmyndarinn Vladi-
mir Sichov hefur tekið myndirnar. Hann
er heimsfrægur ljósmyndari — og glöggt
er gests augad. Vió báóum listamennina
að segja stuttlega frá kynnum sínum af
Sichov.
Ásdís Magnúsdóttir dansari
— „hann kom í tvígang til mín,
gaf sér góðan tíma — vel til
fundið að hafa köttinn þarna, ég
er dýravinur."
20 HELGARPðSTURINN