Helgarpósturinn - 22.08.1985, Page 11
ÍÞRÓTTIR
Johnny Walker motiö
eftir Ingólf Hannesson
Á undanförnum 10 til 15 árum
hefur orðið mikil breyting á eðli
og ásjónu íþrótta og íþróttahreyf-
ingar. Þessi breyting er einkum
fólgin í samruna íþróttanna og
annarra hluta þjóðlífs, þannig að
erfiðara er að skynja íþróttir sem
sérstakan menningarheim (súb-
kúltúr). í íþróttapistli dagsins verð-
ur fjallað um þetta mál. Þess ber
þó að geta að hér er ekki um að
ræða fræðilega úttekt, öllu fremur
huglægt mat mitt á nokkrum þeim
breytingum sem orðið hafa.
Fyrir nokkru var ég á ferð um
Kastrup-flugvöll við Kaupmanna-
höfn og í flughöfninni fylgdist ég
með keppni í siglingum á meðan
ég beið eftir að farþegar yrðu kall-
aðir um borð. Ég spurði starfs-
mann í flughöfninni hvort ein-
göngu væru sýndar íþróttir þar og
hann svaraði því til að vinsælasta
efnið væri íþróttir og teiknimynd-
ir. „Þetta sjónvarpsefni höfðar til
allra og hefur alþjóðlegt mál sem
ekkert þarf að útskýra."
í Bandaríkjunum hafa íþróttirn-
ar verið innlimaðar í þjóðlífið, ef
svo má að orði komast. í því þjóð-
félagsástandi sem þar er verða
menn að hafa fastar viðmiðanir,
einhverja fasta punkta í tilverunni.
íþróttamaður, sem er vel kunnug-
ur þar vestra, sagði mér að þetta
væri orðið mjög greinilegt. Allir
héldu með ákveðnu liði, þannig
að menn fyndu fyrir ákveðinni
samkenndartilfinningu, sem er
nauðsynleg. Þannig tengjast flest-
ir málshættir sem Bandaríkja-
menn nota núorðið leikjum og
íþróttum. Hér á landi eiga máls-
hættir einatt rætur sínar í atvinnu-
lífi. íþróttirnar eru orðnar almenn-
ingseign og hafa þannig misst
mikið af séreinkennum sínum.
Fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa
gjörbreytt myndinni og flatt hana
út. Reyndar er þetta nokkuð mis-
jafnt eftir greinum og enn má tala
um hnefaleika þar sem nokkurs
konar menningarkima. En sam-
kennd Bandaríkjamanna hefur
ekki í annan tíma verið eins sterk
og þegar Ólympíuleikarnir í Los
Angeles stóðu yfir síðastliðið sum-
ar. Það verður líklega að leita aftur
til seinni heimsstyrjaldarinnar til
þess að finna hliðstæðu. íþróttir
hafa tekið að sér stærra hlutverk
en áður í að efla þjóðernistilfinn-
ingu Bandaríkjamanna.
Þróunir hér á landi hefur orðið
svipuð á mörgum sviðum. Til
dæmis hefur komið í ljós í nýleg-
um könnunum að íþróttir eru nán-
ast eina tómstundaiðja barna og
unglinga sem eitthvað kveður að.
íþróttirnar eru þannig orðnar
mun stærri hluti af félagsmótun en
áður. Síðan er hægt að deila um
það hvort þessi breyting sé til góðs
eða ills. íþróttirnar tengjast æ fleiri
sviðum mannlífsins og verða m.a.
fyrirferðarmeiri í fjölmiðlum. Þar
er umfjöllunin reyndar nokkuð
einhæf; í stöðluðu formi um nöfn
og tölur. Um leið og þetta gerist
fækkar séreinkennum einstakra
íþróttagreina. Við getum tekið
lyftingar sem dæmi. Fyrir nokkr-
um árum var það mjög takmark-
aður hópur sem iðkaði þessa
íþrótt, lokaður hópur manna úr
sama umhverfi með sérstakan
móral og sérstakt orðfæri. Nú er
þessi hópur orðinn mjög stór og
þar eiga heilsuræktarstöðvarnar
sterkan hlut. Keppnismenn í
íþróttinni (t.d. í kraftlyftingum)
berjast við lóðin á skemmtistöð-
um. Skilin milli íþrótta og skemmt-
unar eru orðin óglögg. I kjöifarið
er almenningur farinn að líta á
hinar ýmsu aflraunir sem íþróttir
og um þær er jafnvel fjallað sem
slíkar.
Breytingin á eðli íþróttaiðkunar
er nokkuð skýr. Það að taka þátt
ánægjunnar vegna er á hröðu
undanhaldi og sömuleiðis hin
gömlu gildi íþróttanna, sem enskir
nefna „fair play.“ Það er nánast úti-
lokað að það geti gerst að þátttak-
endur í hlaupi hjálpi á fætur hlaup-
ara sem hefur hrasað. Þannig er
hægt að segja að íþróttirnar spegli
aðeins þann keppnisanda sem rík-
ir í þjóðfélaginu.
Einn viðmælandi minn sagði að
það væri einn hlutur sem hann
grínaðist aldrei með, hefði aldrei í
flimtingum og tæki alltaf jafn al-
varlega: „Það er blessað fimleika-
félagið mitt, sem stendur oft í
ströngu í boltanum. Ég verð vond-
ur í hvert sinn sem aðrir eru að
spauga með fimleikafélagið." Þó
að við getum tekið þetta með
hæfilegri alvöru má samt sjá
hversu stór ítök einstök félög geta
átt í mönnum. Hugsunin um „okk-
ur“ og „hina“ er sterk og ekki
nema gott eitt um hana að segja.
Þetta er mjög greinilegt á lands-
byggðinni og eflir samkennd fólks-
ins. Áður fyrr slógust menn, en nú
er búið að koma þessum hasar í
staðlað form með alþjóðlegum
reglum.
Sú breyting sem er einna gleggst
á íþróttahreyfingunni varðar
tengsl hennar við fjármagnsaðila
og uppbyggingu íþróttamann-
virkja. Bilið milli einstakra félaga í
Reykjavík virðist sífellt stækka,
stóru félögin verða stöndugri á
meðan lítið gengur hjá minni fé-
lögum. Þessi öfugþróun er m.a. til-
komin vegna þess að yfirvöld
stýra uppbyggingunni minna en
ástæða er til, t.d. varðandi fjár-
mögnun íþróttamannvirkja. Fjár-
streymi úr opinberum sjóðum á að
liggja þangað sem þörfin er mest,
til félaganna í úthverfum.
Rekstur á íþróttafélagi kostar
núorðið gífurlega mikið og nokk-
ur félög hafa gripið til þess ráðs að
ráða til sín starfsmann, sem að
mestu sinnir fjáröflun. Rekstur á
knattspyrnuliði í fyrstu deild er
svo umfangsmikill að ef vel á að
vera þarf 10 til 15 harðduglega
sjálfboðaliða til þess að halda öllu
gangandi. Síðan hafa kröfur úr öll-
um áttum aukist mjög. Til dæmis
veit ég um eitt fyrstudeildarlið
sem greiðir bónusa til leikmanna,
a.m.k. fyrir skoruð mörk. Þar voru
greiddar 1000 krónur fyrir mark-
ið. Ég veit ekki fyrir víst hvernig
þessu er háttað hjá öðrum liðum í
fyrstu deild, en það er hægt að
álykta að slíkir bónusar finnist víð-
ar, því viðkomandi félag er ekki
það stöndugasta í deildinni. Slíkir
hlutir hefðu verið óhugsandi fyrir
10 til 15 árum. Síðan verður æ al-
gengara að fyrirtæki komi boð-
skap sínum á framfæri með hjálp
íþrótta. Svali skaust til dæmis inn
í auglýsingu um Evrópubikar-
keppni í frjálsum íþróttum.
Gleggst er þetta reyndar í golf-
íþróttinni. Þar voru nokkur af
fyrstu opnu mótunum kennd við
Kays, Flugleiðir, Panasonic, Dun-
lop, Nissan, Johnny Walker og
Pierre-Robert. Það fer vart fram
stórmót í golfi án þess að nafni
vöru eða fyrirtækis sé klínt á það.
Þessar staðreyndir tengjast allar
umræðunni um sérstöðu íþrótt-
anna í þjóðfélaginu, hvort þær
geti lengur talist sérstakur menn-
ingarkimi eða menningarheimur.
Ég hygg þó að færa megi rök að
því að íþróttirnar hafi enn nokkra
sérstöðu þó að hlutverk þeirra og
eðli hafi breyst mikið á skömmum
tíma.
i
Fmls sem
\ fualinn
íflua 04 bíl
FmuMsrm
FEWmmÖÐINNI
15.736
15.736
Flug og bíll verð kr. 15.736 miðað við 4 i bil,
barnaafsláttur kr. 7.100. Brottför laugardag.
Flug og bíll miðað við 4 í bíl verð kr. 15.736.
barnaafsláttur kr. 7.100. Brottför föstudaga.
STOKKHÓLMIIR19309
Flug og bíll verð kr. 19.309 miðað við 4 í bíl,
barnaafsláttur kr. 8.800. Brottför föstudaga.
Flug og bíll verð kr. 14.861 miðað við 4 í bíl,
barnaafsláttur kr. 6.700. Brottför laugardaga.
Flug og bíll verð kr. 13.251 miðað við í bíl,
barnaafsláttur kr. 5.800. Brottför fimmtudaga.
14.861
13.2S1
13.251
Flug og bíll verð kr. 13.251 miðað við 4 í bíl,
barnaafsláttur kr. 5.800. Brottför fimmtudaga.
LUXEMBOURG 14.524
Flug og bill verð kr. 14.524 miðað við 4 í bíl,
barnaafsláttur kr. 6.700. Brottför alla föstudaga
og laugardaga.
15.443
Flug og bíll verk kr. 15.443 miðað við 4 í bil,
barnaafsláttur kr. 6.700. Brottför föstudaga.
1
KAUPMHÖFN 16.578
Flug og bíll verð kr. 16.578 miðað við 4 i bíl,
barnaafsláttur kr. 7.600. Brottför laugardaga.
FRANKFURT 14.467
Flug og bíll verð kr. 14.467 miðað við 4 í bíl,
barnaafsláttur kr. 6.700. Brottför sunnudaga.
SALZBURG
Flug og bíll verð kr. 12.244 miðað við 4 í bil,
barnaafsláttur kr. 5.200. Brottför miðvikudaga.
12.244
1
ÞYSKU SUMARHUSIN** ...
í OBERALLGÁU
Oberallgáu tilheyrir Bæjaralandi, sem af mörgum er talið eitt
fegursta hérað Þýskaiands. Bæjaraland er skógi vaxið, með
djúpa dali, tignarleg fjöll og gömul fögur þorp. Flug/bíll/íbúð:
Hjón með tvö börn í viku kr. 14.045.- per mann. Ma. er innifalið
söluskattur og kaskótrygging v/bíls.
[>=] FEROA
m MIÐSTÚDIIM
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133
HELGARPÓSTURINN 11