Helgarpósturinn - 09.01.1986, Síða 3
FRÉTTAPÓSTUR
Sverrir rekur Sigurjón
Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra
hefur leyst Sigurjón Valdimarsson frá störfum
framkvæmdastjóra Lánasjóðs islenskra náms-
manna. Hrafn Sigurðsson hefur verið settur
sem framkvæmdastjóri sjóðsins til bráða-
birgða. Ákvörðun Sverris hefur mælst mjög illa
fyrir og hafa starfsmenn LÍN sent forsætisráð-
herra bréf þar sem þeir fara fram á að hann
kanni embættisfærslu menntamálaráðherra
vegna brottvikningarinnar. Aðrir hópar hafa
einnig mótmælt brottvikningunni.
Áburðarverksmiðjan í eldhættu
Bruni í sinu á nýársnótt vegna flugelda hafði
næstum því náð til Áburðarverksmiðjunnar í
Gufunesi en eldurinn náði inn fyrir girðingu
verksmiðjunnar. Slökkvilið verksmiðjunnar
réði niðurlögum eldsins en ekki náðist síma-
samband við slökkviliðið í Reykjavík. Gagnrýnt
hefur verið að Áburðarverksmiðjan hafi ekki
beina línu til Slökkvistöðvarinnar.
Þrjú ný prófessorsembætti
Forseti íslands veitti um áramótin þrjár nýjar
prófessorsstöður við HÍ: Gunnlaugur Geirsson
tók við embætti prófessors í réttarlæknisfræði
við læknadeild, Þórdís Kristmundsdóttir tók
við prófessorsstöðu í lyfjagerðarfræði við
læknadeild-lyfjafræði lyfsala. Þorsteini Helga-
syni var veitt embætti prófessors í byggingar-
verkfræði við verkfræðideild HÍ.
Lektorsstaða veldur deilum
Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra
hefur veitt tvær lektorsstöður og sex dósent-
stöður við HÍ. Ein veiting, setning Matthíasar
Viðars Sæmundssonar i stöðu lektors i islensk-
um bókmenntum við heimspekideild HÍ, hefur
vakið deilur. í úrskurði dómnefndar var mælt
með Helgu Kress, dósent í almennri bók-
menntafræði, og hefur Helga lýst því yfir að
menntamálaráðherra hafi ekki hundsvit á því
sem hann gerir og þetta sé fyrst og fremst makk
milli strákanna. Helga hefur kært veitinguna til
Jafnréttisráðs.
Mest innlánsaukning hjá einkabönkunum
Innlán jukust mest hjá Alþýðubankanum á
síðasta ári eða um 95%. Hjá Sparisjóði Reykja-
víkur og nágrennis jukust innlánin um 55,6%
HELGARPÚSTURINN
Tímamót
Um áramótin undur varð,
að því er mér virtist.
Nýja árið gekk í garð,
en gamli Tíminn birtist.
Niðri
en minnst aukning innlána var hjá Útvegsbank-
anum, 13,9%. í heild var innlánsaukning mest
hjá einkabönkunum.
Þrotabú Hafskips á S18 milljónir
Eimskip_ hefur keypt þrotabú Hafskips á 318
milljónir. í kaupsamningnum fólust þrjú vöru-
flutningaskip, gámar, lyftarar, bilar, vagnar og
fleira. Greiðsla Eimskips er í formi skuldabréfs
til Útvegsbanka íslands.
Þjóðviijanum stefnt
Guðmundur G. Þórarinsson, gjaldkeri Fram-
sóknarflokksins, hefur stefnt Þjóðviljanum
fyrir róg, lygar og ærumeiðingar, vegna fréttar
blaðsins þ. 7. janúar um aðild hans að Þýsk-ís-
lenska. Guðmundur heldur því fram að blaðið
hafi borið honum á brýn að haf a staðið að gifur-
legum skattsvikum og dregið á annað hundrað
milljónir undan skatti.
Þýsk-íslenska í skattrannsókn
Rannsóknardeild ríkisskattstjóra grandskoð-
ar nú Þýsk-íslenska hf. með tilliti til skattsvika.
Sérstök rannsókn á bókhaldi, birgðahaldi og
söluskattskilum hófst í nóvember sl. Enn hefur
ekki verið krafist opinberrar rannsóknar í mál-
inu eða þvi visaö til rikissaksóknara.
Fréttapunktar
• Endurnýjun ökuskírteinis hækkar um 555
prósent. Þetta er m.a. vegna óvæntra hækkana
sem fjármálaráðherra hefur ákveðið og eiga að
færa ríkissjóði 30 til 35 milljónir aukalega á
næsta ári.
• Sex flugumferðarstjórar, allt yfirmenn i flug-
stjórnarstöðinni á Reykjavikurflugvelli, hafa
fengið áminningarbréf frá flugmálastjóra. Flug-
umferðarstjórarnir neituðu að framfylgja fyrir-
mælum sem gefin voru í tengslum við skipu-
lagsbreytingar.
• Um 40 þúsund seiði drápust hjá laxeldisstöð-
inni í Höfnum vegna bilunar á vatnsdælu. Áætl-
að tjón er 8—10 milljónir.
• Nýjar reglur um bílakaup bankastjóra ríkis-
bankanna hafa verið tfl umræðu í bankaráðum
bankanna að undanförnu. Bankastjórar Búnað-
arbankans fá bila en bankastjórar Landsbanka
og Seðlabanka geta valið á milli þess að fá eina
milljón á fimm ára fresti til bilakaupa eða fengið
bU í eigu bankans.
• Vilhjálmur EgUsson, formaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna vill að stjórnin efni til
þingkosninga.
• BSRB hefur óskað strax eftir viðræðum við
fulltrúa fjármálaráðherra.
• Þórunn Gestsdóttir, formaður Landssam-
bands sjálfstæðiskvenna hefur lýst þvi yfir í
fjölmiðlum að hún haldi að ríkisstjórnin standi
til 1987.
• Þak hefur verið sett á gjaldskrá nokkurra sér-
fræðinga í læknastétt og hefur það vakið tals-
verðan urg meðal lækna.
• íslendingur hefur verið dæmdur í fjögurra
ára fangelsi i V-Þýskalandi fyrir að reyna að
smygla 4250 grömmum af amfetamini frá Hol-
landi til Þýskalands.
UÖSMYND JIM SMART
Ertu að missa stjórn
W
a
Pétur Einarsson
„Svarið við þessari spurningu er það, að við erum einmitt að
ná stjórn á þessu eftir 30 ára baráttu."
— Má búast við áframhaldandi truflunum á flugi á
næstunni?
„Það hefur engin truflun verið í morgun (miðvikudag) og
þetta gengur nú allt eins og smurð vél. Ég tel það mjög ólíklegt
að um framhald á þessum truflunum verði að ræða."
— Vinna flugumferðarstjórar að meðaltali yfirvinnu
sem samsvarar tveimur mánuðum á ári?
„Þetta er ekki nema í kringum 17%, sé miðað við tólf mán-
uði, en öllum opinberum starfsmönnum ber skylda til að vinna
30% yfirvinnu. Þeir ættu því töluvert eftir til þess að uppfylla
einungis skylduna. Hins vegar höfum við áhyggjur af því hve
yfirvinna skiptist ójafnt á flugumferðarstjórana. Það er eitt af
fjölmörgum markmiðum með skipulagsbreytingunum núna
að jafna yfirvinnuna."
— Stendur til að fækka mönnum á næturvakt?
„Þessar fækkanir eru þegar komnar í framkvæmd og í fram-
tíðinni verða gerðar fleiri ráðstafanir, sem miða að því að manna
stjórnstöðina í samræmi við umferðarálagið, þ.e. að hafa mest-
an mannskap þegar mest er álagið. Það hefur verið fækkað um
einn mann á næturvakt, en við mætum því hins vegar þannig
að vaktstjórar eiga nú að hafa full réttindi og gegna stöðum á
nóttinni, sem ekki hefur verið áður."
— Hvað er Flugráð og hvers vegna er þolinmæði þess
sögð á þrotum?
„Þetta er fimm manna ráð — tveir eru skipaðir af ráðherra en
þrír kosnir af Alþingi. Ráðið er millistig milli mín og samgöngu-
ráðherra í öllum meiriháttar málum. Ég sé um daglega stjórnun
og er þannig í daglegum samskiptum við ráðuneytið, en Flug-
ráð kemur inn varðandi áætlanagerð og annað slíkt.
Varðandi þolinmæðina, þá hefur þetta verið 30 ára stríð við
flugumferðarstjóra, sem ég hef að vísu ekki tekið langan þátt
í vegna þess að ég var einungis átta ára þegar það hófst. Það
hafa hins vegar verið stanslausir erfiðleikar með þetta stéttarfé-
lag. Þeir eru sífellt að banna hitt og banna þetta! Það var t.d.
lögð á þá sú skylda að stimpla sig inn og út af vinnustað, eins
og allir aðrir starfsmenn hér gera, en þeir neita því. Ennfremur
voru þeir beðnir um að bóka sig í vinnustöður, þ.e. skrá hvenær
þeir setjast við vinnuborðin og hvenær þeir taka sér hvíld, en
þarna er unnið með ákveðnum hvfldum. Þetta hefur verið gert
í fjölda ára á Keflavíkurflugvelli, en var þverneitað hér. Jafnframt
hafa þeir neitað að taka hæfnispróf á tveggja ára fresti, en
þess er krafist í reglugerð frá 1978."
— Eru hinir nýskipuðu varðstjórar hugsaðir sem ráð-
stöfun gegn þvf agaleysi á vinnustað, sem lýst var í ný-
legri úttekt á starfseminni?
„Já, það er rétt, en fólk verður að hafa i huga að orðið „agi"
er þýðing á enska orðinu „discipline", sem hefur meira með ná-
kvæmni í vinnubrögðum að gera en heraga."
— Var gengið framhjá mönnum með meiri starfs-
reynslu við þessar stöðuveitingar?
„Stjórn félags flugumferðarstjóra hefur verið mjög ákveðin
í þeirri kröfu að menn eigi að færast upp eftir starfsaldri, það
verði sem sagt gamalmennastjórn. Við höfum alveg þverneitað
þessu."
— Voru þessir nýráðnu menn kannski með rétt
flokksskírteini upp á vasann?
„Það hef ég ekki hugmynd um. Mér er alveg ómögulegt að
flokka menn í pólitíska flokka."
— Er það venjulegt að mönnum séu send skeyti, þeg-
ar biðja á þá um að vinna yfirvinnu?
„Nei, það er óvanalegt, enda er það óvenjulegt að menn neiti
að vinna yfirvinnu. Ástæðan fyrir skeytunum er sú, að menn
höfðu neitað að koma, þegar hringt var í þá. Við vorum því
neyddir til að senda þeim skeyti til þess að átta okkur á aðstöð-
Síðastliðinn þriðjudag urðu miklar tafir á flugumferð innanlands,
vegna mótmælaaðgerða flugumferðarstjóra. Margir þeirra voru veikir
og þeir, sem kallaðir voru inn á aukavaktir, neituðu að taka á sig frekari
yfirvinnu að svo stöddu. Tók Rátur Einarsson, flugmálastjóri, á málinu
af hörku og nú blða menn spenntir eftir þvl hver framvinda mála verður,
enda flugumferðarstjórar kunnir af þvl að láta illa að stjórn.
HELGARPÓSTURINN 3