Helgarpósturinn - 09.01.1986, Qupperneq 4
YFIRHEYRSLA
nafn Sigurjón Valdimarsson fæddur: 11. des. 1949 HEIMILI: Efstihjalli 13, Kóp.
heimilishagir: Kvæntur, 4 börn læun: 45.000 bifreið: Mazda 323, árgerð 79.
staða: Fyrrv. framkvæmdastjóri LÍN áhugamál Starfið, knattspyrna, þjóðdansar
Ég verð að höfða mál
eftir Egil Helgason myndir Jim Smart
Það er svosem ekkert nýtt ad Lánasjóður íslenskra námsmanna sé á milli tannanna
á fólki, jafnumdeilt og þad fyrirtœki er. Sjaldan hefur þó hamagangurinn í kringum
Lánasjódinn verid meiri en síðan Sverrir Hermannsson tók við menntamálaráð-
herraembætti í haust með gríðarlegum þjósti; hann telur að mikil vanhöld séu á
rekstri sjóðsins, bruðl í starfi hans og áætianir sem ekki standast. Eftir nokkur
blaða- og bréfaskrif tók Sverrir fram vöndinn og rak framkvæmdastjóra LÍN, Sigur-
jón Valdimarsson, úr þessu starfi sem hann hefur gegnt í tæp tólf ár og undir fimm
menntamálaráðherrum. Sigurjón er í Yfirheyrslu Heigarpóstsins þessa vikuna.
— Eru þetta pólitískar ofsóknir
menntamálaráðherra á hendur þér?
Einsog ég hef áður sagt er starf mitt sem
framkvæmdastjóri Lánasjóðsins ópólitískt.
Fyrst og fremst ber framkvæmdastjóri
ábyrgð á daglegum rekstri þessarar stofn-
unar, en stjórn sjóðsins ber hina pólitísku
ábyrgð ásamt menntamálaráðherra og Al-
þingi, sem setja lög og regiur um það hvernig
úthlutun skuli fara fram. Mitt hlutverk er
daglegur rekstur og það að framfylgja þess-
um regium, en á engan hátt póiitískt.
— Er menntamálaráðherra þarna að
rýma stöðu fyrir sína íhaldsmenn og
flokksbræður?
Ég get náttúrulega ekkert sagt til um það
hvaða hugmyndir menntamálaráðherra hef-
ur nákvæmlega í þessum málum. Hann hef-
ur sagt sjálfur að hann þurfi að breyta lögum
og reglum og framkvæmdastjórn, og hann
virðist kjósa að byrja á framkvæmdastjórn-
inni án þess að kynna sér nákvæmlega
þennan rekstur.
— Er það kannski tilfeilið að það séu
viss öfl innan Sjálfstæðisflokksins sem
hafi verið að aia á óvild í garð sjóðsins í
sinni núverandi mynd?
i>að get ég ekki dæmt um. Ég hef átt gott
samstarf við ráðherra Sjálfstæðisflokksins og
starfað í nefndum með öðrum sjálfstæðis-
mönnum að þessum málum. Ég get ekki sagt
til um það hvort þetta er iiður í einhverri
hreyfingu innan Sjálfstæðisflokksins.
— Nú ásakar menntamálaráðherra þig
fyrir vanrækslu í starfi. Telur þú þig
vera sekan um einhvers konar van-
rækslu?
Nei, ég tel það ekki. Ég tel mig hafa gegnt
mínu starfi af trúmennsku og fyllstu ræktar-
semi.
— Hann sakar þig um að hafa á liðnu
ári ekki tekist að segja rétt fyrir um fjár-
þörf sjóðsins í árslok, áætlanir hafi ekki
staðist og það hafi ekki verið gerð grein
fyrir stöðu mála sem skipti tugum millj-
óna?
Samkvæmt lögum og regium er það sjóð-
stjórnin sem ber ábyrgð á allri áætlanagerð.
Á fjárlögum hvers árs er gert ráð fyrir ákveð-
inni fjárveitingu í Lánasjóðinn, náttúrlega t
þeirri von að það muni standast. Síðan end-
urskoðum við þetta aftur að vori og hausti
miðað við stöðu sjóðsins þá og fjárþörf hans
til áramóta. Nú, þegar við byrjuðum að út-
hiuta haustlánum í september komumst við
að þeirri niðurstöðu, starfsmenn og sjóð-
stjórn, að þarna vantaði uppá 182 mkr. Auka-
fjárveitingabeiðnin var endurskoðuð af Fjár-
laga- og hagsýslustofnun og fengust 176
milijónir í aukafjárveitingu svo sjóðurinn
gæti staðið við skuldbindingar sínar. Það er
svo ekki fyrr en í lok nóvember að við sáum
endaniega hver staðan yrði við úthlutun
haustlána og þá kom í ljós að þau fóru um 30
milljónir umfram áætlun. Aðrir liðir sem
þarna eru, afborganir og vextir í Seðla-
banka, rekstrarkostnaður, ferðastyrkir og
fleira, voru síðan með m«mun uppá um 15
milljónir. Þarna er náttúriega visst vanmat,
en ekki vanræksla. Við gerum þessar áætl-
anir samkvæmt okkar bestu vitund. Þess er
líka að gæta að það hefur aidrei verið hægt
að áætla haustlánin nákvæmlega, þar spilar
ýmislegt inní; tekjur námsmanna, þróun
gengis, fjöidi manna í ákveðnum námslönd-
um — og fyrst og fremst það að við erum
ekki komnir með allar umsóknir fyrr en í
september, og það er ekki fyrr en í lok nóv.
sem við förum að sjá endaniega þörf.
— Menntamálaráðherra talaði líka um
óráðsíu í starfi sjóðsins, að menn væru
að smyija á sig yfirvinnu eftir hentug-
leikum — þar á meðal þú...
Við höfum lengi verið að óska eftir ýmsum
leiðréttingum á starfsmannahaldi Lánasjóðs-
ins til samræmis við aukið umfang starfsins.
Þessum óskum hefur oftast verið svarað með
því að máiefni sjóðsins væru í sérstakri at-
hugun. Það er því ekki bara mitt að svara fyr-
ir þetta. En þessi mikla yfirvinna nú hefur
m.a. stafað af því að síðasta árið hefur farið
fram gagnger endurskipulagning á starfs-
háttum sjóðsins, við tókum í gagnið nýtt
tölvukerfi og höfum í raun endurskoðað
starfshættina frá A tii Ö. Með þessu höfum
við reynt að skapa starfsmönnum meiri
vinnufrið, bæta þjónustuna, hraða fyrir-
greiðslunni og einfalda leiðirnar í gegnum
kerfið. Inná þetta nýja tölvukerfi höfum við
skráð, ekki bara upplýsingar þessa árs, heid-
ur ltka eldri upplýsingar til að auðvelda allt
námseftirlit og ýmislegt fleira. Þessi vinna
var mjög tímafrek á síðasta ári, en við gerð-
um ráð fyrir því að nú á vormisseri myndi
hægjast mjög um, vegna þess að hagræðing-
in er byrjuð að skila sér. Með þessari auknu
hagræðingu er í raun verið að hamla gegn
fjölgun í starfsmannahaldi og flýta afgreiðslu
iána og minnka þörf fyrir persónuleg viðtöl.
Ég tel að starfsfólk sjóðsins hafi sýnt mikla
ósérhlífni í þessu starfi og það er víst að öll
sú yfirvinna sem við höfum lagt á okkur er
unnin yfirvinna. Starfsmenn hafa lagt hart
að sér til að afgreiða lánin á réttum tíma án
þess að gefa eftir í nauðsyniegu eftiriiti með
námsframvindu.
— Ráðherra talar líka um mýmargar
kvartanir sem sér hafi borist um af-
greiðslumáta Lánasjóðsins?
Það koma auðvitað upp ýmis vafamál,
ekki síst á haustin, þegar er hápunktur í
starfi sjóðsins og fáir starfsmenn. Það er til-
dæmis algengt að menn séu ekki ánægðir
með iánshæfnimat sem þeir hafa fengið hjá
sjóðnum og þá geta þeir sent kvörtun til
sjóðstjórnarinnar. Við óskuðum eftir skýr-
ingu á þessum ummælum menntamálaráð-
herra og fengum þau svör frá Eiríki Ingólfs-
syni, fulltrúa í menntamálaráðuneytinu sem
fer með þessi mál, að allar þær kvartanir
sem borist hafa hafi verið leystar á farsælan
hátt í samræmi við lög og reglur.
— Sverrir Hermannsson segist ætla að
gera úttekt og mikla rannsókn á starfi
Lánasjóðsins. Nú skilst manni að þegar
hafi verið í gangi úttekt, sem ráðherra
lætur ekki getið um?
Síðastliðið vor fól menntamálaráðuneytið
Leifi Eysteinssyni hjá Hagsýslustofnun og
fulltrúa ráðuneytisins, Runólfi Þórðarsyni,
að gera úttekt á starfi Lánasjóðsins og þá lík-
lega í framhaldi að þráfaldlegum óskum okk-
ar um að fá leiðréttingu á starfsmannahaldi.
Þessi úttekt hefur haldist í hendur við gagn-
gera endurskoðun á starfinu og við höfum
veitt Leifi alla þá hjálp sem við gátum við
þessa athugun, meðal annars skrifað ná-
kvæma iýsingu á starfi sjóðsins á síðasta ári.
— Meirihluti sjóðstjórnarinnar hefur
ekki veitt þér stuðning í sambandi við
brottreksturinn. Var þarna kominn upp
ágreiningur milli þín og stjórnarinnar
sem hefði getað torveldað störf sjóðs-
ins?
Ég hef ekki orðið var við það á nokkurn
hátt að ég hafi verið kominn uppá kant við
sjóðstjórnina. Ég hef átt mjög gott samstarf
við þá aðila sem í henni sitja, bæði við Árdísi
Þórðardóttur formann og Auðun Svavar Sig-
urðsson varaformann. Ég beitti mér fyrir til-
dæmis fyrir því nú í haust að sett var upp sér-
stök undirnefnd til að fjalla um þau vafamál
sem upp koma til þess að reyna að auka svig-
rúm stjórnarinnar til að sinna rekstrarlegum
og skipulagslegum málefnum í stað þess að
verja of mikium tíma í einstakiingsbundin
máí.
— Fyrrum samstarfsmenn þinir í
Lánasjóðnum segja að stjórnin neiti að
bera ábyrgð á þeirri vanrækslu sem þú
ert sakaður um. Er hún að kasta á þig
ábyrgð sem hún I rauninni ber?
Það er aiveg Ijóst að samkvæmt lögum er
það sjóðstjórnin sem fer með alla áætlana-
gerð og það sem ég og aðrir starfsmenn
sjóðsins vinna í framhaldi af því er auðvitað
á ábyrgð hennar. Mitt hlutverk er daglegur
rekstur sjóðsins, úthlutun lána samkvæmt
þeim úthlutunarregium sem sjóðstjórnin
hefur sett og fengið samþykki ráðherra til.
Ég tel að samkvæmt lögum sé það stjórnin
sem ber fulla ábyrgð á starfi sjóðsins, en ekki
framkvæmdastjórinn sem einstaklingur.
— Nú heyrist það úr öllum áttum að
það hafi verið brotin á þér lög, meira að
segja frá Steingrími Hermannssyni. Er
það raunin?
Ég heid að það sé alveg augijóst að það
hafi verið brotin lög um það hvernig svona
mál skuli ganga fyrir sig. Þar er kveðið á um
að opinber starfsmaður skuli áður en til
brottvikningar kemur fá áminningu og tæki-
færi til að gera grein fyrir sinu máli.
— Þú hefur enga áminningu fengið?
Nei.
— Það er lika talað um að stjórn LÍN
haf i brugðist þeirri skyldu sinni að verja
þig gegn ólöglegri atlögu...
Eg hefði líka talið eðlilegra að ráðherra
sneri sér til stjórnarinnar með bréfi og það
síðan skoðað hvort ég gæti staðið að þeim
lagfæringum sem ráðherra talar um. Einsog
hefur komið fram hjá starfsmönnunum skap-
ast veruleg vandamál í rekstri sjóðsins við
þessa fyrirvaralausu aðgerð.
— Er það rétt að Sverrir Hermannsson
hafi boðið þér árslaun ef þú segðir starfi
þínu lausu sjálfur?
Það hefur komið fram.
— Ætlar þú að höfða mál gegn mennta-
málaráðherra vegna brottvikningar-
innar og ólöglegra aðdróttana?
Ég tel að ég hafi ekki brotið neitt af mér í
starfi, að ég hafi sinnt því eins vel og mér var
unnt við erfiðar aðstæður. Það hefur náðst
veruiegur árangur í endurskipulagningunni
á þjónustunni og það eru tímamót í starfi
sjóðsins. Mér er ekki ijúft að höfða mál á
hendur mínum fyrrverandi vinnuveitanda
en það er hins vegar alveg ótvírætt að ég
verð að hreinsa mig af þeim áburði sem kem-
ur fram í uppsagnarbréfinu og öðrum dylgj-
um sem fram hafa komið í þessu máii.