Helgarpósturinn - 09.01.1986, Síða 7
ÓMAR KRISTJÁNSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI AÐAL-
EIGANDI ÞÝZK-ÍSLENZKA
LEGGUR SPILIN Á BORÐIÐ í
ÍTARLEGU VIÐTALI VIÐ HP:
V E R Ð A Á
eftir Guðmund Árna Stefónsson og Friörik Þór Guðmundsson
Meint skattsvik fyrirtœkisins Þýzk-
íslenzka hf. hafa verid ofarlega á
baugi í íslenskri fjölmidlaumrœðu
síðustu daga. Síðustu vikurnar hafa
starfsmenn skattrannsóknarstjóra
haft til athugunar bókhald og
skattamál fyrirtœkisins. Fjölmiðlar
hafa fullyrt að tugum og jafnvel
hundruðum milljóna króna hafi
verið stungið undan skatti á liðnum
árum. Skattrannsóknarstjóri hefur
ekki viljað láta hafa neitt eftir sér
um þetta mál og forsvarsmenn
Þýzk-íslenzka hafa einnig lítið sem
ekkert látið frá sér fara um málið.
Ómar Kristjánsson er helsti hlut-
hafi í Þýzk-íslenzka. Hann féllst á að
rœða við Helgarpóstinn. Ómar lét
þess þó getið í upphafi viðtals, að
málið vœri á einkar viðkvœmu stigi
og því allar yfirlýsingar varhuga-
verðar, en hins vegar vœri óviðun-
andi að sitja þegjandi undir öllum
þeim neikvœðu og misvísandi frétt-
um, sem fjölmiölar hefðu matreitt
fyrir fólk á liðnum dögum. Þar hefði
staðlausum stöfum verið kastað
fram eins og staðreyndum og vissu-
lega vœriþað þannig, aðþegarfólki
er sögð sama sagan aftur og aftur,
hversu röng og ósönn, sem hún ann-
ars er, endar með því að fólk trúir.
En Helgarpósturinn bað Ómar
Kristjánsson í upphafi að gera örlitla
grein fyrir sjálfum sér. Hver er þessi
Omar Kristjánsson framkvæmda-
stjóri, stjórnarformaður og aðaleig-
andi þessa stórfyrirtækis, Þýzk-ís-
lenzka, sem er á hvers manns vör-
um þessa dagana?
Ómar Kristjánsson er 37 ára
Reykvíkingur, en fæddur í Keflavík.
Hann tók gagnfræðapróf frá Réttar-
holtsskóla og stundaði að því loknu
ýmis verslunarstörf. Fór því næst
utan til verslunarnáms í Bretlandi,
tók atvinnuflugmannspróf hér á
landi og fór í framhaldsnám til
Bandaríkjanna í því fagi. Eftir það
var hann um tíma tollgæslumaður
hjá Tollgæslunni í Reykjavík, en réð-
ist svo til starfa hjá Sambandi ís-
lenskra samvinnufélaga, var þar við
störf í 8 ár og hluta af þeim tíma í
Þýskalandi. Arið 1976 keypti Ómar
ásamt hálfbróður sínum, Guðmundi
G. Þórarinssyni, fyrirtækið Þýzk-ís-
lenzka, umboðs- og skipamiðlunar-
félagið, eins og það hét í þá daga,
sem þeir bræður breyttu í Þýzk-ís-
lenzka verslunarfélagið, en fyrir
nokkrum árum breyttist nafn þess í
Þýzk-íslenzka hf. og það er nafn fyr-
irtækisins nú.
Aðaleigandi með 90%
eignarhlut
Guðmundur gekk úr fyrirtækinu
nokkrum árum eftir að þeir festu
kaup á því, eða árið 1978, er hann
gerðist alþingismaður. Hann seldi
sinn eignarhlut í fyrirtækinu og hef-
ur ekki verið eignaraðili í því frá
þeim tíma.
A þessum 10 árum hefur fyrirtæk-
ið vaxið mjög hratt og er nú með um
fimmtíu starfsmenn og aðsetur í eig-
in húsnæði að Lynghálsi 10 í Ár-
bæjarhverfinu.
— Nú ert þú aðaleigandi og
framkvæmdastjóri umsvifamik-
ils fyrirtækis, sem hefur víða lát-
ið til sín taka. Hins vegar hefur
minna borið á manninum á bak-
við þetta allt saman. Ómar Krist-
jánsson er ekki áberandi í ís-
lensku þjóðlífi. Hvers vegna?
„Eg hef unnið að vexti og við-
gangi þessa fyrirtækis og lagt alla
mína krafta í það. Sú vinna er fram-
kvæmd í kyrrþey en ekki með hróp-
um á torgum og ég hef ekki haft
i áhuga á því að ýta sjálfum mér né fyr-
irtækinu fram í sviðsljósið að ástæðu-
lausu, þótt á hinn bóginn hafi fyrir-
tækið og varningur þess orðið æ
meira áberandi í umræðu og við-
skiptum með auknum umsvifum í
tímans rás. Áherslan hjá okkur er á
vöruframboð og þjónustu. Metnað-
ur okkar hefur beinst að því að hafa
viðskÍDtavini okkar ánægða."
— Á hvaða stigi var þetta fyrir-
tæki, þegar þið bræður keyptuð
það fyrir 10 árum?
„Það var ákaflega smátt í sniðum
og við gátum sáralítið sem ekkert
notað af því, sem þar var fyrir. Fyrir-
tækið var nánast orðið nafnið eitt. Á
ákveðnu tímaskeiði í nú 30 ára sögu
fyrirtækisins voru hins vegar við
stjórnvölinn mætir menn, sem vildu
gera stóra hluti með þetta nafn og
þetta fyrirtæki og þar á meðal var
fyrirtækið með opna skrifstofu úti í
Hamborg um einhvern tíma. En sól-
in hafði hnigið í áranna rás og lá
nærri sólsetri, þegar við komum inn
í dæmið 1976.
Víst veit ég það, að ýmsir hafa
undrast öran uppgang fyrirtækisins
á fáum árum og ýmsar tröllasögur
verið sagðar í þeim efnum. En ég
sjálfur þakka góðu gengi síðasta
áratuginn, góðu starfsfólki sem við
höfum haft á að skipa. Því þótt her-
foringinn yfir hersveitinni þurfi að
vera sæmilega að sér, þá gerir hann
ekkert nema allir vinni með honum.
Og Þýzk-íslenzka hefur verið ákaf-
lega lánsamt með starfsfólk alla tíð.
Það sýnir sig hvað best núna, þegar
erfiðleikar steðja að.“
— Nú verda umboð fyrir vand-
aðar vörur ekki tínd upp af göt-
unni. Hvernig tókst þér að ná í
þessi vörumerki? Var málið ein-
faldlega að lukkuhjólið snerist á
sveif með þér, eða kom fleira til?
„Það þarf auðvitað heilmikla
heppni í þessu sem öðru til að hlut-
irnir gangi vel fyrir sig. Og það er nú
einmitt gangur lífsins, að það skipt-
ast á skin og skúrir og allir verða að
ganga í gegnum það á einhverju
sviði. Mín ógæfa, sem nú dynur yfir,
hún er í sjálfu sér smámunir á móti