Helgarpósturinn - 09.01.1986, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 09.01.1986, Blaðsíða 8
mörgu því, sem margir aðrir þurfa að ganga í gegnum. Þetta fyrirtæki undir stjórn okkar bræðra byrjaði ef til vill betur en mörg önnur fyrirtæki. Við gátum byrjað í eigin húsnæði, og upphafið varð því okkur að mörgu leyti létt- ara en hjá mörgum öðrum sem eru að byrja atvinnurekstur. Því má heldur ekki gleyma, að tímarnir til atvinnurekstrar voru miklu heppilegri á þessum fyrstu árum okkar, á árunum eftir 1976. Við byggðum okkur upp á verðbólgutímum, þegar öll lán voru með afar hagstæðum kjörum og greiddust síðan niður í miklu lægri einingum. Auðvitað hjálpaði það til við þessa uppbyggingu í upphafi. Við vorum búnir að koma ár okkar vel fyrir borð, þegar verðbólguhjól- ið fór að hægja á sér. Ef þú skoðar sögu þessa fyrirtækis undir minni stjórn, þá hefur þetta verið ákaflega gæfusöm ganga og ég hef stundum spurt mig á leiðinni: hvenær kemur að því að eitthvað fer úrskeiðis? Ég átti hins vegar aldrei von á því, að það yrði með þeim hætti, sem nú hefur orðið. Ég hef líka leitt hugann að því undanfarið hvort ég vildi skipta á þessu óhappi og einhverju öðru. Og þótt þetta séu óneitanlega erfiðir tímar fyrir mig og fyrirtækið, þá er margt verra til en þetta sem við er- um að ganga í gegnum. Hafa verður í huga, að í þessa uppbyggingu hefur farið alveg gífur- legt þrek og vilji. Af þreki og vilja hefur maðurinn ekki ótakmarkað. Ég hef lagt allt mitt í þetta fyrirtæki og vitaskuld dregur mótstreymið þessa dagana úr mér þrótt. Eg vil vera hreinskilinn og viðurkenni það fúslega." — Hversu stórt og umfangs- mikiö er Þýzk-íslenzka í dag? Það er ljóst ef einungis er iitið til eigin húsnæöis fyrirtækisins, ad hér er á ferðinni stórfyrirtæki á íslenzkan mælikvarða, en hversu stórt er það? ,,A árinu 1984, árinu sem þessi skattamál snúast hvað helst um, var umsetning þessa fyrirtækis 160—170 milljónir. Og á árinu 1985 liðlega 200 milljónir." — Hvað með eignir þess? Hverjar eru þær í krónum talið? „Fasteignamatið á húseign fyrir- tækisins hér í Lynghálsinum er í kringum 60 milljónir króna." — Hvað með afkomu fyrirtæk- isins á síðustu árum? „Afkoma fyrirtækisins á þessu umdeilda skattaári, árinu 1984, var mjög góð, sem sýnir sig best í því, að jyrirtækið var einn hæsti skattgreið- andi í Reykjavík 1985 vegna tekna 1984." Ofgasögur — Nú hafa húsbyggingar á síö- ari árum verið erfiðar mörgum fyrirtækjum og slíkar fjárfest- ingar hreinlega reynst mörgum ofviða, þannig að þau hafa farið yfir. Hvað með Þýzk-íslenzka? Stóð það svo traustum fótum, að þaö gat klofið fjárfestingu árið 1980—82, á tímum verðtrygg- ingar, upp á 60 milljónir króna á núvirði, án þess að blæða fyrir í sjálfum rekstrinum? „Það má segja að allir tímar á þessu 10 ára tímabili hafi verið erfið- ir. Lausafjárstaðan hefur alla tíð ver- ið erfið, en þetta hefur einhvern veginn allt saman tekist. Þótt nokk- uð sé um liðið síðan við byggðum yf- ir okkur, þá hefur lausafjárstaðan sama og ekkert lagast." — Því er hins vegar haldið fram, að þið eigið þetta stórhýsi nánast skuldlaust orðið, nú 8 HELGARPÓSTURINN þremur árum eftir að þið fluttust inn í það og ennfremur að sára- lítið hvíli á eigninni af öðrum skuldbindingum fyrirtækisins? „Það er mörgu haldið fram um mig og fyrirtækið þessa dagana. Þetta hefur heyrst og einnig stað- hæfingar alveg yf ir á hinn vænginn, þ.e. að fyrirtækið sé í botnlausum skuldum. En þessar öfgasögur eru fjarri öllum raunveruleika. Ég get upplýst það, að það hvíla stórar upp- hæðir á þessu húsi og fyrirtækið skuldar umtalsverðar upphæðir í innlendum og erlendum lánum. En það sem máli skiptir, er að eiginfjár- staðan sé í lagi og það er hún. Fyrir- tækið hefur staðið traustum fótum. Skuldbindingar fyrirtækis af þessari stærðargráðu eru ævinlega miklar og svo er um Þýzk-íslenzka. Þær eru hins vegar ekki slíkar, að við ráðum ekki við þær miðað við óbreytt ástand." Sjónvarpið kvað upp dóm — Við minntumst örlítið á manninn á bakvið forsíðufrétt- irnar þessa dagana — manninn Ómar Kristjánsson. Aðeins meira um hann. Hvernig líðan er þaö að vera framkvæmdastjóri og aðaleigandi fyrirtækis, sem öll spjót standa á? „Hún er mjög slæm — afleit. Það sem gerir þetta hvað erfiðast, er auðvitað það, að mönnum þykir illa og ósanngjarnt að sér vegið. Ég minnist þess ekki áður, að mál af þessu tagi hafi fengið svona með- höndlun í fjölmiðlum. Það getur hver dæmt fyrir sig, þegar þetta mál er skoðað, en hér er á ferðinni mál, sem verið er að athuga. Skattayfir- völd eru að athuga bókhald og skattamál þessa fyrirtækis. Það er algjörlega óljóst á þessari stundu, hver niðurstaðan verður. En á sama tíma og menn eru að athuga málin, rís upp íslenzka sjónvarpið — fjöl- miðill fólksins í landinu — og kveð- ur upp dóm yfir fyrirtækinu og stjórnanda þess, sem örugglega hef- ur gífurleg áhrif á allt viðkomandi rekstri þessa fyrirtækis um ófyrir- sjáanlega framtíð." — Viltu ætla að fyrstu upplýs- ingar til fjölmidla um þessa rannsókn á fyrirtækinu, hafi komið frá rannsóknarmönnum sjálfum — frá skattinum? „Ég get ekkert fullyrt um það.“ Höfum ekki stundað skattsvik — Nú hafa skattayfirvöld ekki viljað láta hafa neitt eftir sér op- inberlega um þetta mál, um rannsóknina. En nú spyr ég þig beint Ómar Kristjánsson: Ertu saklaus af þeim ásökunum um skattsvik sem fram hafa komið í fjölmiðlum? „Fjölmiðlar ættu að átta sig á því í þessu máli sem öðrum að það er enginn sekur fyrr en hann hefur verið sakfelldur. Hins vegar kunna að hafa verið gerð hér mistök af einhverju tagi og ég get sagt það fullum fetum, að mér er það ljóst nú, að það hafa ver- ið gerð hér mistök. í hve miklum mæli á eftir að koma í ljós. Það eru ákveðnir þættir í svona rekstri, sem eru umdeilanlegir. Það má nefna sem dæmi birgðahald. Hvernig á að meta birgðir í svona 'fyrirtæki, það er mjög umdeilanlegt atriði. Ég geri mér ljóst, að ég kann að hafa hlaupið fram úr sjálfum mér í rekstri fyrirtækisins á einhverjum tíma. Ef menn rétt renna yfir upp- gang fyrirtækisins á síðustu 10 ár- um, þá sjá menn að það hlýtur að Hið stórglæsilega húsnæði Þýzk-islenzka að Lynghálsi 10. i Siðast liðið haust keypti Þýzk-íslenzka af Brauðbæ lóð og byggingarframkvæmdir við Álfabakka i Mjóddinni. Hér má sjá að neðri hæð hins 3000 fermetra verslunarhúss er langt komin. Heimili Ómars Kristjánssonar að Silungakvisl 25 í Árbaa Húsið hefur þá sérstöðu I göt- unni að vera fullfrágengið en lítt frágengin hús allt f kring. hafa farið gífurleg orka og tími í að byggja það upp. Þegar aftur á móti er litið til gagnaskráningar og gagnasöfnunar, á því sem búið er að gera, þá hefur það verið í mínum huga minna áríðandi. Þar skortir mig þekkingu. Á þeim vettvangi, í gagnaskráningu — bókhaldi — hef ég haft fólk sem hefur sinnt þessum störfum af samviskusemi, en um- svifin hafa aukist og álagið á því á vettvangi bókhaldsins um leið. Þýzk-íslenzka hf. er alfarið tölvu- vætt í dag. Fyrir þremur árum, þeg- ar við tókum upp þetta tölvukerfi sem við nú störfum með, þá höfðum við áður fest kaup á annars konar tölvukerfi og látið vinna forrit og prógrömm fyrir það, en því miður varð sá söluaðili gjaldþrota og gat því ekki afhent vöruna, þannig að við urðum að kaupa annað tölvu- kerfi með hraði. Og það hefur kom- ið í ljós, að bæði forrit og prógrömm í því kerfi hafa hentað okkur að sumu leyti illa. Það hafa komið fram í þessum prógrömmum hreinir og klárir gallar og auðvitað er líka ljóst að þekking starfsmanna framanaf á þessum tækjum var af skornum skammti. Þetta hefur truflað örugga og góða skráningu á þessum gerðu hlutum, á þessum bókhaldsmálum. Við höfum smám saman verið að átta okkur á því, að bókhaldið var orðið of umfangsmikið fyrir það fólk, sem vann við það hjá okkur. Það er ljóst að við hefðum þurft að fá til utanaðkomandi aðstoð frá end- urskoðendum. Við höfum nú fengið löggiltan endurskoðanda til að að- stoða okkur við að fá botn í þessi mál. Sjálfur er ég með litla bókhalds- þekkingu og vil ekki skipta mér af bókhaldsmálum. Finnst að það sé annarra manna verk í fyrirtækinu. Ég sinni viðskiptamálum, áætlana- gerð og slíkum hlutum sem snúa beint að viðskiptum; rekstri fyrir- tækisins." — Er það ekki lagaskylda á jafnstórum fyrirtækjum og Þýzk-íslenzka hf., að hafa lög- gilta endurskoðendur? „Ég þekki það ekki til hlítar, en mér þykir það ekki ólíklegt, nú þeg- ar athygli mín hefur verið vakin á því máli í kjölfar þessara yfirstand- andi athugana skattrannsóknar- stjóra." — Hvernig hafa samskipti við rannsóknaraðila gengið? „Þau hafa að mínu áliti verið eðli- leg." — Þú segir Þýzk-íslenzka hafa verið eitt fyrirtæki af mörg hundruð sem hlutu skoðun hjá skattrannsóknarstjóra á sl. ári. Ertu að gefa í skyn, að ástandið hafi jafnvel ekki verið miklu skárra hjá ýmsum öðrum fyrir- tækjum, sem skoðuð voru? „Eg veit ekkert um það." Viljum hraða rannsókn — Þú segir illmögulegt að gera sér grein fyrir því, hvaða upp- hæðir eru á ferðinni hvað varðar hinar meintu bókhaldsskekkjur hjá fyrirtækinu. En sumir fjöl- miðlar telja sig hafa heimildir fyrir þvi, að um hundruði millj- óna sé að ræða. Stendur fyrir- tækið undir slíkum álögum, ef lagðir yrðu á það skattar aftur í tímann og því yrði að auki gert að greiða álag vegna þessa? Myndi Þýzk-íslenzka lifa slíkt af? „Fyrst vil ég leiðrétta þann mis- skiining, sem klifað hefur verið á í blöðum, að þetta snúist um meint söluskattssvik. Þetta er heildsölu- fyrirtæki, sem selur sáralítið til neyt- enda, en hefur skilað söluskatti skil- víslega af þeirri sölu. Hér er hins vegar spurt um upp- hæðir sem menn ekki þekkja. Mín sannfæring er sú að það muni koma upp allt aðrar tölur en menn hafa verið með í umfjöllun fram að- þessu. Það er ósvinna að mínu mati að stærðargráðurnar séu eitthvað í líkingu við það, sem slegið hefur verið fram í fjölmiðlum á síðustu dögum. Ég spyr að leikslokum í því sambandi. En hvort þetta verður okkur of- viða, því er erfitt að svara. Það verð- ur tíminn að leiða í ljós. Það hefur ekkert fyrirtæki fengið jafn nei- kvæða umræðu byggða á ágiskun- um meðan málið er til athugunar og fyrirtæki okkar nú. Við skulum bíða niðurstöðu skattyfirvalda." — Þú vilt sem sé ætla að Þýzk- íslenzka geti út af fyrir sig klár- að sig af aukaálögum sem fylgdu hugsanlega í kjölfar athugunar skattayfirvalda? „Framtíðin verður að leiða það í ljós." — Hefurðu orðið þess var, að viðskiptaaðilar ykkar hérlendis og erlendis hafi kippt að sér höndum gagnvart ykkur vegna þessarar fjölmiðlaumræðu? „Ég hef orðið var við það hér inn- anlands, að okkar viðskiptaaðilar eru hugsi um þetta mái og átta sig ekki alveg á því, hvað er að gerast." Guðmundur Þórðarson hefur ekki stundað skattsvik — Þú hefur miklar efasemdir um þær tölur sem nefndar hafa verið um umfang meintra skatt- svika í fyrirtæki þínu, en segir jafnframt aö engar tölur liggi

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.