Helgarpósturinn - 09.01.1986, Qupperneq 16
BRÉF TIL RITSTJÓRNAR
Opiö bréf til
stjórnar NLFÍ
Þar sem það virðist augljóst að
stjórn NLFi ætlar að freista þess að
svæfa þær umræður sem átt hafa
sér stað manna á millum í kjölfar
greina í Helgarpóstinum þann 28.
nóvember sl. ætla ég að varpa fram
nokkrum spurningum, sem brenna
bæði á mér og öðrum, um hvernig
staðið var að „kosningu" þeirra full-
trúa NLFR (Náttúrulækningafélags
Reykjavíkur) sem- tryggðu Jóni
Gunnari Hannessyni og hans póten-
tátum áframhaldandi einræði um
öll málefni Heilsuhælis NLFÍ í
Hveragerði. Sjái Jón Gunnar
og/eöa hans medstjórnendur sér
ekki fœrt aö svara þessum
spurningum hljóta bœdi ég og adrir
að líta svo á að þessir menn hafi
engin svör við þeim og þar með fátt
til varnar sínum ,,sóma".
Til glöggvunar fyrir þá sem ekki
eru inni í þessum málum er rétt að
geta þess að bandalagsféiög NLFI
eru fjögur, þ.e. Náttúrulækningafé-
lag Reykjavíkur (NLFR), Náttúru-
lækningafélag Akureyrar (NLFA),
Náttúrulækningafélag Hafnarfjarð-
ar (NLFH) og Náttúrulækningafélag
Hveragerðis og Árnessýslu
(NLFHÁ). Þessi félög halda lands-
þing, sem nefnist Landsþing NLFI, á
tveggja ára fresti og er það þing
æðsta vald í öllum málum banda-
lagsins. Samkvæmt lögum NLFI á
hvert félag að senda einn fulltrúa
fyrir hverja 50 félagsmenn eða brot
úr 50 og eitt af hlutverkum þessara
fulltrúa á landsþinginu er að kjósa í
stjórn NLFÍ, sem síðan skipar menn
í rekstrarstjórn Heilsuhælis NLFI í
Hveragerði. Fyrir þá sem hafa hags-
muna að gæta með að vera einráðir
á heilsuhælinu er því brýnt að hafa
meirihluta fuiltrúa á sínu bandi. Á
síðasta landsþingi, sem haldið var
26. okt. sl. var lagður fram fulltrúa-
listi frá NLFR með 32 aðalfulltrúum
og öðrum 32 til vara, frá NLFA voru
4 fulltrúar en enginn frá NLFH og
NLFHÁ. Fulltrúalisti. þessi hefur
vakið verðuga athygli þeirra sem
eitthvað eru kunnugir málefnum
NLFÍ, bæði vegna þess hve fjöl-
mennur hann er, miðað við að
NLFR heldur ekki uppi neinu félags-
lífi og er þar af leiðandi ekkert nema
nafnið tómt og eins vegna merki-
legra mikilla fjölskyldutengsla á
milli fulltrúanna, sem flestir eru á
einhvern hátt meira og minna
tengdir eða skyldir Jóni Gunnari
Hannessyni, lækni á Heilsuhæli
NLFÍ. Ýmislegt virðist á huldu um
NLFR, t.d. hef ég verið að spyrjast
fyrir um hverjir séu þar í stjórn,
menn ýmist segjast ekki muna það
eða gefa mér upp einhver nöfn sem
ekki ber svo saman við þau nöfn
sem aðrir nefna og þykja mér þessi
svör dálítið einkennileg, svo ekki sé
meira sagt.
Þetta eina heilsuhæli okkar ís-
lendinga er þarfari og merkari
stofnun en svo að hægt sé að líða
átölulaust að þar fari alfarið með
völd menn sem hvorki hafa svo mik-
ið sem snert af ábyrgðartilfinningu
né sómatilfinningu og víla ekki fyrir
sér að falsa kosningar til að tryggja
sjálfum sér áframhaldandi einræði
um málefni hælisins. Ég, sem þessar
línur skrifa, kom þ'angað í október
1982, þá úrskurðuð 65% öryrki eftir
margar og stórar skurðaðgerðir og
hafði þá verið óvinnufær i 5 ár. Eftir
8 vikna dvöl og þá meðferð sem
stofnunin hefur upp á að bjóða var
ég útskrifuð og þá með þá bestu
heilsu sem ég nokkurn tíma hef
kynnst alla mína ævidaga. Tel ég því
mér málið skylt, því ekkert er dýr-
mætara en góð heilsa og svo sann-
arlega veit enginn hvað átt hefur
fyrr en misst hefur í þeim efnum og
heilsuhælinu og starfsfólki þess á ég
þess vegna allt gott að unna og vel
það.
Spurningar til „stjórnar“ NLFR:
1) Hverjir eru í stjórn og vara-
stjórn NLFR og hvernig skiptir sú
stjórn með sér verkum?
2) Eru stjórnarmenn á launum
eða hafa þeir einhver hlunnindi?
3) Hvaða fundir hafa verið haldnir
í NLFR árin 1983,1984 og 1985, á ég
þá bæði við félagsfundi og aðal-
fundi. Hvar, hvenær og hvernig
voru þessir fundir auglýstir og hvar
og hvenær haldnir og hve fjölmenn-
ir voru þeir?
4) Á hvaða fundi voru kosnir þeir
64 fulltrúar sem voru á fulltrúalista
NLFR á landsþinginu? Fengu þeir
allir kjörbréf eins og kveður á um í
lögum NLFÍ? Hvernig voru þeir boð-
aðir á þingið? Hver er ábyrgur fyrir
þessum „kosningum"?
5) Hve margir stjórnarfundir hafa
verið haldnir og hvar hafa þeir verið
haldnir?
6) Hefur „stjórn" NLFR haldið
fundargerðabók og er hún e.t.v.
eitthvert leyndarmál „stjórnarinn-
ar" og þá hvers vegna?
7) Hvað eru margir félagar í
NLFR?
8) Hver hafa árgjöld verið þessi of-
angreind ár og hvernig hafa þau
verið innheimt?
9) í skýrslu stjórnar NLFÍ á lands-
þinginu nú í október er talað um að
á vegum Reykjavíkurdeildarinnar
hafi verið farnar grasaferðir, fjalla-
grasaferð og að deildin hafi staðið
fyrir sveppatínslu. Þar sem ég sem
ritstjóri Heilsuverndar á að fjalla um
slíkar ferðir í málgagninu, þætti
mér vænt um að fá að vita hvers
vegna enginn hefur sagt mér frá
þessum ferðum. Hvert var farið og
hvenær og hve margir fóru? Hvar,
hvenær og hvernig voru þessar
ferðir auglýstar?
Spurningar til stjórnar NLFÍ:
1) Hverjir eru í stjórn og vara-
stjórn NLFÍ? Er nokkuð um ættar-
eða fjölskyldutengsl innan stjórnar-
innar?
2) Eru stjórnarmenn á launum og
þá hve háum?
3) Hafa einhverjir eða einhver
stjórnarmanna einhver hlunnindi
önnur, t.d. afnot af bifreið?
4) Hve margir stjórnarfundir hafa
verið haldnir og er haldin fundar-
gerðabók?
5) Hvernig skiptir stjórnin með
sér verkum? Mig langar alveg sér-
staklega til að vita hver er gjaldkeri.
6) Er það rétt sem Vilhjálmur
Ragnarsson tjáði mér í símtali núna
nýlega að NLFÍ hafi engar tekjur og
þurfi þess vegna ekki gjaldkera?
Hvaðan koma þá fjármunir til að
borga halla af útgáfu Heilsuverndar,
halla af happdrætti, halla af mat-
stofu, kostnað af landsþingi, kostn-
að við skrifstofurekstur með 1 'A
starfskrafti og opið 2 klst. á dag, að
ógleymdri bifreiðinni R-10723 sem
keypt var fyrir NLFÍ sl. sumar. Til
hvers er sú bifreið nauðsynleg og
hver hefur afnot af henni?
7) Er það rétt sem Jón Gunnar
Hannesson sagði mér að öll sérdag-
gjöld, þ.e. sá hluti dvalarkostnaðar
sem sjúklingar greiða sjálfir renni til
NLFÍ? Hve mikið er þetta árlega?
Vinningar í H.H.Í. 1986: 9 ákr. 2.000.000; 108 á kr. 1.000.000; 216 ákr. 100.000; 2.160 ákr. 20.000; 10.071 ákr. 10.000;
122.202 á kr. 5.000; 234 aukavinningar á kr. 20.000. Samtals 135.000 vinningar á kr. 907.200.000.