Helgarpósturinn - 09.01.1986, Blaðsíða 17

Helgarpósturinn - 09.01.1986, Blaðsíða 17
Og hver hefur með það fé að gera og hvernig er því varið? 8) Eru fundargerðabækur eitt- hvert leyndarmál eða af hverju má ég ekki fá þær í hendur til að taka saman grein um starfsemi heilsu- hælisins sl. 30 ár í tilefni af afmæli þess 24. júlí sl.? 9) Af hverju var fellt úr lögum NLFÍ það ákvæði sem segir til um hvernig fundir skuli boðaðir svo lög- mætt teljist? 10) Hvaö veldur að stjórnarmenn leggja með glöðu geði mannorð sitt og sinna að veði með því að falsa kosningar til að tryggja sjálfum sér óskoruð völd innan NLFÍ? Hvad hangir eiginlega á þeirri spýtu? Hug- sjón kannski?? Spurningar varðandi lands- þingið: 1) Hver setti þingið og hverja skip- aði sá aðili í kjörbréfanefnd? Voru allir fulltrúar með kjörbréf? 2) í hvaða nefndir var kosið og hverjir voru kosnir í þær? 3) Eru nefndamenn á launum eða hafa þeir einhver hlunnindi fyrir nefndastörf? 4) í skýrslu stjórnar er þess getið að allmargir fundir nefnda hafi ver- ið haldnir sl. 2 ár. Hvaða nefndir er hér verið að tala um, hverjir áttu sæti í þeim og hvaða mál hafa þess- ar nefndir verið að fjalla um? 5) f skýrslu stjórnar var þess einn- ig getið að Náttúrulækningafélagið hefði keypt fyrir tæplega 2 árum all- mikið bókasafn af Marteini Skaft- fells. Hvað var kaupverðið á þessu bókasafni og úr hvaða sjóði var það greitt? Hve margar bækur voru þetta og hvar eru þær geymdar? Hvers konar bækur voru þetta aðal- lega? 6) Hverjir voru kosnir endurskoð- endur NLFÍ? Og hverjir til vara? 7) Hvernig eru lagabreytingar kynntar félagsmönnum og hvernig eru þær bornar undir atkvæði þeirra? Spurningar varðandi rekstrar- stjórn heilsuhælisins: 1) Samkvæmt reglugerð nr. 452, dags. 29. desember 1978, á stjórn NLFÍ að kjósa 3 menn í rekstrar- stjórn og aðra 3 til vara. 2) Hvernig, hvar og hvenær var kosið í rekstrarstjórn HNLFÍ, hverjir eiga sæti í henni og hverjir eru vara- menn? 3) Hvernig skiptir þessi stjórn með sér verkum og hvar og hvenær var sá rekstrarstjórnarfundur hald- inn sem sú verkaskipting var ákveð- in á? 4) Heldur rekstrarstjórn fundar- gerðabók? 5) Hvers vegna hefur heilsuhælið verið yfirlæknislaust síðan 1. júlí sl. og stendur ekki til að ráða yfir- lækni? 6) Hvers vegna var hundsaður vilji starfsfólks hjúkrunarvaktar þegar ráðinn var nýr hjúkrunarfor- stjóri? Hvers vegna voru umsóknir um starfið ekki lagðar fyrir hjúkrun- arráð eins og á kveður um í lögum? Hverjar aðrar sóttu um en sú sem ráðin var? Hefur þessi nýi hjúkrun- arforstjóri nægilega menntun og starfsreynslu til að axla þá ábyrgð sem starfinu fylgir? 7) Eru þeir aðilar sem NLFÍ kaus í rekstrarstjórn öllum hnútum kunn- ugir innan veggja heilsuhælisins, koma þeir oft þangað eða vita þeir kannski lítið meira um stofnunina en að hún er í Hveragerði? er skammt undan ? HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings 8) Eru ákvæði í lögum NLFÍ um hvernig kjósa/skipa beri í þessa rekstrarstjórn? Hvernig hljóða þau ákvæði? Spurningar varðandi félags- líf í NLFHÁ: Með bréfi dags. 10. jan. 1980 er þeim félagsmönnum NLFÍ sem bú- settir eru í Árnessýslu tilkynnt að stofnað hafi verið Náttúrulækninga- félag Hveragerðis og Árnessýslu og þeim gert að víkja úr NLFÍ og ganga í NLFHÁ. Bréfið undirrita þáverandi forseti NLFÍ, Jóhannes Gíslason og lögfræðingur NLFI Ólafur Þorgríms- son. Jón Gunnar Hannesson hefur átt lögheimili að Dísastöðum í Sand- víkurhreppi í Árnessýslu síðan 1982, en er samt fulltrúi NLFR á landsþinginu. 1) Hvenær var NLFHÁ formlega stofnað og hvar var sá fundur hald- inn? 2) Hverjir eru í stjórn og vara- stjórn og hvernig skipta þær stjórnir með sér verkum? 3) Hve margir félagsmenn eru í NLFHÁ, hver eru félagsgjöld og hvernig eru þau innheimt? 4) Hvar og hvenær hafa verið haldnir fundir í NLFHÁ og hvar og hvernig hafa þeir verið auglýstir? 5) Hvaða grasa- og fjallagrasa- ferðir Hveragerðisdeildarinnar er verið að tala um í skýrslu stjórnar NLFÍ á landsþinginu? Hvert voru þessar ferðir farnar og hvenær, hvar og hvernig voru þær auglýstar og hve margir fóru? Það skal tekið fram að ég er ekki að spyrja um árlega grasaferð starfsfólks heilsuhælisins. 6) Ef NLFHÁ hefur aldrei verið formlega stofnað ellegar hefur ver- ið svæft á sama hátt og NLFR er Jón Gunnar Hannesson þá yfir höfuð félagsmaður í NLFÍ frekar en aðrir sem lögheimili eiga í Árnessýslu?? Ef svo er afhverju var hann þá ekki rekinn úr félaginu eins og aðrir Ár- nesingar? Með þeirri virðingu sem sæmir Jóni Gunnari Hannessyni og með- stjórnendum hans. Guðrún Jóhannsdóttir ritstjóri Heilsuverndar, málgagns NLFÍ P.S. Rétt þegar ég hafði lokið að semja þetta ofangreinda opna bréf til stjórnar NLFÍ, hringdi til mín Vil- hjálmur Ragnarsson og spurðist fyr- ir um væntanlegan útkomutíma síð- ara heftis Heilsuverndar á þessu ári. Ég tjáði honum að efnið væri að mestu tilbúið, en mig vantaði, auk smápistils sem Jón Gunnar Hannes- son hefði ætlað að skrifa og ég hefði beðið hann um fyrir um það bil 6—8 vikum, grein þá sem ég hefði beðið Friðgeir Ingimundarson, fram- kvæmdastjóra heilsuhælisins, um að skrifa í tilefni af 30 ára afmæli hælisins 24. júlí sl., en Friðgeir hefði nú haft á að giska 8 mánuði til að berja saman þá grein, og ekki væri hún enn komin. Ég sagði Vilhjálmi að ég gæti sem hægast skrifað þá grein sjálf upp úr gömlum fundar- gerðabókum, en þær virtust mér sem ekki lægju á lausu hjá þeim. Hann svaraði því til að þær væru nú margar og kvaðst skyldu reka á eftir Friðgeir með greinina (allt til að tryggja að ég komist ekki í fundar- gerðabækurnarl). í þessu símtali tjáði hann mér líka að þeir vildu rit- skoða Heilsuvernd áður en hún yrði prentuð og veit ég ekki betur en rit- skoðun hvers konar sé brot á lögum. Hvers vegna ætli menn vilji nú rit- skoða blaðið? Það skyldi þó ekki vera til að koma í veg fyrir að ég fari að lögum NLFÍ, en í 28. gr. síðustu málsgrein segir svo: „Útdrátt úr þingfundagerðum bandalagsins og úr aðalreikningum skal birta árlega i tímariti þess“. Landsfundurinn 28. okt. sl., svo og listinn yfir fulltrúa NLFR, og svo kannski reikningarnir, eru líkast til eitthvað sem ekki þolir dagsins ljós! Ég yrði ekki hissa þótt menn með einhverjum ráðum reyndu að sjá til þess að þetta afmælisblað hælisins komist ekki út undir minni umsjá fyrst ég er með það á heilanum að lög NLFÍ séu eitthvað sem stjórn NLFÍ beri að virða og fara eftir! Með sömu virðingu og að ofan, Guðrún

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.