Helgarpósturinn - 09.01.1986, Page 18

Helgarpósturinn - 09.01.1986, Page 18
eftir Jóhönnu Sveinsdóttur mynd Jim Smart Lággeng janúarsólin brýst fram úr gráum skýjabökkum og skapar myndatökuskilyrði fyrir eftirfarandi hersingu sem hleypur eftir háskólalóð- inni: fremstur fer Jón Bragi Bjarnason, nýsettur prófessor í lífefnafrœði við Háskóla Islands, stœltur og hávaxinn, í dökkbláum íþróttagalla með hvít- um röndum — alveg í stíl við Esjuna í baksýn; nœstur skeiðar Jim Smart Ijósmyndari, ekta tjalli með öfugan sixpensara í grænum kakífötum sem renna saman við frostbitið grasið í augum þeirrar sem aftast hleypur en það er tilreykt blaðakona í gráyrjóttri, ökklasíðri ullarkápu og bleikum stígvél- um, semsé heldur óhentugum skokkbúnaði. Hún þurfti að hafa sig alla við að stoppa af hvumsa háskólanema á gangi og úrilla R-, X- og E-bílstjóra svo að þeir grugguðu ekki myndflötinn. Hvað gerir maður ekki íþágu raun- vísinda og blaðamennsku? Með fullri virðingu fyrir þeim ensímrannsóknum sem Jón Bragi stundar til framgangs hátækniiðnaðar á vinnustofu sinni í Raunvísindadeild Há- skólans, þá þótti okkur Jim hann skemmtilegra myndefni skokkandi en rýnandi í tilraunaglös, fyrst við höfðum ekki rœnu á að smella af honum stuðmynd á nýársfagnaði '68 kynslóðarinnar um daginn. Fyrir utan að stunda skokk, kennslu og rannsóknarstörf í þágu HÍog þar með þjóðarinnar allrar lætur Jón Bragi ekki deigan síga í félagsmálum: hann hefur um nokkurt skeið verið formaður í Félagi háskólakennara og á síðasta landsfundi Bandalags jafnaðarmanna var hann kjörinn í lands- nefnd þess. Að afstaðinni myndatöku skeiðum við upp í raunvísindahúsið á bak við Háskólabíó og köst- um mæðinni á skrifstofu Jóns Braga. t>ar sem bæði hann og blaðamaður voru í þeim 500 manna hópi sem skemmti sér undir merkjum '68 kynslóðarinnar í Þjóðleikhúskjallaranum á nýárskvöld þar sem illa gekk að skilgreina hana öðruvísi én í hálfkæringi — að þrír af hverjum fimm gengju til sálfræðings en hinir tveir væru sálfræðingar og að líkast til mætti rekja róttækni hennar norður til Akureyrar fremur en Parísar — liggur beint við að spyrja Jón Braga sem út- skrifaðist úr MR ’69 hvort hann telji að þessi kyn- slóð eigi sér einhvern samnefnara. „Nei, ég held að hann sé ekki til, fólkið sem henni tilheyrir er svo margbreytilegt," svarar Jón Bragi af raunvísindalegri yfirvegun. ,,En í upphafi árs ’86 á þetta fólk það sameiginlegt að líta aftur og minnast þessa tíma. Það er mjög ánægjulegt að hitta þetta fólk aftur, umfaðma það og rifja upp gamlar minningar. En slíkt eiga allar kynslóðir sameiginlegt. Þótt þetta fólk hafi gengið í gegnum svipaða reynslu á sínum tíma á það sér ekki sameiginleg markmið eða lífsvið- horf í dag. Aftur á móti horfist það í augu við svipuð vandamál sem eru fyrst og fremst þjóðfé- lagsleg, eins og háir vextir og lítið fjármagn til húsbygginga.” Kannski dálítið forpokaður — En nú var margvíslegt umrót á þeim árum sem þú gekkst í menntaskóla. Áttirdu þér ein- hver átránaöargoö eöa fyrirmyndir t.a.m. í póli- tíkinni eöa poppinu? ,,Ég held ekki. Ég hef alltaf verið mjög á varð- bergi gagnvart átrúnaðargoðum og tísku- straumum. Að því leytinu til er ég kannski dálít- ið forpokaður. Ég hef t.d. aldrei látið hár mitt vaxa, hef alltaf verið með þá hárlengd sem ég er með í dag. Ég hef aldrei látið hafa mig út í elt- ingarleik við ytri búning. Vissulega var ég mjög hrifinn af Bítlunum, Bob Dylan og Simon og Garfunkel, og frá því að ég var táningur var Kennedy í miklu uppáhaldi hjá mér. En ég man ekki eítir neinum átrúnaðar- goðum nema þá einna helst Jóni Sigurðssyni forseta sem ég hef alltaf verið hrifinn af.“ — Þú hefur semsé aldrei gengið um í blóma- mussu með perlufestar og kyrjað lög ár Hárinu? „Nei, ég fór aldrei þá leið. En flestir af vinum mínum, sem nú eru t.d. orðnir alþingismenn og forstjórar Hagkaups, voru komnir með sítt hár, en ég lét aldrei leiða mig svo langt." í ljós kemur að Guðmundur Einarsson alþing- ismaður er besti vinur Jóns Braga og hefur verið allt frá því að þeir kynntust kornungir í Kópa- voginum, en af öðrum menntaskólafélögum má nefna Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaleik- stjóra, Sigurð Pálsson skáld, ingólf Margeirsson ritstjóra HP, Jón Ásbergsson forstjóra Hagkaups og Vilmund heitinn Gylfason. Og Jón Bragi tek- ur til við að rifja upp eitt og annað sem þeir fé- lagar brölluðu á menntaskólaárunum, til dæmis þegar þeir unnu saman við gerð kvikmyndar- innar Rauða skikkjan eitt sumarið. „Við kölluðum hana alltaf skandalfilmuna Hagbarð og Signýju,” segir Jón Bragi hlæjandi. „Við réðumst í þetta fjórir félagar, ég, Hrafn, Þorvaldur, bróðir Krumma, Siggi Páls og Ingó. Þetta var mjög skemmtilegur tími, gaman að kynnast því hvernig kvikmynd er sett saman. Fyrst vorum við í því að smíða leikmyndirnar og síðan fengum við statistahlutverk. Þetta sumar var ýmislegt brallað. Mér er það minnisstætt þegar við fórum til Húsavíkur til að skemmta okkur. Þá kom þar upp afar athyglis- verður smábæjarrígur. Okkur var mjög illa tek- ið, sérlega þegar einn úr hópnum kynntist stúlku á Húsavík. Það þótti Húsvíkingum óþol- andi og eftir ballið var ráðist á okkur og átti að drepa þann sem hafði kynnst stúlkunni og vang- að við hana. Þá var kallaður til Gunni nokkur kýló og átti hann að kýla viðkomandi afbrota- mann. Ég reyndi að stilla til friðar og hann lét höggið vaða á viðkomandi sem vék sér undan svo ég fékk höggið á kjaftinn fyrir bragðið. Af þessu sést hvað maður ber lítið úr býtum þegar maður er að stilla til friðar. . ." Þegar Hrafn G. ætlaði að fífla Jón Braga. . . Og Jón Bragi heldur áfram með söguna: „Skömmu síðar ákváðu Ingó og Krummi að hætta sér aftur á ball til Húsavíkur en ég, Siggi og Þorvaldur urðum eftir. Þegar þeir eru farnir kemur kennari frá Laugum, þar sem við gistum, og spyr hvar hann eigi að sofa. Við vissum það nú ekki svo ég gekk úr rúmi fyrir hann. Um nótt- ina heyrum við að Hrafn og Ingólfur nálgast staðinn — það mátti heyra langar leiðir — og sem þeir labba inn ganginn heyrum við að Hrafn öskrar: „Komum og fíflum Jón Braga!” Hrafn fer inn í herbergið þar sem ég hafði verið vanur að sofa og fer með höndina ofan í svefn- poka hjá kennaranum sem sneri sér upp að vegg, hversu langt hann fór veit ég ekki. En maðurinn vaknar, öskrar upp og snýr sér við og þegar Hrafn sér að þetta er „vitlaus” maður öskrar hann upp líka. Við hinir heyrum þessar rokur og báðir voru þeir jafn skelfingu lostnir, kennarinn og Hrafn Gunnlaugsson. Otal slíkar sögur gæti ég sagt en til að vernda þá seku held ég að best sé að láta staðar numið,” segir Jón Bragi og við hættum þessu ábyrgðarlausa hjali. Af einhverjum ástæðum er blaðamanni ekki grunlaust um að Jón Bragi hafi ef til vill verið ábyrgðarfyllri á þessum árum en ofannefndir fé- lagar hans og spyr hann því hvort verið geti að hann hafi hlotið meira aðhald á uppvaxtarárun- um en þeir. „Kannski það,“ svarar Jón Bragi. „Barnæska mín var sérkennileg að því leyti að um tíma ólst ég upp erlendis, bjó í þrjú ár erlendis ásamt for- eldrum mínum og gekk bæði í breskan og franskan skóla. Þar kynntist ég meiri aga en ís- lensk börn eiga að venjast. Það var erfitt að koma tvívegis inn í nýjan bekk í útlöndum, skilja ekkert og geta ekkert. En það var jafnframt mjög skemmtilegt og gagnlegt. í báðum skólun- um höfðu refsingarnar og aginn mikil áhrif á þann sem kemur frá íslandi, en refsingarnar voru með ólíku móti. í Bretlandi var sérstök refs- ing við hverju broti. En Frakkar aftur á móti refsa eftir tilfinningu hverju sinni. Einhvern tím- ann hafði einhver sem fór í taugarnar á kennar- anum ekki lært heima. Kennarinn gerði sér lítið fyrir og boxaði hann fyrst í magann, sló hann því næst utanundir, tók hann svo upp á eyrun- um, dró hann út að hurðinni og sparkaði honum út. Eftir þetta var svo sem skiljanlegt að ég léti lítið fyrir mér fara í skólanum.” Þar fyrir utan dvaldist Jón Bragi í Bandaríkj- unum árið eftir landspróf ásamt foreldrum sín- um, Rósu Guðmundsdóttur og Bjarna Braga Jónssyni, núverandi seðlabankastjóra, og þang- að hélt hann svo til doktorsnáms í lífefnafræði að afloknu BS-prófi hér heima, ásamt konu sinni Guðrúnu Stefánsdóttur kennara og ungri dóttur. Jón Bragi segist hrifinn af Bandaríkjunum og að íslendingar geti marga lærdóma af þeim dregið „Við fórum út með allt hafurtaskið, grammó- fóninn og plöturnar. Keyptum okkur bíl í Chicago og keyrðum vestur til Colorado. Annan dag ferðalagsins bilaði bíllinn úti á þjóðvegin- um. Ég var nýlega búinn að sjá Godfather og hélt að nú kæmi Mafían og murkaði úr okkur líf- ið og stæli okkar verðmæta grammófóni og ís- lensku plötunum. En þess í stað kom afar elsku- legt fólk og hjálpaði okkur. Síðan vorum við í Colorado í fjögur ár og á þeim tíma eignuðumst við aðra dóttur. Þetta var afar skemmtilegur tími. Ég held að geysilega mikilvægt sé að fá tækifæri til að fá að búa er- lendis í svo langan tíma, að kynnast öðrum þjóð- um verulega mikið. Það unga fólk sem kemur heim með slíka reynslu er farið að hafa gífurleg áhrif á íslenskt þjóðfélag. Þegar ég hóf framhaldsnámið þekkti ég Bandaríkin yfirborðslega en samt leið mér voðalega illa fyrstu mánuðina. Þegar við höfð- um verið þar í tvo mánuði og komið fram í nóv- ember hafði verið sólskin allan tímann og ég var alveg að gefast upp á þessari sól og farinn að óska eftir suðaustan átt með almennilegri rign- ingu. En þetta er allt annar heimur en sá sem við ís- lendingar þekkjum og líka allt annar en Islend- ingar almennt halda. Ég er þeirrar skoðunar að eitt af þeirra höfuðvandamálum sé hvað þjóðfé- lagið er hvikult, fólk flytur mikið innan Banda- ríkjanna og því er stórfjölskyldan gjörsamlega niðurbrotin. Það er í mesta lagi kjarnafjölskyld- an sem upp úr stendur. ÖIl vandamál sem upp koma verður að leysa innan hennar, ellegar leita til sál- eða félagsfræðinga. Hér er aftur á móti hægt að leita til fjölskyldu og vina. Okkar land er svo lítið að ósennilegt er að slík vandamál komi upp hér.“ Umferðarmenningin sýnir þjóðfélagið í hnotskurn — Sástu ísland í nýju Ijósi þegar þú komst heim aftur? „Já, verst að maður skyldi ekki hafa skráð niður og skilgreint allt sem fyrir augu bar, því flestir gleyma slíku á nokkrum mánuðum. Ég las t.d. nýverið viðtal við Sigurð Guðmundsson krabbameinssérfræðing þar sem hann lýsir ánægju sinni yfir að vera kominn heim og hvað íslendingar séu fallegt fólk. Þetta er tilfellið, þeg- ar maður kemur að utan sér maður þetta fal- lega, heilbrigða fólk. Eitt er það sem slær mig alltaf þegar ég kem heim frá Bandaríkjunum og það er umferðar- menning íslendinga sem segir kannski meira um þjóðina en virðast kann í fyrstu. Hún er svo frumstæð og lýsir vissum hroka, vissu brjálæði í þjóðinni. Þar kemur fyrst og fremst fram tillits- leysi gagnvart öðrum. Tillitssemi er aftur á móti áberandi í Bandaríkjunum. Ég held að íslensk umferðarmenning sýni margt annað í þjóðlífinu í hnotskurn. Umferðin í efnahagslífinu er álíka brjáluð og bílaumferðin.” Eftir að Jón Bragi kom heim með doktorspróf- ið upp á vasann í árslok '77 hóf hann þegar kennslu í lífefnafræði við Háskólann, fyrst sem lektor, þá dósent og tók svo við prófessorsstöðu Sigmundar Guðbjarnasonar þegar hann tók við rektorsembætti á síðastliðnu ári. En nánar til- tekið er starf háskólakennara skilgreint sem 47'/2% kennsla, 12 '/2% stjórnunarstörf og 40% rannsóknarstörf! Síðastliðin ár hefur Jón Bragi starfað að mikilvægum líftæknirannsóknum sem felast einkum i því að vinna efni, einkum ensím, úr fiskúrgangi og öðrum lífrænum hrá- efnum. Bæði er að þessi ensím geta verið afar mikilvæg í atvinnulífinu, ekki síst í fiskiðnaði; þau eiga væntanlega eftir að gera ýmsa þætti fiskvinnslunnar mun hagkvæmari en nú er, t.d. roðflettingu og flökun. Þar fyrir utan er allt útlit fyrir að ensímin sjálf geti orðið afar dýrmæt út- flutningsvara. „En grundvallaratriðið er," segir Jón Bragi, „að ef við beitum ekki þessari nýju tækni þá verður fiskiðnaðurinn, sem er okkar grundvall- aratvinnuvegur, ekki lengur samkeppnishæfur, t.d. við norskan og kanadískan fiskiðnað. Því verðum við að beita okkur í þessu máli. Við fengum núna loksins mjög vænan ríkisstyrk til að stunda þessar rannsóknir í þrjú ár. Þetta er stórt verkefni sem tvær háskólastofnanir, Raun- vísindastofnun og Líffræðistofnun, og tvær stofnanir utan Háskólans, sem eru Rannsóknar- stofnun fiskiðnaðarins og Iðntæknistofnun, starfa saman að. Það er jafnframt nýjung að Há- skólinn og rannsóknarstofnanir atvinnuveg- anna skuli starfa saman á þennan hátt.“ — Nú felst nœr helmingur af starfi háskóla- kennara t því að fást við rannsóknir. Telurðu að

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.