Helgarpósturinn - 09.01.1986, Side 21
málaráðuneytis var sett á laggirnar
á sínum tíma til að leggja drög að
reglugerð við nýju útvarpslögin sem
m.a. kveða á um frjálsan útvarps- og
sjónvarpsrekstur. I þessari nefnd sat
m.a. Baldur Guðlaugsson lög-
fræðingur Ríkisútvarpsins. Nýlega
birti nefndin niðurstöður sínar og
varð uppi fótur og fit meðal áhuga-
manna um frjálsan útvarps- og sjón-
varpsrekstur, því í ljós komu ýmsir
annmarkar og ákvæði um slíkan
rekstur sem gerðu hann nær
ómögulegan. M.a. var að finna
ákvæði um leyfisgjald sem tók mið
af höfðatölu hlustunarsvæðis, eins
konar nefskatt sem miðaði við
fjölda íbúa en ekki hlustenda, og
önnur viðurlög sem gerðu áhuga-
mönnum um útvarpsrekstur mjög
erfitt fyrir. Nýskipuð útvarpsréttar-
nefnd undir formennsku Kjartans
Gunnarssonar, formanns Sjálf-
stæðisflokksins, greip hins vegar í
taumana og fjarlægði ákvæðið um
leyfisgjald, og önnur ákvæði munu
vera á leiðinni í ruslakörfuna svo til-
vonandi útvarpsstöðvaeigendur og
forsvarsmenn sjónvarpsstöðva anda
nú léttar og sjá grilla í frjálst útvarp
og sjónvarp á nýjan leik. ..
rjálst útvarp er mikið í deigl-
unni. Við heyrum að DV-menn séu
ekki aðeins staðráðnir í að reisa út-
varpsstöð heldur séu þeir einnig
ákveðnir að reisa sérstakt hús undir
slíka stöð. Nú hefur Frjáls fjölmiðlun
— útgáfufyrirtæki DV — verið að
svipast eftir hentugri lóð á Réttar-
hálsi sem góðri staðsetningu fyrir
Reykjavíkursvæðið hvað útsending-
arskilyrði varðar. Við heyrum einn-
ig að teikningarnar séu að komast á
teikniborðið...
W ið höfum það eftir leigubíl-
stjórum að ölvun meðal ökumanna
hafi verið áberandi á gamlársnótt.
Þá heyrum við að óvenjulega lítið
hafi verið um eftirlit lögreglu þessa
nótt. Eina skýringu höfum við heyrt
sem gæti verið skýring á afskipta-
leysi lögreglumanna þessa mestu
drykkjunótt landans. Þannig er
nefnilega mál með vexti, að ungl-
ingaball mikið var haldið í Laugar-
dalshöll á gamlárskvöld. Var húsið
fullt og stórir hópar unglinga söfn-
uðust saman fyrir utan húsið að
loknum dansleik. Það hefur áður
tíðkast þegar svipaðir unglinga-
dansleikir hafa verið haldnir í Laug-
ardalshöll að sérstakar rútuferðir
hafa verið fyrir krakkana svo þau
kæmust heim til sín heilu og höldnu.
Þessa umræddu nótt var ekki um
neina slíka þjónustu að ræða og
höfðu unglingarnir iítil peningaráð
til að taka leigubíla enda lítið um þá
hvort eð var. Brá þá lögreglan á það
ráð að aka unglingunum heim og
fór stór hluti lögregluflotans í þessa
flutninga svo lítið varð um hefð-
bundin löggæslustörf. Það ber að
virða framtakssemi lögreglunnar í
slíkum unglingaferðum en samt.. .
FRAM
TOLVU SKOLI
A'm
Ny namskeið að hef jast
//6
Od
j tilefni af 3ja ára afmæli skólans hefur stjórn skólans ákveöiö aö bjóöa almenningi
upp á ódýr kvöldnámskeið sem standa yfir í 4 kvöld. Fariö er í helstu þætti tölva
og tölvuvinnslu.
Veröiö á þessum námskeiöum er 2.950.-
Næstu dagnámskeið skólans hefjast 13. janúar í: Ritvinnslu II
Hugrita/Hugsýn
Ópus
Multiplan
Ath. nýr skrifstofutími skólans er 9:00 til 17:00.
Símar 91- 39566 og 91-687434
Tölvunám er fjárfesting í framtíð þinni
Tölvuskólinn Framsýn hf.
NÝJA LÍNAN
• Getum nú boðið gæðahurðir frá Svenska Dörr.
• Hurðirnar fást í mörgum gerðum, í furu hvít-
málaðar og spónlagðar.
• Gott verð og góðir greiðsluskilmálar.
HARÐVIÐARVAL HF.
Krókhólsi 4, Reykjavík Sími 671010
FYRIR
KONUR
Eykur starfsorku
Eykur andlegt atgervi
Eykur jafnvægi
Hjálpar konum á
breytingaaldri
Náttúrulækningabúðin hefur selt Melbrosia í
fjölda ára og á því tímabili hafa þúsundir kvenna
haft verulegt gagn af því til að auka starfsþrek
sitt og hæfni - til þess að takast á við lífið. Mel-
brosia hefur einnig hjálpað miklum fjölda
kvenna sem tekið hefur það inn á meðan breyt-
ingaaldurinn hefur gengið yfir. Þakklæti þeirra
hefur oft glatt okkur innilega. Það er og stað-
reynd að ýmis óþægindi sem fylgja gjarnan
breytingaaldrinum hafa horfið eins og dögg fyrir
sólu við daglega inntöku á Melbrosia.
En hvað er þetta Melbrosia mundi einhver sjálf-
sagt vilja spyrja.
Melbrosia samanstendur af tveim mikilvægum
efnum úr ríki náttúrunnar - frjódufti og Royal
Jelly.
Frjóduft er hreint og náttúrulegt „Pollen"
(blómafrjó - blómafræflar) unnið úr hunangskök-
um (honeycombs). Það er talið betra en frjó sem
unnið er beint úr blómum - vegna þess að það
hefur umbreyst á eðlilegan hátt i býflugnabúinu.
Þetta sérstaka frjóduft er þekkt undir nafninu
„Bee Bread".
Royal Jelly er umbreytt pollen sérfæði býdrottn-
ingarinnar. Lífaldur hennar er margfaldur aldur
annarra búflugna í búinu. Þegar býdrottningin
er upp á sitt besta framleiðir hún allt að 5000
egg á dag. Því er hún alin á þessu kraftmikla
tæði - Royal Jelly.
Náttúrulækningabúðin,
Laugavegi 25, símar: 10262/3 Heildsala Smásala Póstkröfur
HELGARPÓSTURINN 21