Helgarpósturinn - 09.01.1986, Qupperneq 28
Á undanförnum árum
hafa sífellt fleiri Islend-
ingar orðið þeirrar vafa-
sömu lífsreynslu aðnjót-
andi að verða skilnaðar-
börn. Það hlýtur alltaf að
vera nokkurt áfall fyrir
börn þegar foreldrar þeirra
skilja, þó sú reynsla mark-
ist auðvitað af aðstæðum í
hverju einstöku tilviki.
Helgarpóstinum þótti for-
vitnilegt að kanna afstöðu
nokkurra uppkominna
skilnaðarbarna og kynnast
því hvaða áhrif skilnaður-
inn hafði á þau þegar
hann átti sér stað og hvort
um einhver langtímaáhrif
af þessari þolraun hafi
verið að ræða.
„ÞAU VISSU HVAR MIG
VAR AÐ FINNA, EF ÞAU
VILDU RÆÐA MÁUÐ."
„Foreldrar mínir skildu nú ekki
fyrr en ég var orðin uppkomin og
flutt að heiman, svo þetta snerti mig
ekki á sama hátt og ef það hefði
skeð á meðan ég var krakki. Eg var
búsett í útlöndum á meðan þetta
gekk allt saman yfir og ég get tæp-
ast sagt að ég hafi fundið neitt fyrir
þessu, þó mér hafi að sjálfsögðu
brugðið við fréttirnar í upphafi.
Þetta kom mér vissulega á óvart.
Skilnaðurinn gekk hins vegar
mjög ljúflega fyrir sig. Engin leið-
indi, æsingur eða vesen. Auðvitað
er fyrsta árið alltaf erfitt fyrir hjón
sem eru að skilja, hvað sem farið er
stillilega í þetta, en þá vorum við úti
í London svo eini munurinn fyrir
mig var sá að þegar ég kom heim
áttu foreldrar mínir tvö heimili í
staðinn fyrir eitt. Það er líka mjög
gott samband á milli foreldra minna
og engin vandræði í kringum fjöl-
skylduboð eða slík mannamót.
Þetta er eiginlega eins farsælt og
svona hlutir geta yfir höfuð verið.
Það urðu allir mjög undrandi þeg-
ar pabbi og mamma skildu, því það
hafði aldrei hvarflað að neinum að
þetta ágæta hjónaband ætti eftir að
slitna. En það var langt því frá að
maður léti sér detta í hug að reyna að
hafa áhrif á þau. Það er alltaf til
vandræða þegar aðrir reyna að
blanda sér í einkamál. Þau vissu
hins vegar hvar mig var að finna og
ég var vissulega tilbúin að ræða
þetta við þau, hefðu þau haft þörf
fyrir það. Þegar fólk hefur verið gift
jafnlengi og foreldrar mínir höfðu
verið, hlýtur það að taka sér langan
tíma áður en það kemst að þeirri
niðurstöðu að slíta sambúðinni."