Helgarpósturinn - 09.01.1986, Blaðsíða 30

Helgarpósturinn - 09.01.1986, Blaðsíða 30
eftir Sigfinn Schiöth M HELGARDAGSKRÁVEIFAN Föstudagurinn 10. janúar 19.10 Döf. 19.20 Dönsk barnamynd um það hvernig drengur í Bhútan eignast gleraugu (og sér síðan til. . .) 19.50 Fingramál. 20.00 Ingvamál. 20.40 Kastljós. Ólafur Sigurðsson sýnir okk- ur það sem er efst á baugfingri sín- um... 21.10. Skonrokk: Get ekki labbað burt og öll hin lögin landsmanna rifjuð upp. .. 22.10 Tappert spennir á sig bílbeltið. Og fattar morð. 23.10 Seinni fréttir (ef ske kynni aö menn hefðu gleymt þeim fyrri). 23.15 Ást og kvöl (Love and Pain and the Hole Damned Thing). ★★ Bresk bíó- mynd frá 1972. Leikstjóri Alan J. Pakula. Aðalleikarar Maggie Smith, Timothy Bottoms og Charles Baxter. Sjálfsagt ein slakasta mynd Pakula, kemur næst á eftir þeirri frábæru Klute og undan The Parallax View sem var ekki síðri. í samanburöi við enn aðrar myndir Pakula eins og All The President's Men og Sophie's Choice fölnar Ást og kvöl nokkurn- veginn alveg, þrátt fyrir sæta sögu og hörkuleik Smith sem fær þó bjargað mörgu í rullu fertugu konunnar sem dregur ungling á tálar í hópferð um Spán og svo framvegis.. . 01.10 Ingvi Hrafn og Hrafn krunka úti. . . Laugardagurinn 11. janúar 14.45 Leicester — West Ham. Rammskökk sending frá Bjarna Fel yfir á hægri kant með þeim afleiðingum að línu- vörðurinn gufar upp. 17.00 íþróttir McFel sýnir knattleiknina í sjónvarpssal. 19.20 Búrabyggð. Jim Henson að teygja lopann. 19.50 Táknmálið. 20.00 Ritvélahljóð — Skökk frétt — Smá- mistök — Veðurfræðingurinn finnst ekki — Ritvélahljóö — Tjaldið fellur - Hlé. 20.35 Staupasteinn. Þessi þrettándi þáttur framhaldsmyndaflokksins er bland- aður beint frá heimili dómsmálaráð- herra með nauðsynlegum hléum þeg- ar Jón fellur emjandi í gólfið af hlátri. . .! 21.00 Cleo og John. Söngskemmtun meö þessum vinum vangalaganna. 21.55 Lou Spæjó (The Cheap Detective). ★★ Bandarísk sakamálagrínmynd frá '78. Leikstjóri Ray Stark. Aðalleikarar Peter Falk, Marsha Mason, Dom de Luise og Louise Fletcher. Svolítill svona renna á hýði/detta á rassinn-fíl- ingur í þessari annars sæmilegu af- þreyingu sem er miklu meira glens en nokkurntíma spenna. Ray Stark, lítt kunnur leikstjóri, leiðir hér fram á svið- ið margt feiki fyndinna leikara... 23.35 Palli Magg búinn að stimpla sig út og því engar fréttir. Sunnudagurinn 12. janúar 16.00 Jesúsamía: Séra Sigurður Haukur Guðjónsson setur upp kristilegan svip og fleiri ef beðið er um. 16.10 Búskmenn í Kalaharíeyðimgrkinni! 17.05 Feim. Bandarískur endaleysu- flokkur. 18.00 Stundin okkar: Lubbi og önnur giska óþolandi kvikindi höfð fyrir framan vélina í hálftíma. 18.30 Endursýnt áramótaefni endursýnt og svo aftur að viku liðinni, en þá hægt og jafnvel afturábak.. . 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttaágrip á munnmáli. 20.35 Sjónvarp næstu viku. Guðmundur Ingi kynnir okkur framtíðarsýn stofn- unarinnar. 20.50 Heilsaö upp á fólk. Ingvi Hrafn sníkir kaffi og kökur hjá Guörúnu f Galtar- ey sem segir sögur.. . 21.20 Konsert með kínverskri þjóðlagatón- list í sjónvarpssal: Blístur, yfirlið og allt að verða vitlaust. 21.50 Blikur á lofti. 23.30 Þjóðsöngurinn. Stoltið brýtur sér leið upp augnhvarmana og fossar í tárum niður vangann. Fimmtudagskvöldið 9. janúar 19.00 Fréttir. 19.50 Daglegt mál. Gæinn sem var hérna í síðasta opnuviötali hreyfir kjammann. 20.00 Þjóð í stríði. Eitthvað um Afghanistan. 20.30 Jón Múli í Háskólabíói ásamt sinfón- íunni sinni. 21.20 Ljóð Einars Más í analýsingu. 22.20 Einsöngur í útvarpssal. 22.50 Endurtekin fyndni frá öðrum jóla. 23.25 Kammertónleikar. Loksins, eins og 3% segja. . . 24.00 Fréttir í dagskrárlok og svo áfram út nóttina enda er alltaf eitthvað að ske í sjálfu sér... Föstudagurinn 10. janúar 07.00 Múlinn spáir óveðri, R§tur leggst á bæn, fréttir. 07.15 Morgunvaktin. Hjalað milli laufléttra laga um daga. 09.05 Barnatími. Sniðug tímasetning! 10.40 Haddú hjótrúarfulli talar norðan frá Jónasi. 11.10 Óld-mens-keis, eða Málefni aldraðra eins og Þórir Ess Guðbergsson leyfir sér að kallaöa!!!!! 11.25 Rosalega þung klassík, svo þung að eyrun steingervast næstum hjá fólki með þunna snepla. . . 12.20 Hádegisfrétt af fullu fólki og því edrú líka. 14.00 Miðdegissagan. 14.30 Sveiflur Svera Páls. 16.20 Síðdegistónleikar. Hevví. 17.00 Vernharður Linnet passar börnin. 17.40 Úr atvinnulífinu eða því sem eftir er af því. 19.00 Kvöldfréttir. Kári Jónasar hristir skúbbin fram úr ermalausa bolnum sínum. 19.50 Deilý sprakkhe. 20.00 Ólög unga fólksins. 20.40 Kvöldvaka. 21.30 Atli Heimir rótar í plötusafninu sínu. 22.20 Kvöldtónleikar. 72 kg. 22.55 Svipmynd. Jónas með slæds-sjó í Fjölnisgötunni. 00.05 Djassþáttur. Múlinn með skyggnilýs- ingar á Skúlagötu. 01.00 Markús örn með stæla og slekk- ur á öllu saman. Eg mœli með Sjónvarp, laugardaginn 11. janúar, klukkan 20.35; Staupasteinn. Þessi þrettándi þátt- ur framhaldsmyndaflokksins verður bland- aður beint frá heimili dómsmálaráðherra með nauösynlegum hléum þegar Jón fellur emjandi í gólfið af hlátri. . .! Laugardagurinn 11. janúar 07.00 Þá byrjar gamaniö, enn einu sinni. 07.15 Jón Múli velur og kynnir Pésa Pés og öfugt. 07.30 íslenskir kórar með sólóum að æra mann. 09.30 Helga Þonn Stephens kynnir uppá- halds sjúklingana sína. 11.00 Ný viðhorf í fjölmiðlun. Einar Kristj- ánsson kveikir á nokkrum frjálsum stöðvum sem fuöra upp með det samme. 12.20 Hádegisfréttin mín. 13.50 Þá og Þegar. Fréttaþáttur um frétta- þátt. 15.00 Robert Stolz, Bobbý þið vitið.. . 15.40 Fjölmiðlun vikunnar. Svona skrif skömmuð. 15.50 íslensk mál, meira að segja mjög alvarleg mál. 16.20 Listagrip (deildir í Arnarnesinu). Kjar- val og soleiðis. 17.00 Saga frá Jerúsalem, þangað sem Jesú skrapp. 17.30 Orgelmjúsikk, „very sick indeed'' I presume. 19.00 Laugardagskvöldfréttirnar: Alltaf jafn spes. 19.35 Kalli, Siggi og össi frussa í hljóð- nemann í smástund. 20.00 Nikkuþáttur. Dibbi-dibbi-dibb- bambbamb. . .dibb. 20.30 Sögustaðir á Norðurlandi. Hrafnhild- ur Jóns gerir mikið úr smákotum og hallærislegum hjáleigum. 21.20 Vísnakvöld. Gísli blístrar Helgason í hálftíma. 22.20 Dóra í hnattferðinni sinni. 23.00 Danslög: Anna í Hlíð og öll hin. . . 00.05 Miðnætur-Marinósson. Jón örn disk- ar. 01.00 Nennir því (engan veginn) lengur. Sunnudagurinn 12. janúar 08.00 Morgunandakt! Billy Graham og Guð minn Almáttugur taka eina skák sam- an. 08.35 Létt morgunlög. Cliff og hinir strák- arnir. 09.05 Þung klassík. Bach og hinar stelpurn- 10.25 Fagurkeri á flótta. 11.00 Mezza. Jón dómsmála blandar á staðnum milli postullegrakveðja. Rétt er að vekja athygli á peysunni sem hann verður í, en hana kláraði hann í síðasta saumaklúbb. Geysilega skemmtileg gul slikja ( neðstu flétt- unni í kraganum, er samkvæmt hug- mynd Jóns sjálfs. 12.20 Fréttir af saumaskap hinna strákanna. 13.30 Armenía. . . 14.30 Um tónlistariðkun á fyrri hluta aldar- innar. 15.10 Frá íslendingum vestanhafs. 17. þátt- ur: Heimþrá. 16.20 Náttúruvernd í ísl. réttarskipan! 17.05 Síðdegisþyngsli. 19.00 Kvöldfréttir. 19.35 Milli rétta. Gunni Gunn með fráhvarfs- einkenni helgarinnar. 20.00 Stefnumót. 21.00 Ljóð og lag. 21.30 Útvarpssagan. 22.20 íþróttir. 22.40 Svipir. 23.20 Schutz. 00.05 Milli svefns og vöku. Hildur Eika fltlar við eyrnasnepla landsmanna uns þeir lyppast niöur. 00.55 Jón Múli stimplar sig út... kveöur húsvörðinn.. . og skokkar heim... Fimmtudagurinn 9. janúar 20.00 Vinsældalisti: Þulur velur og kynn- ir... 21.00 Dóttir Davíðs með gísl í hljóðveri... 22.00 Svavar stingur í sig endurskinsmerkj- um og hverfur raulandi út í myrkrið. . . 23.00 Fbppgátan: Spurt um brókarstærð Jimi Hendrix, lit og efni ásamt end- ingu. . . 24.00 Rás 2 og sjónvarp samtengjast með þeim hætti að grænni slikju bregður fyrir á austurhimni fram undir morg- un. Föstudagurinn 10. janúar 10.00 Morgunþáttur: Páll og Ásgeir blása á rykuga nálina án árangurs. 12.00 Suö. 14.00 Pósthólfið: Að þessu sinni hefur Valdís Gunnarsdóttir komist yfir allan póst Mezzoforte-strákanna til foreldra sinna á árabilinu 1979—1982 og mun hún lesa upp úr langflestum þeirra, auk þess að spila nokkur lög með kon- um þeirra.. .Intr-sant. 16.00 Léttir sprettir: Sonur Ólafs rekur ættir sínar aftur til Klírdens klírvoter og aft- ur heim á leið. 18.00 Suö. 20.00 Hljóðdósin í umsjón Ora K. Jónsson- ar. 21.00 Djass og blús. Venni gerir upp hug sinn. 22.00 Rokkrásin. Snorri og Skúli leiðrétta tímaritaþýðingarnar sínar. 23.00 Næturvaktin. Vigga og Togga leyft að vaka frameftir. 03.00 Rásarlok. Laugardagurinn 11. janúar 10.00 Timburmenn. Blöndal truflaður af fjölölvuðum hlustendum sem mega þó ekki vamm sitt vita. 12.00 Suðiö. 14.00 Svavar Gezz. .. 16.00 Lostamaís. Gunni Sal gefur uppskrift- ina. 17.00 Hringborðið. Þátttakendur taka hver undir sitt hornið og halda svo í sitt hvora áttina. 18.00 Suö. 20.00 Línur. Megrandi tónlist sett á fóninn. 21.00 Milli stríða. Gröndal spilar æsandi músík. 22.00 Bárujárn. Sverris sprengir hátalara- kerfin. 23.00 Svifflugur. Hákon í uppstreymi og öðru til. 24.00 Næturvaktin. Einar Gunnar Einarsson hressir upp í liðinu og kaffinu sínu um leið og hressist fyrir bragðið. 03.00 Braga-kaffið búiö. Sunnudagurinn 12. janúar 13.30 Salt í samtíðina. 15.00 DæVe. 15.50 íslandsmótið í handknattleik — 1. deild karla. Ingó kemst inn á úrslitaleik Vals og Vfkings á frímiða og lýsir illa drukknum áhorfendum. Úrslitin hvort eð er augljós. 52—14 Þrótti f vil. 16.30 Listinn. 18.00 Búið. Svæöisútvarp virka daga vikunnar: 17.03—18.00 Svæðisútvarp Reykja- víkur og nágrennis á FM 90,1 MHz. 17.03—18.30 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni á FM 96,5 MHz. ÚTVARP Lýst eftir ferskleika eftir Sigmund Erni Rúnarsson Á undanförnum vikum hefur sjónvarpið búið sig af kappi undir komandi sam- keppni við frjálsar einkastöðvar sem svo hafa verið kallaðar, án þess þó að menn geri sér grein fyrir því i hverju frelsi þeirra muni felast. Hvað um það. Ekki verður annað séð í sjónvarpi en að Eyjólfur sé ekki einasta að hressast heldur jafnframt að verða allt annar maður með meira sjálfs- traust, fleiri hugmyndir og það sem er hvað stórkostlegast, miklu áræðnari. Þetta á einkum við um fréttaflutninginn. Ingvi Hrafn er á réttri leið. Undir hans stjórn er fréttatíminn orðinn langtum at- hyglisverðari sem stafar meðal annars af meiri myndnotkun, hreyfingu og afdráttar- lausari framsetningu. Sjálfar fréttirnar, sem vonandi verða áfram aðalatriðið, eru áleitnari og beittari og nýrri. Ingvi Hrafn er fyrst og fremst fréttamaður þó maður fái auðvitað annað á tilfinninguna eftir hall- ærislega mörg viðtöl við frambjóðendur í síðasta prófkjöri borgaríhaldsins og annað í þeim dúr. Vitaskuld er enn langt í land að fréttatím- inn nái þeirri lipurð sem límir áhorfandann við inntak hans, en það ætlar maður að sé takmarkið. Margt þarf að lagfæra, til dæm- is að skerpa þessar dæmalausu fundafrá- sagnir sem eru miklu meiri afgreiðsla en forvitnilegar fréttir miðað við núverandi vinnslu. Og komast hjá pólitískum hliðar- sporum eins og því sem getið var um hér að ofan, ásamt efnismeðferð á borð við Hafskipsannál Óla Sig sem er náttúrlega ekki eyðandi frekari orðum á. Við það góða sem Ingvi Hrafn hefur gert fréttum sjónvarps, bætist svo þáttur Hrafns Gunnlaugssonar á dagskrárdeildinni. Koma hans þangað er sem ferskur and- blær. Þess varð þegar vart á fyrsta degi hans í starfi, að gömlu lausnirnar verða hér eftir látnar lönd og leið. Ef maður síðan get- ur ímyndað sér hvað komi frá jafn Ieiknum listamanni og Hrafni, greiðir maður næsta afnotagjaldið sáttur og hiklaust. Þetta er ekki sjónvarpspistill. Hann er hérna við hliðina. Þessi útvarpspistill er að meirihluta umfjöllun um sjónvarpið og augsýniieg viðbrögð þess við nýjum tím- um, af því að sá sem þetta skrifar hefur ver- ið að hugleiða það á síðustu dögum hvern- ig útvarpið hyggist svara samkeppninni frá frjálsum útvarpsstöðvum sem sjálfsagt fara að stjórnast af gorkúlulögmálinu á næstu mánuðum. Það er vont til þess að vita að útvarpið hefur lítið búið sig undir þann slag. í fljótu bragði fæ ég ekki munað eftir svo ferskri dagskrárhugmynd hjá útvarpinu síðasta misserið að hún sitji í mér. Ég und- anskil þar þó einn þátt að minnsta kosti, en hann er seint á sunnudögum og heitir Bet- ur sjá augu.. . Þar fjalla Magdalena Schram og Margrét Rún á frumlegan hátt um bókmenntir og aðrar listir. Framsetn- ing þessa þáttar er á allan hátt mjög einlæg og góð og hentar vel þeim tíma sem hann er sendur út á. Mér finnst einmitt vanta — stórlega vanta — svona efni sem hefur til að bera ferskleika, góða framsetningu og umfram allt kannski rétta tímasetningu. Þetta á ekki síður við um rásina en guf- una. Hugmyndafátækt virðist því miður einkenna hvorutveggja í þessu skammdegi og það er þeim mun agalegra sem nær líð- ur þeim tíma sem útvarpsréttarnefnd fer að úthluta leyfum sínum til frjáls útvarps- rekstrar. Þessvegna hvetur maður dag- skrárdeild útvarps til að fara að ráði sjón- varps. Og hrista af sér slenið. SJÓNVARP Spor í rétta átt Þegar breytingarnar á fréttatíma sjón- varpsins fóru smám saman að gerast fyrir framan nefið á manni og þessi dagskrárlið- ur tók að lifna við, tók maður eiginlega fyrst eftir því hvað fréttalesturinn og flutn- eftir Jónínu Leósdóttur ingurinn var orðinn staðnaður. Það er merkilegt hvað lítið þarf til að lífga upp á og setja nýjan blæ á fréttirnar — það nægir jafnvel að láta þuli snúa eilítið á skjön við kvikmyndatökuvélarnar. Mér finnst það lukkast vel að hafa myndir á heilum vegg fyrir aftan fréttamennina í takt við það sem um er fjallað hverju sinni og það sama má segja um „kvöldmyndina", sem um tíma hefur verið að baki þulanna. Sú nýbreytni að láta tvo aðila sitja og lesa fréttir til skipt- is, er einnig viss vítamínsprauta fyrir áhorf- endur, sem vanir eru að sitja og meðtaka sömu raddbrigðin allan hálftímann eins og hann leggur sig. Maður var hins vegar svo vanur að sitja með eyrun þanin við að fylgj- ast með inntaki þeirra mála, sem tekin voru fyrir og gagnrýna hlutina efnislega, að framsetningunni var minni gaumur gef- inn. Það er því gleðilegt að sjá að hin nýju vinnubrögð fela í sér betri og í raun sjálf- sagða nýtingu á þessum miðli, sem einmitt býður upp á hreyfingu og „augnayndi". Kvölddagskráin á föstudögum á einnig hrós skilið í byrjun nýs árs, svo maður haldi sig við jákvæðu hliðarnar til tilbreytingar. Fréttaskýringaþættirnir eru yfirleitt áhugaverðir og Skonrokkið vinsælt af þeirri kynslóð, sem það höfðar til — enda ku það sjást ljóslega á vinsældalista rásar 2 hvaða myndbönd voru í Skonrokkinu vikuna á undan. Þeir, sem áhuga hafa á þýsku löggunni fá síðan sinn vikuskammt, áður en sjónvarpssjúkir nátthrafnar setjast við að stara á bíómynd kvöldsins. Auðvitað reynast þær misjafnar, en viðleitnin til lengingar dagskrárinnar er samt sem áður spor í rétta átt. Var einhver að segja að blaðamenn væru alltaf neikvæðir? 30 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.