Helgarpósturinn - 09.01.1986, Síða 31

Helgarpósturinn - 09.01.1986, Síða 31
 ið upp hjá borgarráði. Sagan er þessi: Nýlega var auglýst laus staða vallarvarðar Laugardalsvallar. Þess- ari stöðu gegndi áður Baldur Jóns- son sem nú hefur látið af störfum. Þrír sóttu um stöðuna: Jón M. Magnússon aðstoðarvallarstjóri, Jónas Traustason, vallarstjóri Kópavogsvallar og Jóhannes Óli Garðarsson. Við fyrstu sýn virtist málið einfalt. Jón M. Magnússon hafði verið aðstoðarvallarstjóri í langan tíma og unnið á vellinum síð- an hann var strákur. Hann virtist því sjálfkjörinn í starfið. En málin eru sjaldnast einföld á íslandi. Þriðji um- sækjandinn Jóhannes Óli Garðars- son var nefnilega kosningasmali Júlíusar Hafstein í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins til borgarstjórnar. Og málið var tekið fyrir í íþróttaráði borgarinnar þar sem Júlíus Hafstein situr í öndvegi. Júlíus greiddi því smala sínum atkvæði og sama gerði Kolbeinn Pálsson. Jón M. Magnús- son fékk hins vegar þrjú atkvæði í íþróttaráði. Málið var sent áfram til borgarráðs þar sem því hefur verið frestað æ ofan í æ, og síðast í fyrra- dag. Málið er nefnilega þannig vax- ið í borgarráði að íhaldið þorir ekki að ganga til atkvæðagreiðslu um starfið sem komið er. Júlíus og hans menn þykjast vita að Kristján Benediktsson, Framsókn og Sigurjón Pétursson, Alþýðu- bandalagi munu greiða atkvæði með Jóni M. Magnússyni. Magnús L. Sveinsson mun hins vegar standa með Júlíusi og kó og kjósa Jóhannes Óla. Eftir eru þá sjálfstæð- iskonurnar Hulda Valtýsdóttir og Ingibjörg Rafnar. Hins vegar eru ekki miklar líkur á að þær kjósi Jóhannes Óla, kosningasmala Júlíusar Hafstein sem felldi þær báðar úr borgarráði og borgarstjórn í síðasta prófkjöri. Því fresta sjálf- stæðismenn ákvörðuninni aftur og aftur, sennilega í veikri von um að önnur eða báðar stöllurnar veikist, svo varamenn geti sest inn og kosið rétt og tryggt kosningasmalanum umbun verka sinna. .. ■ ú stendur yfir mikið stríð á milli flugumferðarstjóra annars veg- ar en Péturs Einarssonar flugmála- stjóra og Flugráðs hins vegar. í 5 manna Flugráði erum.a. þrír þing- menn, þeir Birgir ísleifur Gunn- arsson, Páll Pétursson og Skúli Alexandersson, sem eru kosnir í ráðið af Alþingi. Verksvið Flugráðs er að vera eins konar milliliður flug- málastjóra og samgönguráðuneytis- ins, vinna að áætlanagerð og öðrum mikilvægum málum varðandi stjórnun flugmála. Mætti því spyrja hvað framangreindir löggjafar hafa til brunns að bera, sem gerir þá hæfa til þess að sinna svo sérhæfð- um málum. .. lýlegar stöðuveitingar inn- an Háskóla íslands hafa beint at- hygli manna að því ólánskerfi, sem tíðkast við tilkynningar til umsækj- enda um stöður á þeim bæ. Hinn út- valdi fær vissulega fregnir af láni sínu um leið og ákvörðun hefur ver- ið tekin, en þeir umsækjendur, sem ekki hljóta hnossið, frétta oftar en ekki um stöðuveitinguna í fjölmiðl- um eða heyra um hana á skotspón- um. Finnst mönnum að viðhafa mætti einhvers konar lágmarks- kurteisi og senda öllum umsækjend- um tilkynningu samdægurs, hvort sem þeir hafa verið ráðnir eða þeim hafnað... MÁLASKÓLI □ □ □ □ □ □ □ □ Danska, sænska, enska, þýska, franska, ítalska, spænska og islenska fyrir útlendinga. Innritun daglega kl. 13—19. Kennsla hefst 13. janúar. Skírteini afhent 10. janúar (föstudag) kl. 16-19. Fjölbreytileg kennslutæki, m.a. segul- og mynd- bönd. Nýjar kennslubækur í þýsku og frönsku. 20% afsláttur fyrir hjón, systkini, öryrkja og ellilíf- eyrisþega. Starfsmenntunarsjóður ríkisstofnana veitir félags- mönnum námsstyrki. -26908 L26908. VISA HALLDÓRS IVlij jl TjwiV ER NÝ18 MÁNAÐA SPARIBÓK Metbók er ný sparibók með sömu ávöxtunarkjörum og 18 mánaða sparireikningur, sem gaf 7,04% vexti umfram verðtryggingu á síðasta ári. _ Enginn annar sparireikningur gaf jafnháa ávöxtun miðað við binditíma. metbók 'SV' 'N ’ S'A«/Br) K A ^Auáft^/JViv BÍNAÐARBANKJNN TRAUSTUR BANKI HELGARPÓSTURINN 31

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.