Helgarpósturinn - 09.01.1986, Side 32
harðduglegur í viðskiptunum og
hafi náð undraverðum árangri á því
sviði. En hann er jafnframt „á réttri
hillu" í félagslífinu og kann að um-
gangast fólk. Ef til vill nægir þar að
nefna að Ómar er meðlimur í „fín-
asta“ karlaklúbbi landsins, Frímúr-
arareglunni. Hann á sæti í Sánkti
Jóhannesar stúkunni Gimli í Reykja-
vík og fundar þar í fínum fötum með
engu ómerkari mönnum en til að
mynda Alberti Gudmundssyni,
fyrrverandi fjármálaráðherra og
Erlendi Einarssyni, stjórnarfor-
manni SÍS og bankaráðsformanni
Samvinnubankans (viðskiptabanka
Þýsk-íslenska). Þarna eru einnig
olíufurstarnir Önundur Ásgeirs-
son og Vilhjálmur Jónsson, Ebe-
nezer Ásgeirsson forstjóri,
Ragnar Önundarson, bankastjóri
Iðnaðarbankans, Helgi Pétursson,
ritstjóri Tímans og fleiri þekkt nöfn
er að finna þarna úr viðskiptalífinu,
svo sem Jón Rafn Guðmundsson,
Jósef Hartmann Sigurösson,
Karl Guðmundsson (faðir Hólm-
fríðar), Barði Friðriksson (VSÍ) og
Bruno Hjaltested (SÍS). Um leið á
hann þarna samleið með Jónasi
Þóri Dagbjartssyni fiðluleikara,
sem er tengdafaðir Guðmundar
Þórðarsonar, fjármálastjóra Þýsk-
íslenska og Ragnari Jóhanni
Jónssyni, sem er mágur
Guðmundar og var kjörinn endur-
skoðandi Þýsk-íslenska að honum
forspurðum.. .
s
^^enn hður að lokum skilafrests
vegna prófkjörs Alþýðuflokksins
fyrir borgarstjórnarkosningar í vor,
en hann rennur út 14. janúar næst-
komandi. Samkvæmt flugufregnum
mun von á framboði frá Bjarna P.
Magnússyni, Sigurði Guðmunds-
syni, Sjofn Sigurbjörnsdóttur,
Viðari Scheving, Jóni Baldri Lor-
ange, Erni Karlssyni, Guðríði
Þorsteinsdóttur, Maríönnu Frið-
jónsdóttur og jafnvel formanns-
frúnni Bryndísi Schram. Hins vegar
er aldrei að vita nema fleira fólk
bætist í hópinn „vegna fjölda áskor-
ana", eins og það heitir á þessum
vettvangi...
H
Hér er saga úr sjónvarpinu:
Sjónvarpsstarfsmenn héldu mikið
glöggpartí fyrir jól og var mjöður-
inn eitthvað sterkt blandaður því
allmargir starfsmenn kipptu hraust-
lega og slógu mjög um sig er líða tók
á kvöldið. Þegar gleðin tók að
magnast datt nokkrum þeirra í hug
að nú væri rétti tíminn til að hefja
fjöldasöng og stakk einn þeirra upp
á að náð yrði í píanó svo hægt væri
að leika undir. Ruku menn af stað og
niður í stúdíó og hugðust bera hljóð-
færi upp. Tókst ekki betur en svo að
starfsmennirnir misstu hljóðfærið
nokkrum sinnum á leiðinni og mun
það hafa verið sent í viðgerð eftir
veisluna. Hins vegar skildu lands-
menn hvorki upp né niður í frétta-
flutningi Ómars Ragnarssonar
næsta kvöld er hann fjallaði um
glöggdrykkjusiði íslendinga og
sagði þá blanda glöggið sterkum
drykkjum en slíkt tíðkaðist ekki
annars staðar. Varaði Ómar eindreg-
ið við slíkum blöndum. Hins vegar
munu þynnkulegir starfsmenn sjón-
varpsins hafa skilið sneiðina. . .
liins og margir eflaust vita, er
húsnæðið undir stórversluninni
Glæsibæ, öðru nafni skemmtistað-
urinn Glæsibær, í eigu Leikfélags
Reykjavíkur eða Borgarleikhússins.
Nú er Leikfélagið að ganga frá sölu
á þessu húsnæði. Kaupandi er ríkið
sem hyggst nota kjallarahúsnæðið
undir starfsemi Áfengisverslunar-
innar. Er ÁTVR einkum að hugsa
um að búa sig undir bjórsöluhús-
næði þegar bjórfrumvarpið kemst
loks í gegnum Alþingi. Þótt fasta-
gestir Glæsibæjar komi til með að
sakna „Æðahnútsins" eins og gár-
ungarnir kalla staðinn, geta þeir þó
huggað sig við að þarna rísi bjórsala
ríkisins.. .
Þvottovélin
8ára
' or komin oftur
og vorðið or ótrúlogt:
23.900.- kr
og jonóorkjörin:
5000 - kr. útborgun
og oftirstöðvornor
á ollt oð 6 mánuðum.
Vörumarkaðurinnhl.
Nú fœst Ora-rauðkál í nýjum og betri umbúðum.
32 HELGARPÓSTURINN