Helgarpósturinn - 06.08.1987, Side 4

Helgarpósturinn - 06.08.1987, Side 4
YFIRHEYRSLA nafn: Vilhjálmur Egilsson staða: Framkvæmdastjóri Verzlunarráðsins og formaður SUS heimilishagir: Kvæntur Ragnhildi Pálu Ófeigsdóttur, 3 börn bifreið Ek um á Dodge K '82 heimilisfang: Sólvallagata 51 áhugamál. Stjórnmál í víðum skilningi laun: Nóg til að lifa af Illa haldið á Deningamálunum eftir Friðrik Þór Guðmundsson myndir Jim Smort Verzlunarráð íslands hefur gagnrýnt fyrstu aðgerðir ríkisstjómarinnar. Ráðið talar um þenslu, 20—30% verðbólgu og hættu á sundmngu á vinnumarkaðinum. I stjórnamiyndunarviðræðunum sendi ráðið þingmönnum „minnisatriði" starfs- hóps á þess vegum, skipuðum 9 ungum mönnum af hægri væng stjórnmálanna. Álitsgerð ráðsins nú bendir til þess að hin nýja ríkisstjórn hafi ekki tekið mikið mark á minnisatriðum starfshópsins. Hér i yfirheyrslu er Vilhjólmur Egilsson, fyrr- um hagfræðingur VSÍ, núverandi framkvæmdastjóri Verzlunarráðsins, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. — Verzlunarráðið sendi minnisatriði 9 manna starfshóps, álitsgerð um horf- urnar í efnahagsmálunum, til þing- manna þegar stjórnarmyndunarviðræð- ur voru í algleymingi. Er vaninn að reyna að hafa slík áhrif á stjórnarmynd- un? „Já, ég held að flestir sem hafa áhuga á stjórnmálum, hvar í flokki sem þeir standa eða hjá hverjum þeir vinna, reyni að hafa áhrif á þróun mála. Ég tel það mjög eðlilegt." — ÁHtsgerðin, sem fjallar um þenslu, sundrungu á vinnumarkaðinum og aukna verðbólgu, ber mjög keim af trún- aðarplaggi starfshópsins til þingmanna. Var alls ekkert farið að ykkar ráðum? „Minnisatriði starfshópsins voru á ábyrgð hans sjálfs og voru ekkert trúnaðarmál, allir þingmenn fengu þessi minnisatriði send og það sem þingmenn fá er venjulega ekki trún- aðarmál. En þetta álit Verzlunarráðsins nú er að sjálfsögðu í samræmi við hitt eins og ástæða þótti til, Verzlunarráðið skiptir ekki um stefnu á örfáum vikum. Verzlunarráðið tekur undir þessa þróun í frjálsræðisátt sem er í stefnuyfirlýsingunni, en hins vegar var í minnisblöðum starfshópsins frá því í vor var- að mikið við skattahækkunum, sem nú eru komnar fram sem fyrsta skref ríkisstjórnar- innar til að eyða fjárlagahallanum á þremur árum. Áhrifin eru líka að koma í Ijós þessa dagana og þau eru óheppileg." — I starfshópi Verzlunarráðsins voru meðal annarra þú, Þórarinn V. Þórarins- son frá VSÍ, Ólafur Davíðsson frá iðnrek- endum og Sigurbjörn Magnússon, starfsmaður þingflokks Sjálfstæðis- flokksins. Hvað fékk akkúrat þessa menn saman í hóp? „Ég held að þessi hópur eigi í sjálfu sér margt sameiginlegt, fyrst og fremst þó auð- vitað áhugann á því að huga að þessum mál- um og gera eitthvað í málunum. En þetta eru líka félagsmenn í Verzlunarráðinu." — Þarna eru menn frá samtökum vinnuveitenda, sem tala drjúgum um þensluáhrif á verðbólguhraðann. Verða þessi áhrif rakin til annars en kjara- samninga vinnuveitenda og launþega í vetur og kosningayfirlýsinga fráfarandi stjórnarflokka? „Ef þú spyrð um þensluáhrifin sem nú eru' í gangi, þá eru þau að sjálfsögðu að hluta til vegna þess að ekki hefur verið tekið nægi- lega vel á peningamálunum á undanförnum árum, en að sumu leyti erum við líka að tala um góðærisverki, vegna þess hversu vel hef- ur gengið í sjávarútveginum, sem fært hefur mikla tekjuaukningu. Þetta er kannski meg- inskýringin. Kjarasamningarnir sem gerðir voru meðan ég var hagfræðingur hjá Vinnu- veitendasambandinu eru heid ég ekki skýr- ing á þenslunni, þeir hafa verið hóflegustu samningar sem gerðir hafa verið í langan tíma, samningar sem þó hafa jafnframt gert mest fyrir láglaunafólkið í nánast allri samn- ingasögunni!" — Þensla, sundrung, verðbólga, góð- ærisverkir. Er verið að undirbúa launa- fólk undir kaupmáttarskerðingu? „Þvert á móti. Við leggjum einmitt áhersiu á nauðsyn þess að það séu hagvöxtur og tekjuaukning í þjóðfélaginu. Við erum að benda á að það þurfi að nást utan um ríkisút- gjöldin og takmarka skattahækkanir einmitt til þess að hægt sé að halda kaupmættinum uppi. Það er okkar markmið." — Ýmislegt í álitsgerðinni þykir orka tvímælis, t.d. sú fullyrðing að „hin mikla vaxtaniðurgreiðsla á lánum Bygginga- sjóðs ríkisins stefni framtíð nýja hús- næðislánakerfisins í hættu“. Þetta er kerfi sem þið í VSÍ tókuð þátt í að setja á laggirnar. Er ekki hrun kerfisins miklu fremur gróft vanmat ykkar og annarra á húsnæðisþörfinni, samanber nær þre- falt fleiri umsóknir en gengið var út frá? „Ég átti sem hagfræðingur VSÍ á sínum tíma þátt í að koma þessu kerfi á laggirnar. Það sem átt er við með vaxtaniðurgreiðslu er einfaldlega það, að hún kostar peninga. Og eftir því sem hún er meiri þá kostar hún meiri peninga. Ef þessi niðurgreiðsla minnk- ar ekki verður úr mikil byrði fyrir ríkissjóð. Þetta sjá allir. Húsnæðislánakerfið er annars engan veginn hrunið og kerfið komið til að vera. En það ríkir mikil bjartsýni hjá ungu fólki í þjóðfélaginu, menn vilja byggja og endurnýja. Það er allt á fullu á bygginga- markaðinum. Þetta jafnar sig út held ég, það verða engir erfiðleikar að fjármagna það sem áætlað var í þetta. En ef hins vegar á að setja meiri pening í þetta, til að byggja allt að þrefalt fleiri íbúðir á ári en gert hefur verið, þá er ekki verið að gera neinum greiða, því þá hækkar mjög verðið á nýju húsnæði. Það er best að þetta fái að síga inn með þeim hætti sem hefur verið gert. Nú er allt á fullu og erfitt að ná í iðnaðarmenn. Hvernig ætli þetta yrði ef ætti að fara að hella í þetta miiij- örðum króna í viðbót?" — Svartsýnin hjá Verzlunarráðinu, tal- ið um sundrungu og aukna verðbólgu. Er Vilhjálmur varaþingmaður Sjálfstæð- isflokksins og formaður SUS jaífn svart- sýnn og Vilhjálmur framkvæmdastjóri Verzlunarráðsins? „Þessi svartsýni er ekki hið eina sem kem- ur fram í plaggi Verzlunarráðsins. Við sjáum fram á vissa erfiðleika og það er ekkert öðru vísi en allir aðrir sjá sem eitthvað hafa fylgst með stjórnmálum — það sjá allir fram á að ríkisstjórnin þarf að glíma við mörg mjög erf- ið vandamál. Með þessu áliti er fyrst og fremst verið að draga fram þessi vandamál. Ég held að ríkisstjórnin geti náð árangri, en hún verður að taka á honum stóra sínum, það sjá allir. Verzlunarráðið sér — og það sjá allir — að þessir nýju skattar leiða til verð- hækkana og þá er spurningin hvort það leiði til kauphækkana og aftur til verðhækkana — að þannig komi aftur til víxlhækkana verð- lags og launa. Það er engin þjóðarsátt um skattahækkanir en jafnframt eru uppi kröfur á ríkið um aukin útgjöld. Það er ekki létt að eiga við þessa hluti og lygi að halda öðru fram og Verzlunarráðið óskar ríkisstjórninni velfarnaðar við að leysa þessi erfiðu vanda- mál." — í kjallaragrein í DV á þridjudag kemur áberandi fram að þú hefðir frem- ur kosið að fá samstjórn Sjálfstæðis- flokks, Alþýðuflokks og Alþýðubanda- lags en núverandi stjórnarmynstur. Liggur vandinn kannski í Framsóknar- flokknum? „Nú erum við náttúrulega að tala um mína persónulegu skoðun um æskilega ríkisstjórn og það er mín skoðun en ekki Verzlun- arráðsins. Ég tel vissulega að Framsókn hefði mátt fá frí, en þvi miður reyndist ekki vera raunhæfur kostur fyrir hendi án þátt- töku Framsóknarflokksins og því fór sem fór.“ — Hinir ungu álitsgjafar líta mjög til niðurskurðar ríkisútgjalda og söíu rík- isfyrirtækja og eigna. Þetta er mjög í anda stefnu ungra sjálfstæðismanna um árabil um „báknið burt“ — með löngum tillögulista í þessa áttina. Fátt eitt hefur gerst í þessa veru þótt Sjálfstæðis- flokkurinn hafi verið fjögur ár í stjórn með lykilráðuneytin og nú bólar ekki á slíkum tillögum, þótt bæði Þorsteinn og Friðrik séu komnir í ráðherrastól. Eru ungir sjálfstæðismenn ekki orðnir lang- þreyttir og vondaufir? „Það má segja sem svo að þessi barátta fyrir minni ríkisumsvifum og lækkun ríkisút- gjalda, þessi stöðuga barátta við tregðulög- málin, sem eru ótrúlega lífseig og sterk, að hún gangi hægt og árangurinn sé lítt sjáan- legur. Hins vegar má segja varðandi síðustu ríkisstjórn að ríkisútgjöldunum hafi verið haldið nokkuð í skefjum, þótt sumt hafi gengið illa en annað betur. Ég held að það verði ekki undan því vikist hjá hinni nýju stjórn að taka á hlutunum og treysti ég Þor- steini og Friðriki manna best til að sjá til þess að eitthvað gerist í þeim efnum." — En var ekki aðstaða flokksins til þessa betri í síðustu stjórn, hann með lykilráðuneyti og lagði upp með langan ríkissölulista? „Þá gerðist það í fyrsta skiptið síðan ég fór að fylgjast með pólitík að ríkið beinlínis seldi fyrirtæki og hlutabréf í öðrum fyrirtækjum. Eg held að þróuninni hafi verið snúið við hvað þetta snertir. En auðvitað var þetta bara fyrsta skrefið og auðvitað er ég jafn óþolinmóður og margir aðrir hvað það varð- ar hversu hægt þessu miðar." — Þú ert á förum úr formannsstól Sambands ungra sjálfstæðismanna. Þeir Árni Sigfússon og Sigurbjörn Magnús- son hafa deilt hart um stólinn og ekki vandað kveðjurnar. Er þetta hegðunar- mynstur deilna og klofnings óhjákvæmi- legt hjá sjálfstæðismönnum? „Ég tek ekki undir þessa lýsingu á kosn- ingabaráttu þeirra vina minna Sigurbjörns og Árna. Það er mjög eðlilegt að það sé kosið á milli manna í SUS, sem er stærsta stjórn- málasamband ungs fólks í landinu. Þar hefur ekki verið kosið reyndar á milli manna frá því Jón Magnússon var kjörinn formaður fyr- ir um 10 árum og því kominn tími til má segja. Ég sé ekki að þessi kosning sé klofn- ingur innan okkar raða.“ — Nú hefur hins vegar Sjálfstæðis- flokkurinn klofnað svo um munar með stofnun Borgaraflokksins, sem aftur hefur stofnað Félag ungra borgara. Haf- ið þið misst marga félaga yfir til þeirra? „Ég hef ekki orðið var við miklar úrsagnir hjá okkur og enn eru allir forystumenn okk- ar unglingahreyfingar innan okkar raða. Ég efast þó ekki um að margir sem starfa innan Borgaraflokksins hafi áður starfað innan Sjálfstæðisflokksins og séu ungir sjálfstæðis- menn í hjarta sínu. Ég vona að þeir sjái sig um hönd og komi aftur til starfa hjá Sjálf- stæðisflokknum."

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.