Helgarpósturinn - 06.08.1987, Blaðsíða 9
greiddan með þeim hætti.
Þarna erum við kannski komin að
ástæðunum fyrir rekstrarhallanum.
Það var ákvörðun fyrrverandi
bankaráðs og mín að reyna að
stækka bankann svo hann væri bet-
ur í stakk búinn að mæta kröfum
nýju laganna. Auk áhrifa frá háum
innlánsvöxtum voru afskriftir á ár-
inu hærri en áður, vegna nýrra
tækja sem óumflýjanlegt var að
taka í gagnið. Það var hins vegar trú
okkar að áhrif af þessu hefðu lagst
af meiri þunga á rekstur bankans á
síðasta ári en á komandi árum. Við
stefndum að því að bankinn yrði
orðinn öflugur þegar aðlögunartími
laganna rennur út árið 1991.“
VERKALÝÐSHÖLLIN Á
AKUREYRI DÝR
Pað hefur einnig veriö talaö um
rangar fjárfestingar?
,,Að sumu leyti eiga fjárfesting-
arnar rætur sínar að rekja til þess-
arar stækkunar á bankanum. Við
trúðum því að til þess að stækka
bankann þyrfti að fjölga afgreiðslu-
stöðum. Sú fjárfesting sem réttmæt-
ast er að gagnrýna er útibú bankans
á Akureyri. Bankaráðið leit hins
vegar þannig á, að það væri félags-
legt verkefni að taka þátt í byggingu
hins stóra húss, eða hallar, verka-
lýðsfélaganna þar. Þetta hús reynd-
ist síðan mjög dýrt og Alþýðubank-
inn á engu minni sök en aðrir í því.“
Hvaö meö útlánin?
„Bankaeftirlitið gerði ekki at-
hugasemdir við útlán bankans í síð-
ustu reglubundinni athugun sinni á
bankanum, utan útláns til eins aðila.
Bankaeftirlitið gerði athugasemdir
við tryggingar bankans og þær hafa
nú verið lagfærðar. Þetta er stór að-
ili sem þarf mikið fé. En eins og ann-
ars staðar í bankakerfinu getur ver-
ið erfitt að eiga við slíka aðila. Aðrar
bankastofnanir vilja ekki lána þeim
sem eru í viðskiptum hjá okkur. Það
vill því oft verða svo að bankar sitja
uppi með erfiða viðskiptavini. Fyrir
utan þennan tiltekna aðila gerði
Bankaeftirlitið engar athugasemdir
við útlán bankans."
LAUNAFÓLK STENDUR
EKKI UNDIR HÆSTU
VÖXTUM
Þú hefur haft orö á þér fyrir aö
taka betur á móti venjulegum
launaþrœlum en aörir bankastjór-
ar. Áttu von á því aö þeir hafi tapaö
þessu skjóli í kjölfar þeirra breyt-
inga sem standa yfir í bankanum?
„Það er rétt að við höfum reynt að
láta bankann standa undir nafni.
Þetta er banki launafólks. Hann var
stofnaður til þess að auðvelda því
aðgang að bankakerfinu. Þó mikið
hafi breyst síðan held ég að því hlut-
verki sé ekki að fullu lokið. Við höf-
um því reynt að ganga ekki hart að
launafólki og haft útlánsvexti til
þess lága. Venjulegt launafólk
stendur ekki undir hæstu útláns-
vöxtum. Við töldum því rétt að
reyna að græða á öðrum viðskipt-
um. Ef það er hins vegar stefna nú-
verandi bankaráðs að bankinn eigi
fyrst og fremst að skila hagnaði af
allri starfsemi sinni, þá hljóta önnur
sjónarmið að ráða en þau sem ríkt
hafa.“
Áttuö þú og fyrrverandi bankaráö
í einhverjum samskipataöröugleik-
um? Var eitthvaö sem gaf tilefni til
aö cetla að þú heföir ekki hlítt
ákvöröunum hins nýja bankaráðs?
„Nei. Ég vil að það komi skýrt
fram að ég átti afskaplega góð sam-
skipti við fyrrverandi bankaráð og
sakna þess góða og heiðarlega
fólks. Ég átti líka mjög góð sam-
skipti við allt starfsfólk bankans.
Eina skýringin sem ég hef fengið á
því frá bankaráðinu að þeir treysti
sér ekki til að vinna með mér er sú,
að skoðanir okkar Ásmundar Stef-
ánssonar fari ekki saman.
HLÝTUR AÐ VERA VOND
ÁKVÖRÐUN
Ég þykist hins vegar vita að nú-
verandi bankaráð ætli að framfylgja
annarri stefnu í málefnum bankans
en ég hef tekið þátt í að móta. Það
má því kannski segja að ég sé að
sumu leyti heppinn. Ég þarf ekki að
taka þátt í því að rífa niður eigin
verk. En að sjálfsögðu ber ég enn
hlýjan hug til bankans."
Pú varst bankastjóri Alþýöu-
bankans í ellefu ár. Hvernig tilfinn-
ing er það aö hverfa frá störfum
meö þessum hœtti?
„Það skapast að sjálfsögðu eins
konar tómarúm hjá mér, eins og ég
hafi misst góðan vin. En ég lít með
þakklæti til þessara ára og þess fólks
sem ég fékk að starfa með. Eins og
ég sagði áðan ber ég hlýjan hug til
bankans og ég er þakklátur fyrir að
hafa fengið að taka þátt í uppbygg-
ingu hans.“
Nú hefur bankaráöinu og banka-
stjóranum veriö bolaö út á stuttum
tíma. Hvaöa áhrif heldur þú aö
þetta hafi á bankann?
„Banki er ekki bara hús. Banki er
samansafn af viðskiptasambönd-
um. Þau hafa byggst upp á mörgum
árum og eru oft bundin ákveðnum
persónum. Það hlýtur því að vera
vond ákvörðun að skipta svona út
allri yfirstjórn bankans á einu
bretti.“
ÍSLAND DÝRASTA LAND í HEIMI?
eftir Jónínu Leósdóttur
SEX FLOSKUR I BELGIU
FYRIR EINA Á ÍSLANDI!
Samanburður ó verði leiddi í Ijós að hægt er að kaupa 17 ófengisflöskur í Belgíu, tæplega
15 ó Bretlandi og um 9 í Danmörku fyrir útsöluverð 5 flaskna fró ÁTVR. í Belgíu fóst og sex
lítrar af „alvöru'' bjór fyrir sama verð og þrír lítrar af pilsner ó íslandi.
Margir íslendingar, sem dvalið
hafa erlendis og vanist þar á að
nota létt vín í meira mæli en tíðk-
ast hefur hér á landi, hafa verið
argir út í neyslustýringuna hjá
Áfengisverslun ríkisins. Léttar vín-
tegundir hafa nefnilega löngum
þótt óeðlilega dýrar á Islandi og í
litlu samræmi við það, sem menn
þekkja frá útlöndum. í könnun
okkar á verði víntegunda meðal
nokkurra nágrannaþjóða kom líka
í ljós, að þetta er engin ímyndun:
Við fengjum sex Martíníflöskur í
Belgíu, rúmlega fimm á Bretlandi,
þrjár í Danmörku og tvær í Sví-
þjóð fyrir verð einnar á íslandi.
Svipaða sögu er að segja um
Liebfraumilch-hvítvín. Fyrir verð
einnar slíkrar flösku á Islandi fást
landi, tvær og half í Danmörku og
tvær í Svíþjóð.
Það er þó ekki þar með sagt, að
sterkari drykkir hafi verið beinlín-
is ódýrir í „ríkinu”. Smirnoff-vodk-
inn er hér á þreföldu verði miðað
við Belgíu, rúmlega tvöföldu mið-
að við Bretland og í Danmörku
fæst ein og hálf slík flaska fyrir
eina á íslandi.
Þó bjór fáist auðvitað ekki enn
hér á landi gátum við ekki stillt
okkur um að kanna verðið á þeim
eftirsótta miði, fyrst áfengir drykk-
ir voru til umfjöllunar. Niðurstaða
þeirrar athugunar var m.a. sú, að
á íslandi kaupum við 3 lítra af
óáfengum pilsner fyrir sama verð
og Belgar kaupa 6 lítra af „alvöru"
bjór! Allir vita hve mikil verðmæti
felast í íslenskri tungu og það á
greinilega einnig við um hið
þrykkta orð. Hvergi kosta dagblöð
nokkuð í námunda við það, sem
þau gera hér á landi. Danmörk
kemst næst okkur, en þó eru dag-
blöð þar helmingi ódýrari en á Is-
landi, og það er athyglisvert að sjá
verðið á prentmálinu á Bretlands-
eyjum. Það þekkist heldur ekki
annars staðar en hér, að síðdegis-
blöð séu dýrari en morgunblöð.
Hvernig sem á því stendur.
Vasabrotsbókin „First Among
Equals" eftir Jeffrey Archer var að
sjálfsögðu ódýrust í framleiðslu-
landinu, Bretlandi. Um 6 krónur
bætast við verðið þegar hún er
komin yfir Ermarsund til Belgíu,
en við ferðalagið til Islands bætt-
ust 166 krónur við hverja kilju.
Verðlaginu á Newsweek en hins
vegar viljandi haldið á sem líkustu
róli, eins og fram kemur á forsíðu
þess í viku hverri. Þar reyndist ís-
lenska verðið vera næstlægst, sem
gerði þetta erlenda tímarit að ljósa
punktinum í könnuninni að þessu
sinni. Hvort það er þyrstum ís-
lendingum nægileg huggun er
hins vegar fremur ólíklegt!
Það hefur löngum verið vinsælt meðal ríkisstjórna hér
á landi að hækka verð á áfengi, enda eru íslendingar
þess fyllilega meðvitaðir, að dropinn frá ÁTVR er dýr-
mætur. En að hann væri jafndýr og fram kemur í sam-
anburðarkönnun HP á verði áfengis í nokkrum
Evrópulöndum hefur eflaust fáa grunað. Munurinn er
t.d. töluvert meiri en fram kom í könnunum okkar á
verði mjólkurafurða og hreinlætisvarnings í júlímán-
uði. Og var hann þó verulegur...
fjórar í Belgíu, þrjár og hálf á Bret-
Verö i íslenskum krónum
'V ísland Belgía Bretland Danmörk Svíþjóö
Smirnoff-vodka 75 cl 1220 383 463 770 969
Martini^dry) 1 I. 850 142 159 276 433
Remy Martin VSOP 2090 921 1088 1952 2498
Liebfraumilch 75 cl 370 90 105 149 187
MUMM-kampavín 1100 759 762 852 1228
6 {V: I) bjórdósir —- pilsner á islandi 378 190 205 252 412
1 pk. amerískar sigarettur 116 68 93 143 . 96
1 pk. innlendar/ódýrari sigarettur 108 59 88 140 81
1 eintak söluhátt morgunblað 50 20 16 25 24
1 eintak söluhátt eftirmiðdagsblað 55 20 12 > 25 21
1 eintak Newsweek 1 eintak ensk vasabrotsbók 80 96 75 88 90
(„First Among Equals'O e. J. Archer 1 384 224 218 276 403
HELGARPÓSTURINN 9