Helgarpósturinn - 06.08.1987, Qupperneq 12
eftir Jónínu Leósdóttur myndir Jim Smart
AMY ENGILBERTS LES IÍR UNDIRSKRIFT
RÁÐHERRANNA ELLEFU, SEM UM ÞESSAR
MUNDIR HAFA SETIÐ VIÐ VÖLD í EINN
MÁNUÐ
Amy Engilberts: „Einungis Stein-
grímur, Halldór og Jóhann eru
verulega úthaldsgóö."
HEITAR TILFINNINGAR
EN LÍTIÐ ÚTHALD
Pegar Jim Smart var aö festa nýju
rikisstjórnina á filmu í Rádherra-
bústadnum fyrir mánudi tók hann
líka mynd af opinni gestabók, sem
þar var. Við fórum með Ijós-
myndina til Amy Engilberts, sem
las ár skriftinni ýmislegt athyglis-
vert um ráðherrana ellefu.
Þad er ekkert nýtt, aö menn hafi
áhuga á skrift og því, sem úr
henni má lesa. Hér á landi er þó
engin hefð í þeim fræðum eins og
meðal margra annarra þjóða, t.d. í
austurlöndum og víða á megin-
landi Evrópu. Þar starfa rithandar-
sérfræðingar hjá mörgum stór-
fyrirtækjum, jafnvel líka hjá hinu
opinbera, og veita starfsmanna-
stjórum ráðgjöf við ráðningar. Rit-
handarlestur hefur þar að auki
verið notaður árum saman tii að
ganga úr skugga um persónuieika
tilvonandi starfsmanna bandarísku
leyniþjónustunnar, CIA. Og sagt er,
að Rússar beiti þessum fræðum
óspart á skrift vestrænna ráða-
manna, hvað sem til er í siíkum
staðhæfingum.
Þeir, sem trúaðir eru á rithandar-
lestur, segja að í skrift manna
komi ýmislegt upp á yfirborðið;
t.d. hvað við hræðumst, hve ákaft
við þráum að komast áfram í
lífinu, langanir okkar og draumar
og helstu persónueinkenni. Og
það eru ekki upp til hópa furðu-
fuglar eða sígaunar, sem halda
þessu á loft. Menn eins og Goethe,
Arthur Conan Doyle og Edgar
Allan Poe voru t.d. allir áhuga-
samir um rithandarlestur, og
fræðin eru kennd við ýmsa viður-
kennda skóla, svo sem London
herranna ellefu. Það skal þó tekið
fram, að undirskriftin ein segir
ekki alla söguna um viðkomandi
einstakling og þess vegna verður
persónulýsingin í mjög grófum
dráttum. Ef vel á að vera þarf rit-
handarsérfræðingurinn að hafa
svo sem eina síðu af rituðum texta
frá ýmsum tímaskeiðum persón-
unnar.
Pað er athyglisvert, að Amy segir
fimm ráðherranna vera afskaplega
tilfinningaríkar persónur: Stein-
grím Hermannsson, Birgi ísleif
Gunnarsson, Friðrik Sophusson,
Jón Baldvin Hannibalsson og Jó-
hönnu Sigurðardóttur.
Einungis þrír ráðherrar teljast
hins vegar úthaldsgóðir og þraut-
seigir. Það eru þau Steingrímur,
Halldór og Jóhanna. Matthías Á.
Mathiesen kemst þó nálægt þeim
hvað þetta varðar, en ekki jafnaf-
dráttarlaust og þremenningarnir.
Lítum þá á umsögnina, sem ríkis-
stjórnin fékk hjá Amy Engilberts:
Ríkisstjórn íslands. Amy Engilberts athugaði fyrir Helgarpóstinn hvaö undirskrift
ráðherranna gæfi til kynna um þeirra innri mann.
School of Economics (LSE) og
fleiri.
Amy Engilberts lærði í Frakklandi
að lesa úr rithendi fólks. Við
sýndum Amy myndina af gesta-
bókinni í Ráðherrabústaðnum og
báðum hana að segja okkur hvað
hún læsi úr skrift nýju ráð-
ÞORSTEINN PÁLSSON:
Þorsteinn hefur flókna skrift. Hún
bendir tii að hann sé á varðbergi
gagnvart öðru fólki, allvarkár og
lokaður persónuleiki. Hann er
mjög drífandi þegar starfið er
annars vegar, en heldur öðrum frá
sér. Þessi tilhneiging Þorsteins til
að vernda sig fyrir umhverfinu
getur valdið því, að hann reynist
erfiður í samstarfi.
STEINGRÍMUR HERMANNSSON:
Steingrímur er tilfinningamaður.
Hann er bjartsýnn að eðlisfari og
nokkuð jafnlyndur. Honum hættir
hins vegar stundum til að sýna
mikla þrjósku.
BIRGIR ÍSLEIFUR GUNNARSSON:
Birgir ísleifur er viðkvæmur og
tilfinningaríkur maður. Hann er þó
afar varkár í tilfinningamálum og
verður að teljast lokaður persónu-
leiki. Mikið jafnaðargeð einkennir
einnig Birgi Isleif.
JÓN SIGURÐSSON:
Jón vinnur hratt og gefur sér
lítinn tíma til að slaka á, enda
liggur honum líka töluvert á.
Hann er framkvæmdasamur
maður, sem metur starf sitt og
stefnu í lífinu framar öllu öðru.
FRIÐRIK SOPHUSSON:
Friðrik hefur klassíska skrift. Hann
er tilfinningaríkur, næmur og afar
íhaldssamur maður. Friðrik hefur
mjög mikla tilhneigingu til að láta
undan, þegar til lengdar lætur.
Baráttuhugurinn fjarar sem sagt
auðveldlega út.
GUÐMUNDUR BJARNASON:
Guðmundur er lokaður persónu-
leiki og svolítið tvískiptur. Hann er
mjög hrifnæmur og gæti verið list-
rænn. Það hentar honum best að
fara diplómatískar leiðir og sýna
varkárni fremur en hörku. Þetta
gæti bent til þess að hann væri
allsveigjanlegur í samstarfi. Guð-
mundur er sáttfús maður að eðlis-
fari.
JÓN BALDVIN HANNIBALSSON:
Jón Baldvin er maður tilfinning-
anna, sem hann lætur oft stjórna
sér um of. Hann er fullur hug-
sjóna, næstum byltingarsinni, en
skortir úthald. Þó er hann vinnu-
samur og snöggur og liggur mikið
á. En fullfljótfær og skortir nauð-
synlega þolinmæði og biðlund.
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR:
Jóhanna hefur úthaldið, sem Jón
Baldvin skortir. Hún er sjálfri sér
samkvæm, trú hugsjónum sínum
og kemur til dyranna eins og hún
er klædd. Valdabarátta á afar illa
við hana, því Jóhanna er enginn
refur. Hún er mjög tilfinningarík
hugsjónamanneskja, sem hefur
bæði þrjósku og seiglu til að fylgja
baráttumálum sínum eftir.
Þannig rituðu ráðherrarnir ellefu nafnið sitt í gestabók Ráðherrabústaðarins þann 8. júlí síðastliðinn.
MATTHÍAS Á. MATHIESEN:
Matthías er flókinn persónuleiki,
hrifnæmur og örgeðja. Hann
leggur mikið upp úr því að
komast áfram í lífinu og lætur
ekki undan fyrr en í fulla hnefana.
Matthías getur líka búið yfir tölu-
verðu úthaldi, ef því er að skipta.
JÓN HELGASON:
Jón er hefðbundin persóna. Hann
er varkár og allþrjóskur. Skap-
mikill er hann, en trygglyndur.
Jón Helgason hefur trúlega verið
þreyttur eða á annan hátt illa fyrir
kallaður, þegar hann skrifaði
nafnið sitt í gestabókina.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON:
Halldór er mjög viljasterkur og
ákveðinn maður, en getur verið
svolítið þrjóskur. Hann er fram-
kvæmdasamur og drífandi, en
stundum fljótfær. Það skiptir
Halldór miklu máli að komast
áfram í lífinu og honum hættir til
að byrgja tilfinningar sínar inni.
12 HELGARPÓSTURINN