Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 06.08.1987, Qupperneq 14

Helgarpósturinn - 06.08.1987, Qupperneq 14
EKKI HÆGT AÐ TALA UM „SAMKYNHNEIGÐA KRISTNA MENN#/ TRÚFÉLÖGIN GAGNRÝNA SAMÞYKKT PRESTASTEFNUNNAR UM EYÐNI eftir Onnu Kristine Magnúsdóttur Á prestastefnu sem haldin var í Borgarnesi í júnímán- uði bar það meðal annars til tíðinda að samþykkt var ályktun varðandi eyöni. Þar var skorað á alla kristna menn, gagnkynhneigöa sem samkynhneigða, að sýna ábyrgð í kynlífi sínu. Þessi ályktun var samþykkt samhljóða af tugum presta, en ekki voru allir sammála því að orðið samkynhneigð væri nefnt í samþykkt frá prestum. Meðal þeirra sem mót- mæltu opinberlega var Gunnar Þorsteinsson hjá Krossin- um, en hann skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið fyrir rúmri viku. Helgarpósturinn fór þess leit við Gunnar að hann skýrði sín sjónarmið nánar á síðum HP og við Ieit- uðum einnig til fleiri aðila og spurðum um viðhorf þeirra til samkynhneigðar og eyðni. um. „Allt lauslæti og saurlifnaður er í eðli sínu andstætt góðum viija Guðs með manninn og honum til tjóns. Þegar á fyrstu öld hvöttu post- ularnir nýkristna menn til hrein- leika og að forðast allan saurlifnað hverju nafni sem hann nefndist og þar var kynvilla ekki undanskilin. Eftir að menn tóku trú á Krist áttu þeir að leggja af hinn gamla mann sem spilltur var af tælandi girndum eins og Nýja testamentið orðar það. Þessi hvatning var bæði siðferðisleg og trúarleg. Sem slík var hún ekki til að forða mönnum frá því að fá kyn- sjúkdóma en það var hins vegar ef- laust bein afleiðing hennar. Ungt fólk með hlutuerk sem er leik- mannahreyfing innan þjóðkirkjunn- BRÝTUR í BÁGA VIÐ VILJA GUÐS „Kristin kirkja hefur aðeins eina viðmiðun, þ.e. Jesúm Krist og hans orð,“ sagði Halldór Lárusson hjá Trú og lífi. „Biblían hefur alltaf staðist í gegnum aldirnar og stendur enn fyrir sínu sem rödd inn í mannlegt samfélag. Jafn víst og náttúrulög- málin eru, þá eru andleg lögmál virk. Andleg lögmál sem Guð hefur sett til verndar og leiðsagnar fyrir manninn. Við vitum að ef farið er gegn náttúrulögmálum, þá er voð- inn vís og á sama hátt ef andleg lög- mál eru brotin, þá býður það hætt- unni heim. Samkvæmt Biblíunni er samkynhneigð kölluð kynvilla og er röng, til dæmis Rómverjabréfið I. voru fyrir 2000 árum?“ Þetta sagði Björn Ingi hjá Veginum þegar HP leitaði álits hans á ályktun presta- stefnunnar. „í dag standa aldagamlar siðferð- isstoðir íslensks þjóðlífs höllum fæti. Miklar umræður hafa verið um ýmis mál, sem tengjast siðferði, og nú síð- ast ber hæst umræðuna um ályktan- ir síðustu prestastefnu. Langar mig þar að drepa á tvö atriði, annars vegar réttmæti hjónavígslunnar og hins vegar hvort hægt sé að viður- kenna kynvillu sem eðlilegan þátt mannlífsins eða hvort hún er synd. Siðgæðismat fólks er margvíslegt og fer eftir því á hvaða grunni siða- reglurnar eru byggðar. íslendingar hafa byggt siðgæðismat sitt á kristn- „Það er ekkert til sem heitir „kristinn kynvillingur" eða „krist- inn samkynhneigður maður,“ sagði Gunnar. „Annað hvort er maðurinn samkynhneigður eða kristinn, hann getur aldrei verið hvort tveggja á sama tíma. Kynvilla er myrkur, kristindómur er Ijós. Þessu tvennu er aldrei hægt að blanda saman. Það er alveg sama hvað prestastefn- an segir, þarna er verið að lastmæla orði Guðs. Það er því alveg ljóst frá okkar sjónarhóli að kynvilla er óguðlegt fyrirbæri. Kynvilla er dæmd af Guði og það segir afar ljós- lega í orði Guðs að þetta er Drottni viðurstyggð. í Biblíunni eru þessir menn kallaðir mannbleyður og mannhórar (I. Korintubréf, 6. kafli, 9. vers). En Páll talaði líka til manna sem eitt sinn voru kynvillingar en höfðu leyst undan því böli.“ — En boðar ekki kristin trá að maður skuli elska náunga sinn? Er hœgt að fordœma á sama tíma? „Við eigum sannarlega að elska þetta fólk og okkar kærleikur kem- ur fyrst og fremst fram í því að við bendum því á að það sé að ganga í villu. Þeir eru á vegi sem endar í vegleysu. Það er enginn kærleikur að klappa þessu fólki á öxlina og segja að allt sé í lagi. Okkar kærleik- ur er fólginn í því að vara fólk við og beina því inn á rétta braut og inn á lækningu. Þvi það er til lækning við þessu. Þetta fólk á að leita Guðs, láta frelsast, losna undan þessu böli og ganga um eins og kristið fólk.“ — Hvert er viðhorf ykkar til eyðni? „Við trúum því eins ojg segir í Mattheusi 28. Jesú segir: Eg hef allt vald á himni og jörðu. Ef hann hefur allt vald, þá hefur hann allt vald. Það gerist ekkert án vitundar eða vilja Guðs. Við erum að ræða um hnignunareinkenni i siðrænu þjóð- félagi. Kynvillan er þar eitt stærsta einkennið og barnaklámið annað. Við verðum sterklega vör við þetta í íslensku samfélagi í dag. Þetta er að koma upp á yfirborðið núna og ég er sannfærður um að það er aukning á þessu. Þessi sáning sem hefur átt sér stað inn í þjóðfélagið á undanförnum árum er að skila sér. 14 HELGARPÓSTURINN Gunnar Þorsteinsson Án þess að við höfum tekið eftir því er þetta net að leggjast yfir okkur. Við erum að fjötrast í þessum við- bjóði sem heitir barnaklám og kyn- villa og hjá alltof mörgum er þetta eins og sjálfsagður hlutur. Ég tel að skýringin á allri þessari hnignun sem við sjáum nú í okkar þjóðfélagi sé þessi sáning. Hér er búið að hella yfir þjóðina „rusli" á myndböndum og það kemst ekki í neinn samjöfn- uð við nokkurn hlut sem þjóðin hef- ur séð frá því saga hófst. Þessi sán- ing skilar sinni uppskeru, það er engin spurning. Þessa uppskeru er- um við að fá í hendurnar í dag. Það er enginn kærleikur að benda ekki fólki á að það sé að fara veg sem endar í vegleysu. Þótt það kosti óþægindi að vera hreinskilinn við fólk þá er það kærleikur. Og þar missti prestastefnan algjörlega marks. Þeir halda að með því að setja plástur yfir skítinn sé verið að gera fólki gott.“ VAFASAMT AÐ TALA UM „SAMKYNHNEIGÐA, KRISTNA MENN" „Frá upphafi hafa Kristur og kristin kirkja hvatt til trúfestu í hjónabandinu," sagði Friðrik Schram hjá „Ungu fólki með hlut- verk“ þegar HP leitaði álits hjá hon- Friðrik Schram ar vill hvetja alla til að lifa í hrein- leika, forðast kynmök utan hjóna- bands og alla ótrúmennsku í hjóna- bandinu. Við vitum að ýmsir eru haldnir samkynhneigð — til skamms tíma hafa þeir verið kallað- ir kynvillingar. Það orð skýrir sið- ferðilegt mat manna á fyrirbærinu. Kynvillingar geta vissulega snúist til trúar og orðið góðir, kristnir menn, enda er Guð miskunnsamur og fús að fyrirgefa en slíkt fólk getur ekki eðlis trúarinnar vegna haldið áfram að iöka kynvillu sína. Um það eru orð Biblíunnar afar skýr og að okk- ar mati er því afar vafasamt að tala um „samkynhneigða, kristna rnenn". Ef menn afsaka saurlifnað, leggja stund á hann og hvetja aðra til að gera það sama þá lítilsvirða þeir orð Guðs og geta ekki kallað sig kristna menn, það væri hræsni. Við dæmum engan sem fengið hefur eyðni og ekki er það okkar að segja hann syndugri en aðra, allir menn eru breyskir og syndga þótt ekki sé það ásetningur þeirra að óhlýðnast Guði, en Guð er ríkur af miskunn þeim til handa sem iðrast. Það á við um alla þá sem hrasað hafa á hinu siðferðilega sviði, líka samkyn- hneigða. Innan kristinnar kirkju eiga þeir sér — sem og allir syndarar — góða viðreisnarvon." Halldór Lárusson 26—27. Hún er röng vegna þess að hún brýtur í bága við vilja Guðs og hún er röng vegna þess að hún bind- ur og fjötrar þá sem ánetjast henni. Kynvilla er þvi nokkuð sem kristið samfélag getur aldrei samþykkt. Þvert á móti ber kirkjunni að boða kraft Krists til lausnar frá kynvillu sem og annarri synd, því það er lausn að finna. Eyðni er sjúkdómur sem rekja má til kynferðislegs siðleysis. Ekki svo að skilja að Guð ákveði að smita nú af eyðni vegna rangs lífernis ein- hvers, heldur hitt, sem áður er rætt, að andlegu lögmálin eru í fullu gildi. Þú uppskerð eins og þú sáir. Upp- lausn, kynferðisafbrot, eiturlyf, kynvilla og siðleysi eru afleiðingar stöðugrar undanlátssemi og frá- hvarfs frá Kristi og hans orði. Við verðum því að rísa upp og boða nýja tíma afturhvarfs og þar á kirkjan að ganga í fararbroddi." KYNVILLA ER RÖNG „Hvað er rétt og hvað er rangt? Er til eitthvert „norm“, einhver sann- leikur hvað varðar almennt sið- ferði? Er siðferði ef til vill afstætt og breytist með tíðaranda samfélagsins hverju sinni? Eru orðin, sem meist- arinn frá Nazaret sagði og Biblían flytur okkur, jafn gild í dag og þau um grunni, þ.e. Biblíunni. Oft er erf- itt að leiða fólk í allan sannleikann um innihald siðgæðisboða Biblí- unnar, þegar trú þess á Guð og krist- indóminn er fjarlæg. Guð býður okkur að lifa eftir boðum sínum en neyðir engan til þess. Samt eru orð Krists i Biblíunni jafn gild í dag og þau voru fyrr, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Þar breytir engu hvort við verslum með Guðs orð, þ.e. reynum að útþynna það okkur í hag. 1 dag heyrum við að hjónaskilnað- ir séu eðlilegir, kynvilla ekki svo slæm og lauslæti og framhjáhald sé réttlætanlegt. Fjölmiðlarnir koma þessum boðskap á framfæri og finnst mér skörin vera að færast upp í bekkinn þegar sögur af fráskildum foreldrum eru hvað eftir annað efni barnatímanna í stað þess að börn- unum sé kennt að slíkt ástand sé óæskilegt. Á barnaheimilum má varla nefna nafn Jesú, hvað þá að börnunum sé kennt að rækta með sér trú á Jesúm Krist. Skólar lands- ins hafa dregið mikið úr kristin- dómsfræðslu (bænir í skólum löngu hættar), og taka í vaxandi mæli upp trúarbragðafræðslu. Menn blygðast sín jafnvel fyrir að tala um trúna á Jesúm, en kenna sig samt við hann og kalla sig kristna. Á meðan þessu öllu fer fram hefur þjóðkirkjan misst

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.