Helgarpósturinn - 06.08.1987, Blaðsíða 18

Helgarpósturinn - 06.08.1987, Blaðsíða 18
eftir Kristján Kristjánsson Innlent unglingaefni sjónvarps: Ovinsælasta efnið nokkur orö um könnun á sjónvarpsglápi barna og unglinga Ríkisútvarpib — sjónvarp lét ný- lega gera fyrirsig heljarmikla könn- un á því hvernig börnum líkar þad barnaefni sem þeim er bodiö upp á. I könnuninni kom heilmargt í Ijós, bœöi það sem margir þóttust vita fyrir og eins margar athygliverðar nýjar niðurstöður. Sú athygliverð- asta án efa sú hvað innlent ungl- ingaefni er óvinsœlt. Hér verður þó ekki farið djúpt í þessa könnun, lát- iö nœgja að byggja á henni lauslega litla grein sem gæti flokkast undir almenna hugvekju að kristilegum sið, um glápið og gagnið sem hafa má af því. I — ALMENNT GLÁP Börn og unglingar horfa mikið á sjónvarp. Þetta er fullyrðing sem engum ætti að koma á óvart. Sér- staklega þegar tekið er tillit til þess að það er sjónvarpstæki á öllum heimilum. Aðeins 0,5% þeirra sem spurðir voru í könnuninni hafa ekki sjónvarp á sínu heimili. Og tæp 60% hafa myndbandstæki á heimilinu. t'að þarf þó ekki endilega að fara saman að eiga sjónvarp og horfa á það en það er alveg ljóst þegar þessi könnun er skoðuð að sjónvarp er ekki keypt sem stofustáss. Það er keypt til að vera notað. Þannig horf- ir aðeins um 1% barna sjaldan eða aldrei á sjónvarpið á meðan að 7 af hverjum 10 horfa alltaf eða oft. Þetta segir manni ofur einfaldiega að börn og unglingar sitja fyrir framan skjáinn og horfa og horfa. Þau gera þá ekki annað á meðan, enda hefur það löngum verið haft á orði að sjónvarp sé einhver besta barnapía sem foreldrar geta ráðið sér. Þess hafa enda sést dæmi nú í seinni tíð. Allir skemmtistaðir fullir af fólki sem á afruglara af því að það er svo auðvelt að setja bara börnin niður fyrir framan imbann ef þynnkan er að drepa mann, barna- efni allan daginn og engar áhyggjur. Vesalings greyin, hafa sjálf ekki rænu á því að kúka og pissa af því það er svo spennandi í sjónvarpinu, geta ekki borðað fyrir Jenna, drukkið fyrir Tomma. II - ALMENNT GLÁP EN Á HVAÐ? Það er helgistund þegar Fyrir- myndarfaðir er á skjánum. Öll fjöl- skyldan situr límd við að horfa á hversdagslega atburðarás, krydd- aða bröndurum úr munni föðurins, eða til að sjá hann bíða lægri hlut i rökræðum við konuna eða krakk- ana. Það hefur komið fram í könn- unum áður sem sjónvarpið hefur látið gera að allir horfa á þessa fyrir- myndarfamilíu. Börnin ekki síður. Þetta er þeirra uppáhaldsefni, jafn- vel 3—6 ára börn hafa gaman af, svo gaman að flest þeirra horfa oft eða alltaf. Hinsvegar nennir ekki nokk- ur krakki að horfa á íslenskt barna- efni; Rokkarnir geta ekki þagnað, Unglingarnir í frumskóginum, Stóra stundin okkar — þetta eru bara foj þættir og mega missa sín. Skipa þrjú efstu sætin þegar börnin eru spurð hverju þau telji að eigi að sleppa — jafnvel Geisli, menningarþáttur með dáldlu ,,við erum kúlturklíkan á stallinum" -ívafi, má sín einskis í þessari óvinsældakönnun. Það er auðvitað Ijóst strax að þarna hefur Hrafni og félögum skotist. Það sem þeir eru að gera er bara dæmt sem ullabjakk og leiðinlegt af þeim sem eiga að horfa á það. Og skórinn farinn að kreppa niðr’á sjónvarpi. Búið að vera að reyna að framleiða barnaefni, oft með harmkvælum, af því það eru ekki til nógir peningar og af því að enginn nennir að vinna þar fyrir ónóg laun. Svo nenna börnin bara ekkert að vera með og fara í fýlu þegar kemur íslenskt efni. Kannski er skýringin bara sú að það stenst ekki samkeppnina, ekkert gaman að horfa á fúsk, jafnvel þó það sé á móðurmálinu. III - ALMENNT GLÁP OG LANDAMÆRALEYSAN Það er þetta með íslenskuna. Allir foreldrar urðu fegnir þegar ákveðið var að setja íslenskt tal á barnaefni en það er ekkert víst að börnin hafi endilega verið jafn fegin. Þau þurfa enga tungumálakunnáttu til að skilja myndirnar á skjánum, mynd- málið er alþjóðlegt og þarfnast engra skýringa. Og það er ekkert jafn asnalegt og að horfa á varir hreyfast í alit öðrum takti en það sem eyrað nemur. Það er truflandi, passar ekki saman frekar en þegar Bjarni Fel, úr litlum klefa ofan af Laugaveginum, er að reyna að færa bikarstemmningu af Wembley inn í stofur á íslandi. Það dettur engum í hug að börn, frekar en aðrir, gleypi við svo einföldu trikki, bara að setja íslenskt tal og þá er efninu reddað. Kannski er það jafn ómerkilegt, kannski ómerkilegra. Enda setja börnin það ekki hátt að auka barna- efni með íslensku tali — þau vilja hinsvegar fá meira af alíslensku efni og þá væntanlega af allt öðrum toga en það sem hingað til hefur verið borið á borð fyrir þau. Kannski er það líka bara misskiln- ingur í fullorðna fólkinu að börn séu fávitar og hafi bara gaman af létt- meti. Kannski hafa börn og ungling- ar bara lítið gaman af einhæfu músíkefni og aulabröndurum í bland. Það virðist að minnsta kosti vera svo, því það sem þeim finnst helst vanta í sjónvarpið sitt eru dýra- og náttúrulífsmyndir og fræðsluefni ýmiskonar. Kemur kannski flatt upp á dagskrárgerðarmenn sem hingað til hafa lagt metnað sinn í að klippa saman músíkmyndbönd. IV-ALMENNT GLÁP OG GAGNIÐ SEM HAFA MÁ AF ÞVÍ Það dettur engum heilvita manni í hug að segja að sjónvarp sé slæmt í sjálfu sér. Það væri það sama og segja að öil okkar menning væri einskis virði. Það stendur nefnilega í lærðri grein einhvers staðar að við séum nú þegar búin að framselja í hendur sjónvarpsins allt sem er bita- stætt í okkar menningu. Stjórnmál- in, ekki dettur neinum lengur í hug að hafa umræður í útvarpi, alveg vonlaust að sjá ekki fólkið sem er að tala og horfa á það reiðast og ergja sig. Trúmálin, messan á sunnudög- um alveg steindauð og búin að vera í hálfa öld enda þeir sem raunveru- lega trúa á Jesúm Krist búnir að sjá að hann getur ekki lengur, blessað- ur, staðið fyrir utan sjónvarpið, ekki seinna vænna að dubba hann upp og draga í beina útsendingu í gegn- um útvalda sendla hans hér á jörð. Upplýsingin í heild sinni orðin marklaus í hugum fólks nema að myndin komi með talinu og ef til vili er það líka farið að snúast við. Börnin líka búin að læra inn á þetta og finnst sniðugt að segja já við skólasjónvarpi, vitandi að sjón- varp er til margra hluta nytsamt. Sjá ekki annað en að kennsla í gegnum sjónvarpið sé ídeal. Þau eru líka löngu búin að skilja að í öllu efni sem þar fer í gegn er ákveðin af- þreying og þau geta bara alls ekki fundið neitt slíkt í úreltum kennslu- bókum skólakerfisins. Skólasjón- varp verður í þeirra augum lausnin á vandanum, losna við leiðindin en læra samt. Fullorðnir skrifa upp á þessa formúlu í þeirri von að þetta sé það sem koma skal og hér í heimi vefengja menn ekki þaö sem koma skal nema vera nöldrarar og niður- rifsseggir. V — ALMENNT GLÁP Á AUGLÝSINGAR Auglýsingar eru eitthvert athyglis- verðasta efni sem sjónvarp sýnir. Það finnst öllum, iíka börnum. Það er fátt í sjónvarpsdagskránni sem höfðar jafnmikið til þeirra og aug- lýsingar. Nú má auðvitað til sanns vegar færa að stór hluti auglýsinga sé íslenskt efni en það bara hjálpar sjónvarpinu lítið því það gerir ekki auglýsingar. Það bara sýnir þær. Og allir vita að auglýsingar hafa áhrif, sjónvarpsauglýsingar fnest. Allir vita líka að auglýsingar eru bara draumur um betra líf á tuttugu sekúndum í lit, með penu brosi og kurteislegu kynferðislegu ívafi. Veruleikinn er ósjaldan jafn brengl- aður og í auglýsingum, satt að segja er hann ekki brenglaður, hann er miklu frekar á hvolfi. Veruleiki Tomma og Jenna er ekki brenglað- ur miðað við veruleika auglýsinga en samt dettur engu guðhræddu foreldri í hug að setja börnin í bað þegar auglýsingarnar eru, allir þurfa að læra að segja það með blómum eða verða nýir menn með Jovan. Þannig hefur miðiliinn sjáifur misst stjórn á því sem hann er að sýna — það gildir einu hvort hann reynir að byggja upp einhverja áreiðanlega heimsmynd hjá barni, með því að ota að því hversdagsleg- um myndum úr lífi annarra barna, kannski fátækum. Það sér hvort sem er strax það sem segir í textan- um: Lífið í litum og sinemaskóp, allt gengur betur með kók. Hvada efni viltu fella nidur? Háskaslódir Geisli Poppkorn Nilli Hólmgeirs Spznskukennsla Úr myndabókinni Á framabraut Ungl. í frumsk. Stóra stundin Rokkarnir Fjöldi 18 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.