Helgarpósturinn - 06.08.1987, Blaðsíða 19
Dagbókin hennar Dúllu
Kæra dagbók!
Þetta var nú meiri verslunar-
mannahelgin, maöur. Það skrítna
er, að aðalafleiðingin af djamminu
er sú, að ég er hætt við að fara í
hjúkrun eftir menntó. (Ef Guð lofar,
7-9-13 og allt það...) Ég þurfti nefni-
lega að redda svo mörgum, sem
voru veikir af brennivíni eða höfðu
meitt sig einhvern veginn út af fyll-
eríinu. Bömmerinn! Það voru alltaf
manneskjur ælandi eða skælandi í
kringum mann og þegar enginn
annar skipti sér af þessu fannst mér
endilega að allir ætluðust til að ÉG
gerði eitthvað í málunum. Ég var
bara á kafi í að þrífa upp ælu og
hreinsa sár og svo brotnaði meira-
segja handleggur á strák í næsta
tjaldi! Þá hélt ég nú að hún Dúlla
litla hennar mömmu sinnar myndi
fá áfall... Þetta var opið brot, alveg
ferlega ógeðslegt, og Bella og Krist-
ín hlupu bara öskrandi út í buskann.
Strákarnir voru fullir og tóku þetta
ekkert alvarlega, svo ég þurfti að
drusla gaurnum niður í sjúkraskýli.
Alein! Eg er viss um að honum hefði
blætt út, ef ég hefði ekki verið
þarna. Það þýðir hins vegar ekkert
að monta sig af björgunarafrekinu
hérna heima, því gömlu hjónin
myndu missa vitið ef þau heyrðu
minnst á fyllerí. (Ég sagði auðvitað
að krakkarnir, sem ég var með,
hefðu verið bláedrú. Og náttúru-
lega líka litli engillinn þeirra með
vængbroddana, sem voru bókstaf-
lega til vandræða innan klæða!) En
núna lít ég bara á björtu hliðarnar
og er guðsfegin að hafa séð hvað
það getur verið vidbjódslegt að
hjúkra fólki.
Ég skil hins vegar ekkert í því af
hverju ég tek það alltaf til mín, þeg-
ar eitthvað þarf að gera! Ég meina
það. Þetta er einhver breinglun
(brenglun... breynglun?? Æ, þessi
stafsetning...) Það er bara svo erfitt
fyrir mig að segja NEI. Sérstaklega
við mömmu og pabba, af því að
maður á helst að hlýða foreldrum
sínum. Og ömmu á Einimelnum, af
því að hún er nú svo gömul. (Það
þarf nú kannski að takast til endur-
skoðunar fyrst hún er svo spræk að
geta gift sig og allt!) Svo reynir mað-
ur auðvitað að gera það sem maður
getur fyrir vinkonur sínar. En þá er
bara enginn tími eftir fyrir mig
sjálfa.
Þetta er ekkert grín, heldur mjög
alvarlegt vandamál. Það geta nefni-
lega orðið ferlegar flækjur úr því,
þegar maður segir JÁ við alla og
hlutirnir fara að stangast á. T.d. þeg-
ar ég er búin að lofa að fara í bíó
með mömmu (af því að hún er með
bíó-sýki út af óléttunni og pabbi
borgar mér fyrir það) og að fara í
hjólatúr með Bellu framhjá húsinu
þar sem Óli sæti á heima. Þá versna
málín, maður! Ég hef nú heyrt, að
þetta sé sjúkdómur. Og það eru til
námskeið fyrir fólk, sem vill læra að
segja nei. Stebba systir á enska bók
um svoleiðis. Hún heitir „Don’t say
yes when you want to say no’’ og er
örugglega frábær, en ég má ekki fá
hana lánaða. Það var einhver spes
gæi, sem gaf Stebbu bókina, og þess
vegna er hún heilög. Eða kannski er
hún bara búin að læra svona vel að
segja nei?
Ég verð að skreppa í síðustu inn-
kaupin fyrir ömmu í bili. Hún og
kallinn eru að fara í brúðkaupsferð
til Ibiza eftir helgina. Mamma segir
að þar sé allt fullt af brjóstaberum
stelpum og það sé brjálæði af ömmu
að fara innan um svoleiðis sam-
keppni. Ég held hún sé bara öfund-
sjúk af því að pabbi nennir ekki einu
sinni með hana til Vestmannaeyja.
Bless, Dúlla.
PS Þegar ég er búin að komast í
bókina hjá Stebbu ætla ég að byrja
á því að neita að fara út í búð fyrir
ömmu. Nú á hún ogeðslega leiðin-
legan kall og það fylgdi bíll með
honum. Hvers vegna á ég þá að
hætta lífinu fyrir hana í öllum veðr-
um? Ég bara spyr.
ÓDÝR
OG
HAGKVÆM
VIÐARVÖRN
SEM
ENDIST
KJÖRVARI er hefðbundin viðarvöm
og til í mörgum litum. Ef einkenni
viðarins eiga að halda sér, er best að
verja hann með Kjörvara.
Ódýr viðarvörn 1
Smokkur
Hann gœti
reddad þér
ip
GEGN EYÐNI
r
Pú ættirað leggja nýja póstnúmerið
vel á minnið svo þú getir notað það
næst þegar þú sendir bréf í h verfið.
Með því móti sparast tími og fyrir-
höfn og þú flýtir fýrir sendingunni.
PÓSTUR OG SÍMI
KRINGLUNNI 103 REYKJAVÍK
Mundu nýja póstnúmerið 103
og fyrir pósthólf 123.
Nýtt pósthús.
f* að er fleira nýtt á þessum slóðum.
x Pann 13. ágúst nk. opnum við nýtt
póstútibú í Kringlunni. Það verður í vist-
legu umhverfi og mun veita alla alm-
enna póstþjónustu auk póstfaxþjónustu
Afgreiðslutíminn verður virka daga frá
kl. 8.30 til 18.00. Við bjóðum þig vel-
komin í nýja póstútibúið okkar.
Ný söludeild
5amhliða nýja póstútibúinu munum
við opna söludeild í Kringlunni. í
söludeildinni verða á boðstólum fjöl-
margar tegundir vandaðra símtækja
og annarbúnaður tengdur síma. Auk
þess mun söludeildin veita símnotend-
um alla þjónustu varðandi nýja síma
og flutning á símum.
OG NÆSTA NAGRENNI HEFUR
FENGIÐ PÓSTNÚMERIÐ 103
<
‘cn
HELGARPÓSTURINN 1L